Morgunblaðið - 11.01.2005, Blaðsíða 20
smáauglýsingar mbl.is
Akureyri | Suðurnes | Landið | Austurland
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Íbúar á Hellu og nágrenni sem lentu í því
að vera inni við á heimilum sínum 17. júní,
árið 2000, þegar fyrri Suðurlandsskjálftinn
reið yfir, eiga trúlega auðveldara með að
setja sig í spor þeirra sem upplifðu hörm-
ungar flóðanna í Suðaustur-Asíu og lifðu af,
en þeir sem voru úti við. Þó að langt í frá sé
hægt að bera þessi ósköp sem hlutust af
risaflóðbylgjunni saman við afleiðingar
skjálftanna hér upplifir maður sömu mein-
ingar hjá fólki að því leyti að það sé ekki
hægt að lýsa reynslunni fyrir þeim sem
upplifðu hana ekki. Sumir urðu hræddir,
aðrir reiðir og enn aðrir urðu yfir sig undr-
andi. Það vill gjarnan gleymast þegar verið
er að fjalla um „tsunami“ að það var jarð-
skjálfti sem kom flóðbylgjunni af stað og af-
leiðingar hans urðu talsverðar fyrir utan
flóðbylgjuna. Þetta var umtalsvert öflugri
skjálfti en Suðurlandsskjálftarnir, mig
minnir að ég hafi heyrt að reiknitalan gæti
verið að þrjúþúsundfalt afl hafi leyst úr
læðingi. Engir smákraftar þar. Við megum
þakka fyrir að á hafsbotninum kringum Ís-
land virðast vera aðrar aðstæður sem
skapa minni hættu á flóðbylgjum af þessu
tagi.
Mikið er rætt um þessar mundir hvers
Hellubúar og nærsveitarmenn eigi að
gjalda að hafa ekki áfengisútsölu eins og
önnur þéttbýli við hringveginn. Heyrst hef-
ur áður að ÁTVR hafi tekið vel í að opna
verslun með bús á Hellu, en nýjustu fréttir
herma að ekki sé fyrirhugað að ráðast í
slíkt á næstunni. Á sama hátt fer fram mikil
umræða um verðlag á matvöru en Kaupás
sem rekur fjölda verslana um allt Suður-
land er með 11-11 verslun á Hellu þar sem
verðlag er frekar hátt að því mér er tjáð.
Veldur þetta því að fjöldi manns fer héðan á
Selfoss til að versla, en þar eru reknar 3 eða
4 lágvöruverðsverslanir sem svo eru kall-
aðar. Þegar horft er á þessi tvö dæmi um
verslunarhætti, þá má svo sem segja að
ÁTVR hafi engu að tapa því að neytendur
geta ekki keypt áfengi hjá öðrum aðila,
hvert sem þeir fara. Þarna er bara spurn-
ing um hvað ríkið veitir þegnum sínum
góða þjónustu. Ef horft er til matvörunnar
hins vegar hlýtur Kaupás að tapa talsverðri
verslun frá sér t.d. til Bónuss eða Europris
á Selfossi. Þessi umræða vekur mann þar
að auki til umhugsunar um hvar núna eru
niðurkomnar hugmyndir um að selja t.d.
létt vín og bjór í matvöruverslunum. Fram-
bjóðendur til Alþingis í yngri kantinum
hafa haft þessar hugmyndir uppi í gegnum
tíðina, en það er með ólíkindum hvað þeir
eldast hratt þegar þeir eru komnir á þing.
Úr
bæjarlífinu
HELLA
EFTIR ÓLA MÁ ARONSSON
FRÉTTARITARA
Íbúum á Kópaskerihefur borist góðgjöf, nýr flygill er
kominn í bæinn og hefur
honum verið komið fyrir í
Grunnskólanum.
Flygillinn er gjöf frá
Aðalheiði Árnadóttur frá
Bakka á Kópaskeri til
íbúa Kópaskers og ná-
grennis. Göfin er til
minningar um foreldra
hennar, Árna Ingimund-
arson og Ástfríði Árna-
dóttur, einnig ömmu
hennar Sabínu Jóns-
dóttur. Árni og Ástfríður
byggðu fyrsta íbúðar-
húsið á Kópaskeri,
Bakka.
Til stendur að vígja
gripinn með tónleikum
þann 22. janúar og mun
margt fólk koma þar sam-
an til að spila og syngja.
Flygill í bæinn
Í jarðskjálftanum í As-íu gengu flekarnirsaman á meðan þeir
gliðna á Norðurlandi.
Friðrik Steingrímsson
orti:
Núna er víða neyðarstand.
Núna er ekki tíðin blíð.
Núna skelfur Norðurland.
Núna stækkar Reykjahlíð.
Davíð Hjálmar segir Frið-
rik þurfa að læra landa-
fræðina betur:
Bifast varla bæjarhlað,
brestur hvergi svörður.
Reykjahlíðin stóð í stað.
Stækkar Eyjafjörður.
Friðrik svarar:
Undir sól er ekkert nýtt
okkar drottins þekkt er gjörð
og Reykjahlíðar veldið vítt
valtar yfir Eyjafjörð.
Þá Davíð Hjálmar:
Útþenslukóngar á eldheitum stað
Eyjafjörð heimta í pottinn,
stefndu því Reykjahlíð ótrauður að
Óbyggðanefndinni, Drottinn.
Jörðin skelfur
pebl@mbl.is
Flúðir | Óvíða eru stærri brenn-
ur en á Flúðum. Þar njóta íbú-
arnir góðs af verksmiðju Lím-
trés þar sem til fellur töluvert
efni sem notað er til að hlaða
bálkesti. Vegna veðurs var því
frestað að kveikja í áramóta-
brennunni og var ekki kveikt í
fyrr en síðastliðið laugardags-
kvöld. Því má segja að Hruna-
menn hafi tekið upp nýtt tímatal
um þessi áramót. Fjöldi fólks
safnaðist að brennunni sem var
rétt vestan við Flúðir, bæði
heimamenn og gestir þeirra.
Börnin nutu vel. Þá var Björg-
unarsveitin Eyvindur með mikla
flugeldasýningu af þessu tilefni.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Nýtt tímatal hjá Hrunamönnum
Brenna
Selfoss | Fjölbrautaskóli Suðurlands hef-
ur fengið þriggja milljóna kr. styrk Átaks-
verkefnis í hestamennsku vegna nám-
skrárgerðar í hestaíþróttum.
Átaksverkefnið í hestamennsku er fimm
ára verkefni sem lauk nú um áramótin en
að því stóðu fjögur ráðuneyti og Sveitarfé-
lagið Skagafjörður. Alls var veitt 200 millj-
ónum króna til verkefnisins síðastliðin
fimm ár en markmið þess var meðal annars
að efla hestaíþróttir og hestamennsku.
Í frétt frá skólanum kemur fram að
styrkveitingin feli í sér hvatningu til að
auka samstarf og þjónustu við atvinnulífið í
héraðinu. Hestamennskan sé í síauknum
mæli sunnlenskur atvinnuvegur auk þess
að vera angi af alþjóðlegri starfsemi.
Námskrá í
hestaíþrótt-
um hjá FSU
Skagafjörður | Félagsmálaráðuneytið hef-
ur úrskurðað að ákvörðun sveitarstjórnar
Skagafjarðar um að setja Villinganesvirkj-
un inn í kynningartexta með tillögu að að-
alskipulagi Skagafjarðar sé ógild. Ástæðan
er sú að Bjarni Maronsson flutti tillöguna og
tók þátt í afgreiðslu hennar en hann á
óbeina aðild að virkjunarfélagi sem varafor-
maður stjórnar Kaupfélags Skagfirðinga.
Núverandi sveitarstjórn sem fulltrúar
Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar
– græns framboðs standa að setti til hliðar
áform um virkjun Jökulsár við Villinganes.
Þegar aðalskipulag Skagafjarðar 2004 til
2016 var til afgreiðslu í sveitarstjórn í haust
flutti Bjarni Maronsson, einn fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, tillögu um að gert yrði ráð
fyrir vatnsaflsvirkjun við Villinganes í
skipulaginu. Var tillagan samþykkt eftir að
meirihluti fulltrúa í sveitarstjórn hafði talið
Bjarna hæfan til að flytja málið og taka þátt
í afgreiðslu þess. Bjarni er varaformaður
stjórnar Kaupfélags Skagfirðinga sem á
óbeina aðild að Héraðsvötnum ehf. sem hafa
það markmið að virkja Jökulsá og byggja
Villinganesvirkjun.
Áskell Guðmundsson, fulltrúi VG í sveit-
arstjórn og sveitarstjóri Skagafjarðar,
kærði þessa ákvörðun til félagsmálaráðu-
neytisins og fór fram á ógildingu vegna að-
ildar Bjarna að henni. Í úrskurði ráðuneyt-
isins er fallist á rök Áskels og ákvörðun
sveitarstjórnar um að setja Villinganes-
virkjun inn í kynningartexta með tillögu að
aðalskipulagi talin ógild. Sveitarstjórn er
falið að taka málið á ný til löglegrar með-
ferðar.
Ákvörðun um
Villinganes-
virkjun ógilt
♦♦♦
LÆRÐU AÐ HEKLA, PRJÓNA
& SAUMA BÚTASAUM
1. PRJÓNTÆKNINÁMSKEIÐ á miðvikudögum 12. jan. til 23. feb.
2. PRJÓNTÆKNINÁMSKEIÐ á mánudögum 17. jan. til 21. feb.
3. PRJÓNTÆKNINÁMSKEIÐ á miðvikudögum 9. mars til 20. apríl.
1. HEKLNÁMSKEIÐ á fimmtudögum 6. jan. til 27. jan.
2. HEKLNÁMSKEIÐ á þriðjudögum 18. jan. til 15. feb.
3. HEKLNÁMSKEIÐ á fimmtudögum 24. feb. til 17. mars.
4. HEKLNÁMSKEIÐ á fimmtudögum 31. mars til 28. apríl.
5. HEKLNÁMSKEIÐ á mánudögum 4. apríl til 25. apríl.
1. BÚTASAUMSNÁMSKEIÐ, saumuð er taska eftir Kaffi Fassett.
Kennt er fimmtudagana 10. og 17. febrúar.
2. BÚTASAUMSNÁMSKEIÐ, saumaður er dúkur eftir Sigríði
Bragadóttur. Kennt er mánudagana 7. og 14. mars.
Innritun og allar nánari upplýsingar í Storkinum,
Laugavegi 59, sími 551 8258
Upptökuheimilið Geimsteinn í Keflavík sem RúnarJúlíusson stýrir gaf fimmtíu geisladiska í happ-drætti MND-félagsins. Guðjón Sigurðsson tók
við diskunum fyrir hönd félagsins en hann greindist með
sjúkdóminn á síðasta ári og hefur síðan unnið mikið að
félagsmálum MND sjúklinga.
Sala á miðum í happdrætti MND-félagsins hefst fljót-
lega og fær félagið gefins fjölda vinninga. Allur afrakst-
ur happdrættisins rennur í framkvæmdasjóð félagsins.
Gjöf til MND-félagsins