24 stundir - 15.12.2007, Side 6
6 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 24stundir
Lögregla í Vestmannaeyjum handtók fjóra pilta á
aldrinum sextán til átján ára í fyrrinótt, en þeir eru
grunaðir um að hafa kveikt í gömlu Fiskiðjunni í Eyj-
um. Karlmaður var einnig handtekinn síðar um dag-
inn og bætist í hóp piltanna.
Neyðarlínu var tilkynnt um brunann rúmlega hálf-
fjögur í fyrrinótt og þegar slökkvilið bar að garði log-
aði eldur í húsinu, rúður voru sprungnar og mikinn
reyk lagði upp úr þaki hússins.
Greiðlega gekk að slökkva eldinn og var slökkvi-
starfi lokið eftir klukkustund.
Í framhaldinu voru piltarnir fjórir handteknir, en
einn þeirra hafði aðgang að húsinu, en það hafði verið
notað sem æfingahúsnæði fyrir hljómsveitir í bænum.
Mennirnir voru færðir á lögreglustöð til yfirheyrslu
og hófust þær um hádegi í gær. Einhverjir þeirra hafa
komið við sögu lögreglu áður.
Við yfirheyrslu þriggja þeirra var viðstaddur fulltrúi
frá barnaverndaryfirvöldum þar sem þeir eru undir
lögaldri. Þegar blaðið fór í prentun hafði þeim ekki
verið sleppt. Allir fimm hafa réttarstöðu sakborninga
og voru þeir yfirheyrðir í gærkvöldi.
Frekari rannsókn á brunanum stendur yfir.
aegir@24stundir.is
Fimm menn eru grunaðir um íkveikju í Vestmannaeyjum
Þrír hinna grunuðu eru börn
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@24stundir.is
Þrátt fyrir aftakaveður í borginni
undanfarna daga er ekki þar með
sagt að fólk fari ekki á Laugaveg-
inn að kaupa sér föt. „Það er eig-
inlega alveg sama hvernig veðrið
er. Ef fólk vantar föt gefur það
sér tíma til að koma,“ segir Her-
mann Hauksson, verslunarmaður
í Sævari Karli við Bankastræti.
08.00 Ég fer á fætur ogbyrja að hafa mig
til fyrir vinnuna. Fyrir utan að
fara í sturtu og raka mig þarf ég
líka að strauja fötin sem ég fer í í
vinnuna, enda skiptir miklu að
vera vel til hafður í þessu starfi.
Svo er ég með litla blómarós sem
er tæplega tveggja ára gömul og
ég sé um að stílisera hana líka og
koma henni í leikskólann.
09.30 Er mættur í vinn-una og hálftíma
síðar er búðin opnuð. Fyrstu
tímarnir eru yfirleitt rólegir og
þá notum við tímann til að fara
yfir og ganga frá sérpöntunum
og tala við birgjana.
12.00 Fer í hádegismat.Yfirleitt borða ég
hérna inni enda eigum við alltaf
nóg af brauði, áleggi og
drykkjum ásamt því sem við
pöntum stundum heitan mat.
Oft freistast maður þó til að
kíkja yfir á Caruso, B5 eða Sól-
on.
16.00 Mesta törnin hefstog stendur yfir
fram að lokun. Margir í okkar
viðskiptavinahópi vinna til fjögur
eða fimm og kíkja við á heim-
leiðinni.
18.30 Kem heim aftur, fæmér kvöldmat og
geri mig svo kláran fyrir ræktina.
Mér finnst voða gott að nota
kvöldin til þess að fara þangað.
21.30 Kem heim ogslappa af eftir dag-
inn. Tek því svo rólega það sem
eftir er enda að vinna alla
helgina. Það verður opið bæði
laugardag og sunnudag.
Nóg að gera í öllum veðr-
um Hermann Hauksson í
Sævari Karli.
Byrjar daginn
á því að strauja
24stundir með Hermanni Haukssyni, verslunarmanni í tísku-
versluninni Sævari Karli við Bankastræti
➤ Kom inn sem einn af nýjumeigendum verslunarinnar í
júní síðastliðnum. Hann og
Axel Gomez, sem báðir hafa
starfað lengi í versluninni, sjá
um daglegan rekstur hennar.
➤ Er nýkominn frá London ogMílanó þar sem hann var að
versla fyrir búðina við Armani
og Dolce & Gabbana. Hann
segir starfinu fylgja töluverð
ferðalög.
➤ Hefur spilað körfubolta meðKR, Njarðvík og íslenska
landsliðinu.
HERMANN
www.ostur.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
7
-2
1
7
4
Hátíðlegir
um jól in
Þú vilt ekki fá hvaða jólasvein
sem er inn um gluggann hjá þér!
Hringdu núna í 570 2400 og fáðu frekari upplýsingar.
www.oryggi.is
T
B
W
A
\R
E
Y
K
JA
V
ÍK
\
S
ÍA
-9
0
71
4
5
5
T
ilb
o
ð
ið
g
ild
ir
ti
l2
4.
d
es
em
b
er
n
k
.
Jólatilboð á Heimaöryggi. Prófaðu endurgjaldslaust í 3 mánuði.
SÍÐASTA BÓK BJÖRNS TH.
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
Í þessari margslungnu
sögu frá Sturlungaöld
segir frá systrum
tveim, Þórum
Guðmundsdætrum frá
Þingvöllum og þungum
örlögum þeirra, en
Þóra yngri var móðir
Gissurar jarls.
Tær stíll og myndvísi
á sviðsetningu atburða
bregst Birni ekki í þessari
bók fremur en í fyrri
bókum hans.
Sérfræðingar
í saltfiski
466 1016
- Útvatnaður saltfiskur án beina til suðu
- Sérútv. saltfiskur án beina til steikingar
- Ýsa, þorskur, gellur, kinnfiskur, rækjur
- Einnig fjölbreytt úrval tilbúinna rétta
www.ektafiskur.is
pöntunarsími:
frumkvöðlafyrirtæki ársins - viðurkenning frá matur úr héraði - localfood