Morgunblaðið - 20.10.2004, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÓÐINN Gíslason og Þrá-
inn Sigurðarson vissu vart
hvaðan á þá stóð veðrið í
fyrrinótt þegar sex rúður
mölbrotnuðu í bíl sem
annar þeirra ók í Vík í
Mýrdal. Glerbrotum og
möl rigndi yfir þá en hvor-
ugum varð meint af. Mikil
veðurofsi var á þessum
slóðum þegar atvikið átti
sér stað.
Óðinn Gíslason, eigandi
bílsins og ökumaður, segir
rúður bílsins skyndilega
hafa mölvast, en þeir áttu
erindi á verkstæði föður hans þegar
óhappið varð og voru á keyrslu og
rétt ókomnir þangað. „Við vorum að
keyra framhjá verkstæðinu og ætl-
uðum að loka stórum dyrum en
hurðin var byrjuð að fjúka upp þeg-
ar grjóthríðin byrjaði að dynja á
bílnum og rúðurnar sprungu,“ segir
Óðinn.
Grjóthríðin skall á hægri hlið bíls-
ins og mölvaði þar allar rúður, auk
þess sem rúður að aftanverðu brotn-
uðu og ein rúða vinstra megin að aft-
anverðu. „Við grúfðum okkur bara
niður,“ segir Óðinn og bætir við að
þeim félögum hafi eðlilega verið
nokkuð brugðið. Að sögn hans virtist
við fyrstu sýn sem stærðar grjót-
hnullungar hefðu mölvað rúðurnar
en þegar betur var að gáð kom í ljós
fín steinmöl í bílnum innan um gler-
brotin.
„Ég man bara ekki eftir öðru
eins,“ segir Óðinn. „Þetta var eini
bíllinn sem við þorðum að vera á í
þessu veðri og höfðum rétt áður rætt
um það og nokkrum mínútum seinna
gerðist þetta.“
Lögreglan í Vík hafði í gær fengið
15 tilkynningar um tjón á ökutækj-
um af völdum veðurofsans í fyrradag
og fyrrinótt en þess má geta að rúða
brotnaði einnig í bíl í eigu farþegans
sem var með Óðni.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Óðinn Gíslason (nær) og Þráinn Sigurðarson
við bílinn sem þeir voru í þegar grjótið skall á.
Glerbrotum rigndi yfir ökumann í Vík
„Við grúfðum
okkur bara niður“
RÚTA fauk út af af veginum og valt undir
Akrafjalli á áttunda tímanum í gærmorgun.
Um borð voru 45 starfsmenn Norðuráls á
leið til vinnu, flestir búsettir á Akranesi, og
var 41 þeirra fluttur á sjúkrahúsið á Akra-
nesi til aðhlynningar eða leitaði þangað eftir
aðstoð. Að sögn Guðjóns Brjánssonar, fram-
kvæmdastjóra Sjúkrahússins á Akranesi, var
enginn alvarlega slasaður, en tveir voru
fluttir á Landspítala – háskólasjúkrahús til
myndatöku.
Guðjón segir að meiðsli fólksins hafi verið
mjög mismunandi. Tólf hafi verið með sár-
skaða og meiðsli á borð við beinbrot. Af
þeim voru tíu lagðir inn og var áformað að
útskrifa flesta í gær.
Mjög slæmt veður var á þessum slóðum
þegar slysið varð og gekk á með vindhviðum
og var leiðin til Reykjavíkur ófær sjúkrabíl-
um fyrst eftir slysið en þeir komust þó fljót-
lega leiðar sinnar. Það vildi til happs að lítil
rúta frá Járnblendiverksmiðjunni átti leið
hjá slysstað og gat flutt nokkra hinna slös-
uðu á sjúkrahúsið en sjúkrabílar sóttu þá
sem eftir voru. Að sögn Guðjóns var lán í
óláni að vaktaskipti urðu klukkan átta um
morguninn á sjúkrahúsinu og sömuleiðis
hefði starfsemi á skurðdeildum ekki verið
hafin þannig að allt tiltækt starfsfólk sjúkra-
hússins var á staðnum til að sinna hinum
slösuðu. Að sögn Guðjóns var unnið eftir
hópslysaáætlun sjúkrahússins sem var allvel
æfð. Móttaka á sjúklingum hefði gengið
skipulega fyrir sig, þótt þröng hefði verið á
þingi. Þá hefði borið að fjölskyldur fólksins,
sem var í rútunni. Áfallahjálparteymi
sjúkrahússins og heilsugæslunnar fundaði í
gær með fólki sem lagt var inn, þá verður
annar fundur fyrir hádegi í dag og fundað
með öllum starfsmönnum sem voru í rútunni
síðdegis.
Að sögn Guðjóns voru samskipti við björg-
unaraðila ekki eins og best hefði verið á kos-
ið, án þess að það hefði haft veruleg áhrif.
Spítalinn hefði viljað fá upplýsingar fyrr um
eðli slyssins en raunin varð. Forsvarsmenn
spítalans hyggjast fara ofan í saumana á því
máli.
Rúta með 45 starfsmönnum Norðuráls fauk út af veginum undir Akrafjalli
Yfir 40 leituðu aðstoðar á sjúkrahúsi
Morgunblaðið/Hilmar Sigvaldason
Tveir farþegar köstuðust út úr rútunni þegar hún fauk út af veginum í gærmorgun. Þeir slös-
uðust þó ekki alvarlega. Einungis tveir af 45 farþegum voru með beltin spennt í rútunni.
ATBURÐARÁSIN var í raun mjög
hæg því rútan var nánast á engri
ferð þar sem veðrið var afar slæmt,“
sagði Sigurður Einarsson starfs-
maður Norðuráls en hann var einn
af 45 farþegum í rútu sem fauk út af
þjóðveginum undir Akrafjalli í gær-
morgun. Sigurður sagði að hann
hefði ekki verið í bílbelti en líklega
myndi atburðurinn hvetja hann og
aðra til þess að spenna beltin í fram-
tíðinni.
Náði taki á sætinu
„Ég náði góðu taki á sætinu fyrir
framan mig og ég hékk á sætinu
þegar rútan valt á hliðina og endaði
síðan á toppnum. Ég slapp sem bet-
ur fer vel út úr þess og gat hjálpað
öðrum sem voru lemstraðir eftir
veltuna,“ sagði Sigurður en hann sat
bílstjóramegin í rútunni. „Það gekk
vel að koma öllum út úr rútunni.
Menn eru margir hverjir hálfsofandi
á leiðinni í vinnuna og því hefur
mörgum brugðið illilega við þessa
veltu. Það brotnuðu nokkrar hlið-
arrúður og menn skriðu út um þau
göt en það var að sjálfsögðu dimmt
og menn sáu ekki mjög vel hvert
þeir voru að fara og hvar þeir voru
nákvæmlega.“ Sigurður bætti því
við að tveir farþegar hefðu kastast
út úr rútunni og mikil mildi væri að
rútan hefði ekki lent ofan á viðkom-
andi. „Þeir lágu fyrir utan rútuna,
horfðu á hana vagga í vindinum og
það gat allt eins farið svo að rútan
félli á þá.“
Guðmundur Guðmundsson var
einnig óspenntur í sæti sínu en eftir
skoðun á Sjúkrahúsi Akraness í gær
kom í ljós að hann væri með brotin
rifbein. „Það vildi til að rúta frá
Járnblendiverksmiðjunni var
skammt á eftir okkur og þeir drifu
okkur inn í rútuna strax eftir slysið.
Við vorum komnir framhjá bænum
Reyn þegar vindhviða skellur á bif-
reiðinni og lyftir framhlutanum upp.
Bíllinn fer til hliðar og veltur útaf
veginum. Ætli það sé ekki um 45
gráða halli utan vegar á þessu svæði
og við getum verið tiltölulega sáttir
við hvernig við sluppum frá þessu.
Það hefði getað farið miklu verr,“
sagði Guðmundur en hann ætlaði sér
að mæta til vinnu á ný um hádegi í
gær en var ráðlagt að halda sig
heima við vegna áverka á rifbeinum.
„Ég veit ekki hvernig ég brotnaði,
hef ekki hugmynd um það. Kannski
hefur einhver lent ofan á mér eða ég
hef kastast til og lent á sætisbaki eða
einhverju slíku. En það skárust ekki
margir í rútunni þrátt fyrir að gler-
brot væru út víðsvegar um hana. Bíl-
stjórinn skarst nokkuð mikið en aðr-
ir sluppu að ég held vel frá gler-
brotunum“ sagði Guðmundur.
Ragnar Maríasson var annar af
tveimur farþegum rútunnar sem
höfðu spennt bílbelti á sig í upphafi
ferðar og segir
Ragnar að hann
hafi horft á félaga
sína kastast um
rútuna á meðan
hann sat fastur í
sæti sínu. „Það er
engin spurning
að bílbeltið gerði
sitt gagn. Ég
spenni beltið oft-
ast nær þegar ég
fer í rútana. Eftir slysið var ég kyrr í
sætinu, á hvolfi, og þurfti aðeins að
ýta í toppinn á bílnum til þess að losa
mig úr beltinu. Þetta var óskemmti-
leg lífsreynsla. Ég hef grun um að
við höfum lent í tveimur snörpum
vindhviðum, sú fyrri lyfti bílnum að
framan og sú síðari hefur ýtt okkur
út af. Vegurinn var þurr og engin
hálka var á veginum. Það þarf því
mikla krafta til þess að koma rútu á
stærð við þessa út af á þurrum vegi,“
sagði Ragnar en hann slapp ómeidd-
ur úr slysinu.
Starfsmenn Norðuráls á Grundartanga sluppu vel úr slysinu miðað við aðstæður
„Hefði getað
farið miklu verr“
Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Sigurður Einarsson og Guðmundur Guðmundsson, starfsmenn Norðuráls á
Grundartanga, voru í rútunni sem fór út af við Reyn undir Akrafjalli í gær.
Ragnar Maríasson