Morgunblaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 31.10.2004, Blaðsíða 51
www.laugarasbio.is Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl. tal. Kr. 500 COLLATERAL Fór beint á toppinn í USA!  Mbl. Sýnd kl. 2, 4 og 6. Íslenskt tal. Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára.Sýnd kl. 8. B.i. 16 ára. Kvikmyndir.is  DV Kvikmyndir.is i ir.is JAMIE FOXXTOM CRUSE Sýnd kl. 8 og 10.30 B.i. 16 ára. Bakvið martraðir hans leynist óhugnalegur sannleikur DENZEL WASHINGTON MERYL STREEP www.regnboginn.is Nýr og betri Sýnd kl. 2 og 6. Sýnd kl. 10.20. B.i. 16 ára. THE HUNT FOR THE BLOOD ORCHID ÞÆR ERU MÆTTAR AFTUR...ENN BLÓÐÞYRSTARI! KYNGIMAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR SEM FÆR HÁRIN TIL AÐ RÍSA. Loksins mætast frægustu skrímsli kvikmyndasögunnar í mögnuðu uppgjöri! Sýnd kl. 3.45, 6, 8.30 og 10.50. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 2 og 4. Bardaginn um framtíðina er hafinn og enginn er óhultur Hörkuspennandi ævintýramynd ólík öllu öðru sem þið hafið séð áður. i f í i fi i l i i lí ll i fi . Frá leikstjóra Silence of the Lambs Þorirðu að velja á milli? Fór beint á toppinn USA! Hverfisgötu ☎ 551 9000 Sýnd kl. 3.20, 5.45, 8 og 10.15 Snargeggjuð gamanmynd frá hinum steikta Scary Movie hóp Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. VINCE VAUGHN BEN STILLER punginn á þér! DodgeBall S.V. Mbl. Ó.H.T Rás 2 VINCE VAUGHN BEN STILLER Gwyneth Paltrow l Jude Law Angelina Jolie MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 2004 51 Heimsókn Main, sem skipuðer einum mannni, RobertHampson, hingað tillands er mikill viðburður fyrir raftónlistarvini, enda er hann goðsagnakenndur í meira lagi, með merkustu listamönnum sem bræddu saman óhljóðalist og gítarrokk á ní- unda og tíunda áratugnum, en Loop var þannig iðulega nefnd í sömu andrá og Spaceman 3 og My Bloody Valentine, þótt þær sveitir hafi verið öllu léttari en Loop, sérstaklega sú síðastnefnda. Tónlist Loop var öllu þyngri, hljómavefurinn þéttari, naumhyggju- leg hrynjandi og fátt fyrir áheyrand- ann að halda sér í; þegar hann lagði út í lag með Loop var hann einn á ferð í auðninni, engir vegvísar og engin kennileiti. Aðal sveitarinnar var gít- arveggur, veggur af rafgítarhljómum og skælifetlar og rásahlaup mikið notað til að teygja og toga hljómana, markmiðið greinilega að láta þá hljóma sem ólíkasta rafgítarhljómum og unnt væri. Ekki var bara að tónlistin væri framandleg og erfið áheyrnar, laus við alla hlýju og tilfinningasemi, held- ur lagði sveitin lítið upp úr því að ná til áheyrenda, veitti sjaldan viðtöl og myndir af sveitinni sýndu fólk sem greinilega var lítið fyrir það gefið að láta mynda sig, upphafið og fjarrænt. Kunni fjóra hljóma Robert Hampson stofnaði Loop með Bex eiginkonu sinni 1986. Fyrsta platan kom út ári síðar, hét Heaven’s End og er sennilega aðgengilegasta platan sem sveitin sendi frá sér því eftir það varð tónlistin enn þyngri. Fade Out kom út 1988 og A Gilded Eternity 1990, en fleiri urðu hljóð- versskífurnar ekki þó til séu ein- hverjar plötur til viðbótar, safnskífur og álíka. Hampson, sem lék á gítar og söng, státaði af því að kunna aðeins að spila fjóra hljóma þegar hann stofnaði sveitina en þeir hljómar dugðu hon- um vel. Bex lék á trommur og Glen Ray á bassa. Fyrst hætti Bex og svo Ray fljótlega eða var kannski aldrei almennilega með og í þeirra stað komu þeir John Wills sem spilaði á trommur og Neil MacKay á bassa, sem treysti sveitina mikið. Þannig skipuð gaf Loop út fyrstu plötuna, Heavens End, sem er skemmtileg skífa, hrá en kannski ekki ýkja hnit- miðuð. Nýr gítarleikari, Scott Dow- son, slóst í hópinn áður en þriðja breiðskífan, A Gilded Eternity, kom út 1990 – síðasta breiðskífa sveit- arinnar og sú besta; hefur elst bæri- lega. Eftir A Gilded Eternity leystist sveitin upp. Þeir MacKay og Wills stofnuðu sveitina Hair and Skin Trading Company og eru þar með úr sögunni, en Hampson og Dowson stofnuðu hljómsveitina Main. Skýr- ingar á samstarfsslitunum eru sjálf- sagt margar en tvær eru jafnan nefndar: annars vegar var Hampson búinn að gefast upp á útgáfuheim- inum og vildi draga sig í hlé, en á hinn bóginn vildi hann fara aðra leið í tón- list en félagar hans í sveitinni, stefndi í átt að enn meiri naumhyggju, minni hávaða og minni takti. Myrkur hnausþykkur gítargrautur Eftir að Loop lagði upp laupana 1991 spilaði Hampson um tíma með tilraunarokksveitinni Godflesh, en stofnaði síðan Main með Dowson eins og getið er. Á fyrstu Main-breiðskíf- unni, Hydra-Calm, sem sett var sam- an út tveim stuttskífum, er tónlistin myrkur hnausþykkur gítargrautur, ekki eins ágengur og krefjandi og var með Loop en öllu forvitnilegri, gerir meiri kröfur til hlustandans en gefur honum líka meira færi á að skilja og túlka tónlistina eftir eigin höfði. Síðan eru komnar plöturnar Firmament og Motion Pool, báðar 1993, Firmament II, 1994, Firnament III 1996, en eftir þá skífu hætti Dawson og Hampson því einn eftir, Firmament IV 1998, Tau 2002, Transiency og Mort aux Vaches: Exosphere á síðasta ári. Ógetið er útgáfuraðarinnar Hz, sem var sem stuttskífur, gefnar út með mánaða millibili, þar sem gengið var eins langt í átt að naumhyggjunni og unnt var. Eins og getið er í upphafi er tilefni þessarar samantektar að Hampson / Main er væntanlegur hingað til lands til tónleikahalds, heldur tónleika í kvöld og annað kvöld. Fyrri tónleik- arnir verða í Klink & Bank í kvöld kl. 21:00, en auk Main troða upp Curver og Heimir Björgúlfsson og Jonas Ohlson, sem hafa starfað talsvert saman og meðal annars gefið út tvær fantagóðar plötur, en þess má geta að Jonas Ohlson opnar um helgina myndlistarsýningu í Gallerí Kling og Bang á Laugavegi. Annað kvöld leikur Main í Kefla- vík, á Paddy’s, en þeir tónleikar hefj- ast kl. 20:00. Þá koma einnig fram þeir Heimir Björgúlfsson og Jonas Ohlson og Curver, en einnig kemur fram keflvíski raftónlistarmaðurinn Ingi Þór, sem lauk fyrir skemmstu raftónlistarnámi í Manchester. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Myrkur hnaus- þykkur gítargrautur Breska einsmannshljómsveitin Main heldur tónleika í Klink og Bank í kvöld sem verður að teljast með mestu raftónlistarviðburðum síðustu misseri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.