Morgunblaðið - 05.10.2004, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.10.2004, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR EFTIR PER GUSTAVSSON MYNDABÓKÁRSINS SVONA GERA PRINSESSUR M Á T T U R IN N & D † R ‹ IN STÓRSKEMMTILEG OG FALLEG BÓK FYRIR PRINSESSUR OG PRINSA Á ALDRINUM 2-7 ÁRA STEFNURÆÐA Á ALÞINGI Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra segir í fyrstu stefnuræðu sinni að mikilvægt sé að takast á við end- urskoðun stjórnarskrárinnar en það sé verkefni sem aldrei hafi með full- nægjandi hætti verið leitt til lykta. Verkfall bitnar á börnum Félag íslenskra barnalækna lýsir yfir þungum áhyggjum af verkfalli grunnskólakennara og segir verk- fallið bitna hart á börnum landsins. Félagið skorar á deiluaðila að leysa málið nú þegar. Ný öld geimferða Bandaríska geimflaugin Space- ShipOne fór í gær út úr gufuhvolfi jarðar í annað skipti á fimm dögum. Þar með hafa framleiðendur ferj- unnar tryggt sér 10 milljóna dollara verðlaun sem heitið hafði verið hverju því einkafyrirtæki sem fyrst gæti sent flaug út í geiminn tvisvar á hálfum mánuði. Árangurinn þykir til marks um að ný öld geimferða sé fram undan, þar sem lögð verði áhersla á að gera venjulegu fólki kleift að fara út í geim. Bush enn með meira fylgi George W. Bush Bandaríkja- forseti hefur 51% fylgi meðal lík- legra kjósenda, skv. skoðanakönnun The Washington Post/ABC. John Kerry hefur hins vegar 46%. Nið- urstaðan úr skoðanakönnun Pew- fyrirtækisins er svipuð, þar hefur Bush 49% fylgi meðal líklegra kjós- enda en Kerry 44%. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 28 Fréttaskýring 8 Minningar 30/34 Úr verinu 13 Brids 35 Viðskipti 14 Dagbók 38/40 Erlent 15 Myndasögur 38 Minn staður 16 Víkverji 38 Akureyri 17 Staður og stund 40 Suðurnes 18 Menning 42/49 Austurland 18 Af listum 42 Landið 19 Leikhús 44 Daglegt líf 20/21 Bíó 46/49 Umræðan 22/29 Ljósvakar 50/51 Bréf 29 Veður 51 Forystugrein 26 Staksteinar 51 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull- trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl                                  ! " #        $         %&' ( )***                      MILLI 90 og 100 manns, félagar úr Félagi heyrnarlausra ásamt fleirum, komu saman í næðingnum framan við Alþingishúsið í gærkvöldi. Þar var mótmælt aðgerðarleysi stjórn- valda hvað varðar túlkaþjónustu heyrnarlausra. Mótmælendur báru spjöld og blésu í flautur til að vekja athygli á málstað sínum. „Félagsmenn vilja fá lög um rétt sinn til túlkaþjónustu,“ sagði Hafdís Gísladóttir, framkvæmdastjóri Fé- lags heyrnarlausra. „Það er ekki hægt að búa lengur við þetta óvissu- ástand. Heyrnarlausir geta ekki sinnt þeim hlutverkum sem þeir væru annars færir um, eins og að vera foreldrar eða stunda vinnu.“ Hafdís segir að heyrnarlausir hafi farið að fá synjun á endurgjalds- lausri túlkaþjónustu hjá Samskipta- miðstöð heyrnarlausra í vor á þeirri forsendu að peningar væru búnir. „Síðastliðin 12 ár hafa starfað fjórar nefndir sem allar hafa átt að finna lausn á því hver eigi að greiða fyrir túlkaþjónustu heyrnarlausra. Ríkisstjórnin hefur lagt fram tvær, þrjár, fjórar milljónir króna nánast árlega þegar félagið hefur vakið at- hygli á því að neyðarástand væri að skapast. Í mars í fyrra efndi félagið til mótmæla fyrir utan Alþingi og af- henti þáverandi forsætisráðherra áskorun um að tryggja þetta í lög- um. En ekkert hefur gerst.“ Morgunblaðið/Kristinn Mótmælendur báru spjöld og blésu í flautur til að vekja athygli á málstað sínum. Heyrnarlausir mótmæltu við Alþingi MIKIL óvissa ríkir hjá starfsmönnum hjá Slökkvi- liðinu á Keflavíkurflugvelli. Þremur starfsmönnum þar var sagt upp um mánaðamótin og 17 stöðugildi hafa verið lögð niður undanfarna þrjá mánuði. Engar fullnægjandi skýringar hafa verið gefnar á því af hverju sumum var sagt upp en öðrum ekki, segir Vernharð Guðnason, formaður Landssam- bands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS). Keflavíkurdeild Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna kom saman til fundar um uppsagnirnar og þann niðurskurð sem á sér stað á Keflavíkurflugvelli í gær. „Það sem er sérstaklega ámælisvert að okkar mati er með hvaða hætti mönnum er sagt upp hér. Það eru til lög um hóp- uppsagnir sem starfsmannahaldið hérna á vellin- um hefur gefið sig út fyrir að vinna eftir, en við er- um alveg ósammála því. Þeir uppfylla ekki þau lög nema að litlum hluta. Mannlegi þátturinn er ekki til í þessu umhverfi innan girðingar. Hér er vinnu- staðurinn meira og minna allur í uppnámi. Hér eru engar fastmótaðar reglur um hvernig þessum nið- urskurði er beitt, það er bara héðan og þaðan úr liðinu sem menn eru að fá bréf. Það veit enginn hvað verður í framhaldinu, það veit enginn hver verður næstur og þetta er óþolandi óvissa að búa við,“ segir Vernharð. Hann bendir á það að honum þyki það óviðeigandi að löggiltum slökkviliðsmönn- um, með mikla reynslu og menntun að baki, sé sagt upp á meðan afleysingamönnum sé haldið í starfi sem hafi engin lögformleg réttindi sem slökkviliðs- menn. Spurður um framhaldið segir Vernharð: „Við munum snúa okkur að þeim leiðum sem við teljum færar til að gæta hagsmuna okkar félagsmanna,“ en félagsmenn munu koma aftur saman til við- ræðna á næstunni. Formaður LSS um uppsagnir slökkviliðsmanna á Keflavíkurflugvelli Engar fullnægjandi skýr- ingar gefnar á uppsögnum HARÐUR árekstur tveggja fólks- bíla varð á mótum Þórunnarstrætis og Þingvallastrætis á Akureyri í gærkvöldi. Flytja þurfti þrennt á Fjórðungssjúkrahúsið. Að sögn læknis á vakt dvaldi ein hinna slös- uðu á sjúkrahúsinu í nótt til eft- irlits. Bílarnir skemmdust mikið í árekstrinum. Samkvæmt upplýs- ingum lögreglu eru umferðarljós á þessum gatnamótum. Leikur grun- ur á að annar ökumaðurinn hafi ek- ið gegn rauðu ljósi. Umferðarslys á Akureyri ÖKUMAÐUR slasaðist er fólksbíll hans lenti á húsvegg á Skagaströnd í gær. Var hinn slasaði fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Bifreiðin skemmdist mikið og þurfti að fjarlægja hana af vett- vangi. Samkvæmt upplýsingum læknis á vakt í gærkvöldi var hinn slasaði í stöðugu ástandi, en marinn og skrámaður og þurfti að gangast undir aðgerð vegna fótbrots. Bíl ekið á húsvegg Lögreglan varaði í gær við ófærð á Öxnadalsheiði. Samkvæmt upplýs- ingum frá lögreglunni á Akureyri hafði snjóað mikið á heiðinni og var snjórinn blautur og þungur. Hálka var því mikil og höfðu einhverjir lent í vandræðum. Eins bárust frétt- ir af því að snjór og hálka hafi verið á Þverárfjalli. Voru ökumenn fólks- flutningabíla varaðir við að fara þar yfir nema setja keðjur undir. Ófærð á heiðum norðanlands RÚMLEGA helmingur Ís- lendinga 65 ára og eldri, eða 54,6% þeirra, var tann- laus í báðum gómum árið 2000. Þetta kemur fram í skýrslu um breytingar á tannheilsu Íslendinga á ár- unum 1985–2000. Árið 1995 voru 63,8% tannlaus í báðum gómum, 71,5% 1990 og 77% árið 1985. Tann- lausum hefur því fækkað um 22,4 prósentustig á þessum 15 árum og er sá munur marktækur segir í skýrsl- unni. Ekki er vitað hve margir Íslend- ingar 65 ára og eldri voru tannlausir árið 1980, en sé gert ráð fyrir því að hlutfall tannlausra hafi lækkað álíka hratt frá 1980 til 1985 og það lækkaði frá 1985 til 1990 hefur hlutfall tann- lausra verið rúmlega 80% árið 1980. Hlutfall tann- lausra ætti því að vera ná- lægt 60% árið 2000. Þetta markmið hefur náðst á Ís- landi segir í skýrslunni, en samkvæmt fimmta al- heimsmarkmiði Alþjóða- samtaka tannlækna (FDI) og Alþjóðaheilbrigðis- stofnunarinnar (WHO) fyrir árið 2000 skal tíðni tannleysis hjá þeim sem eru 65 ára og eldri árið 2000 hafa minnkað um 25% frá því sem hún var 1980. Ennfremur skuli yfir 50% tenntra einstaklinga hafa minnst 20 tennur í biti. Könnunin var framkvæmd árið 2000 með því að spurningalisti var sendur út til 1.612 einstaklinga. Svarhlutfall var 66,1%. Helmingur eldri borgara er tannlaus                  

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.