Morgunblaðið - 31.10.2004, Qupperneq 34
Sá deyr ei, sem heimi
gaf lífvænt ljóð
Einar Benediktsson, skáld, fædd-
ist 31. október 1864 og eru því 140
ár liðin frá fæðingu hans. Hann
lést hinn 12. janúar 1940. Þótt Ein-
ar hafi verið mikill heimsborgari
átti Ísland hug hans allan. Hann
varði ævinni í að magna líf, tungu
og list þjóðarinnar. Þess vegna er
ástæða til að heiðra minningu hans
í dag.
Einar var lögfræðingur að
mennt og gegndi ýmsum störfum
um ævina; embættismaður, lög-
maður, fasteignasali, kaupsýslu-
maður og ritstjóri. Hann stofnaði
fyrsta dagblað landsins, Dagskrá,
árið 1896, og skrifaði alla tíð mikið
um stjórnmál, sögu og menningu.
Ástríða Einars var samt skáld-
skapur og birtist hann í fimm bók-
um; Sögum og kvæðum, Hafbliki,
Hrönnum, Vogum og Hvömmum.
Hann þýddi einnig leikritið Pétur
Gaut eftir Henrik Ibsen. Kvæði
Einars Benediktssonar eru full af
djúpri speki, sterkum tilfinningum
og stórbrotnum náttúrulýsingum.
Málfarið er meitlað og mergjað.
Algyðistrú setur svip á mörg
kvæði Einars og gefur þeim aukna
dýpt. Kristján Albertsson hefur
látið hafa eftir sér að „[e]kkert
annað skáld [hafi] ort af svo djúpri
trúarvitund og lotningu fyrir guð-
dómi æðsta máttarvalds allífs og
tilveru“.
Mikið hefur verið skrifað um
ævi og kvæði Einars Benedikts-
sonar. Valgerður Benediktsson
(eiginkona Einars til margra ára),
Steingrímur J. Þorsteinsson, Sig-
urður Nordal, Jónas Jónsson,
Björn Th. Björnsson, Gils Guð-
mundsson og síðast en ekki síst
Guðjón Friðriksson hafa, auk
nokkurra erlendra höfunda, skrif-
að bækur um Einar. Einnig hafa
margir skrifað greinar og ritgerðir
um Einar, þar á meðal þeir Krist-
ján Albertsson, Kristján Karlsson
og Þorvaldur Gylfason.
Steingrímur, sem var bók-
menntafræðingur og prófessor, lét
eftirfarandi orð falla: „Einar Bene-
diktsson er vafalaust einhver
merkilegasti maður, sem fæðst
hefur á Íslandi, og einn þeirra ör-
fáu samtímamanna okkar, sem
munaður verður og metinn eftir
þúsund ár, ef nokkur veit þá deili á
íslenskum mönnum og menntum.“
Á Einar erindi við
nútíma Íslendinga?
Franski fræðimaðurinn dr. Patrick
Guelpa, sem hefur einsett sér að
kynna Einar fyrir
Frökkum, sagði í við-
tali: „Prúðmennskan
og andríkið, nánd við
alþýðu manna, örlæti
og margt fleira ein-
kenndi líf Einars og
störf. Hann fer ekki
troðnar slóðir í skáld-
skap sínum, og það er
einmitt eitt mesta
sérkenni hans. Einar
klæddi hugmyndir
sínar og tilfinningar
óvenjulegum tákn-
myndum. Þetta þótti mér bestu
ástæðurnar fyrir því að kynna
hann Frökkum. Það er ómaksins
vert að koma Einari Benediktssyni
til vegs hér í Frakklandi.“ Guelpa
telur Einar eiga erindi við Frakka
og vill að þeir átti sig á hversu
stórt skáld hann var.
En hvað með Íslendinga? Er
Einar vel kynntur fyrir þeim?
Þrátt fyrir að mikið hafi verið
skrifað um hann er sannleikurinn
sá að þekking fólks á kveðskap
Einars ristir almennt ekki djúpt.
Oft er vitnað í hann á hátíðlegum
samkomum, en segja má að þekk-
ing fólks á kveðskap Einars sé oft
jafn yfirborðskennd og slíkar sam-
komur. Íslendingar virðast vera
mun betur að sér varðandi verk
ýmissa annarra rithöfunda og
skálda.
Ástæðan er ef til vill sú að Einar
Benediktsson er nánast útskúfaður
úr grunn- og framhaldsskólum.
Nemandi sem lokið hefur stúd-
entsprófi hefur þurft að lesa þrjár
til fjórar bækur eftir Halldór Lax-
ness, en aðeins brot úr einu ljóði
eftir Einar (Einræður Starkaðar).
Er Einari nægur
sómi sýndur?
Einari Benediktssyni var sýndur
mikill sómi eftir andlát sitt, þegar
hann var fyrstur manna lagður í
heiðursgrafreit á Þingvöllum, þar
sem hann hvílir nú ásamt Jónasi
Hallgrímssyni. Því miður er ekki
hægt að segja það sama um þau 64
ár sem liðin eru frá andláti hans.
Styttan, sem reist var af Einari
á Miklatúni í Reykjavík, er illa
staðsett, ómerkt og borginni til
skammar. Engu safni um Einar
hefur verið komið á fót, þó að upp-
lagt hefði verið að hafa slíkt safn í
Höfða, þar sem hann bjó lengi, eða
í Herdísarvík, þar sem hann bjó
síðustu æviárin. Minningu Einars
er ekki haldið nægjanlega á lofti.
Skýjaborgir
Vefritið Skýjaborgir.com hóf
göngu sína 30. september síðastlið-
inn. Þar munu birtast greinar um
menningu, listir og hugvísindi, við-
töl við lista- og fræðimenn, lista-
gagnrýni, kvæði, brot úr bókum og
fleira. Ritið er helgað Einari Bene-
diktssyni og reglulega verður
fjallað um hann og hans kveðskap.
Tilgangur Skýjaborga er að
fjalla um menningu, listir og fræði
á þann hátt sem okkur líkar. Von-
andi verður eitthvað sem birtist á
ritinu einhverjum innblástur og
örvun til sköpunar.
Það er við hæfi að láta afmæl-
isbarnið eiga síðasta orðið. Tvö
síðustu erindin í kvæðinu Kross-
götur hljóða þannig:
Þetta eitt hef ég lært – ég stend einn, með
vilja,
útlagi, frjáls, þar sem götur skilja;
og tælinn í ástum og tvímáll í svörum
ég tryggðaeið finn mér brenna á vörum.
Ég á mér nú trú og efa til hálfs,
mín ást er án vonar, mitt ljóð er án máls. –
Og þó sver ég ástum og óði án tafar
mína æfi frá þessum degi til grafar.
140 ár frá fæðingu
Einars Benediktssonar
Ásgeir Jóhannesson og
Hjalti Snær Ægisson skrifa
um Einar Benediktsson
’Minningu Einars erekki haldið nægjanlega
á lofti.‘
Hjalti Snær Ægisson
Höfundar eru ritstjórar Skýjaborga.
Ásgeir Jóhannesson
34 SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Fyrir viðskiptavini okkar auglýsum við eftir:
- 4ra til 5 herbergja íbúð í 200 Kópavogi, verð að 22 milljónum.
- Einbýlishúsi í Lindahverfi í Kópavogi, rúmur afhendingartími.
- Einbýlishúsi á einni hæð á höfuðborgarsvæðinu.
- Einbýlishúsi með aukaíbúð.
- Íbúð á svæði 103 (Kringlan/Hvassaleiti), verð allt að 21 milljón.
Við hugsum um hverja eign eins og hún sé okkar eigin.
Leggjum metnað okkar í að vinna örugglega og fagmannlega að
hagsmunum kaupenda og seljenda.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali.
SÉRBÝLI
Hvannalundur - Gbæ Fallegt
182 fm einbýlishús á einni hæð. Eignin
skiptist í flísal. forstofu, rúmgóðar sam-
liggj. stofur, eldhús með nýlegum tækj-
um og góðri borðaðst., þvottaherb./búr,
sólskála með hita í gólfi, fjögur herb. og
nýlega endurnýjað baðherb. Hús nýmál-
að að utan. 41 fm bílskúr. Hiti í inn-
keyrslu og stéttum fyrir framan hús. Fal-
leg ræktuð lóð með timburverönd, skjól-
veggjum og lýsingu. Verð 31,9 millj.
Akrasel Mjög fallegt og vel staðsett
um 300 fm einbýlishús með 35 fm innb.
bílskúr á góðum útsýnisstað. Á neðri
hæð eru forstofa, gesta w.c., hol, þvotta-
herb., þrjú stór herb., geymsla og um 35
fm alrými. Uppi er rúmgott eldhús m.
miklum innréttingum og góðri borð-
aðstöðu, saml. stórar stofur m. útg. á
svalir, þrjú herb. auk sjónvarpsherb. og
baðherb. Möguleiki er að útbúa séríbúð
á neðri hæð. Ræktuð lóð. Mikils útsýnis
nýtur af efri hæð. Verð 37,9 millj.
Maríubaugur Stórglæsilegt og vel
skipulagt 192 fm einbýlishús, tengihús,
með 38 fm innb. bílskúr. Húsið er allt afar
vandað með sérsmíðuðum innréttingum
úr bæsaðri eik og skiptist m.a. í gesta
w.c., stórt sjónvarpshol, stórt baðherb.
m. hornbaðkari, rúmgóðar stofur, eldhús
með vönduðum tækjum og góðri borð-
aðstöðu og 2 herb. Massívt eikarparket
og flísar á gólfum og er hiti í þeim flest-
um. Innbyggð halogenlýsing í öllum loft-
um. Öll loft eru tekin upp og er því mikil
lofthæð. Falleg lóð með afgirtri verönd.
Hiti í stéttum og innkeyrslu. Fullkomið
öryggiskerfi. Verð 34,9 millj.
Haukanes - Gbæ Vel staðsett
269 fm einbýlishús með 55 fm innbyggð-
um bílskúr á Arnarnesi. Eignin skiptist í
forstofu, gesta w.c., þvottaherb., hol m.
sjónvarpsaðst., setustofu, um 25 fm sól-
skála, rúmgott eldhús, 4 svefnherb. og
baðherb. Í bílskúr er innréttuð 2ja herb.
íbúð. Ræktuð eignarlóð. Verð 38,5 millj.
Langagerði Glæsil. um 450 fm ein-
býlishús á 2 hæðum með innb. 38 fm bíl-
skúr með góðri lofthæð. Eignin skiptist
m.a. í stórar stofur m. útg. á flísal. svalir,
stórt eldhús með góðri borðaðst., 6
herb., auk bókaherb., 2 góð baðherb.,
annað nýlega endurn., auk sundlaugar
3x8 m og gufubaðs. Auk þess sér 2ja
herb. íbúð á neðri hæð. Vand. innrétt. og
gólfefni. Fallegt útsýni til Esjunnar og víð-
ar. Ræktuð lóð með gróðurhúsi. Hiti í
innkeyrslu og stéttum. Verð 65,0 millj.
Naustabryggja - glæsileg
3ja herb. útsýnisíbúð Glæsileg
83 fm íbúð á 3. hæð auk sérgeymslu í
kjallara í góðu fjölbýli alveg niður við sjó-
inn. Eldhús með innréttingu úr hlyni og
vönduðum tækjum, rúmgóð stofa, tvö
herb., bæði með góðum skápum, og
glæsilegt flísalagt baðherb. með
vönduðum tækjum. Parket á gólfum. Fal-
legt útsýni yfir smábátahöfn. Sameign til
fyrirmyndar. Lyftuhús. Verð 16,9 millj.
Brúnastekkur
Fallegt 334 fm einbýlishús á tveimur
hæðum ásamt 50 fm tvöf. bílskúr.
Eignin skiptist m.a. í gesta w.c., eld-
hús með góðum borðkrók, stofu,
borðstofu, fjölda herbergja, tvö bað-
herb. auk 67 fm séríbúðar. Mikið út-
sýni úr stofu. Falleg ræktuð lóð með
hellulögðum veröndum og vegg-
hleðslum. Hiti í stéttum fyrir framan
hús. Verð 48,5 millj.
Laugarásvegur
Nýkomið í sölu vel staðsett einbýlis-
hús á þessum eftirsótta stað í
Reykjavík. Húsið er 322 fm að stærð,
kjallari og tvær hæðir, með innb. bíl-
skúr. Á hæðunum eru m.a. sam-
liggjandi skiptanlegar stofur, eldhús
með góðum borðkrók, 6 herbergi og
tvö flísalögð baðherbergi auk gesta
w.c. Í kjallara eru vinnuherbergi auk
geymslu og þvottahúss. Ræktuð lóð.
Verð 50,0 millj.
Heimsendi 1 - Kópavogi
Nýkomið sérlega gott 14 hesta
hús með haughúsi, samtals 180
fm. Sérgerði, hitatúba, endabil.
Laust strax. Myndir á mbl.is og
hraunhamar.is.
Sörlaskeið 17 - Hf.
Glæsilegt nýlegt 12 hesta hús
með kjallara. Allt sér. Hitaveita.
Sérgerði. Frábær staðsetning.
Verð 8,9 millj. 101099
Kaplaskeið 20 - Hafnarfirði
Nýkomið eitt nýtt 6 hesta
endabil. Afhendist fljótlega
fokhelt. Gerði frágengið
m/stétt. Verð 4,5 millj. 106094
Heimsendi 8 - Kópavogi
12 básar í nýlegu hesthúsi með
gerði, kaffistofu, salerni og
drenmottum að hluta. Frábær
staðsetning og aðkoma sérlega
góð. Næg bílastæði. Fullbúin
eign í sérflokki. Verð 7,5 millj.
106558
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111