Morgunblaðið - 21.12.2004, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2004 51
MENNING
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Jóga kl. 10, línudans
kl. 11, postulínsmálun kl. 13, baðþjón-
usta þriðju-, fimmtu- og föstudaga.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handavinna
kl. 9–16.30, leikfimi kl. 9, boccia kl.
9.45, smíði/útskurður kl. 13–16.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, al-
menn handavinna, böðun, vefnaður,
leikfimi, boccia, fótaaðgerð. Línudans
fellur niður í dag vegna jólatrés-
skemmtunar.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og dag-
blöð, kl. 9–14 baðþjónusta, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin, kl. 10–11 sam-
verustund, kl. 11.15–12.15 matur, kl. 14
félagsvist, kl. 14.30–15.30 kaffi.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Leik-
félagið Snúður og Snælda, æfing kl. 13.
Miðvikudagur: Göngu-Hrólfar ganga
frá Ásgarði, Glæsibæ, kl. 10.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, frá hádegi spilasal-
ur opinn, allar upplýsingar á staðnum,
s. 575 7720 og www.gerduberg.is.
Hraunbær 105 | Kl. 9 postulínsmálun,
glerskurður, myndlist, hárgreiðsla, kl.
10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12 hádeg-
ismatur, kl. 12.15 Bónusferð, kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Allir leiðbeinendur komnir í
jólafrí og þar af leiðandi liggur öll föst
starfsemi niðri þar til í jan. Áramóta-
dansleikur verður fimmtudaginn 30.
des. kl. 20.30. Gleðilega hátíð öll söm-
ul.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
kl. 9–13, boccia kl. 9.30–10.30, helgi-
stund kl. 13.30 í umsjón séra Ólafs Jó-
hannssonar. Böðun virka daga fyrir
hádegi. Fótaaðgerðir – hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Opið félagsstarf,
betri stofan og vinnustofan opin alla
daga, á mánudögum framsögn og
framkoma, kennari Soffía Jakobs-
dóttir leikari, leikfimi kl. 10, bókabíll
14.15, Bónusferð kl. 12.40, hárgreiðslu-
stofa s. 568 –3139, fótaaðgerðarstofa
s. 897–9801. Allir velkomnir, upplýs-
ingar í síma 568–3132.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Þorvald-
ur Halldórsson kemur í morgunstund
með Þórdísi Ásgeirsdóttur kl. 10.30,
allir velkomnir.
Norðurbrún 1, | Kl. 9–12 myndlist, kl. 9
smíði, kl. 9–16.30 opinvinnustofa, kl.
13–16.30 postulínsmálning, kl. 14 leik-
fimi, kl. 9 opin hárgreiðslustofa.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir kl. 9.15–15.30 handa-
vinna kl. 9.15–16 postulínsmálun kl.
10.15–11.45 enska, kl 13–16 bútasaum-
ur, kl 13–16 frjáls spil, kl 13–14.30 les-
hringur. Aðventuferð verður þriðju-
daginn 21. desember kl. 14.30
aðventukaffi á Vesturgötu 7, kl. 15.15,
ekið til Hafnarfjarðar, Kópavogs, Ár-
túnshveri, Grafarvog og miðbæ
Reykjavíkur. Komið við í Garðheimum.
Skráning í síma 535–2740. Allir vel-
komnir.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, handmennt kl. 9–16 hárgreiðsla
kl. 9, fótsnyrting kl. 9.30, félagsvist kl.
14.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Morgunsöngur kl. 9.
Fríkirkjan Kefas | Bænastund kl.
20.30. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Garðasókn | Opið hús í Kirkjuhvoli
verður næst þriðjudaginn 11. janúar
2005. Gleðileg jól.
Grafarvogskirkja | „Morgunstund gef-
ur gull í mund.“ Morgunstundir alla
virka daga aðventunnar kl. 7. Hver
stund samanstendur af ritningarlestri,
hugleiðingu og bæn og tekur um 10–15
mín. Gefur fólki tækifæri til að eiga
friðar- og kyrrðarstund í erli aðvent-
unnar. Morgunverður í safnaðarsal að
helgihaldi loknu.
Hallgrímskirkja | Starf með öldruðum
alla þriðjudaga og föstudaga kl. 11–15.
Súpa, leikfimi, kaffi og spjall. Fyrir-
bænaguðsþjónusta alla þriðjudaga kl.
10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Kópavogskirkja | Bæna- og kyrrð-
arstund í kirkjunni þriðjudaginn 21.
desember kl. 12.10.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Við óskum öllu starfsfólki deild-
arinnar innilegra gleðilegra jóla og
áframhaldandi farsæls starfs á kom-
andi ári.
Anna Pálsdóttir,
Helga Árnadóttir,
Hjördís Hilmarsdóttir,
Sigrún Klara Hannesdóttir.
Tinni er týndur
TINNI er búinn að vera týndur í 2
mánuði. Hann er kolsvartur 3 ára
fress með lítið bitfar á hægra eyr-
anu. Hann er
eyrnamerktur,
en er ekki með
ól. Tinni er
mjög blíður og
mannelskur, á
það til að elta
fólk. Ef ein-
hver hefur séð
til hans eða
veit eitthvað
um hann, þá er
sá hinn sami
beðinn að
hringja í síma
698 4942.
Hans er sárt
saknað, fundarlaun. (Hann er þrekn-
ari í dag, en hann er á myndinni.)
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Dýrlegir dagar í Hafnarfirði
VIÐ erum fjórar konur á besta aldri,
sem hittumst fyrsta sinni í byrjun
desember í einni af sjúkrastofum
handlæknisdeildar St. Jósefsspítala
í Hafnarfirði. Erindi okkar allra var
að fara í aldurstengda klössun eins
og gengur. Það er ekki tilhlökkunar-
efni að þurfa að láta krukka í sig en
við vorum allar ákveðnar í því að allt
gengi vel og lögðum okkar traust á
starfsfólkið og auðvitað okkur sjálf-
ar.
Það er skemmst frá því að segja
að hvergi hefur okkur liðið eins vel á
heilbrigðisstofnun. Í fyrsta lagi kom
okkur stöllunum ákaflega vel saman,
auk þess sem hver einasti starfs-
maður, sem við áttum samskipti við,
var til fyrirmyndar í alla staði. Góð
framkoma og alúð í starfi er það sem
einna mestu máli skiptir í stofnunum
sem þessari og sjálfsagt er það í
fyrsta skipti, sem við yfirgáfum
sjúkrahús með hálfgerðum söknuði.
1. d4 Rf6 2. Rf3 c5 3. c3 g6 4. g3 b6
5. Bg2 Bb7 6. 0-0 Bg7 7. Rbd2 0-0 8.
He1 d5 9. Re5 Rc6 10. Rdf3 Hc8 11.
Rxc6 Bxc6 12. Bh3 Bd7 13. Bf1 Bc6
14. Re5 Bb7 15. a4 Re4 16. f3 Rd6 17.
e3 Dc7 18. a5 f6 19. axb6 axb6 20.
Rd3 e5 21. Rf2 e4 22. f4 Ha8 23. Bd2
Hxa1 24. Dxa1 Ha8 25. Db1 Dc6 26.
b3 Ba6 27. Db2 Bxf1 28. Hxf1 c4 29.
b4 Da4 30. Hb1 Bf8 31. Kf1 Rb5 32.
Ke2 f5 33. Rd1 Kf7 34. Rf2 Da2 35.
Rd1 Ke6 36. Dxa2 Hxa2 37. Hb2 Ha1
38. Be1 Kd7 39. Bd2 Kc6 40. Be1 Ra3
41. Kd2 Kb5 42. Bf2 Ka4 43. Be1 Be7
44. Bf2 Rb5 45. Kc2 Ka3 46. Hb1
Ha2+ 47. Hb2
Í tilefni þess að prýðilegar líkur
eru á því að heimsmeistarinn fyrrver-
andi, Bobby Fischer, verði leystur úr
haldi í Japan og komist til sögueyj-
unnar góðu í norðri verða næstu daga
birtar nokkrar fléttur af hendi banda-
ríska snillingsins á síðasta Ólympíu-
skákmótinu sem hann tók þátt í en
það var í Siegen árið 1970. Hér hafði
hann svart gegn Armando Acevedo
frá Mexíkó. 47. ... Rxc3! 48. Kxc3
Ha1 og hvítur gafst upp enda taflið
tapað þar eð eftir 49. Kc2 Hxd1!
vinnur svartur.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
JÓLATÓNLEIKAR voru haldnir í
Langholtskirkju klukkan 11 á föstu-
dagskvöldið. Mun það vera árlegur
viðburður; þegar Jón Stefánsson
kórstjóri ávarpaði áheyrendur
þakkaði hann sumum þeirra fyrir að
hafa komið reglulega á þessa tón-
leika í aldarfjórðung.
Að þessu sinni voru einsöngv-
ararnir tveir, Ágúst Ólafsson og
Ólöf Kolbrún Harðardóttir, en einn-
ig sungu kór og gradualekór kirkj-
unnar. Nokkrir hljóðfæraleikarar
komu auk þess við sögu, Hallfríður
Ólafsdóttir flautuleikari, Kjartan
Valdimarsson djasspíanisti, Pétur
Grétarsson slagverksleikari, Lára
Bryndís Eggertsdóttir orgelleikari
og fleiri.
Efnisskráin var hefðbundin, flest
vinsælustu jólalögin voru sungin;
Hátíð fer að höndum
ein, María fer um
fjallaveg, Klukkna-
hljóð og fleiri. Flutn-
ingurinn var dálítið
misjafn; Kór Lang-
holtskirkju var ekki
alveg nógu góður í
byrjun, innkomur
voru ögn ónákvæmar,
inntónun var ekki
fyllilega rétt og sér-
staklega áberandi var
fremur óhreinn söng-
ur tenóranna. Sópr-
aninn var líka á köfl-
um óþægilega hvass.
Þetta lagaðist þó er á
leið, smám saman varð söngurinn
heildstæðari og tærari, og undir
lokin var allt eins og það átti að
vera.
Gradualekórinn var betri strax í
upphafi, söngur hans var öruggur
miðað við að þetta eru börn; túlk-
unin var í það heila sannfærandi og
kom prýðilega út.
Eins og fyrr segir voru tveir ein-
söngvarar á tónleikunum, þau
Ágúst og Ólöf Kolbrún. Eftir dálítið
daufa byrjun náði
Ágúst sér fljótt á strik
og hljómaði rödd hans
þá ákaflega vel; hún var
í senn fókuseruð, breið
og tilfinningaþrungin.
Síðri var frammistaða
Ólafar Kolbrúnar, túlk-
un hennar virtist að
vísu einlæg en víbratóið
var of mikið fyrir ein-
föld jólalög. Samt
hljómaði hún betur
núna en í Sálumessu
Mozarts fyrr á árinu.
Ekki var hægt að
finna neitt að hljóðfæra-
leiknum; djasspíanó-
leikur Kjartans var glæsilegur, org-
elleikur Láru Bryndísar var
markviss, flautusóló Hallfríðar voru
ljóðræn, annað var sömuleiðis gott.
Í heild voru þetta ágætir tón-
leikar; söngurinn stóðst reyndar
ekki alltaf væntingar en rétta
stemningin var alltént í kirkjunni –
kannski er ekki hægt að biðja um
meira svona seint á kvöldin.
Klukknahljóð um nótt
TÓNLIST
Langholtskirkja
Kór Langholtskirkju og Gradualekór
Langholtskirkju ásamt ýmsum hljóðfæra-
leikurum undir stjórn Jóns Stefánssonar
fluttu jólatónlist. Einsöngvarar: Ólöf Kol-
brún Harðardóttir og Ágúst Ólafsson.
Kórtónleikar
Jónas Sen
Jón Stefánsson
ER TIL huldufólk? Dreymir mann
fyrir daglátum? Getur sjúkur
læknast á yfirnáttúrlegan hátt?
Spurningum af þessu taginu mundi
margur svara hiklaust, játandi eða
neitandi. Sumir trúa. Aðrir ekki.
Margsannað, segja sumir. Hjátrú og
hindurvitni, segja aðrir. Áhuginn að
skyggnast á bak við tjaldið hlýtur þó
að vera talsvert almennur. Ella
mundu bækur um dulræn efni ekki
seljast svo mjög sem raun ber vitni.
Alltént er þetta hluti af okkar marg-
slungnu og mótsagnakenndu þjóðtrú
og – þjóðfræðum! Vafalaust er til fólk
sem gerir sér upp dulrænar gáfur.
Fleiri mundu hinir þó vera sem segja
satt og rétt frá reynslu sinni, allt eins
þótt hún kunni að vera óvenjuleg eða
jafnvel – með leyfi að segja – dulræns
eðlis. Þeir, sem krefjast raunhæfra
skýringa, skyldu þá leita þeirra með
sínum ráðum. Allir hlutir eru í raun
dularfullir þar til grafist hefur verið
fyrir orsakir þeirra. Þar með taldir
draumar, svipir framliðinna, reim-
leikar í húsum, að ógleymdri tilvist
álagabletta sem sumir telja sig nú
geta útskýrt.
Steinunn Eyjólfsdóttir, sem tekið
hefur saman og skráð þessar dul-
rænu sögur, »flestar ættaðar af Vest-
fjörðum,« eins og stendur á titilsíðu,
er ljóslega í hópi þeirra
sem trúa að til sé fleira
en það sem allir sjá og
heyra. Jafnframt gerir
hún sér ljóst að sumir
munu trúa varlega;
kemur þá til móts við
slíka með því að ljúka
sögu með orðum eins
og: »Mörg vitni voru að
þessari furðu.« Enn-
fremur heldur hún því
fram að allir menn séu
dulargáfu gæddir, en
ræki hana misjafnlega
og fari árangurinn eftir
því.
Fyrst segir frá
draumum. Það er hvergi ófyrirsynju
því alla dreymir. Og í draumi getur
maður umskapað veruleikann, talað
við látna eins og þeir séu lífs og
ferðast óhindrað fram og aftur í tíma
og rúmi. Ljóst er að fólk hefur
löngum trúað á drauma. Frægasta
dæmið er auðvitað draumar Guð-
rúnar Ósvífursdóttur sem Gestur
Oddleifsson réð. Draumtákn eru
mörg og margvísleg eins og fram
kemur hjá Steinunni, t.d. mannanöfn,
sum hörð og þá fyrir illu, önnur
þekkileg og þá fyrir góðu. Enn-
fremur getur manni vitrast í draumi
það sem útilokað er að sjá fyrir sér í
vöku. Dæmi má taka af Gerði í Vest-
mannaeyjum. Hún átti kött sem í
upphafi leitaði á náðir hennar af göt-
unni, illa til reika, en varð með tím-
anum »virtur heimilisköttur« eins og
segir í sögunni. Dag einn er kisi horf-
inn og finnst ekki þrátt
fyrir mikla leit. Þá er
það nótt eina að Gerði
dreymir kisa sinn sem
segir við hana: »Þú
þarft ekki að leita að
mér. Ég er dauður.«
Alkunna er að trúin á
dulmögn og drauma
tengist oft eilífðartrú og
farsældarhyggju. Mað-
ur leitar á vit hins hug-
læga og dulda vegna
þess að lífið hefur ekki
leikið við hann í raun-
veruleikanum. Fyrir því
má finna margan stað í
þessari bók Steinunnar.
Þá hefur löngum verið talið að dýr,
einkum hundar, að ekki sé talað um
hesta, sæju og heyrðu það sem
mönnum væri hulið og segir Stein-
unn minnisstæðar sögur af því.
Bókin endar svo á ritgerð um ís-
lenskar spákonur. Er sú samantekt
að nokkru leyti byggð á viðtölum við
þekktar konur úr þeirra hópi. Þær
koma þó fram undir dulnefni. Sumar
þeirra eru einnig sagðar stunda hug-
lækningar. Þess er einneginn getið,
svo sem til frekari áréttingar, að kon-
ur fremur en karlar láti til leiðast að
spá fyrir fólki. Ástæðan getur verið
augljós. Konur eru meiri félagsverur.
Karlmenn spekúlera í hlutum. Konur
í öðru fólki. Því kemur vart á óvart að
meðal sögumanna höfundar skuli
konur vera í meirihluta samkvæmt
heimildatali.
Draumar og duldir
BÆKUR
Dulrænar sagnir
Höf. Steinunn Eyjólfsdóttir. 136 bls.
Vestfirska forlagið. Hrafnseyri, 2004.
Yfir ljósmúrinn
Erlendur Jónsson
Steinunn Eyjólfsdóttir
DAGBÓK
Pantanir í síma: 562 0200
Aðeins 3.590 kr.
H
rin
gb
ro
t
Ein magnaðasta bygging Reykjavíkur á daginn.
Eitt besta veitingahúsið á kvöldin.
Þorláksmessa - 23. desember
Frá hádegi á Þorláksmessu og fram eftir degi bjóða
matreiðslumeistarar Perlunnar upp á sannkallaða
skötuveislu sem enginn skötuunnandi má láta
framhjá sér fara. Á meðan er einnig hægt að gæða sér
á vinsælasta jólahlaðborði landsins.