Morgunblaðið - 05.02.2005, Qupperneq 52
52 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
INNBLÁSTUR fyrir sýningu sína í
Gallerí + á Akureyri sótti Gústav
Geir Bollason í texta úr stjörnufræði
G.F. Ursin í þýðingu Jónasar Hall-
grímssonar þar sem fjallað er um
halastjörnur. Skeytir Gústav broti
úr þessum texta við eigin texta sem
ritaður er á einn vegg gallerísins.
Við nánari athugun snýst textinn þó
ekki bara um halastjörnu heldur
skynjun. Maður les um þoku-
kenndan líkama, nálægð, form, liti,
ljós og ofbirtu þar sem Gústav spyr
hvort við lokum augunum til að verja
augun eða til þess að sjá betur?
Þessi síðasta setning er svo und-
irstaða innsetningar hans. Um er að
ræða tvö rýmisverk. Það fyrra sam-
an stendur af tveimur litskyggnum
af manneskju sem sýpur af kaleik.
Íslenskt silfurberg skyggir hins veg-
ar á myndina og varpar daufum og
flöktandi eftirmyndum af henni á
veggina.
Síðara verkið er myndbands-
upptaka sýnd á flatskjá sem er svo
endurvarpað með spegli í bjagaðri
útgáfu eftir endilöngum vegg.
Myndin var tekin í vita á Hjalteyri.
Utan vitans er myrkur svo maður
rétt nemur snjó og hvassviðri. Innan
vitans blikkar svo skært ljós sem um
leið lýsir upp sýningarrýmið eitt
augnablik og veggmynd af hala-
stjörnu kemur í ljós sem/og áð-
urnefndur texti.
Það er ekki laust við að manni
finnist Gústav vera farinn að feta sig
inn á trúarlegt táknmál. Kaleikur og
ljós í myrkri. Má kannski líta á ljós
vitans sem innra ljós sem gleypir
ytra óveður?
Er samþætting verkanna vel
hugsuð hjá listamanninum. Það er
þó skynræn upplifunin sem skiptir
megin máli og hefur listamaðurinn
augljóslega næma tilfinningu fyrir
því andrúmi sem hann vill kalla
fram. Einfalt og viðkvæmt myndmál
hóflega framsett svo maður finnur
umsvifalaust fyrir rósemi og ein-
veru. Spurningu Gústavs var svo
svarað fyrir mitt leyti þar sem ég
gekk úti við eftir að hafa skoðað sýn-
inguna og lokaði títt augunum til að
sjá hana betur. Enda ein af þessum
sýningum sem lifir með manni.
Morgunblaðið/Kristján
Frá sýningu Gústavs Geirs Bollasonar í Galleríi +.
Ljós í myrkri
MYNDLIST
Gallerí +
Opið um helgar kl. 14–17. Sýningu
lýkur 6. febrúar.
Rýmisinnsetning – Gústav Geir Bollason
Jón B.K. Ransu
ÞÆR Hulda Björk Garðarsdóttir
sópran og Antonia Hevesi píanóleik-
ari komu fram á hádegistónleikum í
Hafnarborg á miðvikudaginn og
fluttu aríur eftir Mozart, Gounod og
Bellini. Skemmst
er frá því að
segja að söng-
urinn var unaðs-
legur; röddin var
mjúk, tær, kraft-
mikil og blæ-
brigðarík, hvert
svo sem viðfangs-
efnið var. Því
miður var
píanóleikurinn
síðri, tæknileg at-
riði vöfðust fyrir; trillur voru leið-
inlega hægar og ég hefði viljað
heyra fleiri litbrigði í túlkuninni.
Antonia kunni samt greinilega það
sem hún spilaði og hún fylgdi söng-
konunni ágætlega; það var bara ekki
nóg.
Áheyrendur á tónleikunum voru
töluvert margir, enda er gaman að
gleyma annríki hversdagsins um
stund og hverfa á vit fegurðar og
skáldskapar, jafnvel þó það sé bara í
hálftíma.
Fagur
söngur
TÓNLIST
Hafnarborg
Tónlist eftir Mozart, Bllini og Goundod í
flutningi Huldu Bjarkar Garðarsdóttur
sópran og Antoniu Hevesi píanóleikara.
Miðvikudagur 2. febrúar.
Söngtónleikar
Hulda Björk
Garðarsdóttir
Jónas Sen
Stóra svið Nýja svið og Litla svið
HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna
Jónssonar eftir vesturfarasögu
Böðvars Guðmundssonar
Í kvöld kl 20 - UPPSELT
Su 6/2 kl 20 - UPPSELT
Fim 10/2 kl 20 - UPPSELT
Fö 11/2 kl 20,
Lau 12/2 kl 20 - UPPSELT
Fi 17/2 kl 20,
Fö 18/2 kl 20, - UPPSELT
Lau 19/2 kl 20, - UPPSELT
Fö 25/2 kl 20,
Lau 26/2 kl 20
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 6/2 kl 14, Su 13/2 kl 14,
Su 20/2 kl 14 - AUKASÝNING,
Su 27/2 kl 14 - AUKASÝNING
SÍÐUSTU SÝNINGAR
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
Su 13/2 kl 20
SÍÐASTA SÝNING
AUSA eftir Lee Hall - Í samstarfi við LA
Su 6/2, Fö 11/2 kl 20, Lau 19/2 kl 20, Lau 26/2 kl 20
Ath: Miðaverð kr. 1.500
HÉRI HÉRASON
Fyndið - ferskt - fjörugt - farsakennt
NÁMSKEIÐ UM VESTURFARANA STENDUR YFIR Í BORGARLEIKHÚSINU
Kennarar: Gísli Sigurðsson, 9/2 Sagnalist Vestur Íslendinga
Helga Ögmundardóttir, 16/2 Lífskjör og aðstæður frumbyggjanna
Böðvar Guðmundsson, 23/2 Bréfin frá Vestur-Íslendingum
Skráning hjá Mími Símenntun á www.mimi.is eða í síma 5801800
Þátttakendum verður boðið á sýningu á Híbýlum vindanna
BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson
Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki
Í kvöld kl 20 - UPPSELT
Lau 12/2 kl 20, - UPPSELT
Su 13/2 kl 20, - UPPSELT
Fi 17/2 kl 20,
Su 20/2 kl 20,
Fi 24/2 kl 20,
Fö 25/2 kl 20
SÝNINGUM LÝKUR Í FEBRÚAR
BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA
- gildir ekki á barnasýningar!
SAUMASTOFAN 30 ÁRUM SÍÐAR
eftir Agnar Jón Egilsson, Í samstarfi við TÓBÍAS
Í kvöld kl 20,
Lau 12/2 kl 20,
Fö 18/2 kl 20
ATH: Bönnuð yngri en 12 ára
Íslenski dansflokkurinn sýnir:
VIÐ ERUM ÖLL MARLENE DIETRICH FOR
eftir Ernu Ómarsdóttur og Emil Hrvatin
Hátíðarsýning su 6/2 kl 20, Mi 9/2 kl 20,
Fi 10/2 kl 20,
Fö 11/2 kl 20 - Lokasýning
SVIK eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA.
Su 13/2 kl 20, Su 27/2 kl 20
HOUDINI SNÝR AFTUR
Fjölskyldusýning um páskana
Forsala aðgöngumiða hafin
Leikhúsgestir munið glæsilegan matseðil S: 568 0878
Mannakorn
í kvöld
geggjað grínleikrit eftir DANIEL GUYTON
☎ 552 3000
www.loftkastalinn.isLoftkastalinn ✦ Seljavegi 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18
“HREINLEGA BRILLJANT”EB DV
“SNILLDARLEIKUR”VS Fréttablaðið
Næstu sýningar:
• Föstudag 4/2 kl 20 NOKKUR SÆTI
• Laugardag 5/2 kl 20 NOKKUR SÆTI
SUNNUD. 6. FEB. KL. 20
ALLRA SÍÐASTA SÝNING
MIÐAPANTANIR Í SÍMA 562 9700
2. sýning 13.feb. kl. 19.00 – ÖRFÁ SÆTI LAUS
3. sýning 18.feb. kl 20.00 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
4. sýning 20. feb. kl. 19.00 – 5. sýning 25. febrúar kl. 20.00 – 6. sýning
27. febrúar kl. 19.00 – 7. sýning 4. mars kl. 20.00
8. sýning 6. mars kl. 19.00 – 9. sýning 12. mars kl. 19.00
Miðasala á netinu: www. opera.is
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala frá kl. 10 virka daga.
Frumsýning 11. febrúar kl. 20 – UPPSELT
í Gerðubergi sunnudaginn 6. febrúar kl. 15.
Grímuföndur hefst kl. 14.
Miðapantanir í síma 5757700
Strengjaleikhúsið sýnir barnaóperuna
Undir drekavæng
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
„Glæsileg
útkoma –
frábær fjölskyldu-
skemmtun”
SS RÚV
Óliver! Eftir Lionel Bart
Lau. 05.2 kl 20 UPPSELT
Sun.. 06.2 kl 14 aukasýn. UPPSELT
Fös. 11.2 kl 20 UPPSELT
Lau. 12.2 kl 20 Örfá sæti
Sun.. 13.2 kl 14 aukasýn. Nokkur sæti
Fös. 18.2 kl 20 Nokkur sæti
Lau. 19.2 kl 20 Nokkur sæti
Ath: Ósóttar pantanir seldar daglega!
Tilboð til Visa-vildarkorthafa:
Fljúgðu á Óliver á punktum til 6. feb