Morgunblaðið - 17.06.2004, Page 27
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 27
w
w
w
.c
lin
iq
ue
.c
om
www.lyfja.is
Lyfju Lágmúla og Smáratorgi á morgun kl. 13-17
Lyfju Smáralind laugardag kl. 13-17
Lyfju Laugavegi þriðjudag kl. 13-17
Lyfju Spöng miðvikudag kl. 13-17
Lyfju Garðatorgi fimmtudag kl. 13-17
Colour Surge Bare Brilliance
Nýjir varalitir með sindrandi gljáa.
Áferð þeirra líkist silki þegar þeir eru bornir á varirnar.
Láttu sérmenntaða ráðgjafa Clinique stækka sjóndeildarhring
þinn.
Oft þarf ekki nema lítilræði til að töfra fram bros.
Ráðgjafi frá CLINIQUE verður í Lyfju:
100% ilmefnalaust
ÓHÆTT er að segja að alþjóðlegur
blær svífi yfir vötnum á veit-
ingastaðnum Vegamótum Bistró &
Bar því í eldhúsinu á þeim bæ
starfa m.a. sex kokkar, sem allir
eru af erlendu bergi brotnir. Þeir
koma frá Spáni, Hondúras, Banda-
ríkjunum og Frakklandi og hafa
tekið með sér eitt og annað frá
heimahögunum í matargerðina.
Vegamót, sem er alhliða kaffi- og
veitingahús og bar á kvöldin og um
helgar, stendur við Vegamótastíg 4
og tekur um 120 manns í sæti inni
auk þess sem sætisrými er fyrir
fjölda manns í útiporti á góðviðr-
isdögum sem margir viðskiptavin-
anna nýta sér. Veitingastaðurinn
hefur verið starfræktur undanfarin
sex ár og er í eigu Hauks Víð-
issonar, matreiðslumeistara.
„Við erum með mjög fjölbreyttan
matseðil, allt frá súpum, hamborg-
urum og samlokum upp í pasta, sal-
öt, heilsu- og kjötrétti. Satay-
kjúklingasalatið okkar er hins-
vegar langvinsælast meðal okkar
viðskiptavina og oftast pantað.
Þetta er austurlenskt salat með
hnetusósu, kjúkling og grænmeti
og kostar hjá okkur 1.190 krónur,“
segir Óli Már Ólason, vaktstjóri á
Vegamótum.
Hádegin eru gjarnan mikill anna-
tími á veitingahúsinu, en þá er auk
sérréttamatseðils boðið upp á rétti
dagsins, sem yfirleitt eru fisk-
réttur, kjúklingaréttur og samloka.
Með þessum réttum fylgir súpa með
og er verðið í kringum eitt þúsund
krónur.
„Hjá okkur starfa svo sérstakir
tapas-kokkar frá Spáni sem taka að
sér að útbúa tapas fyrir veislur,“
segir Óli Már.
Satay-kjúklingasalat
(fyrir sex)
Sex kjúklingabringur, skornar í
strimla, kryddaðar með salti og pip-
ar og steiktar á pönnu.
Salatblanda í poka að eigin vali.
Sósa
1 dós kókosmjólk
1 bolli salthnetur
½ ferskt chili
2 msk. sítrónugras, fínt saxað
5 hvítlauksgeirar
salt eftir smekk
2 msk. soyasósa
1 bolli púðursykur
1/2 búnt coriander
3 lauf kaffírlime (fæst í aust-
urlenskum búðum)
kanelduft á hnífsoddi
1/2 paprika, smátt skorin
fennelduft á hnífsoddi
1/2 rauðlaukur smátt skorinn
cayenne pipar á hnífsoddi
Allt hráefnið, sem á að fara í sós-
una, er sett saman í pott ásamt
tveimur dl af vatni og soðið í hálfa
klukkustund.
Í lok suðutímans er maukað eilít-
ið með töfrasprota, sem er með
hnífi á endanum og saxar niður
hneturnar og laukinn. Salatblönd-
unni er síðan skipt á sex diska og
kjúklingastrimlunum raðað ofan á.
Að síðustu er sósunni hellt yfir. Bor-
ið fram með hvítlauksnanbrauði.
VEGAMÓT|Matargerð í miðborginni
Satay-kjúklinga-
salatið langvinsælast
Kokkarnir og rekstrarstjórinn: Sergio Rodriguez Fernandez, Óli Már Óla-
son og Jose Garcia með kjúklingasalatið vinsæla.