Heimilistíminn - 21.03.1974, Síða 24
r á nýjan hátt
Mörgum börnum geðjast alls ekki að
bragöinu á lifur, þegar hún er borin
steikí á borð fyrir þau, en flest hafa
ekkert út á lifrarkjötbollur að setja,
og þá ekki fullorðnir:
1/2 kg svína- eða kálfalifur, hökkuð
einu sinni i hakkavélinni,ásamt 5—6
stórum kartöflum, hráum, og 2 lauk-
um. Þessu er hrært saman við salt og
pipar. Síðan er farsiö sett með mat-
skeið á pönnuna i brúnni feiti. Þegar
það hefur harðnað er auðvelt að snúa
þvl við.
Lifraarbollur má bera fram með sól-
berjasultu, hrásalati aða sultuöum
rauðrófum.
„Húsfeður"
latir að
verzla
FÆSTIR „húsfeður” eiga til nokkuð,
sem kallast frumkvæði, þegar um er
aö ræða innkaup til heimilisins. Enn er
það svo, að þessi hlið búskaparins til-
heyrir sviði húsmóðurinnar. Það er
hún, sem þarf að burðast með
vörurnar heim, taka á sig vandræði
vegna lokunartima búða og öll önnur
vandamál vegna innkaupanna.
En gæta verður alls réttlætis og
viðurkenna, að þetta er aðeins að
lagast með þátttöku karlmanna, að
iIeiðinni
vísu gengur það hægt. Gallup-skoð-
anakönnun, sem gerð var fyrir Neyt-
endasamtökin i Danmörknleiddi i ljós,
aö um það bil helmingur „húsfeðra”
skipti sér aldrei af innkaupum til
heimilis. Þeir hafa heldur ekki
minnstu hugmynd um, hversu geysi-
lega hinar daglegu vörur hækka, né
hvenær verzlanirnar eru opnar eða
lokaðar. Slikt getur hæglega leitt til
háværra orðaskipta heima fyrir,
þegar rætt er um heimilispeningana.
Sá helmingur eiginmanna, sem þátt
taka i daglegum innkaupum, gerir það
annað hvort með frúnni eða fer i
búðina með lista frá henni. Aðeins
sárafáir kaupa inn að eigin frumkvæöi,
og sýnir það, að ekki eru þaö margir,
sem eru vel inni i daglegu heimilis-
haldi sínu.
Þetta var sem sé útkoman yfir alla
Danmörku og liklega er þetta nokkuð
svipaö hér heima. En þegar Danir
tóku tillit til ýmissa hluta, svo sem
aldur hjóna og hvar þau búa, horfði
málið dálitið öðruvisi viö. Ungir eigin-
menn hafa ekkert á móti þvi að kaupa i
matinn, en þvi eldri sem eiginkonan
er, þeim mun meira þarf hún á sig að
leggja i þessu efni. Menntun hjónanna
hefur lika sitt að segja — þvi
menntaðri sem þau eru og i betri
stöðum, þeim mun meiri samvinna við
innkaupin. Ef konan vinnur úti, kaupir
maðurinn lika oftar inn, heldur en ef
hún gerir það ekki. Þá kom hið
athyglisverða i ljós, að þvi hærri
tekjur sem eiginmaðurinn hefur, þeim
mun áhugasamari er hann fyrir að
kaupa i matinn. Er þetta ekki ihug-
unarefni fyrir ykkur, eiginmenn
góðir?