Morgunblaðið - 31.10.2004, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 2004 41
MINNINGAR
Nú er Auður vin-
kona okkar látin. Við
kynntumst Auði árið
1995, þá vorum við að
vinna á sama veitinga-
stað. Hún var mjög
sjálfstæð, lífleg ung
kona sem vissi nákvæmlega hvað
hún vildi.
Við höfðum allar gengið í gegn-
um ýmislegt og áttum margt sam-
eiginlegt. Við vorum allar á sama
aldri og börnin okkar voru einnig á
sama aldri.
Fljótlega myndaðist sterkur vin-
skapur á milli okkar og við urðum
eins og stór fjölskylda. Við nutum
þess að miðla reynslu okkar og við
áttum mjög vel saman. Reyndum
þrátt fyrir allt að lifa, læra og
hugsa um börnin okkar.
Auður var án efa sterka mann-
eskjan í vinahópnum, það var það
sem hún þurfti alltaf að vera fyrir
sjálfa sig. Auður þurfti að hafa fyrir
lífinu og það var ekki spurt, heldur
framkvæmdi hún hlutina.
Þegar við kynntumst Auði var
hún glaðlynd kona og átti auðvelt
með að koma öllum í gott skap, hún
var alltaf til í spaug og fjör og ef
eitthvað bjátaði á var hún alltaf sú
sem benti á að þetta væri ekkert
eins voðalegt og maður héldi og allt
mundi lagast. Alveg sama hvað það
var þá átti hún til umhyggju og
skilning.
Síðustu ár höfum við ekki heyrt
mikið af Auði, en hún bjó í hjörtum
okkar og mun ávallt vera þar. Við
vildum vita hvað hún væri að gera
og upplifa.
Það er auðvelt að brosa þegar við
hugsum um það skemmtilega, það
var mikið brallað og hlegið. Við sát-
um heilu næturnar að tala saman
um allt og ekki neitt og spila á spil
og alltaf var stutt í smitandi hlátur
Auðar.
Okkar dýpsta ósk er að við hefð-
um fengið að kveðja Auði og gera
upp líf okkar saman, sem einkennd-
ist af sterku vináttusambandi.
Það ríkti mikil sorg innra með
okkur þegar við fengum fregnir af
láti hennar og strax varð okkur
AUÐUR ELÍSABET
LEIFSDÓTTIR
✝ Auður ElísabetLeifsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 21.
ágúst 1971. Hún varð
bráðkvödd 6. októ-
ber síðastliðinn og
var útför hennar
gerð í kyrrþey 18.
október.
hugsað til Sindra Más,
við finnum svo til með
honum og hugur okkar
er hjá honum alla
daga. Innilegar sam-
úðarkveðjur til fjöl-
skyldu Auðar, og við
biðjum Guð að veita
ykkur styrk og hugg-
un.
Blessi Drottinn
burtför þína og beini
ljósi á þína leið. Taki
hann við þér í vörslu
sína svo verði þér förin
greið.
Ásta Marta Ró-
bertsdóttir og Kolbrún
Magnúsdóttir.
Elsku Auður, hér er ljóð til þín,
eftir Stefán í Fagradal. Ég sakna
þín innilega og kveð þig með þess-
um orðum, sem mér finnst end-
urspegla þig.
Hér stend ég hjá spegli og strýk mitt
hár,
sem stormurinn lék um í þrjátíu og þrjú
ár.
Í nótt gekk ég ung og nakin til hvílu,
og naut þess að vera til.
Úr því að mér var gæfan gefin,
þá geri ég það sem ég vil.
Ég þarf ekki að spyrja um eitt né annað
í auðmjúkum bænar-róm.
Þó að ég hvíldi með augun aftur,
var eitthvað svo bjart og heitt,
líkt og eldur um æðar rynni
og allt væri með stjörnum skreytt.
Ég man það alltaf meðan ég lifði,
að ég mundi ekki hvað ég hét,
að ég var heit af heilagri gleði,
en heyrði þó að ég grét.
Hvorugt talaði eitt einasta orð,
en engu gat hjartað leynt.
Aldrei var bros mitt blíðara en þá
og brjóst mitt jafn-englahreint.
Aldrei, aldrei fann ég það fyrr,
hve hyldjúpan unað auðmjúk kona
gat elskhuga sínum veitt.
Ekki ég iðrast stund eina
með manninum sem var mér þá hjá.
Aldrei var lífið eins ljúft og síðan þá
og loftin jafn fagurblá.
Áður var ég fátæk af öllu
en upplifði ég hamingju himins og
jarðar
og leyndasta helgidóm.
Megi guðs englar vaka yfir þér.
Þín vinkona
Kolbrún Magnúsdóttir.
Mikil sorg og söknuður fylgir frá-
falli ástvina, ekki síst er ungt fólk
kveður þennan heim. Við skiljum
ekki af hverju ung kona er hrifin á
brott frá ungum syni.
Minningar um Auði streyma
fram í huga okkar, fallegt kraftmik-
ið barn sem alltaf lá mikið á, ung og
glæsileg kona og móðir.
Vegir okkar lágu sjaldnar saman
síðustu ár en þegar hist var á förn-
um vegi þá var ávallt hlýtt bros og
sjáumst, þannig var Auður Elísa-
bet.
Með þessu ljóði eftir Steindór
Sigurðsson kveðjum við þig elsku
frænka.
Að degi liðnum kviknar ljós við ljós,
öll loftsins bláfirð skín í silfurvefjum;
í bleikum fjarska blikar ljóssins ós,
þar brenna rósaský með gullnum
trefjum.
Svo bjarma í hug mér bros þín glöð og
skær,
svo bjart var heiði dags í augum þínum
og ljóma og yl þín endurminning slær
á allt, sem kemur nálægt vegum mínum.
Ei deyr, sá gefur bros og blíðumál
því bros og hjartans orð á jörðu lifir;
fer stillt og hljótt úr eins í annars sál
og eilífbjart það vakir mannheim yfir.
Elsku Sindri Már, við vottum þér
og ættingjum þínum okkar dýpstu
samúð.
Geir, Jórunn og fjölskylda.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Skilafrestur Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi). Ef útför hefur farið fram
eða grein berst ekki innan hins til-
tekna skilafrests er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Minningar-
greinar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Svafar Magnússon
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Halldór Ólafsson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
www.englasteinar.is
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
INGIBJARGAR SIGURÐARDÓTTUR
bókbindara,
Bollatanga 11,
Mosfellsbæ.
Innilegar þakkir til Helga Sigurðssonar, krabba-
meinslæknis, Ásdísar Emilsdóttur, Gunnhildar Davíðsdóttur og Kristínar
Skúladóttur, hjúkrunarfræðinga krabbameinsdeildar Landspítalans við
Hringbraut. Einnig til hjúkrunarþjónustunnar Karitasar og starfsfólks líknar-
deildar Landspítalans í Kópavogi fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Hallgrímur Þór Hallgrímsson,
Emil Birgir Hallgrímsson, Edda Svavarsdóttir,
Guðfinna Björk Hallgrímsdóttir,
Þóra Björg Hallgrímsdóttir, Tjörvi Einarsson,
Inga Bjartey, Óðinn Páll og Una Rán.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
KRISTÍNAR STEFÁNSDÓTTUR,
Hamrabergi 12,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir fyrir frábæra umönnun, nær-
gætni og hlýju, færum við Sigurði Björnssyni
krabbameinslækni, starfsfólki göngu- og legudeilda krabbameina Lands-
pítalans við Hringbraut, yndislegu hjálparhellunum hjá Karítas og líknar-
deild Landspítalans í Kópavogi.
Guð blessi ykkur.
Kristinn Karlsson,
Elfa Kristinsdóttir, Viðar Ófeigsson,
Karl Kristinsson, Linda María Ólafsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
CONCORDIA K. NÍELSSON,
Hrafnistu,
Reykjavík,
sem lést sunnudaginn 24. október, verður
jarðsungin frá Áskirkju þriðjudaginn 2. nóvem-
ber kl. 13.00.
Karl Níelsson,
Ólafur G. Karlsson, Ásdís Karlsdóttir,
Þorsteinn Karlsson, Hanna B. Herbertsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
BJÖRNS B. TRYGGVASONAR
fyrrv. aðstoðarbankastjóra
Seðlabanka Íslands,
fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn
2. nóvember kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir,
en þeim, sem vilja minnast Björns, er bent á deild L-1, Landakotsspítala:
0120-15-377507, kt. 500300-2130.
Dóra Hvanndal,
Valgerður B. Björnsdóttir,
Anna Guðrún Björnsdóttir,
Bjarni Þór Björnsson, Guðrún Rögnvaldardóttir,
Björn Halldórsson,
Valgerður Halldórsdóttir,
Helga Ragna og Svava Bjarnadætur.
Okkar innilegustu þakkir fyrir samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegrar dóttur okkar,
systur og unnustu,
HJÖRDÍSAR KJARTANSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir viljum við færa öllum þeim,
sem af alúð og hjartans einlægni studdu
Hjördísi í baráttu hennar heima og erlendis.
Magnea Guðmundsdóttir, Kjartan Ólafsson,
Ólafur Kjartansson og Peter Fork.