Morgunblaðið - 05.10.2004, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.10.2004, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR STJÓRN Landverndar hefur ákveð- ið að kæra úrskurð Skipulagsstofn- unar til umhverfisráðherra, en stofn- unin úrskurðaði að fyrirhuguð rafskautaverksmiðja á Katanesi í Hvalfirði muni ekki hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif. Tel- ur stjórnin nauðsynlegt að umhverf- isráðherra endurmeti úrskurð Skipulagsstofnunar frá 3. september sl. Lögformlegar forsendur dregnar í efa Í yfirlýsingu frá stjórn Land- verndar kemur fram að „framlögð skýrsla um mat á umhverfisáhrifum vegna áforma um rafskautaverk- smiðju við Katanes í Hvalfirði sýnir að starfsemi af þessu tagi mun hafa afar neikvæð áhrif á umhverfið og valda meiri losun heilsuspillandi fjöl- hringa kolvatnsefna (PAH-efna) en dæmi eru um áður vegna stóriðju hér á landi“. Stjórnin telur að úrskurðurinn staðfesti að það sé rík ástæða til að hafa áhyggjur af mengun vegna PAH-efna, en fram komi í úrskurði Skipulagsstofnunar að gerðar verði reglubundnar mælingar á styrk PAH-efna í Grunnafirði, Urriðaá og Eiðisvatni áður en rafskautaverk- smiðja tekur til starfa og eftir að starfsemi hennar hefst. Stjórnin tel- ur mikilvægt að benda á að hér á landi eru ekki í gildi viðmið um hvað sé viðunandi PAH-mengun. Við mat- ið hafi því verið stuðst við reglur sem gilda í Belgíu, Frakklandi, Ítalíu, Svíþjóð og Stóra-Bretlandi. Stjórnin segir að draga megi í efa lögform- legar forsendur úrskurðarins hvað þetta varðar. Með tilvísan í varúðarregluna, tel- ur stjórnin að það sé óviðunandi að stjórnvöld stofni til starfsemi sem valdi svo mikilli mengun sem raf- skautaverksmiðja hefði í för með sér þegar ekki liggja fyrir lögformleg viðmið fyrir PAH-mengun. Nauð- synlegt sé því af hálfu stjórnvalda að þau beiti sér fyrir því að gerð verði rannsókn á hver séu viðunandimörk PAH-mengunar fyrir vistkerfi og heilsufar hér á landi. Stjórnin vekur athygli á því að undanfarin ár hafi mörg fyrirtæki, m.a. Alcoa, unnið að því að þróa um- hverfisvænni rafskaut sem koma í stað þeirra sem nú séu notuð. Áformuð verksmiðja kunni því að vera tímaskekkja. Landvernd kærir úrskurð Skipulagsstofnunar Telja fyrirhugaða rafskautaverksmiðju tímaskekkju ÞAÐ ER litið aftur til fortíðar við endurbætur sem gerðar hafa verið á Alþingishúsinu í sumar. Ljósakrón- ur sem Þjóðmenningarhús hafði fengið að láni hafa verið hengdar aft- ur upp í þingsalnum eftir áratuga fjarveru, teppum flett af gólfum og upprunalegu gólfborðunum leyft að njóta sín á nýjan leik. Þá voru bæði 1. og 2. hæð þinghússins málaðar í upprunalegum litum. Eikarparket var lagt á önnur gólf, t.d. í Kringl- unni og miklar lagfæringar, sem margar hverjar voru ófyrirsjáanleg- ar, voru gerðar á lögnum hússins. Það, auk seinkunar á þingslitum sl. vor og óvænts sumarþings, eru helstu ástæður þess að kostnaður við framkvæmdirnar hefur farið mikið fram úr áætlun. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 75 milljónir á þessum þriðja áfanga endurbóta en nú er ljóst að raunverulegur kostnaður verður mun meiri, en endanleg nið- urstaða liggur ekki fyrir. Á blaðamannafundi í gær skýrði Halldór Blöndal, forseti Alþingis, ásamt arkitektum og öðrum sem að framkvæmdunum standa, frá endur- bótunum. Sagði hann ógerlegt að segja til um á þessari stundu hver endanlegur kostnaður yrði. Enn væri verið að vinna í húsinu og ekki væri búið að semja um ýmis auka- verk vegna framkvæmdanna. Fram- kvæmdasýsla ríkisins hefur umsjón með verkinu samkvæmt lögum um opinberar framkvæmdir. Skipt um jarðveg og lagnir fjarlægðar Ákveðið var árið 2002 að ráðast í gagngerar endurbætur á Alþingis- húsinu. Nú í sumar var áhersla lögð á endurbætur og viðgerðir á 1. og 2. hæð hússins. Á fundinum kom fram að á fyrstu hæð voru gólfplötur beggja vegna forsalar brotnar upp, skipt um jarðveg og gólfin steypt á ný enda um verulegar rakaskemmd- ir í gólfi að ræða. Þá var unnið að margvíslegum viðgerðum á veggj- um, gólfum og loftum í húsinu. Gert var við jarðskjálftasprungur í sal efri deildar og suðvesturhorni hússins. Gamlar raf- og vatnslagnir sem lágu utan á veggjum voru fjarlægðar og endurnýjaðar. Ljós voru endurnýjuð í Kringlu og í þingsal og sal efri deildar voru settar upp að nýju ljósa- krónur sem þar voru fyrir mörgum áratugum, sem fyrr segir, og um leið var lýsing í þingsal endurgerð. Á næsta ári er stefnt að því að laga þak hússins, ljúka viðgerðum á út- veggjum, koma fyrir lyftu fyrir gesti á þingpalla auk þess sem húsbúnað- ur, einkum á 1. hæð, verður endur- nýjaður. Einnig liggur fyrir að end- urgera loftræstikerfi Alþingishúss- ins. Vonast er til þess að endurbót- um verði að fullu lokið á næsta ári. Magnaukning og aukaverk urðu mun meiri en búist var við og skýrir það að hluta að kostnaður hefur farið fram úr áætlun. Í samantekt forseta Alþingis sem dreift var á blaða- mannafundinum í gær kemur fram að gert var ráð fyrir fjárveitingu til slíkra óvæntra verka en hún dugði ekki til. Á aukningin við um flesta verkþætti, ekki síst raf- og vatns- lagnir. Þegar farið var að opna veggi loft og gólf kom ýmislegt ófyrirsjá- anlegt í ljós sem ekki var komist hjá að lagfæra né mögulegt að fresta þeim viðgerðum. Þá reyndist nauð- synlegt að mála glugga og veggi á 1. hæð en sú vinna hafði verið fyrirhug- uð í fjórða áfanga. Í öðru lagi skýrist aukinn kostn- aður af því að verktaki gat ekki hafið verkið á umsömdum tíma vegna þess að störfum Alþingis lauk seinna en ráð hafði verið fyrir gert og einnig urðu tafir vegna sumarþings. „Þegar menn fara í endurbætur á gömlu húsi, ég tala nú ekki um á þessu svæði þar sem gætir flóðs og fjöru í kjöllurum, þá eiga menn auð- vitað að gera ráð fyrir verulegum skekkjumörkum,“ sagði Halldór Blöndal á fundinum. „Verkið var tek- ið út í lok september og þegar um aukaverk er að ræða eins og hér var óhjákvæmilegt þurfa menn að ná samkomulagi um kostnað og annað. Þannig að það er ekki liðin vika síðan verkinu var skilað og því ekki skrítið [að heildarkostnaður liggi ekki fyr- ir].“ Nýting hússins efld með endurbótunum „Endurbætur á húsinu hafa mið- ast fyrst og fremst við það að virða menningarsögulegt gildi þess, aldur hússins og byggingarstíl, bæði í frá- gangi og lausnum,“ segir Þorsteinn Gunnarsson arkitekt sem kom að þeim þáttum endurbótanna sem snertu húsafriðun. Segir hann að gengið hafi verið út frá því að efla nýtingu hússins og treysta varð- veislu þess með endurbótunum. Sterkir litir voru algengir í húsum um það leyti sem Alþingishúsið var byggt, að sögn Sigurðar Einarsson- ar, arkitekts hjá Batteríinu, sem sér um hönnunarstjórn endurbótanna. „Í gegnum árin hafa menn þynnt út þessa liti, þetta var meira og minna orðið allt í grátónum. Við skröpuðum upp málninguna inn að innsta lagi í herbergjunum og sú lita- samsetning sem við sjáum nú er meira og minna afsprengi af þeirri vinnu. Við viljum ekki fullyrða að alls staðar sé þetta nákvæmlega upp- runalegir litir en þetta er allt saman litasamsetning sem er algeng frá þessum tíma.“ Sigurður segir að sjáanlegustu endurbæturnar séu auk litanna að gengið var frá lögnum sem mátti finna utan á veggjum um allt húsið. „Fleiri kílómetrar af draugalögnum rafmagns voru hér liggjandi víða ut- an á og mikið þjóðþrif að fjarlægja það allt.“ Þingflokksherbergi Framsóknarflokksins er nú grænt að lit, en talið er að það sé uppruna- legur litur herbergisins. Sem kunnugt er er græni liturinn einnig einkennislitur flokksins. Skrifstofa forseta Alþingis fékk einnig andlitslyftingu við endurbæturnar. Aðstandendur endurbóta í nýuppgerðum þingsalnum: Þóra Ásgeirsdóttir hjá Ístaki hf., Karl M. Kristjánsson, rekstrar- og fjármálastjóri Alþingis, Halldór Blöndal, forseti Alþingis, Sigurður Einarsson hjá Batteríinu og Þorsteinn Gunnnarsson arkitekt. Ístak var verktaki við framkvæmdirnar. Endurbætur langt fram úr kostnaðaráætlun Fleiri kílómetrar af „draugalögnum“ voru fjarlægðir úr Alþingishúsinu Morgunblaðið/Sverrir UMHVERFISRÁÐHERRA, Sig- ríður Anna Þórðardóttir, hefur skip- aði dr. Árna Einarsson líffræðing til þess að gegna stöðu forstöðu- manns Náttúru- rannsóknastöðv- arinnar við Mývatn frá 1. október til fimm ára en Árni hefur starfað sem for- stöðumaður Nátt- úrurannsókna- stöðvarinnar frá árinu 1996. Umsækjendur um stöð- una auk Árna voru Ásta Þorleifs- dóttir jarðfræðingur og dr. Ragn- hildur Sigurðardóttir vistkerfavist- fræðingur. Hinn 1. október tóku gildi ný lög um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu og um leið falla úr gildi lög frá árinu 1974 um svæðið. Samkvæmt nýju lögunum njóta Laxá, Mývatn og nálæg vot- lendissvæði sérstakrar verndar en gert er ráð fyrir að önnur svæði í Skútustaðahreppi sem hafa hátt verndargildi verði friðlýst á grund- velli náttúruverndarlaga. Í lögunum eru einnig nýmæli um vernd vatna- sviðs Laxár og Mývatns og um gerð verndaráætlunar fyrir Laxá og Skútustaðahrepp. Önnur nýmæli í lögunum eru að stjórn Náttúrurannsóknarstöðvar- innar er lögð niður og stjórn stofn- unarinnar alfarið færð í hendur for- stöðumanns beint undir yfirstjórn ráðherra. Samkvæmt lögunum skal umhverfisráðherra skipa sérstakt fagráð forstöðumanni til ráðgjafar um vísindastarf stofnunarinnar, rannsóknarstefnu og fagleg tengsl við aðrar stofnanir sem stunda rann- sóknir á vatnasviði Mývatns og Lax- ár og mun það verða gert fljótlega. Árni skipaður forstöðumaður Árni Einarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.