Morgunblaðið - 16.01.2005, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2005 53
Rokksveitin Tony the Ponyer skipuð fjórum hús-vískum ungmennum áaldrinum 16–17 ára. Þeir
heita hinum alíslensku nöfnum
Rafnar Orri Gunnarsson, Jakob
Pálmi Pálmason, Bjarni Siguróli
Jakobsson og Reynir Aðalsteinn
Hannesson.
Drengirnir náðu vel viðunandi ár-
angri í Músíktilraunum á síðasta ári;
lentu í þriðja sæti á eftir Lödu Sport
og Mammút. Rafnar Orri syngur og
spilar á gítar, Jakob Pálmi spilar á
gítar, Bjarni Siguróli á bassa og
Reynir á trommur. Nú hefur sveitin
sent frá sér sína fyrstu geislaplötu,
ípí, með sex lögum. Þröngskífan fæst
í 12 tónum og Geisladiskabúð Valda
og kostar 1.500 krónur.
Blaðamaður sló á þráðinn til Rafn-
ars Orra, sem semur alla texta sveit-
arinnar, og spurði hann fyrst um til-
urð Tony the Pony.
„Við erum búnir að vera að fikta
við að spila saman, þessir fjórir sem
eru í þessu bandi, meira og minna í
2–3 ár. Fyrst kölluðum við okkur
Betlehem og höfum auðvitað hætt og
byrjað aftur, eins og gengur, en fyrir
u.þ.b. einu ári breyttum við nafninu í
Tony the Pony og ákváðum að fara
að sinna þessu af einhverri alvöru.“
Er einhver sérstök skýring á nafni
sveitarinnar?
„Þegar við byrjuðum vorum við
ekki með neitt nafn. Þá var verið að
gera þátt um Húsavík og tekið viðtal
við okkur. Þegar við vorum spurðir
hvað hljómsveitin héti svaraði ég
bara Tony the Pony án þess að
hugsa mig mikið um. Þegar við
byrjuðum svo aftur fyrir ári
ákváðum við að nota það nafn, eftir
að hafa heitið Betlehem þar á milli.“
Hvernig er að vera rokkari á
Húsavík?
„Það er rólegt. Við erum með
hljóðver sjálfir og vinnum mikið í
því. Það er í æfingahúsnæðinu okk-
ar, sem við fáum hjá fyrirtæki í bæn-
um. Þessi aðstaða er mjög góð og ef
til vill betri en hjá mörgum öðrum
hljómsveitum. Hins vegar er starf-
semin erfið að því leyti að við eigum
töluvert erfitt um vik með að spila
mikið í Reykjavík, enda er það tölu-
vert ferðalag.“
Sá húsvíski tónlistarmaður sem
hefur verið að gera það hvað best að
undanförnu er Birgitta Haukdal. Þið
hafið ekkert rekist á hana?
„Vinkonu okkar? Jú jú, að sjálf-
sögðu.“
Já. Hún er vinkona ykkar. Hefur
hún gefið ykkur góð ráð?
„Nei, hún vill ekki gefa okkur nein
ráð. Hún vill eiga þau fyrir sig. En
það þekkjast allir á Húsavík; flest-
allir að minnsta kosti.“
En að öðru: Hvernig var að taka
þátt í Músíktilraunum?
„Það var frábært. Við fórum mjög
sáttir heim með bronsverðlaunin.“
Þetta hefur opnað einhverjar dyr
fyrir ykkur?
„Já, svo sannarlega. Við fengum
hljóðverstíma, í Stúdíói Thule, sem
við erum búnir að notfæra okkur.
Það var alveg ótrúleg lífsreynsla. Við
tókum upp eitt lagið á plötunni þar,
lagið „Sýnþín“.“
Hver voru annars tildrög þess að
þið ákváðuð að gefa út þessa plötu?
„Það hefur náttúrlega alltaf kitlað
mann, að gera litla plötu. Maður vill
láta vita af sér og hafa eitthvað til að
afhenda ef maður er beðinn um tón-
dæmi með hljómsveitinni. Við vild-
um ekki fara út í að vinna í breið-
skífu, því margir hafa farið flatt á því
að byrja á svo stóru verkefni. Við
vildum bara gera svona smáskífu til
að komast af stað og það var hægur
leikur, enda vorum við búnir að
kaupa svo mikið af græjum í hljóð-
verið okkar.“
Það er mikið frelsi fólgið í því að
hafa heilt hljóðver til umráða allan
sólarhringinn, ekki satt?
„Jú, það eru miklar pælingar inni í
þessari plötu og það er miklu þægi-
legra að vinna ef maður þarf ekki að
borga fyrir tímann. Platan var gerð
á tveimur vikum.“
Hvert er yrkisefnið í lögunum á
plötunni?
„Yfirleitt eru þetta sögur sem
koma upp í hausinn á mér. Það er
alltaf eitthvað að gerast í textunum;
einhverjar persónur sem koma fyrir.
Mér finnst það svolítið mikilvægt, að
textarnir fjalli um eitthvað en séu
ekki bara eitthvert bull út í bláinn.“
Hverjir eru áhrifavaldar í tónlist-
inni? Mér þóttist ég annars vegar
heyra áhrif frá Maus og hins vegar
tónlist níunda áratugarins.
„Já, það getur alveg passað. Við
höfum mikið verið að hlusta á þá tón-
list. Samt erum við ekkert að reyna
að líkjast neinni ákveðinni hljóm-
sveit, þótt áhrifavaldarnir séu á sín-
um stað í tónlistinni.“
Hafið þið verið að spila eitthvað?
„Við vorum að taka upp plötuna og
höfum þess vegna lítið verið í spila-
mennskunni að undanförnu. Þó héld-
um við útgáfutónleika á Húsavík fyr-
ir skömmu, og þeir tókust mjög vel.
Þá spiluðum við í lok október með
Maus, Dáðadrengjum og Sign, á ár-
legum stórum tónleikum hérna á
Húsavík. Annars erum við á leiðinni
suður og ætlum að halda útgáfu-
tónleika í Reykjavík, í Hinu húsinu
nánar tiltekið, í febrúar. Þá spilum
við reyndar á þrennum tónleikum;
styrktartónleikum fyrir BUGL
[barna- og unglingageðdeild Land-
spítalans], fyrrnefndum útgáfu-
tónleikum í Hinu húsinu og öðrum
útgáfutónleikum á Grandrokki.“
Tónlist | Tony the Pony sendir
frá sér geislaplötuna ípí
Birgitta er
sínk á heilræðin
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Efnileg sveit frá Húsavík: Tony the Pony hlaut þriðju verðlaun í Músík-
tilraunum og sendir nú frá sér plötuna ípí. ivarpall@mbl.is
Icestart ehf., Hamraborg 1-3, sími 588 3060
icestart@icestart.is - http://www.icestart.is
Alhliða
vinnufatnaður
Vönduð vara -
persónuleg þjónusta
TIL AÐ RÁÐA DULMÁLIÐ ÞARF HANN AÐ
BRJÓTA ALLAR REGLUR.
Snillingurinn Jerry Bruckheimer kemur hér með fyrstu stórspennumynd
ársins sem sló rækilega í gegn í USA og var 2 vikur í toppsætinu!
illingurin Jerry Bruckheimer kemur hér með fyrstu stórspennumy d ársins
sem sló rækilega í gegn í USA og var 2 vikur í toppsætinu!
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
„PIRATES OF THE CARIBBEAN“
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 1, 2.10, 3.30 og 6. Ísl.tal. / 3, 5.30, 8 og 10.30. Enskt tal.
KRINGLAN
Sýnd kl. 12, 2.30, 5. Ísl.tal. / 5 og 7.30. Enskt tal.
KEFLAVÍK
kl. 3 og 5.30. Ísl. tal.
HINIR ELLEFU
ERU ORÐIN TÓLF.
OCEAN´S TWELVE
S.V. Mbl.
„Algert augnayndi“ Mbl.
Kvikmyndir.com
„Hressir ræningjar“
Fréttablaðið
GEORGE
CLOONEY
BRAD
PITT
ANDY
GARCIA
andJULIA
ROBERTS
BERNIE
MAC
DON
CHEADLE
MATT
DAMON
CATHERINE
ZETA-JONES
KRINGLAN
Sýnd kl. 7.30 og 10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.20.
Hva er mÆli me Alfie?
Pott Øtt r mant sk gamanmynd me
JudeLaw sem n lega var kosinn
kyn okkafyllsti karlma urinn.
FrÆb r t nlist.
ÁLFABAKKI
4, 6.15, 8.30 og 10.40.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8.30 og 10.40.
KRINGLAN
Sýnd kl. 12, 2.15, 4.30, 6.45, 9 og 10.10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 3, 6, 8 og 10.
Ein vinsælasta myndin í
USA í 4 vikur samfleytt
l
l
Furðulega frábær og spennandi fjörug
ævintýramynd með hinum einu sönnu,
Jim Carrey, Jim Carrey og Jim Carrey.
Ein vinsælasta myndin í
USA í 4 vikur samfleytt
l
l
Furðulega frábær og spennandi fjörug
ævintýramynd með hinum einu sönnu,
Jim Carrey, Jim Carrey og Jim Carrey.
AKUREYRI
Sýnd kl. 3 og 5.40. Ísl. tal.
Hádegisbíó Kr. 400
YFIR 31.000 ÁHORFENDUR
H.L. Mbl..L. bl.
DV
Rás 2ás 2
Kvikmyndir.comvik yndir.co
Kvikmyndir.is
INCREDIBLES ER VINSÆLASTA
JÓLAMYNDIN, YFIR 31.000 ÁHORFENDUR
FRÁ ÖÐRUM DEGI JÓLA TIL DAGSINS Í DAG
Ó.H.T. Rás 2. .T. ás 2