Morgunblaðið - 16.01.2005, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2005 49
NÝ ROKKÚTVARPSSTÖÐ fór í
loftið á hádegi á föstudag, X-FM
91,9. Matthías Már Magnússon er
dagskrárstjóri nýju stöðvarinnar.
„Þetta er búið að ganga ljómandi
vel. Síminn hefur ekki stoppað og
það eru allir mjög ánægðir sem
við höfum talað við,“ segir Matth-
ías eftir að hann var búinn að
standa vaktina í rúma tvo tíma
ásamt Andra Frey Viðarssyni,
sem gekk undir nafninu Freysi á
X-inu, og Búa Bendtsen.
„Rokkið dó í 39 tíma,“ segir
hann en það er vel við hæfi að
slagorð stöðvarinnar sé: Rokkið
lifir! Skrúfað var fyrir útsendingar
X-ins og Skonrokks á miðviku-
dagskvöldið og lögðust þá af út-
sendingar sérstaks rokkútvarps
hérlendis.
„Þetta leggst mjög vel í mig. Ég
er ennþá að átta mig á þessu en
þetta verður bara mjög gaman,“
segir Matthías um upphafið en
hann er vanur í starfi því hann
var dagskrárstjóri á X-inu. Verður
arfleifð gömlu stöðvarinnar í
heiðri höfð þó þeir fái frjálsari
hendur til að skapa eitthvað nýtt á
nýja staðnum.
Gekk hratt fyrir sig
X-FM er rekið innan vébanda
Pýríts ehf., sem jafnframt heldur
úti KISS FM 897. X-FM hefur al-
þjóðlega tengingu líkt og KISS og
ættu einhverjir að kannast við
samnefnda stöð í Bretlandi. „Við
erum með leyfi fyrir nafninu og
það verður án efa eitthvert sam-
starfsverkefni við X-FM útvarps-
stöðvar um allan heim.“
Matthías segir aðspurður að
þetta hafi gengið ótrúlega hratt
fyrir sig. „Það er heppni að það
var til tíðni og það voru viljugir
menn sem vildu setja rokk-
útvarpsstöð í loftið. Þeir hafa trú
á að geta selt stöðina og hafa trú
á því að við getum gert góða dag-
skrá.“
Dagskráin einkennist að sjálf-
sögðu af rokktónlist. „Það verður
spiluð rokktónlist hérna og við
þrír verðum til að byrja með einu
mennirnir í 100% starfi. Á kom-
andi vikum fáum við einhverja
sérþætti á kvöldin sem verða með
vandaðri dagskrárgerð. Til dæmis
gæti verið einn þáttur þar sem
áherslan er á hart rokk og annar
með indírokk. Ég þarf að fá þrjár
vikur í að móta stöðina eins og við
sjáum hana fyrir okkur.“
Hægt að hlusta á Netinu
X-FM ætlar að halda áfram að
sinna nýju íslensku rokki eins og
X-ið gerði. „Að sjálfsögðu á nýtt
íslenskt rokk eftir að hljóma hér.
Ég hvet alla þarna úti, sem luma á
lögum, að senda þau til okkar.“
Matthías segir að þeir eigi
ágætt safn tónlistar, „nóg til að
byrja með“, og bætir við að tón-
listarbanki þeirra eigi eftir að fara
stækkandi á næstu dögum. Rokkið
á eftir að hljóma á X-FM allan
sólarhringinn. Matthías bendir á
að þeir sem eru utan svæðis geti
hlustað á stöðina á Netinu.
Tónlist | Nýja rokkútvarpsstöðin er X-FM 91,9
Morgunblaðið/Jim Smart
Búi Bendtsen, Matthías M. Magnússon og Andri Freyr Viðarsson stóðu vaktina þegar X-FM fór í loftið á föstudag.
Rokkið lifir
www.xfm.is
ingarun@mbl.is
DJASSPÍANÓLEIKARINN Pete
Jolly lést fyrir skömmu á sjúkra-
húsi í Pasadena í Kaliforníu í
Bandaríkjunum, 72 ára að aldri.
Pete Jolly hélt úti þekktu djass-
tríói sem lék reglulega á djass-
klúbbum á vesturströnd Banda-
ríkjanna í fjóra áratugi. Jolly var
jafnframt einn af eftirsóttari
hljóðfæraleikurum í upp-
tökuverum Hollywood, þar sem
hann lék inn á mikinn fjölda sjón-
varpsþátta og hundruð kvik-
mynda.
Lék með Árna Egilssyni
Jolly spilaði á plötu Árna Egils-
sonar kontrabassaleikara, Fascin-
ating Voyage, ásamt Ray Brown
sem lék á bassa á móti Árna en sú
plata var á sínum tíma valin djass-
plata vikunnar af New York Tim-
es.
Jolly hljóðritaði á þriðja tug
platna með tríói sínu. Síðasti disk-
ur hans Collaboration sem kom út
2001 var hljóðritaður með sænska
píanóleikaranum Jan Lundgren.
Jolly hóf ferilinn með Shorty
Rogers og spilaði með mörgum
þekktustu djassleikurum Banda-
ríkjanna á borð við Chet Baker,
Gerry Mulligan, Buddy DeFranco,
Red Norvo og Art Pepper, og lék
auk þess með fjölda listamanna úr
öðrum tónlistargeirum s.s. Herb
Alpert, Ray Conniff og Frank
Zappa.
Djass | Pete Jolly látinn
Farsæll fjögurra
áratuga ferill
Pete Jolly