24 stundir - 15.12.2007, Blaðsíða 54
54 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 24stundir
ríkan hátt, eins og náttúran gerir
sjálf í júlí og ágúst. Madonna, Mick
Jagger, Sigga Beinteins og Diddú
eru ljón og bera það með sér.
Stjörnuspekin rannsakar ein-
staklinginn. Fólk sem lætur gera
stjörnukort sitt, rennir yfir það og
segir jamm og jæja og setur það svo
ofan í skúffu græðir ekkert. En þeir
sem skoða stjörnukort sitt og átta
sig um leið á veikleikum sínum og
styrkleika og vilja vinna í eigin
þroska græða heilmikið á stjörnu-
speki. Hópsálir hafa minni áhuga á
stjörnuspeki en þeir sem telja sig
einstaklingshyggjumenn. Vísindin
rannsaka hópa og þar er búið að
skilgreina manninn sem vél - boð-
efnamaskínu. Ef eitthvað er að þá
fer maðurinn til lyfjatæknis sem
gefur honum lyf og ef það virkar
ekki þá fær hann annað lyf.
Kannski finnst sumu fólki stjörnu-
speki ekki virka vegna þess að hún
er ekki pilla.“
Þarfir hverfa aldrei
Hvers konar fólk leitar til þín?
„Þetta er yfirleitt vel menntað og
hugsandi fólk. Konur leita til mín í
mun meira mæli en karlar. Margar
þeirra eru óhamingjusamar í
einkalífi. Eru með hundleiðinleg-
um kalli sem er búinn að kaupa sér
nýjan bíl og er að fara í veiði með
nýju byssuna sína eða horfir á
enska boltann og er sinnulaus um
flest annað. Þegar þessar konur
vilja tala um tilfinningar þá er
maðurinn of mikill karlmaður til
að nenna að standa í því.
Vandamál fólks er að það ræktar
of fáa eiginleika sína. Ef þú ferð í
bókabúð og inn í karladeildina þá
eru þar blöð um tækni, íþróttir,
veiðar og byssur. Ef þú ferð inn í
kvennadeildina þá eru þar blöð um
heimilið, ástina og útlitið. Bæði
karlar og konur hafa alla þessa
þætti í persónugerð sinni. Einstak-
lingurinn þarf heimili, ást, vinnu,
menntun og áhugamál. Ef hann
gleymir að rækta einhverja hvötina
þá verður hún ómeðvituð og skap-
ar vandamál. Þarfir hverfa aldrei.
Þetta er eins og að eiga hús með sjö
herbergjum en búa bara í þremur.
Það skapast mótsagnir sem togast
á. Ástæðan fyrir því að Karl Breta-
prins er mjög ánægður með Ca-
millu er að henni líður vel innra
með sér og þess vegna fylgja henni
engin vandamál. Díana var hins
vegar mjög mótsagnakennd per-
sóna og þjáðist vegna þess. Margir
þeir sem njóta velgengni í lífinu,
eru ríkir og frægir eru um leið
mjög óhamingjusamir. Af hverju
stafar öll þessi óhamingja? Af
hverju leið Ritu Hayworth svona
illa eða Marilyn Monroe eða
Díönu? Það er af því að þær voru
ekki meðvitaðar um innri eigin-
leika sína og fengu ekki útrás fyrir
þá.
Svo spyrð þú hvort stjörnuspeki
sé samkvæmisleikur! Einmitt!“
Leiðarvísir fyrir manninn
Þú ert með mikla starfsemi, líka
erlendis er það ekki rétt?
„Ég var að opna Stjörnuspeki-
stöðina í Síðumúla og býð þar upp
á nýja tegund af stjörnukorti. Leið-
arvísi, user manual, einfaldlega
vegna þess að fólk þarf á slíku að
halda. Við eigum leiðarvísi um bíl-
inn, símann, iPodinn, DVD-tækið,
en ekki um okkur sjálf, maka og
börn. Við pælum í innviðum allra
tækjanna en látum það sem skiptir
öllu máli ósnert. Er þetta hægt?
Fyrir sex árum stofnaði ég símafyr-
irtæki og þar er gerð stjörnuspá í
gegnum síma. Kannski má segja að
það sé samkvæmisleikur, en það er
allt í lagi að hafa leikina með. Þessir
símaleikir ganga vel á Indlandi,
Rússlandi, Bretlandi og í Banda-
ríkjunum. En núna er ég orðinn
þreyttur á þessu af því starfsemin
fer eingöngu fram í tölvum. Það er
hálf einmanalegt, ég vil vinna með
fólki.“
Ertu trúaður?
„Já.“
Geta stjörnuspeki og trú farið
saman?
„Hverjir komu til Krists við fæð-
ingu hans? Vitringarnir þrír, það er
að segja þrír stjörnuspekingar. Það
var stjarna sem boðaði fæðingu
frelsarans og þeir fóru langan veg
til að líta frelsarann augum. Já, ég
er mjög trúaður. Trú ömmu minn-
ar var mjög falleg. Hennar Guð var
góður og umburðarlyndur. Minn
Guð er einnig þannig. Ég trúi á
kærleiksríkan Guð.
Lífið hefur kennt mér margt.
Pabbi dó þegar ég var barn, amma
dó þegar ég var unglingur og ég
varð að halda áfram. Ég vældi ekk-
ert út af því heldur hélt áfram að
leita minna leiða. Þegar ég var rétt
innan við þrítugt var ég nætur-
vörður á hóteli, sat þar um nætur
og las. Þetta var kannski þunglynd-
islegt starf og ég fór að velta fyrir
mér lífinu og tilverunni. Ég hafði
miklar áhyggjur af veröldinni, eins
og ungt fólk hefur oft. Mér fannst
allt vera að fara til fjandans. Ég velti
því fyrir mér hvort það væri þess
virði að lifa. Ég sá lífið fyrir mér
sem baráttu góðs og ills og ákvað
að halda áfram að lifa og vinna að
því sem mér fyndist vera jákvætt og
uppbyggilegt. Það hef ég gert og ég
ætla að halda því áfram.
Viðhorf Oftrú fólks hefur
reynst mér erfið engu
síður en fordæmingarnar.
a
Annars vegar er
fólk úti í þjóð-
félaginu sem
heldur að ég sé snargal-
inn. Það telur stjörnu-
speki vera bull og þvælu
og er sannfært um að ég
sé að spila á hjátrú og
heimsku. Síðan er fólk í
þjóðfélaginu sem heldur
að ég viti allt og sjái allt.
Ég væri mjög þakklátur
fyrir einhvern milliveg.
a
Þegar fólk segir:
Það sem þú ert
að gera er bull
og vitleysa þá reiðist ég.
Hvaða rétt hefur þetta
fólk til að segja að mín
leið sé röng? Hvernig get-
ur það leyft sér það?
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Rafknúnir
hæginda-
stólar
• Auðvelda þér að
standa upp
• Einfaldar stillingar
og fjölbreytt úrval
Verð frá 98.000 krónum
VEL ÞRIFIÐ FYRIRTÆKI
– vellíðan á vinnustaðnum
Láttu okkur þrífa fyrirtækið þitt
Sólarræsting ehf. • Kleppsmýrarvegi 8
104 Reykjavík • Sími. 581 4000
Fax. 581 4000 • solarraesting.is
MEISTARAVERK!
ANTONY
B E E V O R
STALÍNGRAD
Orrustan um Stalíngrad kostaði
meira en milljón mannslíf.
Hér lýsir Antony Beevor þessari
grimmu orrustu og byggir hann
frásögn sína að verulegu leyti á
áður óbirtum gögnum í söfnum
í Þýskalandi og Rússlandi.
Orrustan um Stalíngrad var
ekki einungis sálfræðilegur
vendipunktur síðari heims-
styrjaldarinnar – hún breytti
einnig nútímahernaði.
holar@simnet.is
M
bl
92
72
57