Morgunblaðið - 11.01.2005, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 11.01.2005, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ GEORGE CLOONEY BRAD PITT ANDY GARCIA andJULIA ROBERTS BERNIE MAC DON CHEADLE MATT DAMON CATHERINE ZETA-JONES Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. ✯  S.V. Mbl.  Kvikmyndir.com „Hressir ræningjar“ Fréttablaðið Sýnd kl. 5.30 ísl tal / kl. 8 og 10.20 enskt tal Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. SÝND Í LÚXUS VIP KL. 8.30. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.30, 6, 8.30 og 10. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.30 og 6. Ísl.tal. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Enskt tal. TIL AÐ RÁÐA DULMÁLIÐ ÞARF HANN AÐ BRJÓTA ALLAR REGLUR. I I J . Snillingurinn Jerry Bruckheimer kemur hér með fyrstu stórspennumynd ársins sem sló rækilega í gegn í USA og var 2 vikur í toppsætinu! TIL AÐ RÁÐA DULMÁLIÐ ÞARF HANN AÐ BRJÓTA ALLAR REGLUR. Snillingurinn Jerry Bruckheimer kemur hér með fyrstu stórspennumynd ársins sem sló rækilega í gegn í USA og var 2 vikur í toppsætinu! illingurin Jerry Bruckheimer kemur hér með fyrstu stórspennumy d ársins sem sló rækilega í gegn í USA og var 2 vikur í toppsætinu!  H.L. Mbl.  Kvikmyndir.comi ir. FRÁ FRAMLEIÐENDUM „PIRATES OF THE CARIBBEAN“ FRÁ FRAMLEIÐENDUM „PIRATES OF THE CARIBBEAN“ YFIR 27.000 ÁHORFENDUR INCREDIBLES ER VINSÆLASTA JÓLAMYNDIN, YFIR 27.000 ÁHORFENDUR FRÁ ÖÐRUM DEGI JÓLA TIL DAGSINS Í DAG I J I , I I J I I Í Hvað er málið með Alfie? Pottþétt rómantísk gamanmynd með JudeLaw sem nýlega var kosinn kynþokkafyllsti karlmaðurinn. Frábær tónlist. Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. OCEAN´S TWELVE YFIR 27.000 ÁHORFENDUR  H.L. Mbl..L. bl. Kvikmyndir.is H.J. Mbl.  M.M.J. Kvikmyndir.com   DV Kvikmyndir.is  DV Kvikmyndir.is TVÖFALDUR upphafsþáttur í nýrri þátta- röð Kapphlaupsins mikla (Amazing Race) verður sýndur á Stöð 2 í kvöld. Eins og frægt er orðið voru þættirnir teknir upp hér- lendis á þremur dögum í ágúst á síðasta ári. Um 150 manns komu að gerð þáttanna þegar allt er talið til en þar af eru um 60 útlend- ingar frá bandarísku sjónvarpsfyrirtækj- unum CBS og Jerry Bruckheimer Product- ions. „Þetta var mjög skemmtilegt og mikil áskorun að takast á við þetta. Stór hluti af því var að forða því að þetta spyrðist út,“ segir Pétur Sigurðsson, framleiðandi hjá Pegasus, sem sá um tökur og skipulagningu hérlendis. Það hafði því ekkert heyrst af gerð þáttanna hérlendis fyrr en tökurnar hófust. „Þegar keppendurnir voru lentir og farnir að spyrja til vegar þá höfðum við ekki stjórn á þessu lengur. Það náði ekkert að skemma fyrir,“ segir hann. Spennandi ferðalag fram undan „Þetta gekk mjög vel og erlendu framleið- endurnir fóru héðan alveg í skýjunum. Allt virkaði eins og þeir höfðu hugsað það og þrautirnar gengu að óskum,“ segir hann en í þáttunum takast nokkrir keppendur, tveir og tveir saman, á við ýmsar þrautir og berst leikurinn víða um heim. Vegleg pen- ingaverðlaun eru í boði fyrir þá sem fyrstir koma í mark. Í síðasta kapphlaupi ferðuðust keppendur rúmlega 100 þúsund kílómetra leið og fram undan er annað eins ferðalag. Pétur hefur séð upphafsþáttinn en haldin var forsýning fyrir aðstandendur. Hann segir að almenn ánægja hafi verið með þættina og fimm hundruð gestir hafi skemmt sér stór- vel. „Þetta er mjög spennandi og fólk datt al- veg inn í þáttinn,“ segir hann. Af hverju skyldi þessi fyrsti þáttur vera látinn gerast á Íslandi? „Bæði höfum við margt að bjóða en svo erum við líka góður tengipunktur frá Ameríku til Evrópu hvað varðar flugleiðir,“ segir hann. Þessi tvöfaldi upphafsþáttur var frum- sýndur í Bandaríkjunum undir lok nóvember og voru áhorfendur um 11–12 milljónir. Kapphlaupið mikla hefur fengið Emmy- verðlaun tvö ár í röð sem besta veruleika- sjónvarpið og borið sigurorð af þáttum á borð við Survivor, The Apprentice og Am- erican Idol. Engin brögð í tafli „Þessi þáttur er mjög raunverulegur. Þetta gerist allt saman og er ekkert planað fyr- irfram,“ segir Pétur og neitar því að ein- hvers konar brögð séu í tafli. „Ég hefði vitað það því þá hefði ég þurft að skipuleggja það!“ Hann segir að mikil vinna felist í und- irbúningi fyrir þættina og þannig sé skap- aður grundvöllur fyrir spennandi þætti. „Þegar verið er að velja fólk í þættina geng- ur það í gegnum mörg valstig og persónu- leikapróf. Tólf þúsund lið sækja um en ellefu eru valin úr,“ segir hann. „Þetta er hugsað þannig að fólk er leitt ákveðna leið en karakterarnir eru látnir koma í ljós. Það er einn mjög leiðinlegur karakter núna. Hann hefur ábyggilega verið valinn út af því hvernig hann er. Fólk elskar að hata hann!“ Skyggnst á bak við tjöldin Áður en þetta mikla kapphlaup hefst verður sýndur heimildarþátturinn Í kjölfar Kapp- hlaupsins mikla. „Þetta er þáttur um gerð þáttanna og viðtöl við þá Íslendinga sem koma að þessu, fólkið á bak við þættina og ýmsa ráðamenn. Fólk fær tækifæri til að skyggnast á bak við tjöldin,“ segir Pétur en hinn góðkunni sjónvarpsmaður Jón Ársæll Þórðarson tekur viðtölin. Meðal annars er rætt við Elise Doganieri sem átti hugmynd- ina að þáttunum og aðalframleiðanda þeirra, Bertram Van Munster. Ekta veru- leikaþáttur Frá tökum á Kapphlaupinu mikla í Bláa lóninu. Ljósmynd/Allison Elise Doginari og Einar Sveinn Þórðarson hjá Pegasus kanna aðstæður á Vatnajökli. Sjónvarp | Kapphlaupið mikla hefst á Íslandi á Stöð 2 í kvöld ingarun@mbl.is Heimildarþátturinn Í kjölfar Kapphlaupsins mikla er á Stöð 2 kl. 19.35. Kapphlaupið mikla hefst kl. 20.05 og heldur áfram kl. 20.55. GAMANMYNDIN Meet the Fockers er áfram vinsælasta kvikmyndin vestanhafs en tekjur af sýningu myndarinnar námu 28.5 milljónum dala (1,8 milljörðum kr.) í Norður- Ameríku um helgina. Á þeim þremur vikum, sem liðnar eru frá því myndin var frumsýnd, nema tekjur af sýningu hennar rúmum 204 milljónum dala, sem er vel yfir það sem fyrri myndin Meet the Parents halaði inn fyrir tveimur árum en hún endaði í rúmum 160 milljónum dala. Eins og í fyrri myndinni eru Ben Stiller og Robert De Niro í aðalhlutverkum í Meet the Fockers, en nú bætast þau Dustin Hoffman og Barbra Streisand í leikarahópinn og leika stór- skrítna foreldra Stillers. Myndin verður frum- sýnd í Laugarásbíói, sem og öðrum bíóum á landinu, 4. febrúar. Eina nýja myndin sem náði að skipa sér meðal tíu tekjuhæstu myndum eftir helgina var hryllingsmyndin White Noice. Námu tekjur af sýningu þeirrar myndar 24 millj- ónum dala (1,5 milljörðum kr.). Þar leikur Michael Keaton mann, sem er sannfærður um að látin eiginkona hans reyni að ná sambandi við hann gegnum sjónvarpið. Þrátt fyrir gott gengi voru gagnrýnendur ekki par hrifnir. Um næstu helgi verða frumsýndar nokkrar myndir sem spáð er góðu gengi, þ. á m. ofur- hetjumyndin Elektra með Jennifer Garner og íþróttadramað Coach Carter með Samuel L. Jackson. Kvikmyndir | Vinsælustu bíómyndirnar vestra Barbra Streisand hefur Robert DeNiro undir í hinni stjörnum prýddu Meet The Fockers. Allir vilja hitta Fockers-fjölskylduna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.