Morgunblaðið - 20.10.2004, Síða 49
Bítlarnir hafa verið vinsælt viðfangs-
efni í bíómyndum. Hér eru þeir sjálf-
ir í hinni vinsælu Hard Days Night.
BÍTLARNIR bresku eru á leið til
Hollywood. Eða öllu heldur er í und-
irbúningi í bíóborginni söngleikur
sem ber vinnuheitið All You Need Is
Love og mun innihalda slatta af lög-
um Bítlanna.
Það er Revolution-stúdíóið sem
mun framleiða myndina en handritið
skrifuðu hinur gamalreyndu bresku
handritshöfundar Dick Clement og
Ian La Frenais sem m.a eru höfundar
kvikmyndahandritsins sem byggðist á
sögu Roddys Doyles The Commit-
ments.
Bítlaverkefnið er rómantísk saga
um ástir milli bresks drengs og
bandarískrar stúlku á tímum hinna
miklu samfélagsbreytinga á 7. ára-
tugnum. Söngleikurinn mun ekki
fjalla með neinum beinum hætti um
Bítlana, en lög þeirra og textar verða
hinsvegar sérstakur drifkraftur í sög-
unni og munu leikarar bæði syngja og
dansa við nokkur af þekktustu lögum
sveitarinnar. Viðræður standa nú við
rétthafa Bítlalaganna um að fá að
endurhljóðrita lögin sérstaklega fyrir
myndina, en gert er ráð fyrir að um
17–18 lög verði notuð.
„Allir eiga sér minningar sem
tengjast Bítlunum; hvort sem það er
fyrsti kossinn eða í fyrsta sinn sem þú
sást stelpuna standa þarna hinum
megin við götuna, þá eru allar líkur á
að Bítlalag hafi hljómað nærri,“ segir
La Frenais. „Allir elska þessi bítlalög,
sama á hvaða aldri þeir eru eða hver
bakgrunnurinn er.“
Clement og La Frenais voru kunn-
ingjar og samstarfsfélagar George
Harrison og einnig Ringo Starr. Þeir
unnu fyrir Handmade kvikmyndaver-
ið hans Harrisons og leikstýrði Clem-
ent m.a. myndinni Water frá 1985.
Þeir Clement og La Frenais eru
þar að auki að vinna að Broadway-
söngleik ásamt Brian Johnson söngv-
ara AC/DC.
Kvikmyndir | Áhugi fyrir Bítlunum í Hollywood
Bítlasöngleikur í bígerð
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2004 49
ÞRIÐJA plata Ceres 4, sem nefnist
einfaldlega C4, hefur litið dagsins ljós.
Áður hefur þetta snjalla ljóðskáld
sent frá sér tvær skífur; Kalda-
stríðsbörn, sem
kom út árið 2000,
og Í uppnámi, árið
2001. Kalda-
stríðsbörn var
ljóðadiskur þar
sem Ceres flutti á
áhrifaríkan hátt
hárbeittar pólitískar kviður sínar, þar
sem yrkisefnin voru sótt til kalda-
stríðsáranna, undir áhrifahljóðum
matreiddum af Dj Channel. Á Í upp-
námi kvað hins vegar við nýjan tón,
hljóðgervlum hafði verið skipt út fyrir
hina gullnu blöndu gítars, bassa og
trommna, og útkoman; gullaldarpönk
af bestu gerð, borið uppi af textum
Ceresar, beinskeyttri háðsádeilu á
menn og málefni. Á skífunni er hér
um ræðir er á margan hátt höggið í
sama knérunn og á Í uppnámi. Þó er
hljómsveitin SannaðuÞað sem Ceres
hafði sér til fulltingis á Í uppnámi
horfin á braut, og hefur Ceres nú
fengið til fylgilags við sig Geirfuglinn
og Miðnesmanninn Frey Eyjólfsson,
sem stendur sína plikt af stakri prýði
líkt og hans er von og vísa. Freyr
semur öll lög plötunnar ásamt því að
sinna gítarleik og bakröddum, og
leika á bassa í félagi við Herbert Við-
arsson.
Útkoman úr þessu samstarfi Cer-
esar og Freys er stórskemmtileg svo
ekki sé dýpra í árinni tekið. Textarnir
vega hér ansi þungt á móti lagasmíð-
unum, má jafnvel segja að lagasmíð-
arnar séu leðruð framreiðsla á skáld-
skap Ceresar.
Platan hefst á laginu „Könguló“,
þriggja hljóma rokki með undarlega
poppaðri bassalínu, AC/DC gít-
arsándi, og óskilgetnum skólaballa-
anda svífandi yfir vötnum. Hnyttin
tvíræðnin er allsráðandi í laginu
„Klofvega“ sem fylgir í kjölfarið, og í
„Hóra“ er sölumennska neyslu-
samfélagsins skotmarkið þar sem
þeir syngja „Við erum hórur“. Ekki
er laust við að lagið „Vanilla“ hljómi
dálítið einsog uppfylling, skilur lítið
eftir sig nema broslegt rím. Í laginu
„Ísland“ hins vegar ná þeir félagar
nýjum hæðum. Snilldartexti Ceresar
þar sem hann fléttar texta þjóðskáld-
anna óhikað við sinn eigin á frábæran
hátt, sbr. fyrstu línuna; „Ó, landið þú
ert svo ögrum skorið“ og „Ó fögur
ertu fósturmold/og ástkæra eldgamla
Ísafold“ (Bjarna Thorarensen) og
„Þú hrímhvíta móðir með hreina sál/
ég sel þig í dag fyrir ál“ (Jónas Hall-
grímsson). Háðsádeila á hinn róm-
antíska íslenska þjóðarrembing sbr.:
„Við hljótum að vera mest og best/
eigum Gullfoss og Geysi og íslenska
hest“. Tvímælalaust eitt besta lag
plötunnar. Í „Sjoppustelpa“ kveður
við annan tón og skemmtilegur en ör-
lítið Pixies skotinn gítarhljómur lags-
ins gerir það einkar áhugavert. Í lag-
inu „Snjór“ er nýrómantíkin
allsráðandi. Skemmtilegir hljóð-
gervlar, eitilþéttur bassaleikur og
undarlega óræðar bakraddir Freys
sameinast um að gera þetta að öðru
af tveimur bestu lögum plötunnar.
Hið kröftuga rappskottna lag „Svarti
listinn“ setur svo punktinn yfir i-ið
með beittri pólitískri ádeilu.
Söngstíll Ceresar er skemmtilegur
og fjölbreytilegur, hann ýmist emjar
lögin áfram líkt og Skrámur end-
urfæddur („Klofvega“) eða syngur
digrum karlaróm („Rafmagnsstóll“)
og allt þar á milli. Það sem helst
mætti finna þessari afurð til foráttu
er á köflum hálfgert sambandsleysi
milli trymbils og bassaleikara, sem
leiðir til þess að grunnurinn verður
ekki nógu þéttur og flutningur því
flatari en hann hefði þurft að vera.
Þetta er sérstaklega áberandi í
fyrstu þremur lögunum („Könguló“,
„Klofvega“ og „Hóra“) en í öðrum
lögum er þetta eins og best verður á
kosið („Ísland“, „Savannah“,
„Snjór“). Hugsanlega hefði hinn þétti
bassaleikari Skímó, Herbert Við-
arsson, mátt fá að leika aðeins lausari
hala. Trommuleikur er líka heldur
máttleysislegur á köflum, en
aggressívur trommuleikur er það
sem tónlist sem þessi þarf öðru frem-
ur. Upptökustjórn og hljóðblöndun
er með afbrigðum góð, þar sem mjög
vel hefur tekist að fanga hráleikann
og þann frumkraft sem í tónlistinni
býr. Hljómborðsleikur upptökustjór-
ans er líka frábærlega vel heppnaður
í lögunum „Hóra“ og „Snjór“.
Í heildina litið er C4 einstaklega
vel heppnuð plata. Hér er gleðin við
völd, þó vissulega sé ádeilan í text-
unum sterk á köflum, en í þessari
gleði felst líka einmitt sterk ádeila á
hina heilögu reiði pönkaranna og hið
úr sér gengna form pönksins. Nið-
urstaða: Ein allra áhugaverðasta
plata ársins.
Ljóð í leðri
TÓNLIST
Íslenskar plötur
C4 er ný hljómplata með Ceres 4. Með
honum leika Freyr Eyjólfsson (gítar/
bassi/bakraddir), Herbert Viðarsson
(bassi), Páll Úlfar Júlísson (trommur) og
Þorkell Heiðarsson (hljóðgervlar). Textar
eru eftir Ceres og lög eftir Frey Eyjólfs-
son. Upptökur voru í höndum Þorkels
Heiðarssonar. 33,17 mínútur.
Ceres 4 – C4
Grétar Mar Hreggviðsson
ÁLFABAKKI
kl. 4.
frábær léttleikandi rómantísk gamanmynd frá
framleiðendum “Bridget Jones Diary”, “Love
Actually” og “Notting Hill”
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i 16 ára
KRINGLAN
Sýnd kl. 8.
KRINGLAN
kl. 6.
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.45.
KRINGLAN
Sýnd kl. 8.
KRINGLAN
Sýnd kl. 10.
M.M.J.
Kvikmyndir.com
„Wimbledon er því úrvals
mynd, hugljúf og gamansöm,
og ætti að létta
lundina hjá bíógestum í
skammdeginu." M.M.J.
kvikmyndir.com
AKUREYRI
Sýnd kl. 6. Ísl tal.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.
Nýjasti stórsmellurinn frá framleiðendum
Shrek. Toppmyndin í USA í dag.
j ll l
. .
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4. Ísl tal.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.50. Ísl tal.
ÁLFABAKKI
kl. 6, 8 og 10.10.
AKUREYRI
kl. 6.
HIÐ ILLA ÁTTI SÉR UPPHAF
MÖGNUÐ
HROLLVEKJA
FRÁ RENNY
HARLIN
FRÁBÆR LOKAKAFLI SEM
REKUR FORSÖGU HINS ILLA
MÖGNUÐ
HROLLVEKJ
A FRÁ
RENNY
HARLIN
FRÁBÆR LOKAKAFLI SEM
REKUR FORSÖGU HINS ILLA
MILLA JOVOVICHI I
Sérstakt Yu Gi Oh! Safnkort fylgir með öllum miðum. 4
tegundir til að safna!
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.20.
KEFLAVÍK
kl. 8 og 10.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8. Ísl tal.
Ég heiti
Alice og
ég man
allt
AKUREYRI
Sýnd kl. 8.
AKUREYRI
kl.10. B.i.16 ára.
HIÐ ILLA ÁTTI SÉR UPPHAF
B.i 16 ára
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.is
KJÖTSÚPa
ÍSLENSK
1. dag
vetrar
yrkjustörf heima hjá honum.“
Hamill segist hafa hlerað margt
varðandi framtíð Stjörnustríðssög-
unnar; eins og t.d. að til tals hefði
komið að gera einhvern tímann
sjónvarpsþætti sem myndu þá
halda áfram þessari „endalausu
sögu“.
Hamill segir einmitt að ýmislegt
hafi komið upp á frumstiginu, eins
og það að framleiðendurnir hefðu
viljað breyta titli myndarinnar því
þeir voru smeykir við að hafa
„stríð“ í honum. „Þeir voru vissir
um að það myndi fæla frá konur og
studdu það með einhverri tölfræði.
En Lucas sagði við þá: „Komið með
betri titil og við getum rætt málin.“
Það kom enginn betri titill.“
MARK Hamill, sem lék Loga geim-
gengil í fyrstu þremur Stjörnu-
stríðsmyndunum (sem nú eru hluti
4–6), kemur reglulega fram og ræð-
ir um Stjörnustríðsreynslu sína og
það æði sem ríkt hefur í kringum
þessar vinsælu myndir.
Á dögunum mætti hann á fyrir-
lestur sem haldinn var af Lucasfilm
í tilefni af útkomu fyrstu þriggja
myndanna sem framleiddar voru á
mynddiskum í fyrsta sinn.
Þar ljóstraði Hamill upp ýmsu
sem aldrei hefur komið fram áður;
eins og t.d. því að George Lucas,
leikstjóri og höfundur myndanna,
hafi í fyrstu séð fyrir sér allt að tólf
myndir, í fjórum þríleikjum.
„Hann spurði mig árið 1976, áður
en við kláruðum fyrstu myndina,
hvernig mér litist á að leika í hluta
sjö, átta og níu. Ég spurði hvenær
það yrði og hann svaraði þá:
„2011“. Hann sagði mér að þetta
yrði lítið hlutverk fyrir mig, en
veigamikið. Ég sagðist um leið vilja
vera með. Ég dýrka manninn og
væri til í að gera hvað sem er fyrir
hann; meira að segja smá garð-
Hamill sem Logi geimgengill en hér
heldur hann á hinum vitra Yoda.
Kvikmyndir | Hamill um framtíð Stjörnustríðs
Tólf myndir og
sjónvarpsþættir?
ÞESSI danska þrívíddarteiknimynd
hefur notið mikilla vinsælda í heima-
landi sínu Danmörku, þrátt fyrir
einhverjar raddir um að börn ættu
ekki að sjá þessa mynd. Ég mæli
hins vegar með henni. Þetta er fynd-
in og vel gerð mynd fyrir eldri
krakka og unglinga. Líkt og rómuðu
kvikmyndargerðarmennirnir á bak-
við Pixar teiknimyndirnar, ná þessir
Danir að skilja algerlega það sem
unglingar fíla og húmorinn þeirra.
Myndin fjallar um þeirra heim, vonir
og ótta í lífinu á skólalóðinni, og talar
til þeirra út frá þeirra sjónarhorni.
Hún er jú ansi ógeðsleg stundum –
en fyndin um leið.
Aðalsöguhetjan Terkel er með
kjúklingshjarta, en Jason vinur hans
er mun hugrakkari og vill helst
horfa á hryllingsmyndir á nóttinni.
Þegar fyllibyttan Stewart frændi
buffar strákana Sten og Saki, of-
sækja þeir aumingja Terkel í skól-
anum. Hann reynir að færa athygl-
ina frá sér yfir á feitu stelpuna
Dorrit, en það endar afskaplega illa.
Myndin er uppfull af frábærum
persónum og það er farið nýjar og
óvæntar leiðar í sköpun þeirra.
Mndin er full af kolsvörtum húmor
sem er langt frá því að vera sam-
kvæmt pólitíkri rétthugsun. Satt er
að á stundum er hún mjög ofbeldis-
full, en þá er oftast verið að gera
grín að hryllings- og ofbeldismynd-
um og atriðin verða hreinlega bráð-
fyndin. Húmorinn felst að miklu
leyti í því að verið sé hafa þvílík at-
riði í teiknimynd.
Það var sannarlega gaman að sjá
þessa fersku dönsku mynd, en hana
þyrfti að talsetja og setja á íslenskan
myndbandamarkað.
Bráðfyndinn teiknihryllingur
KVIKMYNDIR
Regnboginn – Dönsk kvik-
myndahátíð
Leikstjórn: Kresten Vestbjerg Andersen,
Thorbjørn Christoffersen og Stefan Fjeld-
mark. Handrit og raddir: Mette Heeno og
Anders Matthesen.
DK Nordisk Film 2004.
Terkel í klípu (Terkel i knibe)
Hildur Loftsdóttir