Morgunblaðið - 12.09.2004, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2004 19
Sími 594 6000
Dísilvélar
Loftkældar dísilvélar frá Yanmar
3 til 10 Hö m/án rafstarts
Á.G. Bifrei›averkstæ›i
Kletthálsi 9
110 Reykjavík
Sími: 587 5544
Vi› óskum Bifrei›averkstæ›i Árna Gíslasonar
til hamingju me› n‡ja húsnæ›i›
Í N†TT OG GLÆSILEGT HÚSNÆ‹I A‹ KLETTHÁLSI 9
VI‹ ERUM FLUTT
Bifrei›averkstæ›i Árna Gíslasonar, sem er eitt elsta
réttingaverkstæ›i landsins, hefur flutt starfsemi sína
í n‡tt og glæsilegt húsnæ›i a› Kletthálsi 9 í Reykjavík.
Í tilefni fless bjó›um vi› 25 - 50% afslátt
af öllum vörum í verslun okkar
vikuna 13. - 19. september.
25 - 50%
afsláttur af öllum vörum í eina viku
OPNUNARTILBO‹
ka
ld
al
jó
s
20
0
4
BÍLAVERKSTÆ‹I BÍLALEIGA MOTORSPORT
Það er stundum sagt að allir „eigirétt á öðru tækifæri“, þegar
eitthvað hendir sem kemur fólki upp
að vegg.
Um daginn, þegar Þjóðminjasafn-
ið var opnað á ný eftir gagngerar
endurbætur, hitti ég Kúrda sem fyr-
ir mörgum árum
kom hingað land-
flótta og ofsóttur
og fékk hér hæli
fyrir tilstilli ráða-
manna sem hér
voru þá við völd.
Ég átti ásamt fleira
fólki þátt í að gera
tilveru hans hér
bærilegri meðan beðið var úrslita í
máli hans. Þegar ég hitti hann á
hinni virðulegu opnunarhátíð Þjóð-
minjasafnsins kom hann á móti mér
með þann svip á andlitinu sem ég
aldrei mun gleyma – geislandi svip
sem verulega óalgengt er að sjá
nema helst þegar langþráð börn fæð-
ast eða aðrir atburðir verða sem
marka djúp og gleðileg spor í líf
fólks. Það var ótrúlegt að sjá hvað
þessi maður hefur breyst frá því
hann kom hingað marghrjáður eftir
ofsóknir og útlegð – nú ber hann með
sér öryggi þess sem hefur komið sér
áfram af eigin rammleik, hann hefur
komið undir sig fótunum hér, eignast
gott heimili og myndarlega konu.
Hvers getur einn karlmaður óskað
betra sér til handa.
Það þarf mikinn styrk til þess að
byrja nýtt líf á framandi stað eftir
fangelsanir og pyntingar, útlegð og
öryggisleysi svo árum skiptir. En
mestu skiptir að þessum manni var
veitt tækifæri og hann notaði það
svona líka vel.
Til þessa manns beindust hugsan-
ir mínar þegar ég hitti á málverka-
sýningu á Kjarvalsstöðum konu sem
látið hefur til sín taka ýmis mann-
úðar- og umhverfismál.
„Mér finnst hræðilegt á horfa upp
á hvernig íslensk yfirvöld haga sér
gagnvart útlendingum sem hvergi
eiga höfði sínu að halla. Hjarta mínu
blæðir þegar verið er að reka útlent
fólk héðan, landflótta með lítil börn.
Hvers konar hugsunarháttur er
þetta eiginlega?“ sagði þessi kona.
Vafalaust hafa yfirvöld sem sjá um
þessi mál alls kyns rök á takteinum
þegar fólki, sem óskað hefur eftir
landvistarleyfi hér, er gert að yfir-
gefa landið. Ekki efast ég um það.
Og vissulega er misjafn sauður í
mörgu fé hvað útlendinga snertir,
rétt eins gerist og meðal Íslendinga
sjálfra. En að sjá mann sem hefur
verið ofsóttur og skelfdur breytast á
þann hátt sem ég lýsti hér að ofan er
ógleymanleg tilfinning. Ég vona að
sem flestir fái hér „annað tækifæri“
og þeir noti það eins vel og Kúrdinn
gerði, sem ég hitti á Þjóðminjasafn-
inu.
Það er reyndar eftirminnilegt að
sjá þær Þorgerði Katrínu Gunnars-
dóttur og Margréti Hallgrímsdóttur
taka á móti gestum í anddyri Þjóð-
minjasafnsins. Mér varð hugsað til
þess að líklega hefði verið óhugsandi
árið 1944 – þegar þjóðin gaf sjálfri
sér hús fyrir Þjóðminjasafn sitt í
morgungjöf – að menntamálaráð-
herra og þjóðminjavörður væru kon-
ur – þetta erum við þó komin áleiðis í
baráttunni við að konur og karlar
skipti á eðlilegan hátt með sér völd-
um og embættum í þessu samfélagi.
ÞJÓÐLÍFSÞANKAR / Eiga ekki allir rétt á öðru tækifæri?
Geislandi svipur
sem ekki gleymist
Eftir Guðrúnu
Guðlaugsdóttur
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið