Morgunblaðið - 21.12.2004, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2004 25
MINNSTAÐUR
Jólagjöfin hennar:
Jakkar og kápur með skinni
dragtir og bolir
samkvæmisfatnaður
verið velkomin
Krónunni, 2. hæð, sími 462 3505,
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
á Grenivík.
Verður að hafa
bíl til umráða
Upplýsingar gefur
Ólöf Engilberts-
dóttir í síma
569 1376.
í Miðbæ
Akureyrar
Einnig í
Hlíðargötu/Þór-
unnarstræti
Upplýsingar
í síma 461 1600
Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur í bæinn
ALLS voru 67 brautskráðir frá
Verkmenntaskólanum á Akureyri
um liðna helgi, 42 stúdentar, 7
sjúkraliðar, 1 úr starfsdeild, 9 raf-
virkjar, 4 húsasmiðir og 4 iðn-
meistarar.
Ólöf Birna Ólafsdóttir hlaut
hæstu einkunn á stúdentsprófi,
8,99, sem hún lauk á þremur og
hálfu ári. Fékk hún viðurkenningu
frá skólanum fyrir vikið og einnig
hlaut hún verðlaun fyrir framúr-
skarandi árangur í raungreinum,
íslensku, dönsku og þýsku. Kristín
Líf Valtýsdóttir lauk einnig námi á
þremur og hálfu ári, með ein-
kunnina 8,97 og hlaut viðurkenn-
ingu fyrir framúrskarandi árangur
í stærðfræði. Þá hlaut Ester Ósk
Hilmarsdóttir verðlaun fyrir fram-
úrskarandi árangur í ensku og frá-
bæran árangur af málabraut skól-
ans sem nú útskrifaði stúdenta í
fyrsta sinn. Tinna Björk Gunnars-
dóttir fékk verðlaun fyrir fram-
úrskarandi árangur í myndlistar-
greinum og Þórarinn Þórarinsson
hlaut verðlaun fyrir frábæran ár-
angur í faggreinum á rafiðnabraut
auk þess sem hann fékk viður-
kenningu frá skólanum fyrir góðan
námsárangur, brautskráðist sem
rafvirki og sem 2. stig vélstjóri
með 130 einingar og 8,90 í með-
aleinkunn.
Aldrei jafnmargir nemendur
og nú á liðinni haustönn
Nemendur við Verkmenntaskól-
ann á Akureyri voru 1.180 á liðinni
haustönn og 650 í fjarnámi og hef-
ur skólinn aldrei haft jafnmarga
nemendur innan sinna vébanda.
Hjalti Jón Sveinsson skólameistari
sagði að nemendum við skólann
hefði verið að fjölga undanfarnar
annir, eftir talsverð afföll sem
urðu í kjölfar kennaraverkfalls eft-
ir áramót 2001. Þar kæmi einkum
þrennt til, mikill fjöldi nemenda
sækir nú um skólavist eftir að hafa
gert hlé á námi sínu um lengri eða
skemmri tíma, aukinn fjöldi nem-
enda annars staðar að af landinu
sækir um skólavist og þá nefndi
hann að árgangur nýnema á liðnu
hausti, þeir sem fæddir eru 1988
væri aðeins stærri en árgangar
undanfarinna ára.
Fram kom í máli Hjalta Jóns að
af þessum sökum hefði þurft að
forgangsraða nemendum þar sem
ljóst var að ekki var hægt að
tryggja öllum skólavist. „Út af fyr-
ir sig hefðum við getað hýst alla –
en nú er málum þannig háttað að
framhaldsskólar landsins fá
rekstrarfé samkvæmt fyrirfram
ákveðnum fjölda svokallaðra árs-
nemenda. Fari þeir yfir þá tölu
geta skólarnir ekki vænst þess að
fá greiddan kostnaðinn við um-
fram fjöldann – en áður fyrr var sá
mismunur gerður upp eftir á,“
sagði Hjalti Jón en gat þess að
menntamálaráðherra og ráðuneyt-
ið kappkostuðu að tryggja nýnem-
um skólavist á haustin, þeim sem
væru að koma beint úr grunn-
skóla, „en hinum síaukna fjölda
eldri nemenda sem sækja nú um
eftir mislangt hlé verður í mörgum
tilvikum að úthýsa.“
Ekki bara neikvæð áhrif
af forgangsröðun
Gat skólameistari þess að for-
gangsröðunin hefði ekki aðeins
neikvæð áhrif, hún gæti verið já-
kvæð fyrir skólasamfélagið, nem-
endur hafi fengið þau skilaboð að
þeir eigi ekki vísa skólavist á
næstu önn hafi þeir ekki stundað
skólann sem skyldi.
Brautskráning nemenda frá Verkmenntaskólanum á Akureyri
Forgangsraða
þarf nemendum
inn í skólann
Útskrift Alls útskrifuðust 67 nemendur frá Verkmenntaskólanum á Akur-
eyri sl. laugardag, þar af 42 stúdentar. Hér er hluti hópsins ásamt skóla-
meistaranum Hjalta Jóni Sveinssyni.
Glæsilegur árangur Ólöf Birna Ólafsdóttir hlaut fjölmörg verðlaun fyrir
árangur sinn í VMA. Hún hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í
raungreinum og íslensku og einnig fyrir góðan árangur í dönsku og þýsku.
AKUREYRI