24 stundir - 15.12.2007, Page 90
90 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 24stundir
Leikstjórinn John Singleton upp-
lýsti nýverið í viðtali við Black-
Voices.com að hann væri að und-
irbúa endurgerð á
sjónvarpsþáttunum The A-Team
sem voru gríðarlega vinsælir á ár-
unum 1983 til 1987. Í þáttunum
sagði frá hópi fyrrum hermanna
sem lifðu á því að góma glæpa-
menn gegn hóflegri borgun við-
skiptavina sinna. vij
A-Team snýr
aftur á skjáinn
Það kemur kannski fáum á
óvart en leikkonan Jodie Foster er
samkynhneigð. Þetta er að
minnsta kosti ályktun sjónvarps-
stöðvarinnar CNN sem komst að
þessari niðurstöðu eftir að hafa
horft á þakkarræðu leikkonunnar
á nýafstöðnum hátíðarmorg-
unverði fjölmiðlakvenna í Holly-
wood þar sem Foster var heiðruð
fyrir störf sín.
Í ræðunni þakkaði Foster sér-
staklega Cydney Bernard, sem hef-
ur lengi verið sögð vera sambýlis-
kona Foster en þær stöllur munu
hafa verið par um 15 ára skeið.
Friðhelgi einkalífsins
Jodie Foster hefur alla tíð haldið
einkalífi sínu utan sviðsljóssins og
hefur ítrekað neitað að ræða um
kynhneigð sína en orðrómur um
samkynhneigð leikkonunnar hefur
verið þrálátur í gegnum tíðina.
Foster er tveggja barna móðir en
hún hefur aldrei viljað upplýsa
hver sé faðir barnanna.
Afhjúpuð í sjónvarpi
Það er ekki á hverjum degi sem
virðuleg sjónvarpsstöð á borð við
CNN ákveður að opinbera sam-
kynheigð fólks í beinni útsendingu
og því hefur uppátæki CNN vakið
gríðarlega athygli vestanhafs.
Varðandi ástæður Foster fyrir
því að gefa í skyn að hún sé sam-
kynhneigð þá eru uppi margar
kenningar um hvers vegna hún sé
loks núna að játa þetta eftir að hafa
umborið orðróminn um árabil.
Sérfræðingur um slúðurmál
fræga fólksins, Kiki King hjá tíma-
ritinu Grazia, viðraði þá skoðun
sína í fyrrnefndri umfjöllun CNN
að líklega væri Foster nú komin á
þann aldur og það tímabil í lífinu
að staðfesting á samkynhneigð
hennar myndi ekki hafa of skaðleg
áhrif á feril hennar. vij
Gefur í skyn samkynhneigð sína
CNN ýtir Foster út úr skápnum
Nordic-Photos/Getty
Gay og glöð Jodie Foster
hefur nú gefið orðróminum
um samkynhneigð sína byr
undir báða vængi.
Bandaríski þjóðsöngurinn mun
verða leikinn á tónleikum Fílharm-
óníusveitar New York sem fara
fram í N-Kóreu í febrúar á næsta
ári. Á tónleikunum verður einnig
leikinn norðurkóreski þjóðsöng-
urinn ásamt laginu American in
Paris eftir Gershwin.
Þetta mun vera stórt skref í því
að bæta samskipti Bandaríkjanna
og Norður-Kóreu en lengi hefur
andað köldu á milli þessara tveggja
þjóða.
„Það eina sem ég get sagt er að
ein lítil sinfónía er stórt stökk fram
á við,“ sagði Zarin Mehta, stjórn-
andi fílharmóníusveitarinnar á
blaðamannafundi sem hann hélt
ásamt sendiherra N-Kóreu hjá
Sameinuðu þjóðunum, Pak Gil
Yon, þar sem tónleikarnir voru
kynntir.
Mehta sagði að pólitík myndi
ekki ráða lagavalinu heldur yrði
bara leikin góð tónlist á tónleik-
unum en samkvæmt Pak Gil Yon
er óvíst hvort leiðtogi N-Kóreu,
Kim Jong-il, mætir á skrallið. vij
Bandarískt í Norður-Kóreu
Mætir varla Kim Jong-il mun lík-
lega sleppa tónleikunum.
Eftir Viggó I. Jónasson
viggo@24stundir.is
Samkvæmt fjármálatímaritinu
Forbes eru Russell Crowe og Ni-
cole Kidman oflaunuðustu leik-
ararnir í Hollywood í dag en tíma-
ritið komst að þessari niðurstöðu
eftir að hafa rýnt í laun leikaranna,
framleiðslukostnað kvikmyndanna
og þá upphæð sem myndin þénaði,
bæði í kvikmyndahúsum og á
leigu- og sölumarkaði.
Russell Crowe hlotnast sá vafa-
sami heiður að vera oflaunaðasti
leikarinn í heiminum í dag.
Fyrir hvern einasta dollara sem
Crowe fékk greiddan fyrir leik sinn
í myndum á borð við Master &
Commander og Cinderella Man,
þénuðu kvikmyndaverin sem
stóðu á bak við myndirnar ein-
ungis fimm dollara. Það verður að
teljast afskaplega lítið, sérstaklega
ef litið er til stjarna á borð við An-
gelinu Jolie, sem er með mun hóf-
samari launakröfur en skilar þó að
jafnaði 15 dollurum til kvik-
myndaveranna fyrir hvern dollar
sem hún fær greiddan í laun.
Kidman oflaunuð drottning
Ef Russel Crowe er konungur
oflaunuðu leikaranna þá hlýtur
Nicole Kidman að vera ókrýnd
drottning oflaunaðra leikkvenna.
Um þessar mundir er nýjasta
mynd Kidman, The Golden
Compass, að valda miklum von-
brigðum en fyrir þá mynd fékk
Kidman um 15 milljónir dollara í
laun. Á frumsýningarhelgi mynd-
arinnar vestanhafs þénaði myndin
einungis 26 milljónir dollara sem
er skelfilegur árangur fyrir mynd
sem kostaði um 200 milljónir í
framleiðslu.
Þar að auki hafa þrjár síðustu
kvikmyndir Kidman skilað kvik-
myndaverunum einungis 8 doll-
urum hvern hvern einasta dollar
sem hún þiggur í laun.
Það er því ljóst að há laun leik-
ara og velgegni mynda haldast eng-
an veginn í hendur í Hollywood.
Russell Crowe og Nicole Kidman
Oflaunuðustu
leikarar heims
Hinn oflaunaði konungur
Russell Crowe græðir mikið
en myndir hans ekki.
➤ Grínistinn Jim Carrey hefurítrekað valdið vonbrigðum
síðustu ár. Kvikmyndaverin
græða átta dollara fyrir hvern
einn sem hann fær í laun.
➤ Sömu sögu er að segja af WillFerrell, átta dollarar á móti
einum, og Adam Sandler, níu
á móti einum.
AÐRIR OFLAUNAÐIR
Mörgum blöskrar þegar
þeir heyra hvað Holly-
wood-stjörnurnar fá í
laun fyrir kvikmyndaleik.
En það er spurning hvort
stjörnurnar hafi unnið
fyrir laununum sínum.
Fólki þykir fátt skemmtilegra en
að smjatta á ylvolgu slúðri um
næstu Bond-mynd og þökk sé ný-
legu sjónvarpsviðtali Daniel
Craigs við breska sjónvarpsstöð
hefur fólk svo sannarleg fengið
eitthvað bitastætt til að japla á.
Í viðtalinu var Craig spurður
hver titill næstu myndar myndi
verða og virðist vera sem Craig
hafi þá aðeins talað af sér.
„Nafnið er frekar númer. Af því
að fyrsta myndin fjallaði um
hvernig hann fékk 00-titilinn og
nú er hann 007 í fyrsta sinn.“
Eftir að hafa sagt þetta var hann
spurður hvort titill næstu mynd-
ar yrði einfaldlega 007 og sagðist
Craig líklega hafa sagt of mikið
og vildi ekki ræða málið frekar. Ef
þetta reynist satt verður þetta
næststysta nafn á Bond-mynd frá
upphafi en Dr. No skartaði
styttra nafni. vij
Heitir sú næsta
bara 007?
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Það eina sem ég get sagt
er að ein lítil sinfónía er
stórt stökk fram á við.
Misty, Laugavegi 178,
Sími 551 3366
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf
www.misty.is
Fylltur og flottur í CD skálum á kr.
2.350,- buxur í stíl á kr. 1.250,-
Mjög vel fylltur, stækkar þig um
skálastærð, fæst í BC skálum á
kr. 2.350, buxur í stíl á kr. 1.250,-
Mjúkur, saumlaus í BCD skál á.
kr.2.350, buxur í stíl á kr. 1.250,-
Blóðug ástarsaga úr gagganum.
Villi, Sirrí & Eva.
Nýr
bóka-
flokkur
tindur@tindur.iswww.tindur.is
Óbæri-
leg
spenna!