Morgunblaðið - 17.02.2005, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
LANDIÐ
AKUREYRI
Flúðir | Guðjón Árnason, skólastjóri Flúða-
skóla, hefur verið skólastjóri í 25 ár, lengst af
á Hvolsvelli. Hann hefur þó aldrei þurft að
veita kennurum fæðingarorlof og í Pésanum,
fréttabréfi Hrunamannahrepps, eru líkur
leiddar að því að þetta sé Íslandsmet. Guðjón
hefur grun um að stíflan sé að bresta.
„Ég er að verða frægur fyrir að hindra
fjölgun,“ segir Guðjón þegar hann er spurður
út í þetta og er ekki viss hvort þetta orðspor
sé jákvætt eða neikvætt fyrir hann. Hann
segir vissuleg sérstakt að ekki hafi þurft að
gefa fæðingarorlof í skólum sem hann hafi
stjórnað í svona langan tíma. Guðjón var
lengi skólastjóri gagnfræðaskólans á Hvols-
velli og þar kenndu mest karlmenn og skýrir
það málið að hluta. Nú hefur réttur feðra til
fæðingarorlofs verið aukinn mjög. „Mér sýn-
ist á öllu að á næsta ári fari kennari hér, karl-
maður í fæðingarorlof. Ætli stíflan sé ekki að
bresta?“ segir Guðjón.
Allt annað starf
Guðjón tók sér frí frá kennslu í nokkur ár.
Gerðist framkvæmdastjóri fyrir ferðaþjón-
ustufyrirtækið Sælubúið á Hvolsvelli sem
byggði upp Njálusetrið og varð síðar sveit-
arstjóri í Vestur-Eyjafjallahreppi. Hann tók
síðan aftur til við stjórnun skóla og er á sínu
öðru ári sem skólastjóri Flúðaskóla. „Það er
gaman að glíma við þessa hluti á ný, að vísu
er þetta orðið allt annað starf,“ segir Guðjón.
Hann segir að með næstsíðustu kjarasamn-
ingum kennara hafi starfið gjörbreyst. Það sé
nú meira framkvæmdastjórastarf, snúist um
stjórnun og umsjón fjármála. „Ég hef ánægju
af því líka,“ segir Guðjón. Hann segir að
skólastjóri þurfi vissulega einnig að leggja
línurnar í fagmálunum og beri endanlega
ábyrgð á þeim en unnt að koma daglegri um-
sjón meira yfir á deildarstjóra og stigstjóra.
Í vetur eru 186 nemendur í Flúðaskóla og
40 starfsmenn. Íbúum Hrunamannahrepps
hefur fjölgað á undanförnum árum og nem-
endum einnig, þar til í vetur.
Skólinn er í fjörutíu ára gömlu húsnæði.
Flúðaskóli var heimavistarskóli þegar það var
byggt og með íbúðum fyrir starfsfólk. Síðan
hafa aðstæður breyst og nú er búið að inn-
rétta upp á nýtt alla heimavistina og íbúð-
irnar þannig að skólastarfið sjálft hefur feng-
ið allt húsnæðið til afnota. Síðastliðið sumar
var síðustu íbúðinni breytt í kennslustofu. Þá
hefur verið byggt íþróttahús og sundlaug og
nú síðast sparkvöllur með gervigrasi á lóð-
inni.
„Það koma alltaf upp nýjar þarfir og óskir
um bætta aðstöðu og maður vill gjarnan fá
þær uppfylltar fljótt. En ég reyni að vera
raunsær og átta mig á því að ekki er hægt að
gera allt í einu,“ segir Guðjón. Á síðasta ári
var tekinn í notkun nýr leikskóli á Flúðum og
vonast Guðjón til að næsta skrefið í þróun
grunnskólans sé að fá afnot af húsnæðinu
sem leikskólinn hafði áður í enda íþróttahúss-
ins undir verkmenntastofur. „Við höfum góða
verkgreinakennara, í myndlist, smíðum og
hannyrðum, og þurfum betri aðstöðu fyrir
þessar greinar,“ segir hann.
Notalegt á Flúðum
Guðjóni finnst notalegt að búa á Flúðum.
Þar er veðursæld mikil. Raunar sást ekki út
úr augum þar í éljunum í gærmorgun en þau
gengu yfir þegar rætt var við Guðjón um
miðjan morgun.
Guðjón Árnason hefur aldrei þurft að veita fæðingarorlof í aldarfjórðungs skólastjóratíð sinni
„Ætli stíflan sé ekki að bresta“
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Skólastjórinn Foreldradagur var í gær í Flúðaskóla. Hér er Guðjón Árnason í hópi nemenda.
Áfram í Höllinni | Á fundi skóla-
nefndar Akureyrar í vikunni var til
umfjöllunar tillaga um að núverandi
kennsluaðstaða í Íþróttahöllinni
verði nýtt áfram fyrir Brekkuskóla,
ef þörf verður á meira húsrými en
skólinn mun fá, með nýuppgerðu
húsnæði haustið 2005. Skólanefnd
samþykkti að óska eftir því að fá
áfram afnot af því húsnæði sem nú
er nýtt til kennslu í Íþróttahöllinni
a.m.k. fram til ársins 2008, þegar
ráðgert er að nýtt húsnæði Nausta-
skóla verði tekið í notkun. Þá sam-
þykkti skólanefnd að fela deild-
arstjóra skóladeildar að skoða
möguleika þess að Naustaskóli taki
til starfa frá og með skólaárinu
2006–2007 og verði fyrst um sinn í
áðurnefndu húsnæði Íþróttahall-
arinnar.
ÖKUMAÐUR fólksbíls var fluttur á slysadeild FSA
eftir mjög harðan árekstur við sendibíl á gatnamót-
um Þórunnarstrætis og Byggðavegar, framan við
Lögreglustöðina um miðjan dag í gær. Ökumaðurinn
kvartaði um verk fyrir brjósti en hann var þó talinn
hafa sloppið nokkuð vel að sögn lögreglu. Ökumaður
sendibílsins slapp ómeiddur en báðir voru einir á
ferð. Fólksbílnum var ekið í veg fyrir sendibílinn frá
Byggðavegi en sendibíllinn var á leið upp Þórunnar-
stræti. Við höggið kastaðast fólksbíllinn yfir akrein-
ina á móti og stöðvaðist á kantsteini. Slökkviliðs- og
sjúkraflutningamenn mættu á slysstað með klippur
en ekki þurfti að beita þeim við að ná ökumanni
fólksbílsins út.
Mikil hálka var á götum Akureyrar í gær og frá
hádegi og fram eftir degi urðu 6 árekstrar í bænum.
Ekki urðu slys á fólki í hinum óhöppunum fimm en
nokkurt eignatjón.
Morgunblaðið/Kristján
Umferðarslys Frá slysstað við Lögreglustöðina við Þórunnarstræti en eins og sést á myndinni
er fólksbíllinn mikið skemmdur. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild FSA til skoðunar.
Harður árekstur
BÖRNIN á leikskólanum Kiðagili
voru í sínu besta skapi, þar sem þau
voru við leik á leikskólalóðinni í gær.
Nokkuð snjóaði fram eftir degi og
það er nú eitthvað sem yngstu kyn-
slóðinni líkar. Þá er viðbúið að
starfsfólkið í Hlíðarfjalli hafi brosað
út í annað í það minnsta. Þegar ljós-
myndari Morgunblaðsins var á ferð
við Kiðagil, voru þessar ungu stúlk-
ur að leika sér á þríhjóli en eftir of-
ankomuna var orðið ansi þungfært
fyrir þríhjól, þar sem snjórinn vildi
festast á dekkjunum. Stelpurnar
létu það ekki á sig fá og með sam-
stilltu átaki tókst þeim að ýta hjólinu
um leikskólalóðina og það gekk mun
betur á meðan enginn sat á því.
Morgunblaðið/Kristján
Þungfært í snjónum
ALLIR skólar í Dalvíkurbyggð
verða sameinaðir á tvo kennslu-
staði, Dalvík og Árskógsskóla, í
þremur áföngum að því er fram
kemur í breytingatillögu sem
Svanhildur Árnadóttir, bæjar-
fulltrúi í Dalvíkurbyggð, lagði
fram á fundi bæjarstjórnar í vik-
unni. Fyrsti áfangi er að færa
kennslu allra grunnskólabarna á
Húsabakkaskóla í Dalvíkurskóla í
haust, 2005. Leita á samstarfs við
skólastjóra Dalvíkur- og Húsa-
bakkaskóla um að þeir annist und-
irbúning og ráðgjöf við flutning
barnanna út skólaárið og einnig
munu kennarar og starfsfólk
Húsabakkaskóla að jafnaði eiga
forgang í auglýst störf í skóla
sveitarfélagsins eftir því sem kost-
ur er að því er fram kemur í tillög-
unni.
Annar áfangi breytinganna er að
segja skólastjórnendum Dalvíkur-
og Árskógsskóla upp störfum,
þannig að þeir ljúki störfum 1.
ágúst 2006 og verður staða skóla-
stjóra og tveggja aðstoðarskóla-
stjóra auglýst. Þriðji áfangi tekur
svo gildi haustið 2006, en þá tekur
nýsameinaður grunnskóli Dalvík-
urbyggðar til starfa. Skólanum
stjórna skólastjóri og aðstoðar-
skólastjóri á Dalvík og aðstoðar-
skólastjóri í Árskógi. Breytinga-
tillögunum var vísað til
fræðsluráðs og foreldraráðs allra
grunnskólanna til umsagnar.
Aukið val
Fulltrúar minnihlutans í bæjar-
stjórn lögðu fram tillögu um að
mismunandi skólar yrðu starf-
ræktir áfram í Dalvíkurbyggð með
þremur skólastjórum. „Að foreldr-
ar hafi frjálst val um skóla og að
skólir fái aukið frelsi til að marka
sér sérstöðu með mismunandi
áherslum í skólastarfi,“ segir í til-
lögu fulltrúa minnihlutans.
Tillaga um að skólar í Dalvíkurbyggð
verði sameinaðir á tvo kennslustaði
Breytingar taka
gildi í þremur
áföngum