Morgunblaðið - 21.12.2004, Síða 21

Morgunblaðið - 21.12.2004, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2004 21 ERLENT Feðgarnir Jón Norland og Sverrir Norland leggja hér saman krafta sína á þessum magnaða ljóðadiski. Jón hefur samið 28 ljóð sem hann les sjálfur og Sverrir skemmtilega tónlist við þau öll sem hann leikur á kassagítar, rafgítar og bassagítar. Þetta er diskur sem tengir saman kynslóðirnar og kemur verulega á óvart. Dreifing: GH Gr af ís k Hö nn un sem notað er á Netinu, eða IPv4. Sem dæmi um það má nefna, að símtal um Netið er dulkóðað með IPv6 og mjög erfitt að ráða þær rúnir. Farið er að nota IPv6 í ýmsum búnaði og banda- ríska varnarmálaráðuneytið ætlar að taka það upp 2008. Jonathan Zittrain segist sjá fyrir sér, að Internet2 verði notað af „sam- völdum hópum“, sem vilji lokað og öruggt kerfi, og síðan verði sjálft Netið, sem sé opið upp á gátt og minni helst á „frumskóg fullan af fjársjóðum og baneitruðum snákum“. Það verði áfram vettvangur fyrir æv- intýramenn og ofurhuga. Heimild: Christian Science Monitor. SEGJA má með nokkrum sanni, að Internetið sé 35 ára um þessar mund- ir. Það minnir samt ekki á miðaldra mann, sem búinn er að taka út sinn þroska, heldur miklu fremur á upp- reisnargjarnan ungling, sem veit ekkert hvaða stefnu hann á að taka. Netið gæti orðið öruggara og 1.000 sinnum hraðvirkara en nú og það gæti líka orðið að vettvangi fyrir alls kyns rugl og vitleysu, ruslpóst, tölvu- veirur, klám, svindl og svínarí og hrakið þannig í burtu allt heiðarlegt fólk. Sumir sérfræðingar segja, að hvað sem þessu líði, sé mikil óvissa um framtíð Netsins, einkum vegna vaxandi áhyggna af öryggismálunum. Aðrir segja fulla ástæðu til að óttast, að Netið muni hrynja á næstu árum undan álaginu frá þessum óhroða. „Sumar grundvallarforsendurnar, sem lagt var upp með, eiga ekki leng- ur við,“ segir Jonathan Zittrain, einn af stofnendum „Berkham Center for Internet & Society“ við lagadeild Harvard-háskóla. Upphaflega var Netið sett upp til að vísinda- og fræðimenn gætu skipst á skoðunum en síðan þróaðist það í opið kerfi, sem ýtti undir samstarf og þá á þeim for- sendum, að notendur væru þeir, sem þeir segðust vera. Vandinn er að nokkru leyti vaxandi álag frá ruslpósti, svikamyllum alls konar og tölvuveirum og að nokkru leyti tilraunir rótgróinna fyrirtækja, til dæmis tónlistar- og kvikmyndafyr- irtækja, til að vernda höfundarrétt sinn á stafrænu efni. „Ein aðferð þeirra er sú að reyna að hefta frjálsan aðgang að Netinu,“ segir Zittrain og bendir á, að í síðasta mánuði hafi tónlistariðnaðurinn höfð- að 761 mál gegn einstaklingum fyrir að skiptast á tónlistarefni, sem tekið hafði verið af Netinu. Enn á bernskuskeiði Þótt sumir hafi áhyggjur af því, að Netið muni koðna niður undir álag- inu, þá eru flestir netsérfræðingar á öðru máli. Einn þeirra, Leonard Kleinrock, segir, að Netið sé að sumu leyti enn á „steinaldarstiginu“ og eigi því langa ferð fyrir höndum. Segist hann sjá fyrir sér, að í framtíðinni verði Netið tengt næstum því hverju sem er, til að mynda veggjum húss- ins. „Gangi ég inn í herbergi munu veggirnir eða Netið þekkja mig og ég mun geta talað við þá, átt við þá sam- skipti á mjög raunverulegan hátt,“ segir Kleinrock og spáir því, að fram- tíðarnetið muni bera í skauti sér marga furðulega hluti. „Enginn sá Netið fyrir, eða tölvu- póstinn, skilaboðin, Napster. Um þetta er heldur ekki gott að spá og ég tel, að á þessu sviði verði vöxturinn. Hann mun koma frá unga fólkinu.“ Internet2 Internet2, sem nú er rekið á veg- um Abilene Network en ekki á opnu Netinu, er þúsund sinnum hraðvirk- ara en venjuleg breiðbandstenging. Er það notað af ýmsum, til dæmis stjarnfræðingum, sem geta fjarstýrt sjónaukum með því, og af kennurum, sem geta þá mjög greinilega heyrt og séð til nemenda sinna í mikilli fjar- lægð. Douglas Van Houweling, forseti og aðalframkvæmdastjóri Internet2, segist einu sinni hafa fylgst með Michael Tilson Thomas, stjórnanda sinfóníuhljómsveitar San Francisco- borgar, leiðbeina ungum stjórnanda í gegnum Internet2-tengingu. Sagði Thomas unga manninum lágri röddu að taka af sér armbandsúrið þar sem það íþyngdi honum við stjórnunina. „Tónlist eins og hún gerist best er ákaflega blæbrigðarík og þess vegna þarf fyrsta flokks tengingu til að koma henni til skila,“ segir dr. Houw- eling. „Það á við um Internet2 og samvirkni þeirrar tengingar á ekkert skylt við fjarfundi eða ráðstefnur, sem haldnar eru fyrir milligöngu myndbands- eða sjónvarpsvéla.“ Van Houweling segir, að fyrir utan þetta geti Internet2 flutt „mjög stór- ar, stafrænar skrár“, vísindalegar upplýsingar eða nýjustu Hollywood- myndina, á örfáum sekúndum. Hefur það vakið áhuga Samtaka kvik- myndaframleiðenda í Bandaríkj- unum, sem eru að kanna kosti Int- ernet2 og raunar einnig galla. Aukið öryggi með IPv6 Cary Sherman, forseti Samtaka tónlistarfyrirtækja í Bandaríkjunum, sagði fyrir þingnefnd í október síð- astliðnum, að „sjóræningjar“ væru þegar farnir að láta að sér kveða á Internet2. Sem dæmi nefndi hún, að námsmenn notuðu kerfi, sem kallað væri i2hub.com, til að skiptast á skjölum og flytja höfundarréttar- varið efni á milli háskóla. Internet2 og IPv6, nýtt vist- fangakerfi, bjóða upp á meira öryggi hvað þetta varðar en núverandi kerfi, Hver verður framtíð Netsins? Morgunblaðið/Golli Ekki er fjarri lagi að segja, að tölvan sé „þarfasti þjónninn“ nú á dögum og Netið er þá skeiðvöllurinn. Myndin er frá síðustu forritunarkeppni fram- haldsskólanna en hún er haldin árlega á vegum Háskólans í Reykjavík. Sumir spá því að á næstu árum muni Netið hrynja undan vaxandi álagi frá ruslpósti, tölvu- veirum, klámi og alls kyns svindli og svínaríi en aðrir sjá fyrir sér spennandi tíma, fulla af furðulegum fyrirheitum. RÚMLEGA 50 menn hafa verið handteknir vegna hryðjuverkanna í Najaf og Karbala í Írak um helgina en þau urðu 67 mönnum að bana. Segjast stjórnvöld hafa fundið tengsl á milli þeirra, sem að þeim stóðu. Iyad Allawi, forsætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar í Írak, sagði í gær, að tilgangurinn með hryðjuverkunum væri að sundra landsmönnum og koma af stað átök- um á milli trúarhópa, súnníta og sjíta. Sagði hann, að stjórnvöld myndu þó ekki láta neinn bilbug á sér finna og kosningarnar í janúar myndu fara fram eins og að væri stefnt. Lögregluyfirvöld í Najaf sögðu, að meðal hinna handteknu væru menn, sem hefðu viðurkennt að vera í sam- bandi við leyniþjónustur Sýrlands og Írans. Væri nú verið að yfirheyra mennina. Í síðustu viku sakaði All- awi stjórn Sýrlands um að skjóta skjólshúsi yfir fyrrverandi ráða- menn í Írak og Hazem Shaalan, varnarmálaráðherra Íraks, hefur einnig sakað Íransstjórn um að kynda undir hryðjuverkum í Írak. Meira en 50 handteknir í Írak Najaf. AFP.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.