Morgunblaðið - 11.01.2005, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 11.01.2005, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN / L JÓ S M Y N D : G R ÍM U R B JA R N A S O N MIÐASALA LA ER OPIN FRÁ KL. 13-17 • MIÐASALA Í SÍMA 4 600 200 • MIÐASALA Á NETINU: WWW.LEIKFELAG.IS • NETFANG: MIDASALA@LEIKFELAG.IS eftir Lionel Bart Einstakt nýárstilboð til Visa-kreditkorthafa: Miðinn í janúar á aðeins 2.700 kr ! Sun. 9. jan. kl. 20.00 UPPSELT Fim. 13. jan. kl. 20.00 Örfá sæti laus Lau. 15. jan. kl. 14.00 UPPSELT Lau. 15. jan. kl. 20.00 UPPSELT Fös. 21. jan. kl. 20.00 Örfá sæti laus Lau. 22. jan. kl. 20.00 Örfá sæti laus Fös. 28. jan. kl. 20.00 Nokkur sæti laus Ath: Ósóttar pantanir seldar daglega! „Fjarskalega leiftrandi og skemmtileg sýning“ – HÖB RÚV „... hrein og klár snilld“ – HÖB RÚV „Áfram LA!“ – S.A. Viðskiptablaðið „... með vel fluttri tónlist, fallegum söng og dansi og stjörnuleik“ – H.Ó. Mbl „... sterka útgeislun, einlægni og leikgleði“ – AB Fréttablaðið Sun 30. jan kl. 14.00 aukasýn Er einhver olíulykt hér, herrar mínir? Kostnaður við bygg-ingu höfuðstöðvaOrkuveitu Reykjavíkur (OR) er miklu hærri en kostnaður við vandaða grunnskólabygg- ingu í Reykjavík. Munur- inn er a.m.k. 40%. Á blaða- mannafundi sem stjórnendur Orkuveitunn- ar héldu í síðustu viku kom fram að kostnaður við hús- ið væri litlu hærri en við vandaða grunnskólabygg- ingu í Reykjavík. Í fréttatilkynningu sem lögð var fram á blaða- mannafundinum segir að kostnaður við aðalbygg- ingu OR sé um 225 þúsund kr. á fermetra. „Þess má geta að fermetraverð í vandaðri grunn- skólabyggingu í Reykjavík er 215 þús krónur á fermetra, eða litlu lægra en fermetraverð í aðalbygg- ingu Orkuveitunnar.“ Sveitarfélög fá ekki endur- greiddan virðisaukaskatt af skóla- byggingum ef undan er skilinn virðisaukaskattur af vinnu hönn- uða. Sighvatur Arnarsson, deildar- stjóri hjá Fasteignastofu borgar- innar, segir að af þessum sökum sé kostnaður við skólabyggingar jafnan gefinn upp með virðisauka- skatti. Frá kostnaðinum sé þó dreginn endurgreiddur virðis- aukaskattur af vinnu hönnuða, en hann sé aðeins lítill hlut af heild- arkostnaði byggingarinnar. Sighvatur segir að inni í kostn- aðartölunum sé einnig kostnaður við lóð og allur lausabúnaður í skólanum, þ.e. borð, stólar, tölvur, símakerfi og annar sá búnaður sem skólinn þarf á að halda. Á vef Fasteignastofu Reykja- víkurborgar er að finna upplýsing- ar um byggingarkostnað staðal- byggingar án búnaðar á hvern fermetra. Þar kemur fram að kostnaður við skólabyggingu af vönduðustu gerð á árinu 2004 er áætlaður 202 þúsund kr. á fm. Meðalkostnaður við skólabygg- ingu (byggingu af gerðinni B) er hins vegar áætlaður 185 þúsund kr. á fm. Þarna er um að ræða kostnað án búnaðar og án kostn- aðar við lóð, en inn í kostnaðinn er hins vegar reiknaður virðisauka- kostnaður því að hann fæst ekki endurgreiddur. Fermetraverð án virðisaukaskatts í skóla af vönduð- ustu gerð er þar af leiðandi um 160 þúsund krónum. Ef miðað er við kostnað við skóla af gerð sem Fasteignastofa kallar B-gæðum er kostnaðurinn innan við 150 þúsund kr. á fm. Kostnaðurinn við hús OR var hins vegar 225 þúsund krónur eins og áður segir. Byggingakostn- aður við vandaða skólabyggingu í Reykjavík er því a.m.k. 40% lægri en kostnaður við byggingu aðal- byggingar OR. Virðisaukaskattur af skólum ekki endurgreiddur Aðspurður sagði Guðmundur Þóroddsson, forstjóri OR, að kostnaðartölur Orkuveitunnar væru án virðisaukaskatts enda væri OR virðisaukaskattsfyrir- tæki, þ.e. fengi skattinn endur- greiddan. Guðmundur staðfesti ennfremur að í tölum OR væri ekki kostnaður við húsgögn, tölvur eða annar skrifstofukostnaður. Hann sagði að ekki hefði verið fjárfest í nýjum tölvum þegar starfsemin var flutt í nýja húsið. Hins vegar hefðu húsgögn verið keypt fyrir 50 milljónir, en þar væri um að ræða eðlilegan hluta af endurnýjun á skrifstofubúnaði fyrirtækisins. Í umfjöllun fjölmiðla um kostn- að við höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur hefur alltaf verið tal- að um að kostnaðaráætlun vegna byggingarinnar væri 2,3 milljarð- ar. Þetta kemur m.a. fram í frétt í Morgunblaðinu í apríl 2003, nokkr- um mánuðum eftir að flutt var í húsið. Þar kemur fram að áætlað- ur kostnaður við húsið sé 2,9 millj- arðar og að hann verði um 600 milljónum meiri en kostnaðaráætl- un gerði ráð fyrir. Í fréttatilkynn- ingu sem stjórnendur Orkuveit- unnar afhentu fjölmiðlum í síðustu viku segir hins vegar að upphafleg kostnaðaráætlun hafi hljóðað upp á 2.676 milljónir. Guðmundur var spurður um þennan mun. Hann svaraði því til að skýringin fælist í tvennu, ann- ars vegar að húsið hefði verið stækkað um 1.000 fermetra og hins vegar hefði áætlunin verið reiknuð upp miðað við verðlag í janúar 2003. Hann sagði að búið væri að gera nokkrar áætlanir um kostnað við framkvæmdina eftir því sem henni hefði miðað áfram, en í fréttatilkynningunni væri mið- að við upphaflegu áætlunina sem hefði verið notuð til að bera saman kostnað við tillögurnar sem bárust þegar samkeppni var haldin um hönnun hússins. Í umfjöllun fjölmiðla um kostn- að við byggingu Orkuveituhússins á árunum 2002 og 2003 var alltaf haft eftir stjórnendum fyrirtækis- ins að áætlun gerði ráð fyrir að kostnaður við húsið yrði 2,3 millj- arðar, án þess að þeir skilgreindu hann nánar. Ekki var hafður sá fyrirvari á að húsið hefði verið stækkað um 1.000 fermetra frá upphaflegri áætlun. Í fréttatil- kynningu OR er búið að hækka kostnaðaráætlun upp í 2.676 millj- ónir og sagt að endanlegur kostn- aður hafi verið 3.264 milljónir eða 31,9% hærri en kostnaðaráætlun. Fréttaskýring | Kostar hús Orkuveitunnar það sama og grunnskóli? Hús OR um 40% dýrara Kostnaður við hús Orkuveitunnar var í upphafi áætlaður um 2,3 milljarðar Nýbygging Orkuveitunnar við Réttarháls. Villandi samanburður á byggingarkostnaði  Samanburður stjórnenda Orkuveitu Reykjavíkur á kostn- aði við nýbyggingu fyrirtækisins og kostnaði við vandaðan skóla er villandi. Í kostnaði við skóla- byggingar er talinn með virð- isaukaskattur, húsbúnaður og frágangur á lóð. Tölur Orkuveit- unnar eru hins vegar án virð- isaukaskatts enda fær fyrirtækið hann endurgreiddan. Kostnaður við lóð er ekki talinn með né hús- búnaður. egol@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.