Morgunblaðið - 20.10.2004, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2004 35
MINNINGAR
fram á unglingsár. Það fannst henni
ekki tiltökumál. Þeir hafa aldrei á
leikskóla komið. Hún fylgdist mjög
vel með sínu fólki og hringdi út og
suður til að leita frétta ef viðkom-
andi hafði ekki látið heyra í sér eða
komið í einhvern tíma. Öllum krökk-
unum fannst gott að koma til hennar
og spjalla.
Hún hafði alltaf eitthvað að segja.
Hafði ákveðnar skoðanir og þau
komu ekkert að tómum kofunum hjá
henni. Hún vissi nú ýmislegt hún
amma, sögðu þau.
Síðasta árið var erfitt. Hún varð
fyrir hverju áfallinu á eftir öðru, og
þurfti að dvelja á sjúkrahúsi mestan
partinn. En hún hélt samt góða
skapinu og gálgahúmornum og
starfsfólkið á sjúkrahúsinu komst
ekki upp með neinn moðreyk við
hana frekar en aðrir. En það þótti
öllum vænt um hana og hún lét líka í
ljós mikið þakklæti fyrir þá umönn-
un sem hún fékk þar.
Hún var sterk kona og eftirminni-
leg. Ég kveð kæra tengdamóður
mína.
Ísabella Daníelsdóttir.
Í dag verður Ásdís tengdamóðir
mín borin til hinstu hvíldar, þó að
kynni okkar væru ekki löng voru
þau góð, tók hún mér opnum örmum
þegar ég kynntist Kristjáni syni
hennar og með okkur tókst mjög
góð vinátta sem er mér dýrmætur
fjársjóður. Þar sem Ásdís fór var
alltaf gaman að vera, hún var alltaf
full af krafti og orku þrátt fyrir að
vera komin á efri ár. Sumarbústað
keypti hún sér fyrir nokkrum árum
og átti hann hug hennar allan, þar
vildi hún helst vera öllum stundum
innan um blómin og trén og fram á
síðasta dag talaði hún um allt það
sem hún ætti eftir að gera þar, hafði
til dæmis áhyggjur af því að skóflan
hennar væri bitlaus og við þyrftum
að brýna hana fyrir næsta sumar.
Fyrir ári fórum við tvær saman í
ferðalag vestur í Ísafjarðardjúp og
skemmtum okkur vel. Það ferðalag
ætluðum við að endurtaka þegar
hún yrði betri til heilsunnar, en þá
ferð förum við Ásdís saman í hug-
anum. Þrátt fyrir erfið veikindi og
að hún væri bundin í hjólastól síð-
asta árið kom hún nokkrum sinnum í
heimsókn til okkar Kristjáns upp í
sumarbústað og lét ekki fötlun sína
aftra sér að komast í sveitina, kraft-
urinn og lífsgleðin var ofar öllu.
Við hlið hennar stóð Þorleifur
maðurinn hennar eins og klettur þar
til yfir lauk.
Ásdís mín, ég vil þakka þér fyrir
allar góðu stundirnar sem við áttum
saman, þær voru margar og alltaf
var gott að koma í kaffi að Króka-
hrauni 6. Nú kveð ég þig með vissu
um að þú sért komin á betri stað
sem engar þjáningar eru og þú um-
vafin vinum og ættingjum sem fóru
á undan þér. Góður Guð geymi þig
og allar minningarnar.
Hvíl í friði.
Anna Jónsdóttir.
Það eru ekki margir svo ríkir eins
og ég að njóta samvista við ömmu
sína í 31 ár.
Amma Ásdís var hörkudugleg
kona sem ég leit mikið upp til.
Atorkusemi hennar og kraftur var
eitt af einkennum hennar alla tíð.
Það sem hún skilur eftir sig í minn-
ingu okkar sem hana lifum er æði
margt. Það voru ófá skiptin sem ég
var svöng á leið heim úr skólanum
og kom við hjá ömmu Ásdísi og fékk
mjólk og punga eða vínarbrauð. Allt-
af var nóg til í kökuboxunum hennar
og ef þau tæmdust var alltaf vara-
sjóður af bakkelsi í frystinum. Ég
minnist þess ekki að hafa farið með
tóman maga frá ömmu, alltaf var
einhverju komið í mann, alveg sama
hvort maður var svangur eða ekki.
Elsku amma, takk fyrir allar
stundirnar sem við áttum saman, ég
mun sakna þín.
Ásdís.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
KRISTÍN STEFÁNSDÓTTIR,
Hamrabergi 12,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju
föstudaginn 22. októberber kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á að
láta krabbameinssjúk börn njóta þess.
Kristinn Karlsson,
Elfa Kristinsdóttir, Viðar Ófeigsson,
Karl Kristinsson, Linda María Ólafsdóttir
og barnabörn.
Ástkær faðir minn, afi, langafi og langalangafi,
ÁRNI MAGNÚSSON,
áður til heimilis
á Garðavegi 5,
Keflavík,
lést á Garðvangi, Garði, laugardaginn 16. októ-
ber.
Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstu-
daginn 22. október kl. 14.00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Lára Þórðardóttir, Einar Sveinn Guðjónsson,
Tína Gná Róbertsdóttir, Gunnar Þór Sæþórsson.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
UNNUR STEFÁNSDÓTTIR
frá Reyðará,
Siglunesi,
lést á sjúkrahúsinu á Siglufirði 16. október.
Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugar-
daginn 23. október kl. 14.00.
Hjalti Einarsson, Kristjana G. Jóhannesdóttir,
Guðrún Á. Einarsdóttir,
Stefán Einarsson, Emma F. Baldvinsdóttir,
Ásgrímur Einarsson, Susan M. Black,
barnabörn og fjölskyldur.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og
tengdafaðir,
GUNNAR HAUKUR EIRÍKSSON,
Flétturima 6,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
fimmtudaginn 21. október kl. 13.30.
Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim, sem
vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið.
Gíslína Erna Einarsdóttir,
Ragnar Georg Gunnarsson, Guðríður Sigurjónsdóttir,
Eiríkur Gunnarsson, Bára Jensdóttir,
Már Gunnarsson, Erna Sigurðardóttir,
Einar Gunnarsson, Matthildur Sigurðardóttir,
Sveinn Gunnarsson, Jóna Birna Guðmannsdóttir,
Aldís Gunnarsdóttir, Hafsteinn Örn Guðmundsson,
Hulda Gunnarsdóttir,
Örn Gunnarsson.
Elskuleg eiginkona mín,
BERGLJÓT ARNFRÍÐUR
GUNNARSDÓTTIR,
Arnarhrauni 9,
Hafnarfirði,
lést á St. Jósefsspítala Hafnarfirði mánudaginn
18. október.
Fyrir hönd aðstandenda,
Eyþór Júlíusson.
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
ÁRDÍS SÆMUNDSDÓTTIR,
Aflagranda 40,
lést mánudaginn 11. október.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð.
Gunnhildur Gunnarsdóttir, Willem F. van der Hofstede,
Margrét Gunnarsdóttir, Allan V. Magnússon,
Hafsteinn Gunnarsson, María Tómasdóttir.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GRÓA SVEINBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR,
Lindargötu 61,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans Landakoti
fimmtudaginn 14. október.
Útförin fer fram í Safnaðarkirkju Fíladelfíu
föstudaginn 22. október kl. 15.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Ragnheiður Guðmundsdóttir,
Guðmunda Ragnarsdóttir, Helge Pettersen,
Skapti A. Ragnarsson, Edda Sigurðardóttir,
Sigríður P. Ragnarsdóttir, Douglas M. Nicolson,
Klara M. Ragnarsdóttir, Sveinbjörn S. Stefánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra,
AUÐUR ELÍSABET LEIFSDÓTTIR,
varð bráðkvödd miðvikudaginn 6. október sl.
Útförin fór fram í kyrrþey.
Við þökkum þeim, sem sýndu okkur hlýhug
og stuðning.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á
Framtíðarbók Sindra Más, 0322-18-950107.
Sindri Már Jónasson,
Leifur Hauksson, Guðrún Bachmann,
Edda Sverrisdóttir, Gottskálk Friðgeirsson
og aðrir ættingjar.
Elskuleg móðir mín,
FJÓLA JÓELSDÓTTIR
fyrrv. stöðvarstjóri
Pósts og síma,
Grindavík,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði mánudaginn
18. október.
Jarðarförin auglýst síðar.
Rafnar Sigurðsson og fjölskylda.
Móðir mín, tengdamóðir og amma okkar,
MARGRÉT ÞORSTEINSDÓTTIR,
áður Borgarholtsbraut 72,
Kópavogi.
lést í Sunnuhlíð, Kópavogi, laugardaginn
16. október.
Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju
fimmtudaginn 28. október kl. 15.00.
Anna Björk Daníelsdóttir, Hafsteinn Þórðarson,
Guðmundur Þorsteinn Ásgeirsson,
Pálína Margrét Hafsteinsdóttir,
Ása Marin Hafsteinsdóttir,
Daníel Þór Hafsteinsson.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og bróðir,
HILMAR ÓLAFSSON,
Berjarima 10,
Reykjavík,
lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut
mánudginn 18. október.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðviku-
daginn 27. október kl. 11.00.
Ólöf Ragnarsdóttir,
Garðar Hilmarsson, Sigríður Benediktsdóttir,
Ragnar Hilmarsson,
Sigurlaug Hilmarsdóttir, Ómar Torfason,
Freyja Hilmarsdóttir,
Ólafur Hilmarsson, Hrefna Ingvarsdóttir,
Sigurður R. Ólafsson, Kolbrún Daníelsdóttir
og barnabörn.