Morgunblaðið - 05.10.2004, Side 10

Morgunblaðið - 05.10.2004, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR DAVÍÐ Oddsson utanríkisráðherra sagði í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi í gær, að hann teldi að íslenska ríkis- stjórnin hefði tekið skynsamlega ákvörðun, miðað við þá þætti sem þá lágu fyrir hendi, „þegar hún ákvað að taka þátt í því með yfir þrjátíu öðrum ríkjum að bægja þessum harðstjóra [Saddam Huss- ein] á brott“. Forystumenn stjórnarandstöð- unnar gerðu Íraksstríðið m.a. að umtalsefni í ræðum sínum á Al- þingi í gær og átöldu þar stuðning ríkisstjórnarinnar við innrásina í Írak. Davíð sagði m.a. að af 800 byggðarlögum í Írak væri friður í 795 byggðarlögum. „Það er óró- leiki mikill í fjórum til fimm byggðarlögum,“ sagði hann. „Ótt- anum hefur verið bægt burtu úr þessum 795 byggðarlögum.“ Í þeim byggðarlögum, sagði hann, ætti fólk von, vegna þess að einum versta harðstjóra aldarinnar, Saddam Hussein, hefði nú verið bægt í burtu. „Þess vegna er þar áfram von. Þess vegna hljótum við að vera stolt yfir því að hafa haft atbeina að því að þessi þróun yrði.“ Baðst ekki afsökunar Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, gagnrýndi Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra m.a. fyrir það að hafa ekki minnst á málefni Íraks í ræðu sinni. „Hún [ræðan] rifjar það upp að fyrir nokkru flutti annar for- sætisráðherra, aðra ræðu. Það var Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands. Og hann upplýsti í sinni ræðu, að hann bæri ábyrgð á röng- um og villandi upplýsingum sem hefðu að hluta til leitt til innrás- arinnar í Írak. Og forsætisráð- herra Bretlands baðst afsökunar á því. Halldóri Ásgrímssyni urðu líka á þau skelfilegu mistök að hann átti þátt í því að Ísland var sett á lista yfir þær þjóðir sem studdu innrásina í Írak. Og Halldór Ás- grímsson upplýsti rétt eftir að hann varð forsætisráðherra að það hefði m.a. verið gert vegna þess að hann hefði fengið villandi upplýs- ingar. En Halldór baðst ekki af- sökunar í ræðu sinni hér í kvöld. Í ræðunni nefndi hann Írak ekki einu orði.“ Kvaðst Össur draga þá ályktun að skömm ríkisstjórnar- innar í þessu máli væri slík að sjálfur forsætisráðherra skýldi sér í þögninni. Guðjón A. Kristjánsson, formað- ur Frjálslynda flokksins, sagði að Íraksstríðið væri óskapnaður sem bæri að stöðva. „Öll aðkoma okkar var á röngum forsendum. Stjórn- arandstaðan vill aðra ákvörðun: Út af lista þeirra staðföstu og vilj- ugu,“ sagði hann. Þá sagði Stein- grímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, að einhliða ákvörðun Halldórs og Davíðs varðandi stuðning við árásina í Írak væri mesta utanríkismálahneyksli síðari ára. Traust samstarf við Bandaríkin Davíð Oddsson fjallaði einnig um varnarmál í ræðu sinni. Sagði hann m.a. í því sambandi að ríkisstjórnin vildi hafa traust og öflugt samstarf við Bandaríki Norður-Ameríku m.a. í tengslum við þau vébönd sem Atlantshafsbandalagið setti. „Ég tel að þær viðræður sem hafa átt sér stað fyrr á þessu ári muni auðvelda okkur að tryggja þá samninga sem framundan eru við Bandaríkin um varnarmálin, þó að varlegt sé að tímasetja þá þætti að þessu sinni.“ Ríkisstjórnin hefði tekið skynsamlega ákvörðun Morgunblaðið/Kristinn Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði að íslensk stjórnvöld ættu að biðjast afsökunar vegna stuðnings við stríðið í Írak. Forysta stjórnar- andstöðunnar gagnrýnir stuðn- ing við innrásina Davíð Oddsson ræddi um stríðið í Írak í umræðum um stefnuræðuna í gær HALLDÓR Ásgrímsson forsætisráðherra ætlar að óska eftir viðræðum við forseta Alþingis í tilefni af því að DV birti í gær frétt um innihald stefnu- ræðu forsætisráðherra, sem flutt var á Alþingi í gærkvöldi. Fyrir ári birti Stöð 2 fréttir úr efni stefnuræðu Davíðs Oddssonar, þáverandi forsætisráðherra, áður en hann flutti hana á Alþingi. Trúnaður brotinn annað árið í röð Í yfirlýsingu frá forsætisráðuneytinu í gær seg- ir að ljóst sé að með fréttaflutningi af efni stefnu- ræðunnar hafi trúnaðarskylda, sem kveðið sé á um í lögum, verið brotin. „Forsætisráðuneytið harmar það að annað árið í röð skuli brotinn trúnaður á efni stefnuræðu for- sætisráðherra og um hana fjallað í fjölmiðlum fyr- ir flutning og umræður um hana á Alþingi,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins. „Stefnuræða forsætisráðherra var afhent al- þingismönnum síðdegis á föstudag. Var hún merkt sem trúnaðarmál. Í bréfi frá ráðuneytisstjóra for- sætisráðuneytisins sem fylgdi afriti ræðunnar, sagði: „Hér með afhendist alþingismönnum eftirrit af stefnuræðu forsætisráðherra, sem flutt verður mánudaginn 4. október nk., sbr. 73. gr. laga nr. 55/ 1991 um þingsköp Alþingis þar sem segir: „Innan fimm daga frá setningu Alþingis skal forsætisráð- herra flytja stefnuræðu fyrir hönd ríkisstjórnar- innar, en eftirrit af ræðunni skal afhent þing- mönnum sem trúnaðarmál eigi síðar en þremur dögum áður en hún er flutt.““ Ljóst er að með fréttaflutningi af efni stefnu- ræðunnar hefur trúnaðarskylda sem kveðið er á um í lögum verið brotin. Forsætisráðherra mun óska eftir viðræðum um málið við forseta Alþingis,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins. Alvarleg framganga „ónafngreinda þingmannsins“ Í framhaldi af frétt Stöðvar 2 í fyrra um innihald stefnuræðu forsætisráðherra sendi Davíð Odds- son, þáverandi forsætisráðherra, forseta Alþingis bréf þar sem Davíð sagði nauðsynlegt að gera breytingar á þingsköpum Alþingis. Í bréfinu sagði Davíð að fréttastofa Stöðvar 2 hafi hegðað sér ósæmilega í málinu en framganga „ónafngreinda þingmannsins“ sé alvarlegri. Í bréfi Davíðs til þingforseta í fyrra sagði m.a. að fréttastofan hefði birt marga kafla úr ræðunni. Ekki væri um að ræða að fréttastofan hefði fengið upplýsingar um eitthvað misjafnt sem yfirvöld vildu fela og því hefði almenningur ríka hagsmuni af því að trúnaðurinn væri rofinn. „Þótt fréttastof- an hafi þannig hegðað sér með ósæmilegum hætti er framganga ónafngreinds þingmanns alvarlegri. Ljóst er að fréttamaður Stöðvar 2 hefur leitað eft- ir upplýsingum úr ræðunni hjá nokkrum þing- mönnum og að einn þeirra hefur boðist til að láta hann hafa ræðuna. Þeir þingmenn sem fréttamað- urinn leitaði til um trúnaðarbrot hljóta hver um sig að vera hugsandi yfir, hvers vegna fréttamað- urinn teldi þá líklegri en aðra til að brjóta trúnað. Sá þingmaður sem trúnaðinn braut, lætur slíkan grun hins vegar liggja yfir starfssystkinum sínum. Það er alvarlegt. Það er einnig umhugsunarefni, að eftir framgöngu viðkomandi þingmanns, hefur viðkomandi fréttastofa sérstakt tak á þingmann- inum um langa framtíð. Því miður er nauðsynlegt að gera breytingu á þingsköpum vegna þessa at- viks, t.d. í þá veru að forsætisráðherra flytji stefnuræðu sína án þess að gefa þingmönnum færi á að sjá hana áður. Sú regla mun algengust annars staðar. Ellegar að þeim þingmönnum, sem ákveðnir hafa verið sem ræðumenn annarra flokka, verði send ræðan innan hins lögboðna fyr- irvara,“ sagði í bréfi Davíðs. Haft var eftir Halldóri Ásgrímssyni, þáverandi utanríkisráðherra og starfsaldursforseta þingsins, í Morgunblaðinu af þessu tilefni 2. október í fyrra að það væri sennilega auðvelt fyrir fjölmiðlafólk að verða sér úti um ræður sem þessar, en hingað til hefði ríkt sú venja að fjalla ekki um ræður fyrr en þær hefðu verið fluttar. Hann sagði því um al- gjört trúnaðarbrot að ræða. Forsætisráðuneytið harmar trúnaðarbrest vegna birtingar frétta úr stefnuræðu Lögbundin trúnaðar- skylda þingmanna brotin HALLDÓR Blöndal, forseti Alþing- is, segir það mjög alvarlegt mál að stefnuræðu forsætisráðherra hefur í tvígang verið lek- ið til fjölmiðla. Halldór segist telja koma sterk- lega til greina að þrengja ákvæði þingskapa um stefnuræðu for- sætisráðherra á þann veg að hún verði einungis send þingflokksformönnum. „Það er alveg skýrt samkvæmt þingsköpum að stefnuræða forsætis- ráðherra skuli afhent þingmönnum sem trúnaðarmál og það hefur lengst af verið svo að það hefur verið hald- ið,“ segir Halldór. „Þegar það á hinn bóginn endur- tekur sig ár eftir ár að slíkur trún- aður er ekki haldinn, þá hlýtur það að draga dilk á eftir sér,“ segir Halldór. Tók málið upp á fundi með formönnum þingflokka í gær Halldór tók þetta mál upp á fundi með formönnum þingflokka í gær- morgun. „Við ákváðum að ræða málið frekar í samráði við forsætisráð- herra, vegna þess að þetta getur ekki gengið,“ segir Halldór. „Mér finnst þetta mál bæði snúa að einstökum þingmönnum, sem eiga að halda trúnað, og mér finnst líka dap- urlegt að fjölmiðlar skuli láta það eft- ir þingmönnum, sem brjóta trúnað- inn, að láta lekann berast út. Mér finnst málið hvorki gott sem gamall blaðamaður, vegna trúnaðar blaða við Alþingi né sem forseta þingsins,“ segir Halldór. Þegar Stöð 2 birti fyrir ári fréttir úr stefnuræðu Davíðs Oddssonar, þá- verandi forsætisráðherra, áður en hún var flutt á þinginu, sendi Davíð forseta þingsins bréf og sagði nauð- synlegt að breyta þingsköpum. Til greina kæmi að þrengja ákvæði um dreifingu ræðunnar til þingmanna. Halldór segir að þetta mál hafi ver- ið rætt í fyrra af þessu tilefni. „Mér finnst koma sterklega til greina að ræðan sé einungis send formönnum þingflokka, til þess að þrengja hóp- inn,“ segir Halldór. Forseti Alþingis segir málið alvarlegt Skoða að þingflokks- formenn fái ræðuna Halldór Blöndal MJÖG hvasst var á höfuðborg- arsvæðinu í gær. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar hafði í gærkvöldi verið leitað aðstoðar hennar vegna veðurs- ins um tuttugu sinnum frá því kl. 15.00. Starfsmenn borgar- innar voru kallaðir til hjálpar og eins voru björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Lands- bjargar á höfuðborgarsvæðinu kallaðar út. Var það til að sinna beiðnum höfuðborgarbúa um aðstoð, en þakplötur voru farn- ar að fjúka og aðrir lausamunir sem gátu valdið hættu. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Lands- björgu bárust fyrst útköll úr vesturhluta borgarinnar en síð- an færðust beiðnir um aðstoð austur eftir borginni, yfir í Kópavog og Hafnarfjörð. Síð- ast voru björgunarsveitir að störfum í Grafarholti og Árbæ. Þegar mest var að gera voru 8 hópar björgunarsveitarmanna að störfum. Veðrið gekk niður þegar leið á kvöldið en björg- unarsveitir ætluðu að vera að störfum meðan þörf væri á. Að sögn varðstjóra lögregl- unnar var ekki um mikið tjón að ræða. Hvassviðri í höfuðborginni „ÉG GET svo sannarlega sagt að þetta sé einhver aumasta stefnu- ræða sem ég hef lengi heyrt,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, í upphafi máls síns í um- ræðum um stefnuræðu forsætisráð- herra, Halldórs Ásgrímssonar, á Al- þingi í gær. „Það má því segja að það leggist lítið fyrir þá, sem hafa brotið trúnað og lekið út efni ræð- unnar í tvennum skilningi; þeir hafa gert sig litla og af litlu tilefni.“ Steingrímur bætti því við, að að þessu gamni slepptu, færði hann nýj- um ráðherrum árnaðaróskir. Í ræðu sinni gagnrýndi Stein- grímur m.a. áform ríkisstjórn- arinnar um skattalækkanir. Sagði hann þær efnahagslegt óráð, við þær aðstæður sem við stæðum nú frammi fyrir, þar sem m.a. velferð- armálin væru svelt. Þá fjallaði hann um skuldastöðu þjóðarbúsins og sagði m.a. í því sambandi að skuldir heimilanna stefndu óðum í það að verða 200% af ráðstöfunartekjum. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði m.a. að lýðræðið á Íslandi hefði í tíð núver- andi ríkisstjórnar vikið fyrir nýju valdformi „sem við köllum sum hver ráðherraræði“, útskýrði hann. Rík- inu væri stjórnað með tilskipunum valdherranna, lögum væri þröngvað í gegnum þingið, í trássi, stundum, við raunverulegan meirihluta. Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, gerði atvinnu- leysið að umtalsefni. Vitnaði hann í því sambandi í Vinnuna, vefrit ASÍ, þar sem kemur m.a. fram að fjöldi atvinnulausra hefði aukist frá sama tíma í fyrra. „Telur ráðherra að ASÍ fari með rangt mál?“ spurði Guðjón og vísaði til orða forsætisráðherra í ræðu sinni. Ráðherra- ræði í stað lýðræðis

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.