Morgunblaðið - 16.01.2005, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2005 17
!!" # "
$
%
&
'
!
"!# $% %
&
' (
!# ) $%% ***+ erfitt að meta stuðning almennings
við stjórnina og stjórnarandstöðu-
hópa í landinu, þ.m.t. hryðjuverka-
samtök, enda skoðanakönnun í ein-
ræðisríki einsdæmi eins og sú, sem
þjóðaröryggisráðgjafi konungs lét
framkvæma. Könnunin leiddi tvennt
mikilvægt í ljós: Í fyrsta lagi að ekki
ríkir almennur stuðningur við
hryðjuverkastarfsemi Osama bin
Ladens og í öðru lagi að almenn-
ingur vill umbætur í stjórnmálum,
þ.m.t. kosningar. Ekkert var spurt
um stuðning við konungsstjórnina.
Það sem skoðanakönnunin bendir þó
til ein og sér er að konungsstjórnin
hefur áttað sig á að hún á undir högg
að sækja og vill vita hver reiðir til
höggs, hvaðan höggið kemur og
móta stefnu um hvernig skynsam-
legast sé að taka á móti eða víkja sér
undan því. Nánar tiltekið virðast að-
stæður í landinu og skoðanakönn-
unin vera að leiða til þess að kon-
ungsstjórnin er að átta sig á því að
ekki er hægt að halda samfélagi
saman með endalausri valdníðslu og
reka illt út með illu. Í staðinn þurfi
að gera þegnunum kleift að koma
sjónarmiðum sínum á framfæri án
ótta við ofbeldi. Það er líka liður í því
að koma í veg fyrir að skilaboðum sé
komið á framfæri við stjórnina með
ofbeldi, sem er oft eina leiðin til að
ná eyrum einræðisherra og grafa
undan völdum þeirra. Undanfarin ár
hefur konungsstjórnin því stigið
nokkur umbótaskref. Ný stjórnar-
skrá árið 1992 og stofnun ráðgjafa-
þings ári síðar og í febrúar á að
halda lýðræðislegar kosningarnar í
landinu. Samtímis eru þó teikn á
lofti um að hugur fylgi ekki máli.
Handtaka ellefu umbóta- og lýðræð-
issinna í mars sl. fyrir að óska eftir
þingbundinni konungsstjórn og
óháðum dómstólum hefur vakið efa-
semdir um raunverulegan ásetning
stjórnvalda. Átta var sleppt úr haldi
eftir að hafa skrifað undir skjal þar
sem þeir lofuðu að skrifa ekki undir
fleiri bænaskjöl, tjá sig ekki í fjöl-
miðlum og fara ekki úr landi. Þrír
eiga að mæta fyrir rétt. Eitt ákæru-
atriðanna er að þeir hafi notað vest-
rænt orðfæri við kröfugerð sína en
því vísa umbótasinnarnir á bug.
Réttarhöldin yfir þeim hafa verið
haldin fyrir opnum tjöldum, sem
heyrir til undantekninga, en þre-
menningarnir hótuðu því að fara í
hungurverkfall ef réttað yrði í mál-
um þeirra fyrir luktum dyrum. Sam-
staða með sakborningum var sýnd á
fyrsta degi réttarhaldanna þegar
300 manns mættu í réttarsal sem
tekur 30 manns í sæti. En sem dæmi
um hversu mótsagnakennd stjórn-
völd eru þá veittu þau leyfi fyrir
stofnun fyrstu mannréttindasam-
taka í landinu um svipað leyti og
handtaka og málaferli gegn umbóta-
sinnunum var í gangi. Efasemdum
um raunverulegan vilja stjórnvalda
var síðar gefinn byr undir báða
vængi í september sl. þegar stjórn-
völd vöruðu opinbera starfsmenn við
því að gagnrýna stjórnvöld í fjöl-
miðlum eða með því að setja nafn
sitt á bænaskjöl eða undirskrifta-
lista. Ótti við stjórnvöld er hugsan-
lega ástæða þess að skráning kjós-
enda fyrir kosningarnar, sem eiga
að fara fram í febrúar í höfuðborg-
inni Riyhad, hefur verið 60 prósent-
um minni en ráð var fyrir gert, en
skv. kosningareglum stjórnarinnar
mega allir 21 árs og eldri kjósa, að
konum og hermönnum undanskild-
um. Það var lengi óljóst hver réttur
kvenna yrði en að lokum var það
staðfest að konur mega hvorki fara í
framboð né kjósa og eru margar
ástæðar tíndar til að réttlæta þá
ákvörðun. Margir hafa mótmælt og
nokkrar konur mótmæltu með því að
bjóða sig fram. Stjórnvöld hafa sagt
að konur muni hljóta kjörgengi í
næstu kosningum árið 2009 og að
hugsanlega verði konur skipaðar til
setu í ráðum án þess að það hafi ver-
ið staðfest.
IX: Lokaorð
Fyrirhugaðar sveitarstjórnar-
kosningar og fundir sendinefndar
ráðgjafaþings Sádi-Arabíu með
fulltrúum þjóðþinga á Íslandi, öðr-
um Norðurlöndunum, í Bretlandi og
fleiri Evrópusambandslöndum eru
til vitnis um að ráðamenn eru að
hugsa um ástand mála í heimalandi
sínu. Það er engin ástæða til annars
en að ætla að stjórnvöldum sé alvara
með umbótum í landinu, sem gætu
leitt til lýðræðis er fram líða stundir.
Það er góðs viti en breytir því ekki
að Sádi-Arabía á mjög langt í land
áður en það hættir að njóta þess
vafasama heiðurs að vera talið
versta einræðisríki veraldar. Margir
umbóta- og lýðræðissinnar óttast og
það réttilega bakslag vegna hrinu
hryðjuverka í landinu og mótsagna-
kenndra aðgerða stjórnvalda. Hið
síðarnefnda er til vitnis um að innan
konungsættarinnar ríkir ekki ein-
hugur um aðgerðir. Stefnu- og ráða-
leysið endurspeglast í fyrrnefndu
mótsagnakenndu munstri, því að
taka eitt skref fram á við og tvö aft-
ur á bak. Það gerðist árið 1962 þegar
fyrirhuguðum sveitarstjórnarkosn-
ingum var aflýst af konungi á elleftu
stundu, fyrir tæplega 26 árum þegar
uppreisn róttækra var barin niður
og síðan friðþægt fyrir með áður-
nefndum afleiðingum, fyrir 13 árum
þegar ráðgjafaþingið var sett á stofn
á sama tíma og hart var gengið fram
gegn (grunuðum) „óvinum ríkisins“
og núna sl. ár þar sem umbótasinnar
hafa verið handteknir. Hluti skýr-
ingarinnar á óeiningu og ráðaleysi
stjórnvalda er sú ljósa staðreynd að
konungsættin á undir högg að sækja
hvort sem hún stendur fyrir umbót-
um eða ekki. Þar stendur hnífurinn í
kúnni. Allt ofannefnt veldur því að
erfitt er að segja fyrir um framvindu
mála. Það sem skiptir mestu máli,
eins og staðan er í dag, er hvort af
kosningunum verður. Í ljósi þess að
hryðjuverk virðast ekki eiga mikinn
hljómgrunn meðal almennings þá
eru óneitanlega líkur á því að kosn-
ingarnar geti orðið liður í því að
veikja tilverugrundvöll hryðjuverka-
samtaka og styrkja þróun í átt til
lýðræðis í sátt við konungsveldið á
meðan áframhaldandi einræði kon-
ungs og beiting vopnavalds virðist
vera til þess eins fallið að ala á ógn-
arstjórn ofbeldis og hryðjuverka.
Höfundur er í meistaranámi við
Georgetown-háskóla í Washington DC.
Bænastund við sólarupprás. Íslamskir pílagrímar á bæn nærri Mekka í Sádi-
Arabíu í haj-mánuði, helgasta mánuði íslamstrúar.