Morgunblaðið - 31.10.2004, Side 50
50 SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.30
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.15.
Bakvið martraðir hans leynist
óhugnalegur sannleikur
DENZEL WASHINGTON MERYL STREEP
Frá leikstjóra Silence of the Lambs
Sýnd kl. 6 og 8.
DV
V.G. DV
S.V. Mbl.
ÞÆR ERU MÆTTAR AFTUR...ENN BLÓÐÞYRSTARI!
KYNGIMAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR SEM FÆR HÁRIN TIL AÐ RÍSA.
Loksins mætast frægustu skrímsli
kvikmyndasögunnar í mögnuðu
uppgjöri!
kl. 3.40, 6, 8.30 og 10.50 B.i. 14 ára.
Sýnd kl. 3.20, 5.40, 8, og 10.20. B.i. 14 ára.
Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára.
Þorirðu að velja
á milli?
Fór beint á
toppinn USA!
Kvikmyndir.is
Ó.H.T Rás 2
Sýnd kl. 8. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 6.
THE HUNT FOR THE BLOOD ORCHID
THE
FORGOTTEN
04.11.04
THE
FORGOTTEN
04.11.04
Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal. Sýnd kl. 2 og 3.20 Ísl. tal.Sýnd kl. 4. Ísl. tal.Sýnd kl. 4. Ísl. tal.
VINCE VAUGHN BEN STILLER
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10 B.i. 14 ára.
Loksins mætast frægustu
skrímsli kvikmyndasögunnar í
mögnuðu uppgjöri!
Þorirðu að velja á milli?
Fór beint á
toppinn USA!
VINCE VAUGHN BEN STILLER
punginn á þér!
Ó.Ö.H. DV
S.V. Mbl.
THE HUNT FOR THE BLOOD ORCHID
„Ég anda, ég sef, ég míg
... Tónlist“ Bubbi
Morthens
Til heljar og til baka með
atómbombunni Bubba
Morthens
ÞÆR ERU MÆTTAR AFTUR...ENN BLÓÐÞYRSTARI!
KYNGIMAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR SEM FÆR HÁRIN TIL
AÐ RÍSA.
Þ R ERU MÆTTAR AFTUR...ENN
BLÓÐÞYRSTARI!
KYNGIMAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR
SEM FÆR HÁRIN TIL AÐ RÍSA. Mjáumst
í bíó!
DodgeBall
Sýnd kl. 5, 8 og 10.50. B.i. 16 ára.
YFIR 31.000 GESTIR!
Sálin hans Jóns míns er lang-lífasta popphljómsveit Ís-lands í seinni tíð og hefurviðhaldið vinsældum sínum
frá stofnun, árið 1987. Hljómsveitin
tók sér hvíld eftir tónleika á Broad-
way síðastliðið gamlársdagskvöld
og hafði erillinn verið mikill fram að
því, þrjár breiðskífur á jafn mörg-
um árum, linnulaust hljómleikahald
auk söngleiksins Sólar og Mána
sem settur var upp í Borgarleikhús-
inu.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
hljómsveitin hefur farið í frí en allt-
af hefur hún komið tvíefld til baka
með rafhlöðurnar drekkhlaðnar.
Breytt tónleikafyrirkomulag
Hvað hafa Sálarliðar nú verið að
bauka í þessu níu mánaða hléi?
„Menn hafa hneppt ýmsum hnöpp-
um. Svo ég byrji á sjálfum mér þá
eignaðist ég son í vor og í fyrsta
skipti í hálfan annan áratug lagðist
ég í sumarferðalög með fjölskyld-
unni. En ég hef líka verið duglegur
við að syngja hér og þar með ýms-
um samverkamönnum, m.a. „sálar“-
sveitinni Straumum. Einnig hef ég
samið töluvert á árinu, mestan part
texta fyrir aðra listamenn. Samhliða
þessu öllu hef ég svo verið í nánast
fullu háskólanámi þannig að það er
nú ekki eins og maður sitji auðum
höndum þótt Sálin sé í orlofi. Við
þetta allt bætist svo brennandi
golfáhugi. Gummi notaði tímann
m.a. til að senda frá sér sólóplötu og
að sögn verið að fylla aðeins á
lagalagerinn. Friðrik og Jóhann
hafa töluverðan starfa af því að
leika fyrir ýmsa listamenn og í leik-
húsum en jafnframt starfar Friðrik
sem hljóðmaður, líkt og Jens, sem
verið hefur með annan fótinn í
Latabæ undanfarna mánuði.“
Hvernig verða komandi tónleikar
byggðir upp?
„Dagskráin verður með nokkuð
hefðbundnu sniði í þessum stutta
túr, en við hyggjumst þó endurnýja
prógrammið eitthvað, sum lög fá
hvíld en önnur koma inn af bekkn-
um í staðinn. Við lítum öðrum þræði
á þennan túr sem upptakt að nokkr-
um breytingum sem við hyggjumst
gera á tónleikadagskránni á næsta
ári. Þá er meiningin að breyta að-
eins tónleikaformi því sem löngum
hefur verið við lýði hérlendis og er
oftar en ekki kennt við „sveitaball“,
þótt öllum megi ljóst vera að sveita-
böll, eins og þau tíðkuðust forðum,
þekkjast vart lengur. Ég hér ekki
að tala um að setja upp fjöl-
listasýningu með trúðum eða
eldspúandi fakírum, heldur frekar
að bjóða upp á heilsteyptari tón-
leika, sem eru t.d. ekki sund-
urklipptir af hléum eða hangsi langt
fram eftir nóttu. Við munum leita
leiða til að færa okkar rétti fram
með ögn fjölbreyttari hætti en verið
hefur og bjóða upp á markeraðri og
dýnamískari tónleika.“
Ný hljóðversplata
Hver var kveikjan að nýja laginu
ykkar, „Tíminn og við“?
„Lagið er úr ranni Guðmundar og
hefur svolítið innbyggðan trega og
textinn, sem ég setti saman, fjallar
um tímann í víðum skilningi og er
að heita þrískiptur. Fyrsti hlutinn
er almennt um tímann og það vald
sem hann hefur yfir okkur, annar
hluti um tímann og hverfulleikann
og þriðji hlutinn um mikilvægi þess
að gefa sér tíma – þrátt fyrir að
hann sé knappur – og reyna að
verja honum vel og auðvitað helst
með þeim sem standa manni næst.
Segja má að miðkaflinn sé innblás-
inn af því að nýlega misstum við
góða samferðamenn, þá Rafn Jóns-
son og Pétur Kristjánsson, en það
vakti mann óneitanlega til hugsunar
um mikilvægi þess að nota líftímann
svo vel sem kostur er.“
Svo er ný plata í burðarliðnum er
það ekki?
„Jú. Eftir áramót ætlum við aftur
að hægja aðeins á tónleikahaldi og
vinna í lagasmíðum sem vonandi
skila sér í hlustir þjóðarinnar þegar
sól tekur að hækka á lofti. Mér þyk-
ir líklegt að það muni enda í stórri
plötu, sem kæmi væntanlega út með
haustinu, jafnvel fyrr, ef vel vinnst.“
Einstök blanda
Hvernig tilfinning er það að fara í
nýja plötu og byrja með hreint
borð? „Nokkuð hressandi bara. Það
er nokkuð um liðið síðan við gerðum
„venjulega plötu“, því við höfum á
síðustu þremur plötum verið að fást
við fyrirfram ákveðna hug-
myndafræði og unnið tónlistina
samkvæmt nokkuð skipulögðum
áætlunum, en ekki leyft lögunum að
fæðast frjáls og óháð, eins og jafnan
fyrr. Sú aðferðafræði hefur sína
kosti og galla, en mér segir svo
hugur að menn hlakki til að hafa
óbundnar hendur. Lög og útsetn-
ingar síðustu þriggja platna hafa
verið svolítið „stór“, ef ekki yf-
irdramatísk og epísk á Sálarlegan
mælikvarða, en nú er stefnan að
nálgast upprunann aðeins og útlit
fyrir að næsta plata sverji sig að
vissu leyti í ætt við fyrri og e.t.v.
léttari verk.“
Hvað er það sem heldur ykkur
gangandi?
„Ég er ekki alveg viss um hvað
það er. En fyrir utan hið augljósa,
tónlistaráhuga og spilagleði, er ég
helst á því að slíkra svara sé að leita
í persónugerðinni og því að raðast
hefur einkar heppilega í bandið í því
tilliti. Ég er sannfærður um það, að
hljómsveitar verði ekki langra daga
auðið ef allir meðlimir eru snillingar
eða mjög sterklega meinandi
stjórnendur. Og án þess að ég sé að
draga okkur félagana í dilka eða
gera mönnum mishátt undir höfði
tel ég að Sálin sé afar heppileg
blanda og að menn séu nokkuð vel
meðvitaðir um kosti og galla hver
annars, þekki þanþolið, spili sam-
kvæmt því og stuðli þannig að því
að vélin haldi temmilegum dampi,
en bræði ekki annaðhvort úr sér
eða verði bensínlaus. Og hingað til
höfum við borið gæfu til að sjá í
tæka tíð hvenær rétt er að senda
vagninn í stillingu og láta skipta um
platínur og hlaða batteríin!“
Tónlist | Sálin hans Jóns míns upprisin
Enn mun hún rísa
Ljósmynd/Börkur Gunnarsson
Sálin hans Jóns míns: Jóhann Hjörleifsson, Stefán Hilmarsson, Jens Hans-
son, Guðmundur Jónsson og Friðrik Sturluson.
Sálin hans Jóns míns hefur legið í híði í níu mánuði en er nú komin á kreik á
nýjan leik. Ýmislegt er á prjónunum eins og Stefán Hilmarsson upplýsti
Arnar Eggert Thoroddsen um, tónleikaferð og nýtt lag.
arnart@mbl.is
„Tíminn og við“
– Tónleikaferð
-lau. 6. nóv.: Nasa
-lau. 20. nóv.: Akranes
-lau. 27. nóv.: Eyjar
-lau. 4. des.: [óráðið]
-lau. 11. des.: Selfoss
-lau. 18. des.: Sjallinn Ak.
-lau. 25. des.: Stapinn
-fös. 31. des.: Broadway
ATH: Listinn er ekki endanlegur
og tónleikar gætu bæst við.
Sálin hans Jóns míns leggur í stutt
tónleikaferðalag í nóvember og
verða fyrstu tónleikarnir á NASA
laugardaginn 6. nóvember.
www.salinhansjonsmins.is