Morgunblaðið - 20.10.2004, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2004 45
MENNING
Skógarhlíð 18, sími 595 1000 www.heimsferdir.is
Stórkostleg borg í hjarta Evrópu, sem Íslendingum býðst nú að kynn-
ast í beinu flugi frá Íslandi. Kraká er fyrrum höfuðborg Póllands og því
höfðu konungar þar aðsetur sitt og ber borgin þess ennþá merki enda
ótrúlega margar minjar frá þeim tímum. Hér getur þú valið um góð 3
og 4 stjörnu hótel í hjarta Kraká og spennandi kynnisferðir með farar-
stjórum Heimsferða.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 29.990
Flugsæti til Kraká, 28. okt.
með sköttum.
Netverð. Símabókunargjald
er kr. 1.500. á mann.
Verð kr. 39.990
Helgarferð, 28. okt., gistiing á hótel
IBIS með morgunmat,
m.v. 2 í herbergi í 4 nætur.
Flug, gisting, skattar.
M.v. að bókað er á netinu
www.heimsferdir.is
Fegursta borg Póllands
Helgarferð til
Kraká
28. október í 4 nætur
frá kr. 29.990
SÝNING bandaríska listamannsins
Bruce Naumans var opnuð í Túrb-
ínusal Tate Modern-listasafnsins
fyrir réttri viku síðan. Sýningin
hefur yfirskriftina Raw Materials,
eða Hrá efni. Það sérstaka við sýn-
inguna er að í hinu risavaxna rými
er einungis að finna hljóðverk og
ekkert annað að sjá en 34 svarta
hátalara á veggjum og í lofti. Ólík-
ar raddir fara með 22 ólíka texta,
allt frá hvísli og upp í öskur. Í
sumum tilfellum eru einstaka orð
endurtekin; „no-no-no“ eða „think-
think-think“, í öðrum eru textarnir
flóknari og taktfastari.
Útkoman á öllu saman er há-
vaðasöm, að sögn blaðamanns The
New York Times, Sarah Lyall.
Verkinu er ætlað að láta fólk átta
sig betur á umhverfi sínu, þó að
Nauman hafi sagt að sumir Tate-
gesta hafi gengið í gegn um sýn-
inguna án þess að átta sig á því að
hún væri til staðar.
Nauman virtist ekki hafa áhyggj-
ur af áhrifum hávaðans á starfs-
menn safnsins, sem þurfa að sitja
undir honum til marsloka á næsta
ári. „Við munum komast að því frá
fólkinu sem vinnur á þessum stað
hve mikið það þolir,“ sagði hann
við fréttamenn að sögn The New
York Times.
Bruce Nauman er enginn ný-
græðingur á sviði myndlistarinnar,
þvert á móti hefur hann verið at-
kvæðamikill í faginu í áratugi.
Fannst þó mörgum að erfitt hlyti
að vera að feta í fótspor sýningar
Ólafs Elíassonar í sama sal sem
„allir elskuðu“ eins og blaðamaður
The Guardian komst að orði í um-
fjöllun um Nauman.
Ljóst er að sýning Nauman er
afar nýstárleg. Sannreynist nú
kannski lýsingin sem myndlist-
argagnrýnandinn og aðdáandinn
Robert Hughes, notaði árið 1994 –
Nauman hefði „skapað sér sér-
stöðu: Listamaðurinn sem pirr-
ingur“.
Hávaðasamt í
Tate-túrbínunni
Reuters
Bruce Nauman gengur niður Túrbínusalinn.
Myndlist | Bruce Nauman tekur við af Ólafi Elíassyni
í Tate Modern í London
TÓNLEIKARÖÐ sú sem Háskóli
Íslands stendur fyrir og er því köll-
uð einfaldlega Háskólatónleikar
hefur göngu sína í dag. Tónleikarn-
ir eru haldnir á miðvikudögum kl.
12.30 í Norræna húsinu.
Í ár er það blásaraoktettinn
Hnúkaþeyr sem ríður á vaðið með
verkum eftir W.A. Mozart, en að
sögn Margrétar Jónsdóttur dósents
er margt annað forvitnilegt á efnis-
skránni í vetur. „Við erum ákaflega
hreykin af dagskrá vetrarins, því
þar er ýmislegt merkilegt á ferð-
inni,“ segir Margrét en bætir því
við að erfitt sé að gera upp á milli
barnanna sinna þegar hún er innt
eftir því bitastæðasta. „Á fyrstu
tónleikunum verður til dæmis blás-
araoktett, en í slíkum hópum heyr-
ist nú ekki oft. Næst verða franskir
lútusöngvar og á tónleikum í byrj-
un nóvember verða eingöngu verk
eftir Áskel Másson, og eitt þeirra
er frumflutt. 10. desember færum
við okkur yfir í djassbræðing með
hljómsveitinni Gagarín, sem leikur
eingöngu nýtt efni. Á vormisseri
verða meðal annars eingöngu ís-
lensk verk á tónleikum 9. febrúar
og þann 16. verður frumflutt verk
eftir Jóhann G. Jóhannsson. Þann
23. verður svo frumflutt verk eftir
Karólínu Eiríksdóttur, og í mars
frumflytur tríó Sunnu Gunnlaugs
tónlist eftir Sunnu þar sem leitað
er fanga í djassi, poppi og klassík.“
Athygli vekur hve þáttur nýrra
íslenskra tónsmíða er umfangsmik-
ill í efnisskrám vetrarins. Að sögn
Margrétar voru slík verk fram-
arlega í forgangsröðinni við val á
efnisskrám Háskólatónleika. „Í
auglýsingu okkar sögðum við að ís-
lensk verk og frumflutningur
þeirra nytu ákveðinnar velvildar,
vegna þess að okkur finnst það
spennandi,“ segir hún. Þó var ekki
svigrúm til að kosta gerð nýrra
tónverka af hálfu tónleikarað-
arinnar. „Það getum við því miður
ekki. Fjárhagur okkar er afar
knappur.“
Aðgangseyrir er 1.000 kr. að tón-
leikunum, en ókeypis er fyrir hand-
hafa stúdentaskírteina.
Morgunblaðið/Golli
Blásaraoktettinn Hnúkaþeyr leikur tónlist eftir W.A. Mozart á fyrstu Há-
skólatónleikum vetrarins í Norræna húsinu í dag kl. 12.30.
Tónlist | Háskólatónleikar hefja göngu
sína í Norræna húsinu í dag
Ný íslensk verk
í forgrunni
SIGURÐUR Bragason bariton-
söngvari hélt fyrir skömmu tvenna
tónleika í Bandaríkjunum í tilefni af
tuttugu ára söngafmæli sínu. Árið
1995 hélt Sigurður tónleika í Corcor-
an-listamiðstöðinni rétt við Hvíta
húsið í Washington, og þegar kom að
því nú að halda upp á söngafmælið
bauð hann forstjóra hússins tónleika
með alíslenskri efnisskrá. „Ég söng
þar á sínum tíma fyrir troðfullu húsi
og viðtökur voru mjög góðar. Þegar
ég hafði samband við hann nú, var
okkur strax boðið að koma. Ég syng
líka í nýrri listamiðstöð í New York,
Scandinavia House, sem ég þekki
ekki mikið. Ég veit þó að salurinn er
kenndur við Victor Borge, og er ekta
kammermúsíksalur og spennandi
staður.“ Efnisskrá Sigurðar og
Hjálms Sighvatssonar, píanóleikara
hans, er því alíslensk, og eins og Sig-
urður orðar það, þversnið af ís-
lenskri sönglist frá lokum 19. aldar
til okkar daga. Meðal tónskáldanna
á efnisskrá Sigurðar og Hjálms eru
Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Bjarni
Þorsteinsson,
Ingi T. Lárusson,
Árni Thor-
steinsson, Sig-
valdi Kaldalóns,
Páll Ísólfsson,
Jón Leifs, Jón
Ásgeirsson, Þor-
kell Sigurbjörns-
son, Atli Heimir
Sveinsson, Leifur
Þórarinsson, Fjölnir Stefánsson,
Ríkarður Örn Pálsson, Hjálmar H.
Ragnarsson, Jónas Tómasson, Mist
Þorkelsdóttir, Hildigunnur Rúnars-
dóttir og Tryggvi M. Baldvinsson.
Þeir Sigurður og Hjálmur ætla
einnig að halda tónleika með þessari
efnisskrá á Íslandi og í Þýskalandi,
þar sem Hjálmur hefur búið í um 20
ár, og Sigurði hefur að auki verið
boðið að syngja í St. Smith Square í
London að ári. Þá ráðgerir Sigurður
að hljóðrita íslensku efnisskrána og
gefa út á geisladiski á næsta ári.
Um helgina birtist dómur um tón-
leika Sigurðar í Washington Post.
Gagnrýnandi blaðsins, Cecelia
Porter, segir að það hafi verið sama
hvers konar tilfinningar Sigurður
hafi túlkað, söngurinn hafi borið
með sér kjarna þess sem íslenskt er.
Á efnisskrána hafi hann fléttað sam-
an íslenskum sönglögum, jafnt inn-
rænum, seiðandi lögum sem öðrum
kraftmiklum og voldugum af miklu
öryggi. Næmi og hugmyndaauðgi
Hjálms í píanóleiknum er lofuð sér-
staklega.
„Þeir fluttu Sprett eftir Svein-
björn Sveinbjörnsson á harða
spretti og voru jafn öruggir og fullir
andríki í söngvum Árna Thorsteins-
sonar og Ríkarðar Arnar Pálssonar.
Dásamlegur bassablær raddar Sig-
urðar léði lögum Bjarna Thorsteins-
sonar og Inga T. Lárussonar ang-
urværa dimmu, milli þess sem hann
hvíslaði blíðlega falsettu í lögum
Páls Ísólfssonar og Þorkels Sig-
urbjörnssonar. Viðfelldinn frásagn-
arhæfileiki Sigurðar tónleikana á
enda tjáði heimalands hans löngu,
björtu nætur.“
Tónlist | Sigurður Bragason fagnar söngafmæli
Vel tekið í Washington
Sigurður Bragason
HVER og hvað er Lopameyjan?
Sambland af gjörningi, leikhús-
persónu sem minnir meðal annars á
Barböru trúð og spaugstofuna en er
þó fyrirbæri innan myndlistar.
Lopameyjan er sköpunarverk Ólaf-
ar Björnsdóttur myndlistarkonu og
hún hefur birst við ýmis tækifæri
hérlendis og erlendis. Nú hefur Ólöf
sett upp heila sýningu í kringum
Lopameyjuna, á opnunni birtist hún
ásamt fylgdarmeyjum sínum en ann-
ars er sýningin verksummerki um
tilvist hennar, ljósmyndir, hlutir,
myndbönd. Lopameyjan, klædd í
einstaka útgáfu af íslenskri lopa-
peysu, snertir marga fleti. Hún er
eins og hlægileg útgáfa af Íslands-
kynningarefni þar sem Grýla, álfar,
íslensk fegurð og langir leggir mæt-
ast í einni og sömu persónunni. En
Lopameyjan lifir í myndlistinni og
tilvist hennar er í órjúfanlegu sam-
hengi við hana. Afstaða hennar til
myndlistarinnar er blendin, til dæm-
is notar hún verk eftir Julian Opie
eins og trommu og sýnir þetta á
myndbandi í Kling og Bang. Reynd-
ar hefði ég ekki vitað á hvað hún er
að tromma nema lesa það í sýning-
arskránni. Ég veit ekki alveg hvað
hún er að fara með þessu, en túlka
það helst sem hluta af þessum til-
búna naífa persónuleika Lopameyj-
unnar sem einnig sést á ljós-
myndum, persónuleika sem á
barnslegan hátt býr yfir svo mikilli
sköpunarþörf að hún verður að fá út-
rás hvar sem er og hvenær sem er.
Líklega er Ólöf hér að deila á lista-
menn sem sýna merki um slíkt hið
sama eða birtingarmáta slíkrar
sköpunarþarfar í samfélaginu sem
eru flestir klisjur. Lopameyjan er
undarlegt sambland sem erfitt er að
henda reiður á og það er styrkur
hennar og veikleiki um leið. Annars
vegar er hún fyndin og skemmtileg
svo maður fær ekki varist brosi en
hins vegar spyr maður sig hvað
meira búi að baki en skemmtigildið,
alla vega geri ég meiri kröfur til
myndlistar en þær að hún sé fyndin.
Þar sem Lopameyjan byggist fyrst
og fremst á leikrænum og sjón-
rænum áhrifum sem sýnd eru á ljós-
myndum og myndbandi er tæpast
nema von að önnur verksummerki
um hana nái að lifa sjálfstæðu lífi. Í
besta falli vekja þau upp mynd
Lopameyjunnar sem er fjarverandi.
Á sýningunni í Kling og Bang er þó
ein undantekning frá þessu, prjón-
aðir „treflar“ sem bæði ná að skapa
myndrænt verk og fela í sér óræðar
skírskotanir, hér er verk sem nær
skrefi lengra en innsetningarnar
með stólum, ull og garni. Ólöf hefur
greinilega hæfileika til að sjá húmor
í hlutunum í kringum sig og mynd-
ræna sýn sem skapar þessa persónu
og umhverfi hennar en að mínu mati
mætti Lopameyjan vera tannhvass-
ari, það vantar í hana alvöruna,
ádeiluna, háðið og gagnrýnina. Það
virðist vera mottó dagsins að vera
fyndinn og gera grín að hlutunum en
alvöru ádeila er ekki í tísku og það er
miður, því hver ný kynslóð ætti jú að
deila á þá sem á undan gengur eða
hvað?
MYNDLIST
Kling og Bang
Til 24.okt. Kling og Bang er opið kl. 14–
18, fimmtudaga til sunnudaga.
LOPAMEYJA, BLÖNDUÐ TÆKNI, ÓLÖF
BJÖRNSDÓTTIR
Ragna Sigurðardóttir