24 stundir - 15.12.2007, Side 57
24stundir LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 57
Elísabet Alba mælir með Pu-
jol Rivesaltes Grenat 2002.
Opið og áhrifamikið vín með
svört skógarber og bökunar-
krydd í nefi. Sveskjur, döðlur
og karamella gefa sætleika í
munni og bæta strúktúr við
þétta fyllingu og langan endi.
Þrúga: Grenache Noir
Land: Frakkland
Hérað: Roussillon
Döðlu- og súkkulaðiterta
Hráefni:
4-5 egg eftir stærð
100 g hrásykur
½ bolli kókosmjöl
½ bolli fínt spelthveiti
½ teskeið lyftiduft
2 matskeiðar smjör (við stofu-
hita)
1 bolli smátt brytjaðar döðlur
1 bolli smátt brytjað, 70%
suðusúkkulaði.
Aðferð:
Eggin eru þeytt vel. Því næst er
hrásykrinum hrært vel saman við
eggin. Öllu þurrefni og smjöri er
blandað varlega með sleif saman
við eggjahræruna.
Bakað í hringformi við 165-170°C
í 15-20 mínútur.
Kremið:
200 g 70% suðusúkkulaði og 50 g
af smjöri er brætt við lágan hita.
Dreifið súkkulaðikreminu yfir
kökuna og látið kólna. Skreytið svo
með uppáhaldsávöxtunum ykkar.
Berið fram með þeyttum rjóma.
EFTIRRÉTTUR
Freistandi súkku-
laðiterta í lokin
Seðjandi sætar kartöflur með
heslihnetum
Hráefni:
3 stórar sætar kartöflur
um 30 g smjör
200 g heslihnetuflögur
4-5 msk. púðursykur (má vera
hrásykur)
Aðferð:
Afhýðið kartöflurnar, rífið niður á
rifjárni og setjið í eldfast mót.
Smjör brætt og hellt yfir. Næst er
sykrinum og heslihnetunum stráð
yfir og bakað í 40-45 mínútur við
180°C.
Villt sveppasósa með týtuberjum
Hráefni:
300 g villtir sveppir (þurrkaðir)
soð af kalkúninum
1 msk. týtuberjasulta
½ lítri rjómi (má sleppa)
Aðferð:
Sveppirnir eru lagðir í bleyti (í um
3 tíma), síðan soðnir. Gott er að
nota töfrasprota til að mixa svepp-
ina alveg niður. Soðinu af kalkún-
inum er hellt yfir og ein msk. af
týtuberjasultu sett út í soðið. Gott
að setja hálfan lítra af rjóma (má
sleppa fyrir þá sem ekki vilja
mjólkurvörur) út í.
Frískandi eplasalat
Hráefni:
2 lífræn græn epli
6 döðlur
1 lífræn hrein jógurt
1 appelsína
Aðferð:
Skerið eplin og döðlurnar í bita
blandið saman við jógúrtina og
kreistið appelsínuna yfir.
MEÐLÆTI
Sætar kartöflur,
sveppasósa og salat
Glóandi kalkúnabringur með hvít-
lauk, rósmaríni og beikoni
Hráefni:
1 kalkúnabringa
extra virgin ólífuolía
ferskt rósmarín
8 hvítlauksgeirar
6-8 sneiðar beikon
gróft salt og pipar
Aðferð:
Fyrst eru hvítlauksgeirarnir settir í
pressu.
Því næst er kalkúnabringan fyllt
með hvítlauknum og beikoni.
Rósmarín er síðan sett inn í
bringuna, ólífuolían smurð yfir
kalkúninn og salti og pipar stráð
yfir eftir smekk.
Kalkúnninn er síðan bakaður í ofni
í um 30-35 mínútur við um það bil
180 gráður.
Mælt er með því að fólk beri fram
með þessu villta sveppasósu með
týtuberjum, eplasalati og sætum
kartöflum.
AÐALRÉTTUR
Glóandi kalkúnabringur
24stundir/Golli
Elísabet Alba Valdimarsdóttir vínþjónn mælir með De Bortoli
Yarra Valley Pinot Noir 2004. Þokkafullt og berjaríkt í nefi með
þroskuðum plómum, hindberjum, mokka, vanillu og jarð-
artónum. Jarðarber og kirsuber eru áberandi í munni með mjúk
þægileg tannín sem gefa glæsilega byggingu og fyllingu.
Þrúga: Pinot Noir
Land: Ástralía
Hérað: Victoria
Leður sófasett
Hornsófasett
Sófasett með skemli
Tungusófar
Tungu hornsófar
Stakir sófar
Borðstofuborð og
stólar
Skenkar
Sófaborð
Eldhúsborð
Rúmgaflar
Leðursófasett áður 239,000
Nú 119,900
Hornsófar tau áður 198,000
Nú 103,000
Hornsófar leður áður 249,000
Nú 149,000
Erum í Dugguvogi 2. Sími 557-9510
HÚ
SG
AG
NA
-
L
AG
ER
SA
LA HÚSGAGNALAGERSALA
VERÐDÆMI
Opnunartími
mán-fös 9.00-18.00 lau 11.00-16.00 sun 13.00-17.00
ALLTAF EINHVAÐ NÝTT
Jólastundin - Jólabragðið - Jólastemningin
R
O
YA
L
Erum byrjuð að taka niður pantanir
fyrir okkar sívinsæla laufabrauð.
Sendum hvert á land sem er.
Pantanir í síma 461 4010.