24 stundir - 15.12.2007, Side 21
hrakninga síðustu ára. Þeir sakna Jóns Sigurðssonar og
Halldórs Ásgrímssonar, sem þeir telja þó hafa rifið
flokkinn upp með rótum til þess að arka með hann á
mölina og þaðan til Brussel. Fleira hefur staðið í gömlu
Framsókn, sem finnst nýliðum með kjötkatlahugsjón
hafa verið skotið upp á stjörnuhimininn. Nú vanti
bæði kjötkatlana og forystuna og jafnvel hugsjónina
líka.
Þingfréttamenn Ríkisútvarpsins segja þingið hafa
farið hægt af stað og nýliðar og varaþingmenn sett svip
á það. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir segir:
„Það sem hefur einkennt þetta þing er að það er nýtt.
Ný ríkisstjórn, nýir þingmenn. Margir að læra á nýtt
hlutverk, bæði í stjórn og stjórnarandstöðu, eins og
Samfylking og Framsókn. Framsókn hefur reyndar ver-
ið það lengi í ríkisstjórn að það tekur örugglega sinn
tíma að læra að vera í stjórnarandstöðu. Þess vegna hef-
ur stjórnarandstaðan ekki náð þeim takti sem hún þarf
að hafa.“
Konur tala minna
„Viðveran er misjöfn, nýir þingmenn sitja meira en
þeir eldri. Mjög mikið um að sama fólkið vermi ræðu-
stólinn en áhyggjuefni að konur tala miklu, miklu
minna en karlarnir,“ segir Jóhanna Vigdís.
„Stjórnarmeirihlutinn er mjög stór og minnihlutinn
á fullt í fangi með að veita meirihlutanum nauðsynlegt
aðhald. Margir reyndir þingmenn hættu og það tekur
tíma fyrir nýja að fóta sig. Eins tekur það tíma fyrir
flokka að finna sig í nýjum hlutverkum, Samfylkinguna
í ríkisstjórn og Framsóknarflokkinn í stjórnarand-
stöðu,“ segir Heiðar Örn Sigurfinnsson, fréttamaður
Útvarps, en telur þó að líf sé að færast í leikinn.
beva@24stundir.is
aBjörg Eva Erlendsdóttir
Fréttamenn og þingmenn
eru sammála um að einn
ráðherra skeri sig úr með
mikilli viðveru í þinginu,
Össur Skarphéðinsson, og
er hann af samflokks-
mönnum orðaður sem lík-
legur kandídat í embætti
forseta Alþingis þegar fram líða stundir.
24stundir LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 21
Í þessari lokaviku þingsins var af-
greitt margt þjóðþrifamálið. Auk
löngu tímabærra breytinga á starfs-
háttum þingsins bar sjálft fjárlaga-
frumvarpið auðvitað hæst. Í því er
ekki síst ástæða til að fagna mik-
ilvægum áföngum í kjarabaráttu
aldraðra og öryrkja.
Einna mikilvægast í því er að
með fjárlögunum er tryggt fé til að
uppfylla afnám tengingar lífeyris
við tekjur maka en kostnaður við
það er tæpir tveir milljarðar á ári.
Þessi stefna var mörkuð í stjórnar-
sáttmála ríkisstjórnarinnar og með
samþykkt fjárlaganna er tíu ára ein-
beittri baráttu Öryrkjabandalagsins
og samtaka aldraðra loksins lokið.
Fyrir tíu árum bjuggu öryrkjar
við það að væru þeir giftir eða í
sambúð með manneskju með með-
altekjur voru þeim skammtaðar um
tuttugu þúsund krónur á mánuði af
ríkinu. Þeir voru þannig dæmdir til
að biðja ástvin sinn um vasapeninga
og grunnframfærslu. Eftir að hafa
árum saman rætt við stjórnvöld um
sjálfsagðar lagfæringar á þessu,
stefndi Öryrkjabandalagið ríkinu.
Sá sögulegi dómur Hæstaréttar
að ríkisstjórnin hafi, með því að
svipta þetta fólk nær öllum bóta-
rétti, brotið á grundvallarmannrétt-
indum þeirra verður lengi í minn-
um hafður. Málatilbúnaður ÖBÍ og
Ragnars Aðalsteinssonar var vand-
aður en það sýndi sjálfstæði Hæsta-
réttar og kjark að kveða upp dóm í
svo pólitísku máli.
Dabbía
Viðbrögð Davíðs Oddssonar og
Framsóknarflokksins létu ekki á sér
standa. Jón Steinar Gunnlaugsson
var látinn semja nýtt fyrirkomulag
svo áfram væri hægt að skerða
tekjur fólks vegna tekna maka
þeirra, þó ekki með jafn ósann-
gjörnum hætti og áður. Á næsta ári
verða þær tengingar semsagt úr sög-
unni
Þegar maður lítur nú til baka er
óskiljanlegt hvers vegna Davíð
Oddssyni var svona mikið kapps-
mál að geta skert greiðslur lífeyr-
irsþega með tekjum maka þeirra.
Málið er augljóst mannréttindamál
og snýst um það grundvallaratriði
að vera sjálfstæður einstaklingur.
Tekjutenging við maka leiddi einnig
til þess að fólk í erfiðum félagsleg-
um aðstæðum skráði ekki sambúð
sína og giftist ekki. Þannig var órétt-
lætið jafnvel andstætt hjónaband-
inu og sjálf Þjóðkirkjan lét það til
sín taka þess vegna. Þetta er líka
brýnt jafnréttismál, því auðvitað
voru það oftar konur sem þurftu að
gjalda tekna maka sinna. Þetta er nú
öllum augljóst en hitt furðulegt, hve
langt stjórnvöld sukku í þá dabbíu
sem málaferlin við öryrkja voru.
Sjálfsbjargarviðleitni
Annar mjög mikilvægur þáttur í
þeim breytingum sem við gerum á
næsta ári er að draga verulega úr
öðrum tekjutengingum, þ.e. við at-
vinnutekjur. Það er skrýtið hvað
löggjafinn gekk langt í að refsa fólki
fyrir sjálfsbjargarviðleitni. Svo langt
var gengið að tekjutengingar eru
næstum orðnar skammaryrði. Eru
þær þó hugsaðar til þess að eyða
ekki dýrmætu skattfé í aðstoð við þá
sem ekki þurfa. Þar að auki hefur
reglufrumskógur og hans óréttlæti
hvatt til undanskota og rangrar
upplýsingagjafar.
Í tilfelli öryrkja hefur þetta verið
jafnvel enn fráleitara, því fyrir mörg
okkar sem fötluð eru, er það mik-
ilvæg endurhæfing og félagslegur
stuðningur að vinna. Það ætti þess
vegna að vera sérstakt keppikefli
samfélagsins að hvetja öryrkja á
vinnumarkað en ekki refsa þeim.
Sömu sjónarmið geta líka átt við
um suma aldraða en síðar á kjör-
tímabilinu verður líka hætt að refsa
þeim fyrir ráðdeildarsemi, með því
að hætta að skerða lífeyri ef þeir
taka út séreignarsparnað. Enda eru
það í hæsta máta einkennileg skila-
boð til fólks að refsa því fyrir að
leggja til hliðar fyrir elliárin. Þó það
kosti mikið á pappírunum að hætta
að refsa fólki fyrir allt að 100 þús-
und króna atvinnutekjur á mánuði
og fyrir sparnaðinn, er ég sannfærð-
ur um að þegar dæmið er gert upp
mun samfélagið hagnast á þessum
breytingum. Því þegar við hvetjum
fólk til sjálfshjálpar og ráðdeildar-
semi skilar það sér í sköttum, betra
heilsufari og sterkara samfélagi.
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðir einstaklingar
VIÐHORF aHelgi Hjörvar
Fyrir tíu ár-
um bjuggu
öryrkjar við
það að væru
þeir giftir eða
í sambúð
með mann-
eskju með meðaltekjur
voru þeim skammtaðar
um tuttugu þúsund krón-
ur á mánuði af ríkinu.
Tilboð 4 - Canon Ixus 70
7.1 megapixla myndflaga. Þrefalt zoom. Traust og örugg Canon vél.
3570
Staðgreiðsluverð 34.900
Verð á
mánuði kr.
Tilboð 1 - Kodak C713
7.0 megapixla myndflaga. Þægileg í notkun með Kodak EasyShare.
1667
Staðgreiðsluverð 14.900
Verð á
mánuði kr.
Tilboð 3 - Canon Ixus 960 IS
12.1 megapixla myndflaga. Dúxar á öllum prófunum.
4995
Staðgreiðsluverð 49.900
Verð á
mánuði kr.
Tilboð 2 - Kodak M873
8.0 megapixla myndflaga. Traustur kassi, létt og meðfærileg.
2523Verð á mánuði kr.
Staðgreiðsluverð 23.900
Lítil
Minni
Minnst
www.hanspetersen.is
Auka
rafhlað
a og
taska f
ylgja!
* Meðalverð á mánuði m.v. 12 mánaða greiðslukortasamning. nóv 2007
Sími 562 2600
Fyrir öll börn
sem eru að
missa tennur
Þessi skemmtilega bók er fyrir
alla forvitna krakka.
Bókin svarar með myndrænum
og einstaklega skýrum
hætti algengum spurningum um
tennurnar.
Tannabox fylgir með til að
varðveita gömlu tennurnar.
N
æ
st
Tannlæknafélag Íslands mælir
eindregi› me› þessari bók.