Morgunblaðið - 12.09.2004, Side 36
UMRÆÐAN
36 SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-17
VALLARGATA 14 - SANDGERÐI
Góð 102 fm efri sérhæð á útsýnis-
stað í Sandgerði - nálægt Keflavík.
Íbúðin skiptist í forstofu, stiga, hol,
stórt eldhús með nýlegri innrétt-
ingu, stofu með útgengi á góðar
svalir, flísalagt baðherbergi og 4
svefnherbergi. Geymsluris er yfir
allri hæðinni. Húsið er í mjög góðu
ástandi og gefur mikla möguleika,
t.d. sem gistiaðstaða fyrir ferða-
menn o.fl. Söluyfirlit á netinu
www.lundur.is. TILBOÐ ÓSKAST.
Sími 533 4040
Fax 533 4041
Ármúla 21 • Reykjavík
kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA
jöreign ehf Opið mán.–fim.
frá kl. 9–18,
fös. frá kl. 9–17.
KJARRMÓAR - GARÐABÆR
Glæsilegt og mikið endurnýjað 160,0 fm
Endaraðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Vandað
hús og vel skipulagt með fallegu útsýni. Mjög góður garður í
suður, endurgerður með timburpöllum. Húsið er í göngufæri við
verslanakjarnann og örstutt í skóla. ATH. LAUS FLJÓTLEGA.
VERÐ 26,6 millj. Uppl. gefur Ólafur Guðm. s. 896 4090.
BÚAGRUND - KJALANESI
- LAUST STRAX
217,9 fm timburhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Húsið skiptist í
4 svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi, geymslu og þvottahús. Húsið
þarfnast aðhlynningar. Verð 18,5 millj.
Heimili fasteignasala - þinn hagur er okkar metnaður
Sími
530 6500
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson
löggiltir fasteignasalar
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
KRISTNIBRAUT 12
OPIÐ HÚS Í DAG
Glæsileg íbúð í lyftuhúsi með frábæru útsýni
Sérlega glæsileg, björt og stílhrein ca 103 fm íbúð á 2. hæð í mjög vel
staðsettu fjölbýlishúsi með lyftu í Grafarholti. Öll gólfefni og innréttingar
eru 1. flokks. Góðar svalir í suðvestur með stórkostlegu útsýni yfir Reykja-
vík og víðar. Húsið er sérlega vel staðsett við jaðarlóð og fékk nýlega
verðlaun fyrir fallegan frágang á lóð og umhverfi hússins. Verð 19,3 millj.
Gunnar og Halla Bára taka á móti fólki milli kl. 15 og 17 í dag.
Verið velkomin!
Berjarimi 28 - glæsileg 3ja herb.
íbúð með sérinngangi og bílskýli.
Opið hús í dag milli kl. 16-18.
Valhöll,
sími 588 4477
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Glæsileg, nýleg 85 fm endaíbúð (snýr
í suður) á 2. hæð í litlu 2ja hæða
fjölbýli, ásamt stæði í mjög góðu bíla-
húsi í kjallara. Frábær, barnvænn, ró-
legur staður innarlega í lokaðri götu.
Vandaðar innréttingar, gluggar í 3
áttir, fallegt útsýni, sérinngangur, yfir-
byggðar suðursvalir, þvottaherbergi í
íbúð, glæsilegt bað með sturtu og glugga. Parket o.fl. Verð 14,3 m.
Bergdís og Júlíus sýna í dag, sunnudag, milli kl. 16 og 18.
ÞÓRÐARSVEIGUR 20-24
GRAFARHOLTI
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal löggiltur fasteignasali
Erum að hefja sölu á 27 glæsilegum nýjum 3ja-4ra herbergja íbúðum í nýju fjölbýli á góðum stað
í Grafarholtinu. Annarsvegar er um að ræða hefðbundið 3ja hæða hús með sérinngangi af svöl-
um í allar íbúðir og hinsvegar 5 hæða lyftuhús með sérinngangi. Húsin tengjast saman á horni
og myndast skjólgóður garður aftan við hús. afh. í febrúar-mars 2005.
Íbúðirnar skilast fullbúnar án gólfefna með flísalögðum böðum. Innréttingar eru vandaðar, möguleiki
á nokkrum viðartegundum. Fyrsta flokks eignir. Traustur byggingaraðili: G.Á. Byggingar.
Allar nánari uppl. og teikningar á skrifstofu fasteign.is
RÆÐA Halldórs Ásgrímssonar
utanríkisráðherra á sjávarútvegs-
ráðstefnu Íslandsbanka á Ak-
ureyri hefur vakið
verðskuldaða athygli.
Það er þó ekki rétt
að túlka þessi um-
mæli ráðherrans sem
stefnubreytingu af
hálfu hans. Í sjálfu
sér er Halldór ekki
að segja annað en
það sem hann hefur
gert á undanförnum
árum og kom fram í
frægri Berlínarræðu
fyrir um tveimur ár-
um. Í hugum okkar
Evrópusinna er ráð-
herrann að skerpa á afstöðu ís-
lenskra yfirvalda þannig að yf-
irvöldum í Brussel og Ósló sé ljóst
hver stefna okkar er. Það má ekki
heldur gleyma því að samskipti
við Evrópusambandið bjóða upp á
fjölmörg tækifæri fyrir sjávar-
útveginn eins og miklar fjárfest-
ingar Samherja í evrópskum sjáv-
arútvegi sanna.
Yfirskrift ráðstefnunnar á Ak-
ureyri var ,,Hafsjór tækifæra“ og
má alveg túlka það sem áskorun
til íslenskra sjávarútvegsfyr-
irtækja að hætta þeim
heimóttarskap sem
hefur einkennt af-
stöðu þeirra til Evr-
ópusambandsins og
líta á vanþróaðan
sjávarútveg Evrópu
sem tækifæri til sókn-
ar fyrir íslensk fyr-
irtæki. Samherji hefur
tekið af skarið í þess-
um efnum og það er
athyglisvert að sjá
hvernig Þorsteinn
Már og félagar hafa
umbylt rekstri fyr-
irtækja sinna í Bretlandi og
Þýskalandi. Þeir hafa samið við
verkalýðsfélög sjómanna, hagrætt
í rekstri og snúið við áralöngum
taprekstri í arðbæran atvinnu-
rekstur. Þessi árangur hefur vakið
verðskuldaða athygli í Evrópu
enda var um langt árbil talið ein-
hvers konar náttúrulögmál að
sjávarútvegur gæti ekki staðið á
eigin fótum og þyrfti á nið-
urgreiðslum og umönnun rík-
isvaldsins að halda.
Ummæli Þorsteins Más Bald-
vinssonar á ráðstefnunni á Ak-
ureyri hafa hins vegar fallið nokk-
uð í skuggann af ummælum
Halldórs Ásgrímssonar. Í viðtali á
Stöð 2 sagðist Þorsteinn Már vera
nokkuð sáttur við sjávarútvegs-
stefnu Evrópusambandsins og að
Samherji stefni á að auka fjárfest-
ingar sínar innan Evrópusam-
bandsins. Í þessu samhengi er
vert að rifja upp ummæli norska
sendiherrans á fundi í Háskóla Ís-
lands fyrr á þessu ári. Þar sagðist
hann ekki alveg skilja þessa
hræðslu Íslendinga við sjáv-
arútvegsstefnu Evrópusambands-
ins því það væri miklu frekar Evr-
ópusambandið sem ætti að
hræðast vel rekinn sjávarútveg Ís-
lendinga!
Það er ljóst að sjávarútvegs-
stefna ESB er á margan hátt
meingölluð en hún er ekki alslæm
því varla væru Eyfirðingarnir
knáu að fjárfesta fyrir 2 ½ millj-
arð ef svo væri. Því má líta á
ræðu Halldórs Ásgrímssonar sem
ákveðið upphaf að nýjum þreif-
ingum gagnvart Evrópusam-
bandinu. Ráðherrann ítrekar þar
skoðun sína að endurskoða þurfi
þær reglur sem gilda varðandi
fjárfestingar útlendinga í ís-
lenskum sjávarútvegi. Hins vegar
sé það á hreinu að ákveðin að-
lögun þurfi að gilda um sjáv-
arútvegsstefnuna gagnvart
Íslendingum. Ráðherrann hefur
sagt að Evrópusambandið geti vel
tekið tillit til aðstæðna fisk-
veiðiþjóðanna við Norður-
Atlantshaf ef fyrir því sé pólitísk-
ur vilji. Halldór sagði í samtali við
Morgunblaðið á miðvikudaginn.
,,Það er hægt að semja um leiðir
sem báðir málsaðilar geta sætt sig
við og ég hef bent á þær. Það er
ljóst að undanþágur verða ekki
gerðar frá hinni sameiginlegu fisk-
veiðistefnu ESB, en það er hægt
að semja um ákveðin fisk-
veiðistjórnunarsvæði.
Hafsjór tækifæra
Andrés Pétursson fjallar um
ræðu utanríkisráðherra ’Það er ljóst að sjáv-arútvegsstefna ESB
er á margan hátt mein-
gölluð.‘
Andrés Pétursson
Höfundur er formaður Evrópu-
samtakanna.