Morgunblaðið - 31.10.2004, Síða 1
STOFNAÐ 1913 297. TBL. 92. ÁRG. SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Amerísku
auðmennirnir
Lokagrein Åsne Seierstad frá
Bandaríkjunum 29
Tímaritið og Atvinna í dag
Tímarit Morgunblaðsins | Miðborgarfjölskylda með sterkar skoðanir
Snyrtipinnar og skartið þeirra Frábær Riesling og yndisleg kampavín
Atvinna | Svíar vilja íslenska tannlækna Starfsmat hjá borginni
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350
Buttiglione
afþakkar
tilnefningu
Róm. AP, AFP.
ROCCO Buttiglione, sem Silvio Berlusconi,
forsætisráðherra Ítalíu, hafði tilnefnt til að
fara með dómsmál í framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins, dró sig til baka í gær.
Áður höfðu þingmenn á Evrópuþinginu hót-
að að hafna allri framkvæmdastjórninni ef
Buttiglione yrði haldið til streitu.
Haft var eftir Berlusconi í fyrrakvöld, að
líklega væri ekki um annað að ræða en til-
nefna annan mann í stað Buttigliones og
telja margir líklegt, að hann tilnefni Mario
Monti í hans stað. Hefur hann áður átt sæti
í framkvæmdastjórninni og fór þá með sam-
keppnismál. Er hann fyrrverandi prófessor
í hagfræði og nýtur almennrar virðingar.
Jose Manuel Barroso, nýr forseti fram-
kvæmdastjórnar ESB, hefur síðustu daga
átt miklar viðræður við leiðtoga ESB-
ríkjanna um þessi mál en meirihluti þing-
manna á Evrópuþinginu hafnaði Buttig-
lione vegna afturhaldssamra skoðana hans í
trú- og samfélagsmálum.
Á lokasprettinum er mest áhersla
lögð á þau ríki þar sem baráttan
er tvísýnust. Í fyrradag voru þeir
í New Hampshire, Flórída og
Ohio og í gær ætluðu þeir að vera
með fundi í sex ríkjum.
Myndbandið frá bin Laden þar
sem hann hótar nýjum árásum á
Bandaríkin, hefur breytt áherslu
frambjóðendanna á síðustu metr-
unum og hryðjuverkastríðið yfir-
skyggir nú allt annað. Viðbrögð
Kerrys voru að heita að láta
einskis ófreistað við að kveða nið-
ur al-Qaeda. Um leið sakaði hann
Bush um að hafa látið bin Laden
sér úr greipum ganga í Tora Bora
í Afganistan. Sagði hann, að for-
setinn hefði ekki beitt hernum
sem skyldi, heldur ætlast til, að
afganskir stríðsherrar ynnu
verkið. Hefur Bush brugðist
ókvæða við þessu og sakað Kerry
um að niðra bandaríska hernum.
Líklega engin tilviljun
Fréttaskýrendur segja, að lík-
lega sé það engin tilviljun, að
myndbandið frá bin Laden komi
fram núna og hugsanlega sé því
ætlað að hafa einhver áhrif á
kosningabaráttuna. Hver þau
muni verða, ef einhver, sé hins
vegar óljóst. Myndbandið sýnir,
að bin Laden er á lífi og einnig, að
al-Qaeda er enn að verki þremur
árum eftir upphaf hryðjuverka-
stríðsins. Það gæti hugsanlega
gagnast Kerry. Á hinn bóginn
gæti það haft þau áhrif á
óákveðna kjósendur, að þeir
snerust til fylgis við Bush.
Hryðjuverka-
stríðið í
brennipunkti
Óvíst um áhrif yfirlýsinga bin
Ladens á kosningarnar vestra
Washington. AFP.
Reuters
Saman á endasprettinum
Arnold Schwarzenegger og George W. Bush forseti í pappírsregni á kosn-
ingafundi í Ohio í fyrrakvöld. Hét Bush því, að Bandaríkjamenn myndu
ekki láta hótanir Osama bin Ladens hafa áhrif á sig.
OSAMA bin Laden og nýtt myndband frá honum setja svip sinn á síð-
ustu daga kosningabaráttunnar í Bandaríkjunum. Hafa báðir fram-
bjóðendurnir, þeir George W. Bush forseti og John Kerry, heitið að
uppræta al-Qaeda, hryðjuverkasamtök bin Ladens, en saka jafnframt
hvor annan um að nota hryðjuverkastríðið í pólitískum tilgangi.
Reykjavíkurbréf/28
SKRIFAÐ var undir nýjan kjarasamning milli
sjómanna og útvegsmanna í húsakynnum ríkis-
sáttasemjara í gær, laugardag. Samningurinn
gildir til maíloka árið 2008 og á þeim tíma hækka
kauptrygging og launaliðir sjómanna og skip-
stjórnarmanna um 17,6%.
Fer samningurinn nú til atkvæðagreiðslu með-
al sjómanna og er niðurstöðu ekki að vænta fyrr
en um miðjan desember. Frá gildistöku samnings
munu launaliðir hækka um 4,25%, um 3% hinn 1.
janúar næstkomandi, 3,5% 1. janúar 2006, 2,25% í
janúar 2007 og loks 3,5% hinn 1. janúar árið 2008.
Eru þetta sambærilegar hækkanir og í samningi
Starfsgreinasambandsins við atvinnurekendur,
nema að samningstíminn er einu ári lengri.
Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasam-
bandsins, segir það mest um vert að hafa náð
fram ákvæðum í samninginn um lífeyrissjóðs-
greiðslur af öllum launum, bæði í séreignasjóð og
viðbótarlífeyrissparnað. Tekist hafi að ná fram
baráttumálum til margra ára, m.a. ákvæði um
löndunarfrí og lengri uppsagnarfrest.
Vegvísir til framtíðar
Árni Bjarnason, forseti Farmanna- og fiski-
mannasambandsins, segir að hér sé um tíma-
mótasamning að ræða að mörgu leyti. Hann færi
sjómenn „á rétta staði í tíma og rúmi“ og þeir hafi
nú náð fram svipuðum kjarabótum og aðrir laun-
þegar. Árni vonast til þess að samningurinn verði
samþykktur í atkvæðagreiðslu. Gerist það ekki,
verði hann að fara að leita sér að nýrri vinnu.
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri
LÍÚ, segir samninginn vera mikið gleðiefni. Gríð-
arleg samningsvinna sé nú að baki og undanfarið
hafi deiluaðilar lagt hart að sér, með dyggri að-
stoð ríkissáttasemjara. Friðrik segir mestu
skipta að samningurinn sé vegvísir inn í framtíð-
ina í samskiptum sjómanna og útvegsmanna og
vonandi séu tímar vinnudeilna og verkfalla til
sjós liðnir. Möguleikar hafi skapast á aukinni
hagræðingu sem muni skila bæði sjómönnum og
útgerðinni ávinningi.
„Tímamótasamningur“
sjómanna og útvegsmanna
Launaliðir hækka
um 17,6% til vors 2008
Morgunblaðið/Golli
Kátt var yfir talsmönnum sjómanna og útvegsmanna í Karphúsinu í gær, þeim Friðriki J. Arn-
grímssyni, Árna Bjarnasyni, Björgólfi Jóhannssyni, formanni LÍÚ, og Sævari Gunnarssyni.
Möguleikar til/6
FJÁRMUNIR verða tryggðir til að hrinda
í framkvæmd tillögum vegna hættumats,
sem unnið er að vegna eldgosa og hlaupa
frá Eyjafjallajökli og vesturhluta Mýrdals-
jökuls. Þetta kom fram í ávarpi Björns
Bjarnasonar, dómsmálaráðherra, á opnum
fundi í félagsheimilinu Goðalandi í Fljóts-
hlíð í gærmorgun. Þar voru frumniðurstöð-
ur hættumats kynntar íbúum og eins á
fundi síðdegis í gær í Landeyjum.
Kjartan Þorkelsson, sýslumaður Rang-
æinga og formaður stýrihóps hættumats-
ins, sagði mikilvægt að heimamenn yrðu
fræddir jafnóðum og hættumatið vinnst og
kallað eftir skoðunum þeirra og tillögum.
Magnús Tumi Guðmundsson prófessor
og Guðrún Larsen sérfræðingur kynntu
niðurstöður nýrra rannsókna á eldvirkni í
fyrrnefndum gosstöðvum og hlaup af þeirra
völdum. Þá kynnti Víðir Reynisson, frá al-
mannavarnadeild ríkislögreglustjóra, verk-
áætlanir almannavarna vegna mögulegra
hamfara í Mýrdalsjökli eða Eyjafjallajökli.
Ná þær til svæðisins frá Hellu að Kirkju-
bæjarklaustri.
Morgunblaðið/RAX
Magnús Tumi Guðmundsson og Björn
Bjarnason ræðast við á fundinum.
Hættumat vegna eldgosa
og hlaupa frá Mýrdals-
og Eyjafjallajökli
Mestar líkur
á að Kötlu-
hlaup fari um
Mýrdalssand
Hættan á/10
♦♦♦