Morgunblaðið - 11.01.2005, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 11.01.2005, Blaðsíða 47
Fékk vinjettusafn að gjöf ÁRMANN Reynisson rithöf- undur afhenti um helgina sir Howard Davies, rektor London School of Economics and Poli- tical Science, vinjettusafn sitt við athöfn í Skólabæ. Sir How- ard er staddur hér á landi þessa dagana í boði félags Íslendinga sem stundað hafa nám við skól- ann og er Ármann í þeim hópi. Vinjettubækur Ármanns eru fjórar að tölu og eru nú fáan- legar í sérstakri öskju. Nýjasta bókin, Vinjettur IV, sem út kom fyrir jólin er fjölbreytt að efni. Í kynningu segir að höfundurinn opni augun fyrir nýjum sjón- arhornum í lífinu þar sem vel- vild og illska takast stöðugt á. Velt er upp spurningunni hvað- an mannfólkið kemur og hvert það fer. Vinjettur IV er gefin út í hágæðaútgáfu hvað varðar pappír, prentun og bókband og tvítyngd, þ.e. hver saga er bæði á íslensku og ensku eins og í fyrri bókunum. Dr. Martin Regal, dósent við Háskóla Ís- lands, hefur þýtt allar vinjett- urnar. Við útgáfu hverrar bókar er listamaður valinn til þess að gera listaverk er prýðir kápu og á það einnig við öskjuna fyr- ir bækurnar fjórar. Lista- mennirnir eru: Arngunnur Ýr, Sigurður Árni Sigurðsson, Soffía Sæmundsdóttir, Sig- urbjörn Jónsson og Bjarni Sig- urbjörnsson. Morgunblaðið/Þorkell Sir Howard Davies og Ármann Reynisson. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2005 47 MICHAEL Moore reynsdist óvænt- ur sigurvegari á Verðlaunahátíð fólksins í Bandaríkjunum – US Peop- le’s Choice Awards – sem haldin var í Los Angeles á sunnudag. Verð- launahátíðin sker sig frá öðrum að því leyti til að almenningur á þar kost á að velja vinningshafana. Áróð- ursmynd gegn George W. Bush for- seta, Fahrenheit 9/11, fékk þannig flest atkvæði frá þjóðinni, í stærsta flokki hátíðarinnar; Kvikmynd árs- ins. Mynd Mels Gibsons, Píslarsaga Krists, var valin dramatíska kvik- mynd ársins, en báðar þessar sig- urmyndir hafa að mestu verið snið- gengnar á þeim verðlaunahátíðum sem haldnar hafa verið nú þegar, fengu ekki tilnefningar til Golden Globe-verðlauna og koma lítið við sögu á listum fjölmiðla yfir bestu myndir ársins 2004. Einnig vakti at- hygli að Julia Roberts var í 10. sinn í röð valin eftirlætis kvikmyndastjarn- an úr röðum leikkvenna. Johnny Depp fékk atkvæði flestra sem eft- irlætis karlkyns kvikmyndastjarnan. Shrek 2 vann þrenn verðlaun; var valin besta teiknimyndin, besta gam- anmyndin og besta framhalds- myndin. Bandaríska þjóðin telur þættina Desperate Housewifes og Joey bestu nýju dramaþættina og gamanþættina sem sýndir eru í sjón- varpi og Joey besta gamanþáttinn en af þeim sem lengur hafa verið á dag- skrá þá fengu CSI og Will og Grace atkvæði flestra. Tilnefningar til Verðlauna fólksins voru valdar af 6 þúsund manna aka- demíu sem stjórnað var af Entertain- ment Weekly tímaritinu en síðan var það 21 milljón manna sem valdi sjálfa sigurvegarana á Netinu. Michael Moore tileinkaði verð- launin hermönnum í Írak. Hann hafði áður viðurkennt að hafa gert myndina í þeim tilgangi að Bush for- seti yrði felldur í bandarísku forseta- kosningunum á síðasta ári, þar sem Bush fór með afgerandi sigur. „Þetta land er ennþá í eigu okkar, ekki þeirra til hægri eða vinstri eða demókrata eða repúblíkana,“ sagði Moore við verðlaunaveitinguna. Hann áréttaði einnig hversu söguleg tíðindi það væru að þjóðin skyldi velja heimildarmynd sem bestu myndina. Athygli hefur vakið að Mel Gibson hyggst ekki trana Píslarsögu sinni fram og reyna að fá hana tilnefnda til Óskarsverðlauna. Gibson sagði við blaðamenn baksviðs eftir verðlauna- athöfnina að þessi verðlaun skiptu sig mestu; „í mínum huga hefur þjóð- in kveðið upp sinn dóm.“ Kvikmyndir | Óvænt úrslit á Verðlauna- hátíð fólksins vestanhafs Michael Moore tileinkaði verðlaun sín fyrir bestu myndina hermönnum í Írak. Ellen var valin besti spjallþáttastjórnandinn. Bandaríska þjóðin valdi Fahrenheit 9/11 Reuters Nýr og betri Sýnd kl. 6.Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 B.i. 14 ára. Jólaklúður Kranks Jólamynd fjölskyldunnarl l l CARY ELWES DANNY GLOVER MONICA POTTER Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16 ára Sýnd kl. 10. Stranglega b.i. 16 ára. BLÓÐBAÐIÐ ER HAFIÐ SMÁAR HETJUR STÓRT ÆVINTÝRI Sýnd kl. 6, 8 og 10. VIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ 20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐIÍSLANDSBANKI ÍSLANDSBANKI  ... „séríslenskt Fönn, fönn, fönn!“  SV MBL .. í l , , ! ... „séríslenskt Fönn, fönn, fönn!“  SV MBL ... í l , , !    "...bráðvel heppnuð skemmtun, grín og fjör..."  ÓHT rás 2 .. t , í fj ... VIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ 20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI "...bráðvel heppnuð skemmtun, grín og fjör..."  ÓHT rás 2 .. t , í fj ... www.regnboginn.is Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 14 ára. Hverfisgötu ☎ 551 9000 Sýnd kl. 6 og 8. Sýnd kl. 6. ÍSLENSKT TAL I I I I Í I I Yfir 23.000 gestir Yfir 21.000 gestir QUEEN LATIFAH JIMMY FALLON GISELE BÜNDCHEN I Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 10 ára Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16 ára Hann var lokaður inni í 15 ár og hefur aðeins 5 daga til að leita hefnda.En hefndin á eftir að reynast honum dýrkeypt. Jólaklúður Kranks Á FULLRI FERÐ MEÐ GRÍNIÐ Í BOTNI Í FRÁBÆRRI GAMANSPENNUMYND Byrjunaratriðið í fyrstu Stjörnustríðs- myndinni frá 1977 hef- ur verið kosið áhrifa- ríkasta tæknibrellu- atriði kvikmyndasög- unnar. Hið risavaxna geimskip Imperial Star Destroyer slær öllum atriðum í kvik- myndum nútímans við, meira að segja The Matrix, að mati þátt- takenda í könnun tímaritsins SFX. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. Atriðið í King Kong þar sem risaapinn sést klifra upp Empire State bygginguna með Fay Wray í höndunum var í öðru sæti en sú mynd er frá 1933. Í þriðja sæti var svo atriði í The Thing þar sem kónguló- arfætur sjást koma upp úr hálsi sem höf- uðið hefur verið höggvið af. Áhrifaríkustu brelluatriðin eru 1. Stars Wars - byrjunin (1977) 2. King Kong - hápunktur (1933) 3. The Thing - kóngulóarhöfuðið 4. Jason and the Argonauts - beinagrindaatriðið (1963) 5. Tortímandinn 2 - hefnd T-1000 6. Forbidden Planet (1956) 7. Hringadróttinssaga - Gollrir (2001-2003) 8. The Matrix - skotatriðið (1999) 9. Alien - brjóstkassinn springur (1979) 10. Kóngulóarmaðurinn 2 - bardaginn í lestinni (2004) Bestu brellurnar í Stjörnustríði Stjörnustríð er brellum hlaðin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.