Morgunblaðið - 21.12.2004, Blaðsíða 17
Morgunblaðið/ÞÖK
MISRÆMI milli eigin fjármögnunar
Íbúðalánasjóðs og útlána sjóðsins
eykst með endurgreiðslu lántakenda
sjóðsins í kjölfar aukinnar sam-
keppni á íbúðalánamarkaði. Þetta er
skoðun Verslunarráðs Íslands. Telur
ráðið að sú áhættuþóknun sem lögð
var á við útlánin dugi ekki til að
mæta auknum kostnaði. Sjóðurinn
hafi brugðist við þessu með beiðnum
um uppgreiðslu á sínum lánum, en
útlit sé fyrir að það muni ekki nægja
og ganga þurfi á eigið fé sjóðsins til
að mæta þessum kostnaði. Svigrúm-
ið sé ekki mikið þar sem eigið fé
Íbúðalánasjóðs sé í kringum 10 millj-
arðar á móti skuldum sem nemi yfir
450 milljörðum.
Það er skoðun Verslunarráðs að
með því að Íbúðalánasjóður heimili
öðrum lánum að liggja framar á veð-
rétti, og jafnvel markaðssetji ný lán
undir þessum formerkjum í sam-
starfi við tilteknar fjármálastofnan-
ir, sé verið að rýra mjög gæði útlán-
anna og safnsins í heild. Sá sem
raunverulega beri áhættuna af þessu
sé ríkissjóður.
Þetta kemur fram í samantekt
Verslunarráðs Íslands þar sem lýst
er skoðun ráðsins á hlutverki ríkis-
ins á íbúðalánamarkaði. Telur ráðið
rétt að endurmeta starfsemi Íbúða-
lánasjóðs í tilefni af þeim breyting-
um sem orðið hafi á íbúðalánamark-
aði. Samkeppnin hafi aukist
verulega og gjörbreytt möguleikum
til fjármögnunar íbúðakaupa hér á
landi. Í fyrsta sinn sé kominn raun-
hæfur valkostur við Íbúðalánasjóð til
fjármögnunar íbúðahúsnæðis.
Ávinningur almennings í formi
bættra kjara á fasteignalánum sé
ótvíræður, bæði hvað varðar endur-
fjármögnun eldri lána og við kaup á
nýjum eignum.
Hætta af auknum umsvifum
Verslunarráð segir að þar sem
Íbúðalánasjóður er í eigu ríkissjóðs,
sem beri ábyrgð á skuldbindingum
hans, hafi sjóðurinn sama áhættu-
mat og ríkissjóður og njóti því sömu
kjara.
„Hlutfall Íbúðalánasjóðs í ábyrgð-
um ríkissjóðs hefur aukist jafnt og
þétt á síðustu árum,“ segir Verslun-
arráð. „Bent hefur verið á að þetta
hlutfall er einn þeirra þátta sem
skiptir máli við mat á lánshæfi Ís-
lands og hefur þ.a.l. áhrif á þau
vaxtakjör sem ríkissjóður fær á er-
lendum mörkuðum. Lánshæfismat
ríkissjóðs hefur einnig áhrif á láns-
hæfismat íslenskra fyrirtækja og
fjármálastofnana. Bæði Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn og erlend mats-
fyrirtæki hafa bent á hættu af þess-
ari aukningu og lagt til að dregið
verði úr henni með því að fjármögn-
un íbúðarlána færist til banka og líf-
eyrissjóða eins og nú hefur orðið
raunin.“
Veikari staða Íbúðalánasjóðs
Það er mat Verslunarráðs að á
þeim stutta tíma sem liðinn er frá því
bankarnir fóru að veita fasteignalán
hafi þeir náð að festa sig í sessi. Seg-
ir ráðið að lán bankanna til fast-
eignakaupa í lok árs 2004 muni nema
um 110–120 milljörðum króna. Þessi
staða endurspeglist með öfugum for-
merkjum í reikningum Íbúðalána-
sjóðs en ætla megi að uppgreiðslur
þar nemi um 100 milljörðum króna,
sem sé að stærstum hluta í húsbréfa-
kerfinu.
Verslunarráð segir að sérstaða
Íbúðalánasjóðs sé ekki lengur fyrir
hendi. Stjórnvöld ráði miklu um
hvort hér takist að þróa heilbrigða
samkeppni í íbúðalánum. Afstaðan
til framtíðar Íbúðalánasjóðs skipti
þar mestu. „Aukin samkeppni af
hálfu sjóðsins í formi víðtækari
heimilda til útlána gerir öðrum að-
ilum erfitt fyrir og dregur úr líkum
þess að hér þróist samkeppni í íbúða-
lánum til hagsbóta fyrir heimilin í
landinu. Staða sjóðsins hefur nú þeg-
ar veikst vegna uppgreiðslna og
áhætta á beinum framlögum ríkisins
hefur aukist verulega. Möguleikar
ríkisins á að bjóða ívilnanir í
tengslum við íbúðakaup takmarkast
ekki við rekstur Íbúðalánasjóðs í nú-
verandi mynd,“ segir Verslunarráð
Íslands.
Ganga þarf á
eigið fé Íbúða-
lánasjóðs
Verslunarráð Íslands telur rétt að
endurmeta starfsemi sjóðsins
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2004 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÚR VERINU
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópusam-
bandsins (ESB) áformar að leggja til að
haldið verði áfram verndaraðgerðum vegna
innflutnings á eldislaxi til ESB. Fram-
kvæmdastjórnin ákvað fyrr á þessu ári að
grípa til verndaraðgerða til bráðabirgða.
Þær aðgerðir féllu hins vegar úr gildi í byrj-
un desember þar sem ráðherraráð ESB
staðfesti þær ekki innan tilskilins tímafrest.
Eigi að síður vill framkvæmdastjórnin að
áfram verði beitt slíkum verndarráðstöfun-
um til næstu þriggja ára í því skyni að
vernda laxeldisframleiðendur innan ESB
fyrir meintum undirboðum.
Þetta kemur fram í Stiklum, vefriti við-
skiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.
Þar segir enn fremur: „Þrátt fyrir vernd-
arráðstafanir framkvæmdastjórnarinnar
hefur verð á eldislaxi á mörkuðum í Evr-
ópusambandinu verið með allra lægsta móti
undanfarna mánuði. Meginástæða þessa
lága verðs virðist vera mikil framleiðsla á
eldislaxi í Noregi og Chile. Samhliða hugs-
anlegum verndaraðgerðum rannsakar
framkvæmdastjórn Evrópusambandsins
einnig meint undirboð af hálfu Norðmanna
á eldislaxi. Ekki er útilokað að gripið verði
til aðgerða gegn undirboðum Norðmanna af
hálfu framkvæmdastjórnarinnar, annað
hvort samhliða verndaraðgerðum eða í stað
almennra verndaraðgerða.
Hugmyndir framkvæmdastjórnarinnar
um áframhaldandi verndarráðstafanir gera
ráð fyrir að þeim ríkjum, sem flutt hafa inn
eldislax á markaði í Evrópusambandinu,
verði úthlutað innflutningskvóta. Þá verði
jafnframt sett lágmarksverð á eldislax, 2,85
evrur á kílóið. Íslensk stjórnvöld hafa ítrek-
að mótmælt því að gripið verði til slíkra að-
gerða sem hamli viðskiptum á Evrópska
efnahagssvæðinu.
Enn deilt
um laxinn
BÁTASMIÐJAN Mótun afhenti
nýverið nýjan bát af gerðinni
Gáski 1100 til Neskaupstaðar.
Kaupandinn er Halldór Gunn-
laugsson. Báturinn hefur fengið
nafnið Stella NK. Hann er 11
metra langur, búinn 580 Cumm-
ings-aðalvél og gekk 27 sjómíl-
ur í reynslu siglingu. Siglinga-
og fiskileitartæki eru frá R. Sig-
mundssyni. Í lest rúmast fimm-
tán 380 lítra kör. Í bátnum eru
kojur fyrir þrjá menn en Hall-
dór hefur róið einsamall und-
anfarin ár og mun gera áfram.
Við hönnun bátsins var lögð
höfuðáhersla á öryggisþáttinn,
en í bátnum eru þrír 800 lítra
sjótankar. Dæla má sjó í tank-
ana þegar komið er á miðin er
við það dregur úr veltingi og
báturinn verður stöðugri. Hall-
dór átti áður Gáskabát með
sama nafni. Sá var fjögurra ára
en hefur nú verið seldur til
Siglufjarðar. Halldór ætlar að
gera bátinn út á línu og rær
með beitningatrekt.
Halldór Gunnlaugsson í nýja bátnum.
Nýr Gáski seldur
til Neskaupstaðar
● VIÐSKIPTI í Kauphöll Íslands í gær
námu alls 10,9 milljörðum. Mest
voru viðskipti með íbúðabréf en við-
skipti með hlutabréf voru fyrir um
4,1 milljarð. Mest voru viðskipti með
bréf KB banka fyrir rúma 3 milljarða
en mest hækkun var á bréfum Öss-
urar hf. (0,6%) á meðan mest lækk-
un varð á bréfum Atorku (-0,9%). Úr-
valsvísitala lækkaði um 0,1% í
3.375 stig.
Össur hækkaði mest
● FÆREYSKA olíufélagið Atlantic
Petroleum verður skráð í Kauphöll
Íslands í byrjun næsta árs. Þar með
verður Atlantic Petroleum fyrsta fær-
eyska félagið á hlutabréfamarkaði.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá fé-
laginu er það markmið félagsins að
styrkja fjárhag sinn með útboði hluta-
bréfa en til stendur að byggja þrjá ol-
íuborpalla norður af Hjaltlandseyjum
en reiknað er með að olíuframleiðsla
hefjist árið 2006. Gert er ráð fyrir að
hlutabréfaútboð afli félaginu að
minnsta kosti 5 milljóna danskra
króna að nafnvirði en að hámarki 30
milljóna danskra króna að nafnvirði.
Færeyskt félag
í Kauphöllina
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI