Morgunblaðið - 05.10.2004, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 05.10.2004, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2004 15 ERLENT AÐ MINNSTA kosti 21 maður lét lífið og 96 særðust í Bagdad í gær þegar tvær bílsprengjur sprungu með um klukkustundar millibili. Í fyrra tilræðinu var bifreið, hlaðinni sprengi- efnum, komið fyrir við Græna svæðið svokall- aða, en þar eru höfuðstöðvar írösku bráða- birgðastjórnarinnar og sendiráð Bandaríkjanna. Sprengingin varð fyrir utan herskráningarskrif- stofu þar sem hundruð ungra manna voru að skrá sig í íraskar öryggissveitir. 15 manns lágu í valnum og 81 særðist. Síðari sprengingin varð við hótel, sem margir Vesturlandabúar dveljast á og kostaði a.m.k. sex manns lífið, auk þess sem 15 særðust. Bandarískar herflugvélar gerðu sprengju- árásir á byggingar í borginni Fallujah og læknar sögðu að ellefu manns hefðu beðið bana, þeirra á meðal konur og börn. Bandaríkjaher sagði að ráðist hefði verið á fylgsni hryðju- verkamanna. Pólska herliðið heim á næsta ári Aleksander Kwasniewski, forseti Póllands, sagði í gær eftir viðræður við franska ráðamenn í París að pólsk stjórnvöld hygðust flytja alla hermenn sína heim frá Írak fyrir lok næsta árs. Í pólska herliðinu í Írak eru um 2.500 manns og er það fjórða fjölmennasta erlenda herliðið þar í landi. Mikil andstaða er í Póllandi við þá ákvörðun pólsku stjórnarinnar að senda her- menn til Íraks. Tveir gíslar líflátnir Íslamskur hópur í Írak kvaðst í gær hafa líf- látið tvo gísla, Tyrkja og íraskan kaupsýslu- mann sem hafði dvalið lengi á Ítalíu. Á mynd- bandsupptöku, sem hópurinn sendi frá sér, játuðu gíslarnir að þeir væru „njósnarar“ og hefðu starfað í Írak fyrir leyniþjónustur Tyrk- lands, Ísraels og Írans. Tvær indónesískar konur, sem haldið hafði verið í gíslingu, voru látnar lausar í gær og fluttar í sendiráð Sameinuðu arabísku fursta- dæmanna í Bagdad. Bróðir breska gíslsins Kens Bigleys kvaðst vera vongóður um að hann yrði látinn laus á næstunni. Hann kvaðst telja að þeir sem rændu bróður hans hefðu afhent hann „hófsamari hópi“. Óstaðfestar fregnir hermdu um helgina að hópur undir stjórn Abu Mussabs al-Zarqaw- is, sem er talinn tengjast hryðjuverkasamtök- unum al-Qaeda, hefði afhent Bigley öðrum hópi sem væri líklegur til að krefjast lausnargjalds. Um 20 manns létu lífið í tilræðum í Bagdad Reuters Gíslarnir Istiqomah Misnad (t.v.) og Novitasari Sugito faðmast í Bagdad í gær. Mannræningj- arnir kröfðust þess að íslamistaklerkur í Indón- esíu, Abu Bakar Bashir, yrði látinn laus en hann neitaði að þiggja frelsi sitt fyrir líf kvennanna. Bagdad. AFP, AP. FRANSKIR kjarnorkuandstæð- ingar undirbjuggu í gær mótmæli vegna flutnings á plútoni frá Banda- ríkjunum í endurvinnslustöð í Frakklandi. Búist var við að tvö skip með um 140 kg af plútoni, sem hægt er að nota í kjarnavopn, kæmu til hafnar í Cherbourg í gærkvöldi eftir hálfs mánaðar siglingu frá Norður- Karólínu. Plútonið verður flutt með flutningabílum í endurvinnslustöð í sunnanverðu Frakklandi. Þaðan verður plútonið síðan flutt aftur til Bandaríkjanna þar sem það verður notað í kjarnorkuveri. Franskt fyrirtæki, sem annast endurvinnsluna, sagði að af öryggis- ástæðum yrði ekki greint frá því hvenær skipin kæmu til hafnar. Umhverfisverndarsinnar segja það skapa „verulega hættu“ að flytja plútonið svo langa leið, ekki síst vegna þess að hryðjuverkamenn gætu hæglega komist yfir farminn með því að beita flugskeytum. Plúton- flutningi mótmælt         -  . "        " ) /        0 ) . 1         1  .  ) )  .     !" #!$%&'!& &("                      ! " # !  . '")!)& $%&'()* + 3  4 +     5 2  612  ,  -.. / 0  0  "1       '     7 & . 2.  1    ' 0 2.  1  '   !3+44'  +44+ 3   ,  "   5  -67 !       BÁTUR með ólöglega innflytjendur frá Túnis og Marokkó innanborðs brotnaði í tvennt við strönd Túnis um helgina og drukknuðu 22 af skip- verjum auk þess sem 42 er saknað. Leitað var með þyrlum og herskip- um við Túnisströnd í gær. Alls voru 75 manns um borð og mun fólkið hafa ætlað að reyna að komast til Ítalíu. Ítalir ákváðu um helgina að senda um þúsund ólöglega innflytjendur til Líbýu frá ítölsku smáeynni Lamped- usa sem er aðeins um 100 km frá Túnis. Bátar afríska flóttafólksins lenda því oft þar en bráðabirgðabúð- ir á eynni fyrir fólkið eru yfirfullar. Ítölsk stjórnvöld eru gagnrýnd fyrir að brjóta alþjóðlegar reglur um rétt- indi flóttamanna með aðgerðum sín- um um helgina. Alls hafa nær þúsund ólöglegir innflytjendur frá Afríkulöndum drukknað á Miðjarðarhafi síðustu þrjú árin og leggja margir þeirra upp frá Líbýu. Fólkið sem kemst á land í Evrópu er undantekningalítið skilríkjalaust. Giuseppe Pisanu, inn- anríkisráðherra Ítalíu, sagði að eina ráðið til að stemma stigu við sívax- andi, ólöglegum innflutningi væri að senda fólkið rakleitt aftur til Afríku. En ráðherra málefna Ítala erlendis, Mirko Tremaglia, var gagnrýninn og taldi þessar aðgerðir lýsa óðagoti. „Þeir [flóttamennirnir] hafa ekki einu sinni tíma til að fara fram á hæli, til að verja réttindi sín. Ég tel að við verðum að ræða þessi mál á ný,“ sagði hann. Fulltrúar græningja á þingi sök- uðu stjórnvöld um gróf mannrétt- indabrot á flóttafólkinu. Einnig er bent á að stöðugt vanti verkamenn á Ítalíu og hafa bændur hvatt til þess að 16.000 innflytjendum verði veitt landvistarleyfi til að hægt verði að sinna uppskerunni. Búðir í Afríku? Milligöngumenn sem útvega báta undir flóttafólkið eru sagðir græða mikið fé á neyð þess og eru oft notuð fley sem alls ekki þola siglinguna, bátarnir eru auk þess ofhlaðnir. Rætt hefur verið í nokkrum Evrópu- ríkjum að koma á fót sérstökum bráðabirgðabúðum í Afríku fyrir fólk sem reynir að komast til Evrópu. Verði þar hægt að sinna fólkinu og tryggja að það verði ekki fórnarlömb ósvífinna milliliða sem skeyta ekkert um örlög þess um leið og búið er að borga farið yfir Miðjarðarhaf. Tugir fórust við Túnis AP Ólöglegir innflytjendur frá Afríku reknir um borð í ítalska herflutningavél sem flutti þá frá eynni Lampedusa aftur til Líbýu í gær. Ítalir reka um þúsund flótta- menn úr landi Túnisborg, Genf , Róm. AFP. BANDARÍSKU vísindamennirnir Richar Axel og Linda B. Buck fá Nóbelsverðlaunin í læknisfræði að þessu sinni fyrir rannsóknir sínar á lyktarnemum og uppbyggingu þefskynsins í mönnum. Nób- elsnefndin við Karolinska Inst- itutet í Svíþjóð tilkynnti þetta í gær. Axel og Buck uppgötvuðu um eitt þúsund gen sem gefa af sér fjölbreyttan hóp prótína sem nema tiltekin lyktarbrigði. Þessi prótín er að finna í frumum í nefinu, en þær senda boð til heilans. „Þess vegna getum við fundið ilminn af blómum á vorin og rifjað upp lyktina seinna,“ segir í til- kynningu Nóbelsnefndarinnar. Axel er prófessor í lífefnafræði og sameindalífeðlisfræði við Col- umbia-háskóla í New York, og sinnir sérstaklega rannsóknum á móttöku, sundurgreiningu og skilningi heilans á skynupplýs- ingum. Buck starfar við Fred Hutch- inson-krabbameinsrannsóknarstöð- ina í Seattle og hefur sérstaklega sinnt rannsóknum á því hvernig spendýr taka eftir og greina sund- ur lykt og lyktarhormóna og hvernig heilinn skynjar og túlkar slíkt. Ilmurinn af blómum ÞING Kambódíu samþykkti í gær áætlun Sameinuðu þjóðanna (SÞ) um réttarhöld yfir þeim leiðtog- um Rauðu khmeranna sem enn lifa. Rauðu khmerarnir komu á ógnarstjórn í Kambódíu á átt- unda áratug síðustu aldar og er talið að tæpar tvær milljónir manna hafi týnt lífi í valdatíð þeirra. Deilt hefur verið um fyr- irhuguð réttarhöld síðustu sjö ár- in. Og enn er það svo að ýmislegt er óútkljáð m.a. liggur ekki fyrir hvenær málareksturinn verður hafinn. Þá ríkir óvissa um hvern- ig hann verður fjármagnaður. Samþykkt þingsins felur í sér að settur verður á fót sérstakur dómstóll sem fjalla mun um mál leiðtoga Rauðu khmeranna. Dóm- arar og lögmenn munu koma jafnt frá Kambódíu sem erlendum ríkjum. Talið er að 1,7 milljónir manna hafi týnt lífi á árunum 1975–1979 er Rauðu khmerarnir voru við völd í Kambódíu. Margir voru teknir af lífi, aðrir ýmist sultu í hel eða týndu lífi í vinnubúðum kommúnistastjórnarinnar. Enn hefur enginn leiðtoga Rauðu khmeranna verið dreginn fyrir rétt vegna glæpaverkanna. Margir þeirra lifa en þeir eru teknir að reskjast og sumir þeirra eiga við veikindi að glíma. Þekktasti leiðtogi ógnarstjórn- arinnar, Pol Pot, gaf upp öndina 1998. Réttað yfir Rauð- um khmerum BANDARÍKJAMENN hafa fallist á að fresta fyrirhugaðri fækkun í herliði sínu í Suður- Kóreu. Að sögn suður-kóresku Yonhap-fréttastofunnar hafa stjórnvöld í Bandaríkjunum samþykkt að fresta niðurskurð- inum um þrjú ár og verður hon- um því lokið árið 2008. Áætlanir Bandaríkjamanna kváðu á um að 12.500 hermenn yrðu fluttir frá Suður-Kóreu á næsta ári. Ræðir þar um þriðj- ung þess herafla sem Banda- ríkjamenn halda úti í landinu. Yonhap-fréttastofan kvaðst hafa traustar heimildir fyrir því að brottflutningurinn færi fram í áföngum og myndi honum ljúka árið 2008. Þetta hefði ver- ið ákveðið að beiðni stjórnvalda í Suður-Kóreu. Embættismenn vildu ekki staðfesta fregnina en Yonhap sagði að samkomulag í þessa veru yrði kynnt í vikunni. Fækkun frestað í S-Kóreu? Seúl. AFP. STAÐAN er jöfn í einvígi þeirra Vladímírs Kramniks og Peters Lekos um heimsmeist- aratitil WCC- skáksambands- ins. Leko vann fimmtu skákina á hvítt í 69 leikjum. Á sunnudag var sjötta skákin tefld og lyktaði henni með jafntefli eftir 20 leiki. Staðan í einvíginu er því jöfn, báðir hafa hlotið þrjá vinninga. Kramnik hefur titil að verja en WCC er eitt þeirra skáksambanda sem orðið hafa til vegna ágrein- ings innan Alþjóðaskáksambands- ins, FIDE. Einvígið fer fram í Brissago í Sviss. Tefldar verða 14 skákir. Leko lagði Kramnik Peter Leko

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.