Morgunblaðið - 05.02.2005, Qupperneq 35
Tæp 80% svarenda flugu ekkert
innanlands sumarið 2004 en 9%
þrisvar eða oftar.
Þegar spurt var um áfangastaði
reyndust tæp 40% ferða vera frá
jaðarbyggðum og landsbyggð-
arkjörnum til höfuðborgarsvæð-
isins. Um helmingur ferða íbúa höf-
uðborgarsvæðisins var til staða á
Suður- og Vesturlandi og bar sum-
arbústaðasvæðin í nærliggjandi
byggðalögum hæst auk þess sem
hlutfallslega margir fóru til Ak-
ureyrar og Egilsstaða.
45% í heimahúsum
Frí var nefnt af 78% svarenda sem
meginástæða ferða. 51% nefndu
heimsóknir til vina og ættingja og
18% nefndu vinnu sem helstu
ástæðu ferða. Á óvart kemur, að
sögn Bjarna, hve ættarsamfélagið
er sterkur hvati í ferðum Íslendinga
sem sést m.a. af því að um 45%
gistu í heimahúsum en aðeins 8% á
hótelum.
Um 46% svarenda eiga eða hafa
aðgang að sumarbústöðum og fara
þangað að meðaltali tíu sinnum yfir
sumarið, þeir eldri þó þrisvar sinn-
um oftar en þeir sem yngri eru.
Ferðum til höfuðborgarsvæðisins
fækkar ört með aukinni fjarlægð
auk þess sem mikilvægi aðgengis að
góðu vegakerfi var undirstrikað í
könnuninni, en íbúar Reykjanes-
bæjar fóru mun oftar til borg-
arinnar en íbúar Akraness þrátt
fyrir sömu vegalengd.
Sveitarómantíkin heillar
Að meðaltali höfðu 12% íbúa jað-
arbyggða og 11% í landsbyggðar-
kjörnum áhuga á að búa á höfuð-
borgarsvæðinu sem er ekki hátt
hlutfall miðað við flutninga til höf-
uðborgarsvæðisins undanfarin tíu
ár. Hlutfallið reyndist 41% í yngsta
aldurshópnum, 18–24 ára.
Þegar íbúar höfuðborgarsvæð-
isins voru spurðir hvort þeir gætu
hugsað sér að búa annars staðar á
Íslandi en í eða við borgarmörkin,
svöruðu 52,4% því játandi, 47,6%
sögðu nei og 4,3% tóku ekki af-
stöðu. „Það er ótrúlega hátt hlutfall
að rúmlega helmingur íbúa höf-
uðborgarsvæðisins gæti hugsað sér
að búa úti á landi. Þessi áhugi er
nokkuð jafn eftir aldri, fjöl-
skyldugerð, menntun og tekjum. Þó
má greina heldur meiri áhuga hjá
yngri tekjulægri hópnum,“ segir
Bjarni.
Þegar spurt var hvar íbúar höf-
uðborgarsvæðisins vildu helst búa,
kom í ljós að Akureyri er lang-
vinsælasti staðurinn. Um 35% svar-
enda nefndu höfuðstað Norður-
lands, en enginn annar staður
nálgast höfuðborgarsvæðið hvað
varðar atvinnu-, menntunar- og
þjónustuframboð, segir Bjarni.
„Jaðarbyggð höfuðborgarsvæðisins
kemur næst að vinsældum og Egils-
staðir og Austurland lentu í þriðja
sæti. Fyrir utan val á umræddum
búsetusvæðum, endurspeglar þessi
niðurstaða að stór hluti höfuðborg-
arbúa gæti hugsað sér að búa í
minna samfélagi og í betri tengslum
við náttúruna. Það blundar því
sveitarómantík í hugum margra
þéttbýlisbúa.“
join@mbl.is
rétta máltíð á hótelinu og spjallað
og spilað fram eftir kvöldi. Farið
var í dagsferð á jökulinn Hinter-
tux þar sem skíðað var í þrjú þús-
und metra hæð í mörg hundruð
metra breiðum brekkum. Eitt
kvöldið var haldin kvöldvaka þar
sem farið var í leiki, sungið og
sýnd heimatilbúin skemmtiatriði.
Sleðaferð var líka á dagskránni
eitt kvöldið þar sem keppt var á
tveggja manna sleðum niður sjö
km braut. Keppnisskapið fékk þar
góða útrás á jafnréttisgrundvelli
hjá foreldrum og börnum. Ferðin
var í alla staði afskaplega vel
heppnuð og stóð stjórn skíðadeild-
ar Víkings sig einstaklega vel í
skipulagningunni, en deildin hefur
farið í fjölskylduferð á sama svæði
í mörg undanfarin ár þó ég hafi nú
verið að fara með í fyrsta sinn.“
Hótel Gasthof Untermetzger
Unterdorf 5
A-6280 Zell im Zellertal-Tirol
www.untermetzger.at
Zillertal-skíðasvæðin
www.zillertalski.at
Halldóra Blöndal, til hægri, ásamt frænku sinni Emilíu Blöndal.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2005 35
FERÐALÖG
Ódýrari bílaleigubílar fyrir
Íslendinga
Bílar frá dkr. 1.975 vikan
Bílaleigubílar
Sumarhús í
DANMÖRKU
www.fylkir.is sími 456-3745
Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
(Afgreiðslugjöld á flugvöllum.)
Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna
og minibus, 9 manna og rútur með/
án bílstjóra.
Sumarhús
Útvegum sumarhús í Danmörku af
öllum stærðum, frá 2ja manna og
upp í 30 manna hallir. Valið beint af
heimasíðu minni eða fáið lista.
Sendum sumarhúsaverðlista;
Dancenter sumarhús
Lalandia orlofshverfi
Danskfolkeferie orlofshverfi
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Ferðaskipulagning.
Vegakort og dönsk gsm-símakort.
Fjölbreyttar upplýsingar á
heimasíðu; www.fylkir.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
27
28
4
0
2/
20
05
Netsmellur
Alltaf ód‡rast til Evrópu á netinu
Verð frá 15.900 kr.*
*N
et
sm
el
lu
r
til
G
la
sg
ow
. I
nn
ifa
lið
: F
lu
g
og
fl
ug
va
lla
rs
ka
tt
ar
.
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com
www.golfactivity.co.uk
sími 0044 131 343 1545 • ecescott@aol.com
Vorgolf í Skotlandi
Þriggja daga golfpakki -
innifaldir 2 hringir á
Turnberry - frá kr. 52.550
www.gisting.dk
sími: 0045 3694 6700
Ódýr og góð gisting
í hjarta Kaupmannahafnar
Íslendingar á ferð um Frakk-land eiga hauk í horni þarsem bresku hjónin Carolynog John Scallan eru en þau
reka gistiheimilið Le Bourg í Búrg-
úndarhéraði. Carolyn er nefnilega
af íslenskum ættum en afi hennar
var Jón Þórðarson skipstjóri. Hann
lést áður en Carolyn fæddist en hún
segist stolt af íslenskum uppruna og
vill halda tengslum við landið.
Carolyn og John tóku sig upp fyrir
tæpum þremur árum og fluttu frá
Birmingham þar sem íbúar eru
þrjár milljónir og til franska þorps-
ins Sens-sur-Seille þar sem íbúar
eru 302 talsins.
Þetta eru mikil viðbrigði en
Carolyn segir að þau hafi gjarnan
viljað breyta um lífsstíl og hverfa
frá mikilli vinnu í Bretlandi til
sveitasælunnar í Frakklandi.
Fundu húsið á happadegi
Árið 1997 keyptu þau bók um
gistiheimili (chambres d’hôte) í
Frakklandi og prófuðu nokkur á ári.
„Við fylgdumst vel með frönskum
gestgjöfum okkar og hugsuðum
með okkur að við gætum þetta,“
segir Carolyn. Eftir að hafa hugsað
málið vel og vandlega, ákveðið stað
og skoðað samgöngukerfið fundu
þau húsið sitt hinn 1. febrúar 2002.
„Það er skemmtileg tilviljun að sá
dagur er líka afmælisdagurinn minn
og brúðkaupsdagurinn okkar,“ segir
Carolyn. Þau fluttu inn í júní 2003
og fyrstu gestirnir komu 25. júlí eft-
ir að þau höfðu lagfært og end-
urbætt húsið. Síðan þá hafa gestir
hvaðanæva úr heiminum gist hjá
Scallan-hjónunum og þau vilja
gjarnan að Íslendingar bætist í
gestahópinn.
Búrgúndarhérað er m.a. þekkt
fyrir vínframleiðslu og er margt að
skoða í nágrenni litla þorpsins.
Fjögur misstór herbergi eru í hús-
inu og kostar gisting fyrir tvo 45
evrur eða um 3.600 krónur með
morgunmat. Flugvellir í nágrenninu
eru m.a. í Lyon og Genf í Sviss.
Afi Carolyn, Jón Þórðarson,
fæddist árið 1891 á Sveinseyri við
Dýrafjörð, sonur Þórðar Jónssonar
og Abigael Bjarnadóttur. Allt frá
unga aldri stundaði hann sjóinn,
fyrst á skútum frá Ísafirði og Pat-
reksfirði. Árið 1912 sigldi hann til
Englands og var á sjó, fyrst á flutn-
ingaskipum en varð síðar þekktur
togaraskipstjóri í Hull. Carolyn seg-
ist svo frá að eitt sinn hafi hann
misst af skipinu og því farið ásamt
félaga sínum að heimsækja íslenska
fjölskyldu í borginni. Þar var hann
kynntur fyrir barnfóstrunni, hinni
norsku Alidu, og giftust þau svo árið
1915. Þau settust að í Hull og eign-
uðust sjö börn, þ.á m. Doreen, móð-
ur Carolyn, sem er ein af þremur
systkinum sem enn eru á lífi, nú 75
ára. Árið 1956 komu Jón og Alida til
Íslands í sumarleyfi í fyrsta skipti
og var þeim þá haldin stór veisla.
Jón lést skömmu eftir heimkomuna
til Hull.
FRAKKLAND | Gistiheimili í Búrgúndarhéraði
Gestgjafinn af
íslenskum ættum
Le Bourg
71330 Sens-sur-Seille, Frakklandi
Sími: +33 (0)3 85 74 75 25
Tölvupóstur: bookings@-
bandb-burgundy.com
www.bandb-burgundy.com
Hjónin Carolyn og John
Scallan reka gistiheim-
ilið Le Bourg í Búrgúnd-
arhéraði.
Carolyn er af íslenskum
ættum en afi hennar var
Jón Þórðarson skipstjóri.
Gistiheimilið sem hjónin
reka í Búrgúndarhéraði.