Morgunblaðið - 20.10.2004, Page 24
24 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Efnalaug og fataleiga
Garðabæjar
Garðatorgi 3 • 565 6680
www.fataleiga.is
Ný sending
af glæsilegum
samkvæmiskj
ólum
í öllum stærðu
m.
NEVER TURN YOUR MATTRESS AGAIN
Technology so advanced, it´s
TURN-FREE
Amerískar
lúxus heilsudýnur
á tilboði
TURN-FREE
Queen 153x203 cm
Verð frá 89.900.-
Skipholt 35
Sími 588 1955
www.rekkjan.is
Henson peysur í úrvali
Garðatorgi 3 210 Garðabæ s: 565-6550
Hafnarstræti 106 Akureyri s: 462-5000
HANDVERK | Vaxandi áhugi á þjóðbúningum
Morgunblaðið/Kristinn
Hafa eytt ómældum tíma
í faldbúningagerðina
Nokkrar konur svifu um gólf í glæsilegum faldbún-ingum sem voru hver öðrum fallegri og áhuga-samar konur spurðu út í vinnuna að baki bún-ingasaumnum. Þetta fór fram á sýningu á
faldbúningum sem var haldin í húsakynnum Heimilisiðn-
aðarskólans nýlega. Fyrir nokkrum árum ákváðu um tutt-
ugu konur að taka þátt í röð námskeiða í gerð faldbúnins og
þetta kvöld sýndu þær afraksturinn, gengu sjálfar um í her-
legheitunum eða leyfðu gestum að skoða gersemarnar á gín-
um.
Oddný Kristjánsdóttir og Guðrún Hildur Rosenkjær hafa
leiðbeint konunum við búningagerðina hjá Heimilisiðn-
aðarskólanum en þær eru með meistararéttindi í klæðskurði
og kjólasaumi og reka fyrir tækið Þjóðbúningastofuna.
„Við höfum fengið góð viðbrögð því nú þegar hafa bæst í
hópinn 8-9 nýjar konur og ekki er ólíklegt að fleiri bætist í
hópinn eftir kynningarfundinn sem við verðum með á fald-
búningagerð þann 23. október,“ segir Oddný Kristjáns-
dóttir, annar leiðbeinendanna.
„Það er hægt að kjósa sér einfalda leið í búningagerðinni
eða erfiðari. Velji fólk erfiðari leiðina sauma konurnar meira
út, baldýra, perlusauma eða knipla. Þá eru þær lengur fyrir
bragðið með búninginn en það er reynsla okkar að fleiri
kjósi þá leið því útsaumurinn er það sem laðar flestar að
búningagerðinni.“
Oddný segir að vaxandi áhugi sé á þjóðbúningagerð og
konur vilji í auknum mæli skarta slíkum búningi við hátíðleg
tækifæri. Hjá Þjóðbúningastofunni vinna nú þrír fagmenn í
fullu starfi við að sauma búninga fyrir fólk en ekki síst við að
breyta búningum og lagfæra. „Það er mjög algengt að við
séum að breyta búningum milli kynslóða, konur eru þá að
láta breyta búningi á sig sem amma eða mamma þeirra átti.“
Oddný segir að oft lendi þær í vand-
ræðum með að finna gömul efni í breyt-
ingarnar. „Við erum alltaf á höttunum
eftir efnum svo ef fólk á í fórum sínum
gömul efni sem það veit ekkert hvað
það á að gera við þá er vel þegið að fá
að skoða þau.“
Kennararnir: Guðrún Hildur Rosenkjær og Oddný Kristjánsdóttir.
gudbjorg@mbl.is
#$ %
& '
(%%
)$& ! %*
&
$
+(
, $$&
&(- %!
%* $& !
&
$
& #!&
.
$ /
& '
& &&
!
&
$
Svona leit búningur kvenna
út á árunum 1800—1830,
hefðbundinn faldbúningur,
skyrta, upphlutur, treyja,
samfella eða pils og
svunta, kragi, spaða- eða
krókfaldur, höfuðklútur og
hálsklútur, svo og belti.
Baldýring, blómstursaumur, perlu-
saumur og knipl er meðal þess sem um
tuttugu áhugasamar konur hafa feng-
ist við í tómstundum sínum undanfarin
ár. Þær voru að sauma sér faldbúning.