Morgunblaðið - 11.01.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 9. TBL. 93. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
20
AFSLÁTTUR
70-
ÚTSALA
OPIÐ: Mán. - fös. 10-19 • Lau. 10-18 • Sun. 12-18
Bíldshöfða 20 • s. 585 7200
%
Vinsælt að
stela bílum
Eftirsóttustu tölvuleikirnir á
Íslandi árið 2004 | Menning
Sveigjanlegur
grunnskóli
Hvert barn fær kennslu við hæfi
í Sjálandsskóla | Daglegt líf
Ekkert við Garcia að gera
Appleby lék frábærlega Hver
er Vilhjálmur Halldórsson?
Íþróttir í dag
GEORGE W. Bush, forseti
Bandaríkjanna, sagði í gær, að
hann hygðist bjóða Mahmoud
Abbas, sigurvegara forsetakosn-
inganna í Palestínu, til Wash-
ington.
„Ég óska Abbas til hamingju
með sigurinn og hlakka til að eiga
við hann viðræður hér í Wash-
ington,“ sagði Bush á blaða-
mannafundi í gær en í kosning-
unum á sunnudag fékk Abbas rúm
60% atkvæða en helsti keppinaut-
ur hans, Must-
afa Barghuti,
um 20%. Kvaðst
Bush vera mjög
ánægður með
niðurstöðu kosn-
inganna í Pal-
estínu.
Þjóðarleiðtog-
ar víða um heim
hafa fagnað kjöri Abbas og hefur
því einnig verið vel tekið í Ísrael
þar sem þingið lagði í gær blessun
sína yfir nýja samsteypustjórn
Likudflokksins, Verkamanna-
flokksins og lítils, hófsams trú-
málaflokks. Verður aðalverkefni
hennar að flytja ísraelska her-
menn og landtökumenn frá Gaza.
Abbas sagðist í gær bjóða Ísr-
aelum sáttahönd og Nabil Shaath,
utanríkisráðherra Ísraels, sagði,
að þeir Sharon og Abbas myndu
líklega hittast eftir hálfan mánuð.
Bush vill ræða við Abbas
Jerúsalem. AFP.
Þeir geta/16
Mahmoud Abbas
LEONÍD Kútsjma, fráfarandi forseti
Úkraínu, ákvað í gær, að úkraínska herliðið
í Írak yrði kallað heim innan hálfs árs. Tók
hann þessa ákvörðun eftir að átta úkra-
ínskir hermenn féllu í sprengingu í Írak.
Kútsjma skipaði varnar- og utanríkisráð-
herra Úkraínu að leggja strax á ráðin um
að flytja herliðið, rúmlega 1.600 manns,
heim á fyrra helmingi þessa árs. Kemur
ákvörðunin í kjölfar þess, að átta úkra-
ínskir hermenn týndu lífi og sex særðust er
sprengjustafli, sem fannst á víðavangi,
sprakk.
Fyrstu fréttir af sprengingunni voru, að
um hefði verið að ræða slys en í gær var
haft eftir háttsettum, úkraínskum herfor-
ingja, að líklega hefði verið um árás að
ræða. Víktor Jústsjenko, sigurvegarinn í
úkraínsku forsetakosningunum, sagði strax
eftir sprenginguna, að hans fyrsta verk
sem forseti yrði að kalla herinn heim.
Yfirkjörstjórn í Úkraínu kom saman í
gær og lýsti Jústsjenko formlegan sigur-
vegara í forsetakosningunum 26. desem-
ber. Hefur hún vísað á bug öllum kærum
keppinautar hans, Víktors Janúkovítsj, en
samt er talið líklegt, að hann muni áfrýja
lokaniðurstöðu yfirkjörstjórnar.
Breska stjórnin tilkynnti í gær, að 400
hermenn að auki yrðu sendir til Íraks
vegna væntanlegra kosninga í landinu.
Úkraínska
liðið í Írak
senn heim
Kjör Jústsjenko
formlega staðfest
Kíev, London. AP, AFP.
FRAM kemur í breskri skýrslu, sem
kynnt verður í dag, að GSM-
símanotkun barna og fullorðinna líka
sé að verða „stjórnlaus“ þrátt fyrir
viðvaranir um hugsanlegt heilsutjón.
Að því er segir í The Sunday Times
mun Sir William Stewart, forstjóri
bresku heilsuverndarstofnunarinnar,
leggja til í skýrslunni, að börn noti
GSM-síma aðeins af brýnum ástæðum
enda fjölgi sífellt vísbendingum um, að
mikil notkun þessara síma geti haft
óæskilegar afleiðingar.
Í skýrslunni eru símafyrirtæki
gagnrýnd fyrir að beina áróðri sínum
ekki síður til barna en fullorðinna.
„Stjórnlaus“
GSM-notkun
KYNSLÓÐIRNAR hittust á leikskólanum Bar-
ónsborg í gær þegar þrjá góða gesti bar að
garði og röbbuðu við börnin nokkra stund.
Þar voru á ferð Eyjólfur Jónsson, betur þekkt-
ur sem Eyjólfur sundkappi, Pétur Pétursson
þulur og Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri.
Þótt aðstæður barna nú til dags séu gjörólíkar
því sem þekktist fyrir mörgum áratugum
tengjast ungir sem aldnir ósýnilegum böndum
sem endurspeglast í þrá eftir mannlegum sam-
skiptum og góðum sögum – þrátt fyrir öld
fjarskipta.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kynslóðirnar hittast á Barónsborg
UNGVERSKUR karlmaður reyndi fyrir ára-
mót að smygla innvortis tæplega einu kílói af
kókaíni til landsins. Þegar hann var handtekinn
á Keflavíkurflugvelli 30. desember fundust ríf-
lega 80 fíkniefnahylki í meltingarvegi hans.
Hafði þriðjungur gengið niður á leið mannsins
frá Kanaríeyjum en þau gleypti hann jafnharð-
an aftur. Rannsókn lögreglunnar í Reykjavík
leiddi til þess að Nígeríumaður var handtekinn
hér á landi, grunaður um aðild að málinu.
Þetta er langmesta magn fíkniefna sem reynt
hefur verið að smygla innvortis til landsins, svo
vitað sé. Efnin eru mjög sterk og má ætla að þau
megi drýgja þre- til fjórfalt fyrir götusölu. Verð-
mæti þeirra er því ekki minna en 40 milljónir.
Að sögn Jóhanns R. Benediktssonar, sýslu-
manns á Keflavíkurflugvelli, var maðurinn
handtekinn við komuna frá París en hann hafði
lagt upp frá Kanaríeyjum þar sem hann er bú-
settur. Grunur vaknaði um að hann væri að
smygla fíkniefnum innvortis og var það staðfest
með röntgenmyndatöku. Jóhann vildi ekki
greina frá því hvað hefði valdið því að grunurinn
vaknaði. Maðurinn hefði komið vel fyrir og
hegðun hans verið eðlileg í alla staði. Hann væri
að öllum líkindum atvinnuburðardýr.
Samkvæmt framburði mannsins gekk þriðj-
ungur af hylkjunum niður á leiðinni til landsins.
Hylkin skolaði hann og gleypti þau aftur, vænt-
anlega eftir að hafa dýft þeim í jógúrt, matarolíu
eða annað þess háttar. Hylkin reyndust vera
ótraust og höfðu læknar verulegar áhyggjur af
því að þau myndu rofna í maga eða þörmum
mannsins. Það gerðist ekki og gengu síðustu
hylkin niður seint á gamlárskvöld.
Nígeríumaður handtekinn
Fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík tók
við rannsókn málsins og leiddi hún til þess að
Nígeríumaður var handtekinn í Reykjavík sl.
fimmtudag. Mennirnir eru báðir 29 ára gamlir.
Ungverjinn var úrskurðaður í þriggja vikna
gæsluvarðhald og Nígeríumaðurinn í tveggja
vikna varðhald.
Þegar þessi sending er meðtalin lögðu toll-
gæsla og lögregla hald á um 6,2 kíló af kókaíni í
fyrra, hálfu kílói meira en lagt var hald á fimm
árin þar á undan (1999–2003).
Gripinn með tæpt kíló
af kókaíni innvortis
Gleypti þriðjung
hylkjanna aftur eftir
að þau gengu niður