Morgunblaðið - 16.01.2005, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 16.01.2005, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2005 37 MINNINGAR ✝ Hulda BergmannGuðmundsdóttir fæddist á Leifsgötu í Reykjavík8. nóvem- ber 1934. Hún lést á líknardeild Landspít- alans, Landakoti, þriðjudaginn 28. des- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðmundur Björnsson og Gróa Skúladóttir. Systkini Huldu eru Ragna Bergmann, f. 29.10. 1933, Edda Berg- mann, f. 13.1. 1936, Ólafía Kristín Bergmann, f. 27.11. 1939, Eysteinn Bergmann, f. 11.9. 1941 og Sigurður Berg- mann, f. 2.8. 1944. Hulda gifist Brynjólfi Vil- hjálmssyni. Þau slitu samvistum. Þau eiga þrjá syni, þeir eru: Guð- mundur, f. 21.4 1953, kvæntur Björk Hjaltadóttur, f. 29.5. 1954, börn þeirra eru: Hjalti, f. 8.11. 1974, kvæntur Önnu Sigríði Gunnars- dóttir, f. 19.1. 1976, dætur þeirra Lena Björk, f. 26.6. 1996 og Aníta, f. 23.7. 2004; og Brynhild- ur, f. 19.11. 1976, gift Örlygi Auðuns- syni, f. 5.3. 1974. Gísli, f. 15.12. 1959, kvæntur Jónínu Margréti Ingólfs- dóttur, f. 28.6. 1960, börn þeirra: Magn- ea Oddný, f. 2.8. 1979, í sambúð með Alan Jones, f. 24.8. 1969, sonur þeirra Tyrece Gísli Angel, f. 11.1. 1999; Brynjólfur Gísli, f. 15.2. 1985; og Kristín Ósk, f. 25.9 2000. Skúli, f. 16.2. 1973, í sam- búð með Kumbu Krubally, f. 4.1. 1964. Útför Huldu fór fram frá Foss- vogskapellu 6. janúar, í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Elsku systir, nú skilja leiðir, því eft- ir langvarandi veikindi ert þú sú fyrsta af stóra systkinahópnum sem kveður þennan heim. Við vorum sex alsystk- inin og þrjú hálfsystkini. Við alsystk- inin ólumst upp í Skerjafirðinum og þar leið okkur vel, í rólegu umhverfi þar sem allir þekktu alla og við krakk- arnir lékum öll saman eins og gengur og gerist. Þú undir þér svo vel í Skerjafirðinum að þangað fluttir þú aftur fljótlega eftir að þú fórst að búa og bjóst þar alla tíð, allt þar til heilsan brást og þú þurftir á meiri umönnun að halda. Þú þurftir alltaf að hafa fyrir lífinu, Hulda mín, en þú varst dugleg að vinna og starfaðir mest við af- greiðslustörf í verslun, aðallega í Skerjó og svo unnum við saman í skó- gerð Kristjáns Guðmundssonar á Spítalastígnum. Þú eignaðist þrjá myndarlega syni sem þér þótti mjög vænt um og síðar bættust tengdadæt- ur og barnabörn í fjölskylduna. Nú síðast eignaðist þú svo langömmu- börnin sem öll voru þitt stolt og má því með sanni segja að þú hafir verið rík í þeirri merkingu. Elsku systir, við vorum mikið saman seinni árin og rifjuðum þá oft upp gamla tíma. Þú varst sterkur persónuleiki og mikill dýravinur og hændir oft að þér dýrin. Ég mun ætíð minnast þín, Hulda mín, og þakka þér fyrir allt sem við áttum saman. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Ég votta nánustu aðstandendum mína dýpstu samúð og megi guð vera með ykkur. Kveðja, þín systir, Edda. Elsku amma, nú ert þú farin frá okkur eftir langvarandi erfið veikindi og hefur fengið frið. Við munum sakna þín sárt. Okkur langar að rifja upp nokkrar fallegar minningar með þér. Það sem okkur öllum ofarlega í huga eru hversu fast þú hélst í hefðir og reglur inni á heimilinu eins og t.d kertið sem stóð á miðju borðinu sem að sögn stjórnaði veðrinu og sætið þitt í horninu í eldhúsinu sem enginn settist í. Þegar við komum í heim- sókn voru bornar í okkur kræsingar eins og t.d smurt brauð með eggjum, kæfu og ekki má gleyma rjómakök- unum og brauðtertunum. Þú hafðir alltaf jafngaman af því að spjalla við okkur um daginn og veginn, fá frétt- ir af okkar daglega lífi og fylgdist vel með „unglinga“ þáttum og gast alltaf spjallað um allt þetta nýjasta í þeim. Heimili ykkar afa var alltaf snyrti- legt og alltaf lagðir þú þig fram við að hugsa vel um afa og Skúla á með- an hann var á heimilinu. Vikulega var farið í Hagkaup í Skeifunni og verslað vel fyrir vikuna, eins og 15 pottar af mjólk á viku. Heimili ykkar var alltaf vel tækjum búið og ef það kom ný rafmagnspanna á markað leið ekki vikan þar til hún var komin inná heimilið. Sumrin voru þinn tími, þú naust þess á vorin að geta sett upp sóltjaldið, stólana, borðið og ekki má gleyma útvarpinu sem þú gast ekki verið án. Á sumrin fundum við þig iðulega út í garði og fóru allar heimsóknir fram þar og ekki skorti á veitingarnar, kex og egils djús, það allra besta. Heimilið var iðulega fullt af lífi, þ.e dýralífi. Efst í okkar huga er Busi sem við litum á sem einn af fjölskyldunni og einnig var mikið um aðkomudýr sem komu iðulega á restaurant Fáfnisnes. Áður en MS-sjúkdómurinn fór að láta á sér kræla naustu þess að kaupa tískuföt og varst ávallt flott til fara. Þið afi voruð félagsverur og fóruð mikið að dansa og skemmtuð ykkur með ykkar vinum. Útilegur á Laugarvatn voru ómissandi partur af hverju sumri. Eftir að sjúkdóm- urinn fór að taka sinn toll þá fluttist selskapurinn frekar inn í sjónvarpið og urðu „Grannar“ þínir grannar og fastur liður að hitta þá seinnipartinn. Þessar og margar aðrar minning- ar eru okkur í huga nú þegar við kveðjum þig í hinsta sinn. Við varð- veitum minningarnar í hjarta okkur. Við trúum því að þér líði vel núna og sért dansandi á nýjum stað. Bless amma og Guð geymi þig og hvíl í friði. Og eftir dálitla ævistund fæ eg að sjá hann á lífsins grund. Ég hitti Jesú í himins borg, með honum stíg ég hin gullnu torg. (Magnús Runólfsson.) Hjalti, Brynhildur, Magnea, Brynjólfur, Kristín Ósk og fjölskyldur. Elsku Hulda mín, ég vil með þess- um fáu orðum þakka þér samveruna í þessu lífi. Þó svo á stundum hafi verið langt á milli okkar og lítill tími til sam- vista, þá fylgdumst við þó vel hvor með annarri. Þegar ég rifja upp sam- verustundirnar þá gáfu þær mér mik- ið og skilja eftir sig bæði góðar og skemmtilegar minningar. Ég man sérstaklega eftir þegar ég sem barn hjólaði til þín af Nesinu út í Skerjó í Fáfnisnesið, þar sem þú undir þér svo vel. Þar var ég alltaf velkomin og við töluðum og hlógum saman. Í seinni tíð var ég svo heppin að fá að njóta nær- veru þinnar á stórum stundum í mínu lífi og fyrir það er ég þakklát. Ég held að þú hafir haft lúmskt gaman af því þegar við drösluðum þér og mömmu upp í jeppa til að fara út í Gróttu í af- mælið mitt og eins þegar við hittumst um jólin og spiluðum pakkaleikinn, þá var ekki langt í húmorinn og góða skapið hjá þér. Ég og fjölskylda mín viljum votta sonum Huldu, fjölskyldum þeirra og systkinum hennar samúð okkar og megi Guð geyma ykkur og styrkja. Gróa. HULDA B. GUÐMUNDSDÓTTIR Sími 551 3485 • Fax 551 3645 Áratuga reynsla í umsjón útfara Önnumst alla þætti Davíð Osvaldsson útfararstjóri Sími 896 8284 Eyþór Eðvarðsson útfararstjóri Sími 892 5057 Vaktsími allan sólarhringinn Blómastofa Friðfinns, Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499. Opið til kl. 19 öll kvöld Kransar • Krossar • Kistuskreytingar Skemmuvegi 48, Kópavogi. Simi 5576677 www.steinsmidjan.is Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Skógarbæ, áður til heimilis á Bárugötu 36, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði mánudaginn 17. janúar kl. 13.00. Jóhannes Ingi Friðþjófsson, Rakel Bessadóttir, Kristján Friðþjófsson, Regína Ólafsdóttir, Sigfríður Friðþjófsdóttir, Björn Ingi H. Christensen barnabörn og barnabarnabörn. Ég fer tæpa fjóra áratugi aftur í tímann. Þá hitti ég Jóhann Magnússon í fyrsta sinni. Það var upphafið að okkar kynnum, sem varað hafa æ síðan. Nú hafa orðið kaflaskil. Góður drengur hefur kvatt þessa jarðarvist fyrir aldur fram. Jóhann fæddist á Ísafirði og bjó þar allt til dauðadags. Hann lauk námi í bifvélavirkjun en leiðin lá á sjóinn og um árabil var hann skip- verji á hinu þekkta aflaskipi, Guð- björgu. Eins og gefur að skilja voru skipsrúmin á Guðbjörgu mjög eftir- sótt og því að jafnaði valinn maður í hverju rúmi þar. Aflasældin var mik- il og aðbúnaður á Guggunni eins og best gerðist á þeim tíma. En sjó- mennskan er erfitt og hættulegt starf eins og allir vita og þegar Ægir JÓHANN MAGNÚSSON ✝ Jóhann Magnús-son fæddist á Ísa- firði 22. apríl 1945. Hann andaðist á sjúkrahúsi Ísafjarð- ar 7. janúar síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Ísafjarðar- kirkju 15. janúar. konungur sýnir klærn- ar er enginn óhultur hversu vel sem skip er búið. Og þá var það eitt sinn, að Ægir hreif til sín 3 skipverja úr áhöfn Guggunnar. Orð fá ekki lýst hversu mikil raun slíkur atburður er fyrir þá sem hann upp- lifa. Eftir að sjó- mennskunni lauk tók Jóhann við starfi bif- reiðaeftirlitsmanns á Ísafirði. Ég held að Jó- hann hafi fundið sig vel í því starfi. Hér nýttust hæfileikar hans vel, sem voru nátt- úrlega góð þekking í greininni, en jafnframt lipurð og góð hæfni til mannlegra samskipta. Gaman var að kíkja í heimsókn á Skoðunarstöðina og þó erill væri að jafnaði mikill, gaf Jóhann sér alltaf tíma til að spjalla og bjóða upp á kaffi. Jóhann var af- skaplega glaðvær og glöggur á skop- legu hliðar mála og í því sambandi hrutu af vörum hans ýmsar orð- myndir, sem hann bjó til og varpaði fram. Honum var einkar lagið að sjá björtu hliðarnar á hverju máli og halda þeim fram. Svartsýni var ekki til í hans orðabók. Í Móholtinu er heimilið, notalegt einbýlishús, sem hann og Halldóra byggðu sér. Þar undi Jóhann sér best í faðmi fjölskyldunnar, þar sem börnin uxu úr grasi og lífið brosti sínu blíðasta. Jóhanni féll sjaldan verk úr hendi og að loknum vinnu- degi tók iðulega við ýmiskonar bíla- stúss í bílskúrnum heima. Fyrir nokkrum árum veiktist Jó- hann af þeim sjúkdómi, sem dró hann til dauða. Veikindin voru illvíg svo mest sem þau geta orðið. Og nú hófst baráttan þar sem Jóhann beitti sínum bestu vopnum, sem voru bjartsýni, æðruleysi og staðföst trú á sigurinn. Og aldrei var skortur á gamanseminni, þar sem jafnvel veik- indin voru gerð skopleg. Lítil saga um slíkt er svona. Það var í lok nóv- ember sl. í afmælisboði. Nokkuð var liðið á veisluna og Jóhann farinn að hugsa til heimferðar. Varð honum þá að orði. „Jæja, Halldóra mín, ertu ekki orðin þreytt, viltu ekki fara að kom- ast heim?“ En við megum ekki gleyma því að Jóhann var ekki einn í baráttunni. Fjölskyldan stóð sem klettur við hlið hans og þar naut hann einstakrar umhyggju og hjúkrunar Halldóru konu sinnar, sem stöðugt stóð vakt- ina til síðustu stundar. Elsku Halldóra, börn, barnabörn og aðrir ættingjar. Ég sendi ykkur mínar dýpstu samúðarkveðjur og bið Guð að blessa ykkur öll. Þórður Sveinbjörnsson. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Skilafrestur Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðju- degi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virð- ingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Myndir Ef mynd hefur birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á myndamóttöku: pix@mbl.is og láta umsjónarmenn minningar- greina vita. Minningar- greinar Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, AUÐUN AUÐUNSSON skipstjóri, Valhúsabraut 31, Seltjarnarnesi, sem lést á öldrunardeild Landakots 8. janúar, verður jarðsunginn frá Neskirkju þriðjudaginn 18. janúar kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á lík- narstofnanir. Stella Eyjólfsdóttir, Sæmundur Auðunsson Björn Eyjólfur Auðunsson, Sigurbjörg Hvanndal Magnúsdóttir, Steinunn Auðunsdóttir, Ásdís Auðunsdóttir, Þórður Viðar Snæbjörnsson, Stella Auður Auðunsdóttir, og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.