Morgunblaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Og það varð mark, og það varð aftur mark, og aftur og aftur og aftur.
Hinn 1. októbergengu í gildi nýlög um sölu fast-
eigna, fyrirtækja og skipa.
Lögin leysa af hólmi eldri
lög frá árinu 1997 um
sama efni sem þóttu göll-
uð og ófullnægjandi til
þess að koma í veg fyrir og
bregðast við misferlismál-
um, sem hafa komið upp
að sögn Vilhjálms Berg,
héraðsdómslögmanns og
löggilts fasteignasala.
Sem dæmi um slíkt má
nefna dómsmál þar sem
fyrrverandi fasteignasali
var dæmdur í þriggja og
hálfs árs fangelsi fyrir
fjárdrátt, skjalafals, fjársvik og
skattabrot fyrr á þessu ári.
Vilhjálmur benti á það í grein í
Morgunblaðinu að nýju lögin fælu
í sér mikla réttarbót og ættu án
efa eftir að auka traust og fag-
mennsku í fasteignaviðskiptum.
Kröfur til fasteignasala aukast
töluvert t.a.m. varðandi starfs-
reynslu og menntun þeirra sem
vilja öðlast löggildingu. Eitt af því
sem krafist er í nýju lögunum er
það að komið sé á fót sérstakri eft-
irlitsnefnd Félags fasteignasala,
en henni er ætlað að sinna öflugu
eftirliti með fasteignasölum.
Nefndin hefur verið skipuð og er
Þorsteinn Einarsson hæstaréttar-
lögmaður formaður hennar. „Eft-
irlitsnefnd Félags fasteignasala
skal hafa eftirlit með því að fast-
eignasalar starfi í samræmi við
fyrirmæli laga þessara, siðareglur
félagsins og góðar venjur í fast-
eignasölu,“ segir í 20. grein lag-
anna.
Nefndin skal vera þriggja
manna stjórnvaldsnefnd og bund-
in af ákvæðum stjórnsýslulaga
eins og segir í 19. grein laganna:
„Í tengslum við Félag fasteigna-
sala skal starfa eftirlitsnefnd sem
skipuð skal þremur mönnum og
jafnmörgum til vara. Ráðherra
[dómsmálaráðherra] skipar
nefndarmenn og varamenn þeirra
til þriggja ára í senn. Tveir nefnd-
armenn og tveir til vara skulu til-
nefndir af Félagi fasteignasala og
skal annar þeirra vera fasteigna-
sali en hinn löggiltur endurskoð-
andi. Hinn þriðja, sem vera skal
formaður nefndarinnar, og vara-
mann hans, skipar ráðherra án til-
nefningar og skal hann vera lög-
maður og fullnægja skilyrðum til
að gegna embætti hæstaréttar-
dómara.“
Ríkar heimildir nefndarinnar
Í 21. grein laganna segir svo-
hljóðandi: „Eftirlitsnefnd er
heimilt hvenær sem er og án fyr-
irvara að skoða bókhald og öll
skjöl fasteignasala sem tengjast
rekstri hans eða einstökum mál-
um sem hann hefur með höndum.
Skal nefndin framkvæma slíka
skoðun svo oft sem þurfa þykir og
eigi sjaldnar en þriðja hvert ár hjá
hverjum fasteignasala.“ Að auki
má nefndin áminna fasteignasala,
svipta þá löggildingu tímabundið
og loka starfsstöð þeirra.
Björn Þorri Viktorsson, for-
maður Félags fasteignasala, segir
þessar tillögur unnar í kjölfar
þeirra vandræðamála sem hafa
verið uppi. Stjórnvöld hafi því nú
leiðir til þess að aðhafast sérstak-
lega. Áður hafi þurft að leita á
náðir dómstólanna.
Vilhjálmur bendir á í grein sinni
að verktaka sé almennt bönnuð
með nýju lögunum. „Fasteigna-
sala er nú einungis heimilt að hafa
í þjónustu sinni við fasteignasöl-
una starfsmenn sem falla undir
starfsábyrgðartryggingu hans
eða eru sjálfir fasteignasalar,“
segir Vilhjálmur. Mjög algengt
hafi verið að fasteignasalar fái í
sína þjónustu verktaka til þess að
sinna söluþjónustu fasteigna. Þá
séu oft lítil tengsl þar á milli nema
þá að verktakinn greiðir ákveðna
þóknun til fasteignasalans gegn
þeirri heimild að fá að selja fast-
eignir í skjóli löggildingar fast-
eignasalans. Þetta fyrirkomulag
gat skapað réttaróvissu fyrir við-
skiptamann sem varð fyrir tjóni
verktakans segir Vilhjálmur.
Verktakar sem vinna í greininni á
grundvelli verksamnings eru
ótryggðir og þ.a.l. óheimilir segir
Björn Þorri. Starfsábyrgðar-
tryggingin tekur ekki til verktaka
því starfssamband verður að vera
fyrir hendi.
Kostnaðarsamt eftirlit
Björn Þorri segir lögin vera þá
breytingu sem stjórnvöld leggi til
til þess að tryggja faglegt ástand í
stéttinni. „Auðvitað fagna menn
því að til séu skilvirkar leiðir til að
bregðast við ef grunur vaknar um
eitthvað misjafnt,“ segir Björn
Þorri en bætir við að svona um-
fangsmikið eftirlit kosti sitt. Fast-
eignasalarnir sjálfir halda uppi
kostnaðinum á eftirlitinu með því
að greiða 100 þúsund króna eftir-
litsgjald árlega. „Mér er ekki
kunnugt um nokkra aðra starfs-
stétt sem þarf að greiða svona há
gjöld fyrir eftirlit með sjálfri sér.
Það er auðvitað mjög merkilegt,“
segir Björn Þorri. Hann segir
þessa skilyrðislausu þörf til að
skoða alla fasteignasala eigi
sjaldnar en þriðja hvert ár óþarfa.
Þó ítrekar hann að skilvirkt eft-
irlit sé af hinu góða, en þykir
kannski fulllangt gengið í þessu
tilfelli með skilyrðislausu eftirliti.
Fréttaskýring | Ný lög um sölu fasteigna,
fyrirtækja og skipa
Lögin mikið
endurbætt
Sérstakri eftirlitsnefnd komið á fót til
þess að auka eftirlit við sölu fasteigna
Ný fasteignalög fela í sér mikla réttarbót.
Fasteignasalar njóta
sérþekkingar
Björn Þorri Viktorsson, for-
maður Félags fasteignasala, seg-
ir ástandið innan starfsgrein-
arinnar hafa á undanförnum
árum helst minnt á villta vestrið.
Því hafi verið nauðsynlegt að
koma skikki á hana til þess að
fasteignasala og starfsemin í
kringum hana geti þrifist með
eðlilegum hætti sem sérfræði-
starfsgrein. Gerðar séu sér-
fræðikröfur til fasteignasala eins
og til annarra sérfræðinga.
jonpetur@mbl.isAUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111
Grand Hótel Reykjavík, laugardaginn 23. október 2004
Tannlæknafélag Íslands efnir til málþings á Grand Hótel Reykjavík, laugardaginn 23. október
klukkan 10:00 - 12:00, undir yfirskriftinni „Eru eldri borgarar afskiptir í tannlæknaþjónustu?“
Eru eldri borgarar afskiptir í tannlæknaþjónustu?
Tannlæknafélag Íslands
Málþing Tannlæknafélags Íslands
09:30 Morgunverður.
10:00 Setning. Heimir Sindrason, formaður Tannlæknafélags Íslands.
10:10 Tannheilsa aldraðra. Guðjón Axelsson tannlæknir,
prófessor emeritus.
10:25 Meðferðarúrræði fyrir eldri borgara. Elín Sigurgeirsdóttir, sérfræðingur
í munn- og tanngervum.
10:40 Sýn eldri borgara á tannlæknaþjónustu. Stefanía Björnsdóttir,
framkvæmdastjóri Félags eldri borgara í Reykjavík.
10:55 Kaffihlé.
11:10 Tannheilsa aldraðra á Íslandi í samanburði við aðrar Evrópuþjóðir.
Markmið íslenskrar heilbrigðisáætlunar til 2010. Dr. Helga Ágústsdóttir,
deildarstjóri tannheilsudeildar heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins.
11:30 Tannlækningar og sjúkdómar eldri borgara. Oddgeir Gylfason, tannlæknir
og læknir.
11:40 Fyrirspurnir og umræður.
12:00 Fundarlok.
Fundarstjóri: Kristján Kristjánsson dagskrárgerðarmaður.
Málþingið er öllum opið og er aðgangur ókeypis. Sætafjöldi er takmarkaður
og því þarf að tilkynna þátttöku til Tannlæknafélags Íslands í síðasta lagi
fyrir kl. 14:00, föstudaginn 22. október í síma 575 0500 eða með því að
senda tölvupóst á netfangið tannsi@tannsi.is
Dagskrá
A
P
a
lm
an
n
at
e
n
g
sl
/
H
A
D
A
Y
A
d
e
si
g
n