Morgunblaðið - 11.01.2005, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2005 7
FRÉTTIR
PÁLL Þórhallsson hefur verið
ráðinn lögfræðingur á aðalskrif-
stofu forsætisráðuneytisins
samkvæmt auglýsingu sem birt
var í byrjun desember 2004.
Páll mun m.a. sinna ráðgjöf,
skjalagerð og úrlausn lögfræði-
legra viðfangsefna á verksviði
ráðuneytisins, einkum á sviði
stjórnskipunar- og stjórnarfars-
réttar.
Páll Þórhallsson lauk embætt-
isprófi í lögfræði árið 1995 og
framhaldsnámi í stjórnskipunar-
rétti og mann-
réttindum frá
háskólanum í
Strassborg
1998. Hann
hefur undan-
farin sex ár
starfað sem
lögfræðingur
hjá Evrópu-
ráðinu og hefur
m.a. starfað við stefnumótunar-
vinnu á sviði opinberrar stjórn-
sýslu.
Ráðinn lögfræðingur
í forsætisráðuneyti
Páll Þórhallsson
FRAMSÓKNARMENN í Kópavogi
leggjast gegn því að Frigg Mjöll fái
leyfi til vinnslu á klórgasi við Vest-
urvör. Verksmiðjan flutti starfsemi
sína í Kópavog sl. sumar en var
synjað um leyfi til að geyma og
vinna úr klórgasi í nóvember á síð-
asta ári og var umsókn fyrirtæk-
isins vísað frá.
Í fundargerð heilbrigðisnefndar
Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis,
kemur fram að ekki var gerð full-
nægjandi grein fyrir staðháttum á
vinnustað í umsókninni, auk þess
sem ekki var gerð grein fyrir því
hvort starfsemin samrýmdist deili-
skipulagi, og hvort húsnæðið full-
nægði ákvæðum skipulags- og
byggingarlaga.
Málið verður tekið fyrir á fundi
bæjarráðs á fimmtudag þar sem
m.a. munu mæta fulltrúar Friggjar
Mjallar.
Að sögn Ómars Stefánssonar,
bæjarfulltrúa Framsóknarflokks, er
fyrirtækið í nálægð íbúðarbyggð og
innan við 200 metrar í næsta íbúð-
arhúsnæði. Alltaf sé slysahætta fyr-
ir hendi af vinnslu klórgass auk
þess sem ekki sé gert ráð fyrir iðn-
aðarstarfsemi á þessum slóðum skv.
gildandi deiliskipulagi.
Klórgas er notað í vinnslu á klór
sem m.a. er nýttur í sundlaugar.
Sem fyrr segir hefur fyrirtækið
ekkert starfsleyfi fyrir framleiðsl-
unni og segir Ómar að ólíklegt sé að
starfsleyfið verði nokkru sinni veitt
við núverandi aðstæður.
Framsóknarmenn and-
vígir vinnslu klórgass
HOLLENSKUR félagsfræðingur
hefur birt niðurstöður rann-
sóknar, sem hann hefur gert á
hamingju meðal þjóða. Sam-
kvæmt því eru Íslendingar 4.–5.
hamingjusamasta þjóð heims
ásamt Írum; aðeins Danir, Malt-
verjar og Svisslendingar eru
ánægðari.
Írskir fjölmiðlar skýrðu frá
þessu í gær og segja að nið-
urstöðurnar byggist á Hamingju-
gagnabanka Ruut Veenhovens,
prófessors við Erasmusháskóla í
Rotterdam.
Niðurstöðurnar eru sagðar
byggjast á könnunum sem gerðar
voru í 112 löndum á árunum 1946
til 2004 en ekki kom fram á
hvaða efnisþáttum þær byggðust.
Haft er eftir Veenhoven að
hamingja þjóða virðist tengjast
lýðræði, frelsi og umburðarlyndi,
góðum stjórnarháttum og auð-
legð.
Íslendingar
sagðir í hópi
hamingju-
sömustu þjóða
UNGUR maður í Hafnarfirði hlaut
1. og 2. stigs bruna í andliti um
helgina þegar flugeldaterta, sem
hann hafði tekið í sundur, sprakk.
Lögreglan í Hafnarfirði segir að
mikill fjöldi kvartana hafi borist
um helgina vegna flugeldanotk-
unar, sem ekki er lengur leyfileg
þar sem þrettándinn er löngu lið-
inn.
Er þetta tólfta flugeldaslysið
sem verður um og eftir áramótin
og hafa sumir slasast alvarlega í
þeim.
Brotnar voru rúður í fóðurflutn-
ingabíl, sem stóð á bifreiðastæði
við Lundaból í Garðabæ á sunnu-
dag.
Lögreglan segir, að það mál sé í
rannsókn, og talið að flugeldar
eða sprengjur hafi valdið rúðu-
brotunum.
Enn eitt
flugeldaslysið
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur
verið beðin rannsaka hvort
speglabúnaður á karlasalerni
skemmtistaðar í miðbænum geri
körlum kleift að kíkja á konur á
kvennasalerni hinum megin
veggjar. Kona sem var gestur á
skemmtistaðnum um helgina
komst að því að hægt væri að
horfa í gegnum spegilinn aftan
frá og bað lögregluna að athuga
málið.
Að sögn lögreglu snýr bak
spegilsins inn að karlaklósetti og
sagði konan lögreglunni að þar
væri vörður sem varnaði því að
aðrir en karlar kæmust inn á kló-
settið og séð hvers kyns var.
Karlarnir gætu fylgst með því
sem væri að gerast á kvenna-
klósettinu.
Segir unnt að
horfa á konur
á klósetti