Morgunblaðið - 20.10.2004, Page 16
SUMIR kölluðu hann Hróa hött Indverja, aðr-
ir voru á því að hann væri ekkert annað en
ótíndur ræningi og morðingi. Hann bauðst
nokkrum sinnum til að gefast upp, árið 1997
setti hann sem skilyrði að gerð yrði kvikmynd
um ævi hans.
Koose Muniswamy Veerappan er talinn
hafa verið um sextugt þegar hann var drepinn
á mánudag, hann var eftirlýstur fyrir meira
en 100 morð en eftir tveggja áratuga leit tókst
loks að fella hann í hörðum bardaga, að sögn
AP-fréttastofunnar. Þrír samstarfsmenn hans
féllu einnig í aðgerðum lögreglu í frum-
skógum suðaustanverðs Indlands.
Sett hafði verið mikið fé til höfuðs glæpa-
foringjanum, 50 milljónir rúpía sem svarar til
um 70 milljóna króna. Veerappan varð heims-
þekktur þegar hann hélt indverskri kvik-
myndastjörnu, Rajkumar, í gíslingu í 108 daga
árið 2000. Allir Indverjar þekktu myndina af
manninum með yfirskeggið mikla og svarta
og vissu að hann var búinn að leika hvað eftir
annað á yfirvöld. Öðru hverju gaf hann fátæk-
um íbúum á svæðinu þar sem hann dvaldi
hluta af ránsfengnum. Hann mun aldrei hafa
nauðgað konum og ávann sér þannig nokkra
alþýðuhylli. Lögreglumenn sem reyndu að
finna glæpamanninn beittu hins vegar sumir
ofstopa og voru jafnvel sakaðir um nauðganir.
En fáir héraðsbúar þorðu að gera honum
nokkuð á móti skapi, t.d. gefa lögreglunni
upplýsingar um Veerappan enda ávallt refsað
grimmilega fyrir slíkt athæfi. Sumir af íbúun-
um voru ósáttir við að Veerappan skyldi hafa
verið drepinn. Betra hefði verið að taka hann
lifandi og láta hann svara til saka.
Byrjaði sem veiðiþjófur
Ferill Veerappans hófst á sjöunda áratugn-
um er hann gerðist umsvifamikill veiðiþjófur,
hann seldi fílabein. Ekki er vitað hve marga
Veerappan hafði í fylgdarliði sínu, fréttamenn
sem hittu hann sögðu að um fjóra eða fimm
menn væri að ræða. Stjórnvöld gerðu meira
úr liðsaflanum og sögðu að Veerappan réði yf-
ir öflugri hreyfingu hryðjuverkamanna. Hann
var gómaður 1986 en slapp úr haldi eftir að
hafa myrt fimm sofandi lögreglumenn og
Hrói höttur eða bara morðingi?
Reuters
Koose M. Veerappan fær sér indverskt gæsa-
ber. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
óvopnaðan skógarvörð. Árið 1998 tók hann í
gíslingu fyrrverandi ráðherra í Karnataka,
Hannur Nagappa, og bauðst til að láta hann
lausan í skiptum fyrir uppreisnarmann í
Tamil Nadu. Lík Nagappa fannst þrem mán-
uðum síðar.
Árið 1990 setti Tamil Nadu á laggirnar 500
manna sérsveit sem hafði það verkefni að
handsama Veerappan. Vitað er að oft slapp
Veerappan vegna deilna lögregluyfirvalda í
þrem sambandsríkjum Indlands þar sem hann
stundaði iðju sína, Karnataka, Kerala og
Tamil Nadu.
Hann fullyrti að sumir frammámenn í sam-
bandsríkjunum þrem, einkum lögreglumenn
og stjórnmálaleiðtogar, hefðu þegið mútur af
sér og anda þeir nú vafalaust léttar, segir á
vefsíðu BBC. Hann hótaði eitt sinn að skýra
frá nöfnum þeirra.
Nú óttast margir fátæklingar frumskóga-
héraðanna einnig að hætt verði við þróun-
aráætlanir sem höfðu það markmið að minnka
stuðning fólks á staðnum við glæpaforingj-
ann.
16 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÍHALDSÖFLIN innan herforingja-
stjórnarinnar í Burma ráku á mánu-
dag forsætisráðherra landsins, Khin
Nyunt, úr embætti og hnepptu hann
í stofufangelsi, að því er talsmaður
stjórnvalda í nágrannaríkinu Taí-
landi greindi frá í gær. Munu ráða-
menn í höfuðborginni Rangoon gera
því skóna að Nyunt hafi gerst sekur
um spillingu. Fréttaskýrendur segja
hins vegar að brottrekstur Nyunts
sé hluti af valdabaráttu innan herfor-
ingjastjórnarinnar.
Nyunt hershöfðingi var þriðji
valdamesti maðurinn í Burma
(Myanmar). Talið er að hann hafi
verið handtekinn á mánudagskvöld
eftir að hann sneri aftur til höfuð-
borgarinnar Rangoon úr ferðalagi.
Nyunt, sem er 65 ára gamall, var
andlit herforingjastjórnarinnar í
Burma út á við og var álitinn tiltölu-
lega hófsamur en m.a. var hann
hlynntur því að efnt yrði til viðræðna
við leiðtoga stjórnarandstöðunnar í
landinu, Aung San Suu Kyi. Frétta-
skýrendur segja hins vegar að harð-
línumenn í stjórninni hafi lagst gegn
þessari stefnu og að Nyunt hafi verið
tekinn að einangrast innan stjórnar-
innar; m.a. í kjölfar uppstokkunar á
stjórninni í síðasta mánuði.
Er fullyrt að Than Shwe hershöfð-
ingi, leiðtogi herforingjastjórnarinn-
ar, sé alfarið á móti því að Suu Kyi,
sem á sínum tíma hlaut friðarverð-
laun Nóbels fyrir baráttu sína fyrir
lýðræði í Burma, verði leyft að taka
þátt í stjórnmálum landsins.
Fjölmiðlar í Burma sögðu í gær að
Nyunt hefði sagt af sér embætti af
„heilsufarsástæðum“. Þá kom fram
að við starfi hans hefði tekið Soe Win
en hann mun koma úr innsta hring
Thans Shwe.
Dvínandi von um umbætur
Aung San Suu Kyi hefur nú verið í
stofufangelsi í sextán mánuði sam-
fleytt en þetta er í þriðja sinn sem
herforingjastjórnin hneppir hana í
stofufangelsi.
Khin Nyunt var skipaður for-
sætisráðherra í ágúst 2003, skömmu
eftir að Suu Kyi var síðast hneppt í
stofufangelsi í kjölfar þess að til
átaka kom milli stuðningsmanna
hennar og fylgjenda herforingja-
stjórnarinnar. Nyunt tilkynnti um
aðgerðir sem áttu að stuðla að auknu
lýðræði í landinu en lítið hefur hins
vegar gerst í þeim efnum.
Segja fréttaskýrendur að brott-
rekstur Nyunts gefi til kynna að
íhaldsöfl hafi nú tekið öll völd í stjórn
landsins að nýju og að fylgt verði
harðlínustefnu í samskiptum við
stuðningsmenn Suu Kyi.
Eru þessar fregnir því sagðar
mikið áfall fyrir þá sem vonast höfðu
eftir því að Burma tæki skref í um-
bótaátt.
Harðlínuöfl styrkja völd sín
í herforingjastjórn Burma
Reuters
Lýðræðissinninn Aung San Suu Kyi (t.v.) ásamt Than Shwe, leiðtoga her-
foringjastjórnarinnar í Burma, og Khin Nyunt (t.h.) á mynd frá árinu 1994.
Forsætisráðherrann Khin Nyunt rekinn
úr embætti og hnepptur í stofufangelsi
Bangkok. AFP, AP.
LÖGREGLAN í Linköping í Svíþjóð
leitaði í gær að karlmanni um tvítugt
sem talinn er hafa stungið 56 ára
gamla konu og átta ára dreng til bana
á götu í miðbænum í gærmorgun.
Mikill óhugur er í bæjarbúum
vegna morðanna. Stjórnendur leik-
skóla og grunnskóla hleyptu ekki
börnum út í frímínútum eftir morðin
og var skóladyrum læst. Þá hvatti lög-
regla bæjarbúa til að sýna aðgæslu.
Ekki er vitað til þess að konan og
drengurinn hafi þekkt hvort annað.
Þau voru flutt á sjúkrahús en þegar
þangað var komið var drengurinn lát-
inn og konan lést síðar á skurðstofu.
Sjónarvottar sáu ungan mann
forða sér á hlaupum frá staðnum þar
sem konan og drengurinn fundust.
Lögreglan fann síðar hníf sem talið er
morðinginn hafi notað.
Að sögn Dagens Nyheter var kon-
an fótgangandi á leið til vinnu þegar
ráðist var á hana. Drengurinn býr
skammt frá morðstaðnum og er talið
að hann hafi verið á leið í skólann.
Svíar
slegnir
óhug vegna
morða
♦♦♦
DANSKA þjóðþingið hefur aflétt
þinghelgi af Flemming Oppfeldt,
þingmanni stjórnarflokksins
Venstre. Hann var handtekinn í gær
vegna gruns um að hann hefði beitt
ungan dreng kynferðislegu ofbeldi.
Oppfeldt lýsti sig saklausan, að sögn
danskra fjölmiðla. Leiðtogi jafnaðar-
manna sem eru í stjórnarandstöðu,
Mogens Lykketoft, sagði að málið
væri „hræðilegt“.
Að sögn Jyllands-Posten hefur
lögreglan rannsakað málið í viku en
gerð var húsleit í íbúð Oppfeldts í
Kaupmannahöfn og á skrifstofu hans
í Kristjánsborg á mánudag.
Venstre-maðurinn Christian Mejl-
dahl, forseti þingsins, skýrði frá því á
blaðamannafundi í gær að dóms-
málaráðuneytið hefði í gær óskað
eftir því að þingið samþykkti að þing-
helgi yrði létt af Oppfeldt svo hægt
yrði að handtaka hann og yfirheyra.
Haft var eftir Lene Espersen
dómsmálaráðherra að hún hefði vit-
að af málinu í viku. Hún segir að það
þurfi að liggja fyrir sterkar vísbend-
ingar ef farið sé fram á að þinghelgi
sé aflétt og lögreglan hafi fengið slík-
ar vísbendingar.
Oppfeldt hefur sagt sig úr þing-
flokki Venstre tímabundið. Hann
hefur verið talsmaður flokksins í fé-
lagsmálum.
Þingmaður
handtekinn
Danmörk
Kaupmannahöfn. AP.
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti á kosningafundi í
St. Petersburg í Flórída í gær. Flórída er eitt af um tíu
ríkjum sem talin eru geta ráðið úrslitum í forsetakosn-
ingunum 2. nóvember. Naumur sigur Bush í Flórída
skipti sköpum í síðustu kosningum og hann leggur því
mikið kapp á að sigra aftur í ríkinu.
Reuters
Bush á atkvæðaveiðum í Flórída
Rússland
Kjarnorku-
ver orðin
örugg
ELLEFU kjarnakljúfar af sömu
gerð og sá sem sprakk í orkuveri í
Tsjernobýl í Úkraínu 1986 eru enn í
notkun í Rússlandi en búið er að
breyta þeim og öryggisbúnaðinum
og gera kljúfana örugga. Kom þetta
fram í máli rússneskra og vest-
rænna sérfæðinga í gær.
Geislavirkt ryk dreifðist um stórt
svæði við sprenginguna 1986, 31
fórst í slysinu sjálfu og talið að
mörg þúsund manns hafi látist af
völdum geislamengunar síðar. Um-
deilt er þó hve mörg dauðsföll sé
hægt að rekja beint til slyssins
vegna þess að mikil mengun var
fyrir á umræddu svæði.
„Stjórnkerfi Tsjernóbýl-versins
var ekki fært um að taka á ástand-
inu,“ sagði Jevgení Adamov hjá
Dollezhal-stofnuninni sem hannaði
Tsjernobýl-kljúfana. Franskur sér-
fræðingur, Michel Shua, sagði að
farið hefði verið yfir kjarnakljúf í
borginni Kúrsk og gripið til sér-
stakra fyrirbyggjandi aðferða við
að efla öryggi kjarnakljúfa af
Tsjernobýl-gerðinni.