Morgunblaðið - 31.10.2004, Page 32
32 SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FORSETAKOSNINGARNAR í
Bandaríkjunum 2. nóvember næst-
komandi upptaka fréttatíma og
stjórnmálaumræðu á
Vesturlöndum í öfugu
hlutfalli við þýðingu
þeirra fyrir stefnu
Bandaríkjanna, að
minnsta kosti í al-
þjóðamálum. Grund-
vallarmunur er lítill
sem enginn á flokk-
unum að baki fram-
bjóðendanna Bush og
Kerrys sem báðir eru
langt til hægri á
mælikvarða evrópskra
stjórnmála. Þriðji
frambjóðandinn, Na-
der, hefur allt aðra sýn til mála en
stendur utan valdakjarnanna í
bandarískum stjórnmálum og hef-
ur lítil sem engin færi á að kynna
sín sjónarmið fyrir kjósendum. Hið
óbeina kosningakerfi gegnum kjör-
menn veldur því að frambjóðandi
sem hlýtur meirihluta atkvæða er
ekki öruggur með að ná kjöri eins
og gerðist þegar Al Gore varð af
forsetaembættinu árið 2000 þrátt
fyrir fleiri atkvæði en Bush. Óvíst
er að úrslitin verði ljós strax eftir
kjördag, allt eins víst að vikur og
mánuðir líði áður niðurstaða liggi
fyrir og verði fyrst útkljáð fyrir
dómstólum.
Sama afstaða til
Palestínu og Írak
Þótt kosningabaráttan sé hávaða-
söm og fjárausturinn
gengdarlaus ber flest-
um utanaðkomandi
stjórnmálaskýrendum
saman um að Kerry á
forsetastóli muni litlu
breyta varðandi utan-
ríkistefnu Bandaríkj-
anna. Afstaða fram-
bjóðandans Kerrys til
Ísraels og Palestínu
er í engu frábrugðin
stefnu Bush stjórn-
arinnar. Þetta mál er í
raun prófsteinn á
hvort Kerry sem for-
seti myndi einhverju breyta í
stefnu Bandaríkjanna gagnvart
arabaheiminum. Sem þingmaður
studdi Kerry hið ólögmæta árás-
arstríð gegn Írak og lýsir því nú
yfir í kosningabaráttunni að hann
stefni þar að sigri á sömu for-
sendum og Bush. Einnig frambjóð-
andinn Kerry er andsnúinn því að
Alþjóða stríðsglæpadómstóllinn fái
lögsögu yfir Bandaríkjamönnum á
sama tíma og þarlend yfirvöld fara
með meinta hryðjuverkamenn verr
en hunda.
Íran hugsanlega
næsta skotmarkið
Engum dylst að Bandaríkin eru að
búa sig undir að beita Íran hörðu
vegna stefnu stjórnarinnar í Teh-
eran í kjarnorkumálum. Sú afstaða
stjórnvalda vestra tengist líkunum
á að Ísraelsstjórn kunni fyrr en
varir að gera árásir á kjarn-
orkuver Írana vegna öryggishags-
muna sinna. Hvor keppinautanna
sem fer með völd í Hvíta húsinu
næstu fjögur ár mun gera þá kröfu
til Evrópuríkja að þau leggist á
sveifina gegn Íran. Hætt er við að
hugmyndir manna um að Kerry á
forsetastóli muni draga í land þeg-
ar kemur að fyrirbyggjandi árás-
um á önnur ríki reynist tálsýn.
Talsmaður þýskra sósíaldemókrata
í utanríkismálum, Karsten Voigt,
segir við Der Spiegel nýkominn
frá Bandaríkjunum nú viku fyrir
kosningarnar, að þótt Bush og
Kerry komi ólíkt fyrir í ræðustól
sé munurinn á þeim ekki mikill
þegar litið er á einstök stefnuat-
riði.
Ekki minnst á
loftslagsbreytingar
Umhverfismál eru gleymd og graf-
in í kosningabaráttunni vestra
nema hjá utangarðsmanninum
Nader. Bandaríkin hafa sætt
harðri gagnrýni á alþjóðvettvangi
vegna afstöðu sinnar til Kýótóbók-
unarinnar. Ríkið sem leggur til
þriðjung af mengun lofthjúpsins
með gróðurhúsalofttegundum neit-
ar að taka þátt í að draga úr
mestu umhverfisógn okkar tíma.
Demókratar og frambjóðandinn
Kerry eyða ekki frekar en Bush
orði að þessari ógn sem Bandarík-
in eiga drýgstan hlut að – ekki síð-
ur en því víti sem heimurinn er að
breytast í vegna hermdarverka og
örvæntingar fólks meðal fátækra
og undirokaðra þjóða.
Kosningar sem
litlu munu breyta
Hjörleifur Guttormsson
skrifar um forsetakosning-
arnar í Bandaríkjunum ’Engum dylst aðBandaríkin eru að búa
sig undir að beita Íran
hörðu vegna stefnu
stjórnarinnar í Teheran
í kjarnorkumálum.‘
Hjörleifur Guttormsson
Höfundur er fyrrv.
alþingismaður og ráðherra.
ATVINNA
mbl.is
Atvinnuhús ehf. fasteignasala, Skúlagötu 30,
símar 561 4433/698 4611 - Atli Vagnsson hdl.
1660 fm nýbygging
með 9 metra lofthæð
Á næstunni verður reist stálgrindar-
bygging á Kletthálsi 3, eins og sú
er myndin sýnir, staðsett andspæn-
is nýju bílasölunum við Klettháls. Af-
hendist fullbúin í mars nk. Grunn-
flötur 1.284 fm. Milligólf 379 fm.
Selst í einu eða tvennu lagi.
Hafið samband.
HVASSALEITI - M. BÍL-
SKÚR Falleg 4ra herb. íbúð á 2. hæð í
góðu fjölbýli ásamt 20 fm bílskúr. Íbúðin
skiptist í hol, eldhús, baðherb., stofu og 3
svefnherb. Parket á gólfum og endurnýjað-
ar innréttingar. Laus fljótlega. V. 16,5 m.
4556
REKAGRANDI - M. SÉR-
GARÐI Stórglæsileg og björt 2ja her-
bergja 67 fm íbúð með 20 fm timburpalli í
húsi sem búið er að taka allt í gegn að
utan. Eignin sjálf er mjög vönduð s.s. inn-
réttingar, gólfefni o.fl. Eignin skiptist í hol,
skrifstofuhorn, eldhús, geymslu, stofu, bað-
herbergi og herbergi. V. 12,5 m. 4559
ÆSUFELL - MEÐ ÞAK-
GARÐI Vorum að fá í sölu 119 fm
„penthouse“-íbúð á 8. hæð í lyftuhúsi.
Íbúðin skiptist m.a. í stofu, borðstofu, hol
og þrjú herbergi. Íbúðinni fylgir 23 fm inn-
byggður bílskúr. Stór þakgarður tilheyrir
íbúðinni. Stórglæsilegt útsýni. V. 15,0 m.
4436
GOÐHEIMAR Snyrtileg og björt 86
fm þriggja herb. íbúð á jarðhæð/kjallara.
Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús,
tvö svefnherb. og baðherb. Í sameign er sér-
geymsla og sameiginlegt þvottahús. Parket
á gólfum og flísar á baði. V. 13,9 m. 4555
LANGABREKKA Falleg efri sér-
hæð í tvíbýlishúsi á góðum stað í Kópavog-
inum. Eignin skiptist í hol, baðherbergi,
geymslu, eldhús, tvö herbergi og stofu.
Geymsluloft. Sameiginlegt þvottahús á
jarðhæð. Fallegt útsýni. V. 14,9 m. 4577
FLÉTTURIMI - MEÐ BÍL-
SKÝLI Vorum að fá í sölu mjög fallega
96 fm 4ra herb. íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýl-
ishúsi (6 íbúðir eru í stigagangi). Íbúðin
skiptist m.a. í stofu og 3 herbergi. Rúm-
góðar svalir. Íbúðinni fylgir stæði í opnu bíl-
skýli. V. 15,4 m. 4537
SÓLVALLAGATA - STAND-
SETT Vorum að fá í einkasölu fallega og
mikið stands. 3ja herb. íbúð í risi í 4-býlis-
húsi við Sólvallagötu. Góðir kvistir eru á
íbúðinni. Stór lóð til suðurs. Húsið hefur nýl.
verið málað. V. 12,5 m. 456
81 fm hæð í 3-býlishúsi við Sörlaskjól. Hæðinni fylgir mjög góður 43 fm bílskúr. Hæðin
skiptist m.a. í stofu og tvö herb. Þvottahús í íbúð. Glæsilegt sjávarútsýni. Íbúðin er laus
nú þegar. Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14.00-17.00. V. 17,5 m. 4279
Falleg og mikið endurnýjuð 90 fm 3ja herb. neðri hæð í 3-býlishúsi á eftirsóttum stað.
Svalir eru á íbúðinni. Af þeim er gengið út í garð. Íbúðin hefur verið standsett á smekk-
legan hátt, m.a. glæsilegt flísalagt baðherbergi með hornbaðkari. Íbúðin verður til sýnis
í dag, sunnudag, frá kl. 14.00-16.00. V. 16,9 m. 4508
OPIÐ HÚS - REYNIMELUR 43, NEÐRI HÆÐ
Vorum að fá í einkasölu glæsilega um 70 fm 2ja herb. íbúð á 10. hæð í lyftuhúsi við
Aflagranda. Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu. Stórglæsilegt sjávarútsýni er úr íbúðinni.
Yfirbyggðar flísalagðar svalir. Húsvörður er í húsinu. Ýmiss þjónusta er í húsinu en m.a.
er hægt að fá keyptan heitan mat í hádeginu. V. 16,9 m. 4571
AFLAGRANDI - F. ELDRI BORGARA
OPIÐ HÚS - SÖRLASKJÓL 66,
MIÐHÆÐ - LAUS STRAX
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Melalind - Kóp.
Nýkomin í einkasölu á þessum frábæra útsýnisstað glæsileg 122,5 fer-
metra íbúð ásamt 26,1 fermetra sérstæðum bílskúr á efstu hæð í góðu vel
staðsettu fjölbýli í Lindahverfi í Kópavogi. Eignin skiptist í forstofu, hol,
eldhús, borðstofu, stofu, tvö stór barnaherbergi, hjónaherbergi, baðher-
bergi, þvottahús og geymslu. Innréttingar eru glæsilegar og gólfefni eru
parket og flísar. Stórar 20 fermetra svalir. Myndir af eigninni eru á mbl.is.
Verð 25,5 millj. 104965