Morgunblaðið - 17.02.2005, Qupperneq 30
30 FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Því ekki að gera sér glaðandag í myrkrinu og kuld-anum og halda hátíð? Er
ekki ástæðulaust að vera stöðugt
að fjargvirðast yfir vetrinum og
reyna frekar að sjá í honum ljós-
ið, dulúðina og fegurðina? Það er
einmitt þetta sem til stendur, því
í dag hefst Vetrarhátíð í Reykja-
vík, fjögurra daga hátíð, þar sem
borgarbúum gefst tækifæri til að
upplifa veturinn, sjá og skoða,
hlusta, dansa,
hitta fólk, og
njóta þess að
vera til.
Dagskrá
Vetrarhátíðar hefst kl. 19.30 þeg-
ar Steinunn Valdís Óskarsdóttir
borgarstjóri setur hátíðina á
Skólavörðuholtinu, en fimm mín-
útum síðar hefjast Ljósatónleikar
í Hallgrímskirkju, þar sem Hörð-
ur Áskelsson organisti og fjöl-
listahópurinn Norðan bál flytja
gjörning ljósa og tóna sem leika
yfir kirkjuna. Þá spretta ljósa-
blóm á Skólavörðuholtinu, þegar
götuljósin ummyndast í mynd-
arleg vetrarblómstur. Klukkan
19.50 verður svo kyndilganga frá
Skólavörðuholtinu og niður að
Ráðhúsi, og dagskráin heldur
áfram.
Vesturfarasetrið á Hofsósi
heimsækir Ráðhúsið í Reykjavík
á Vetrarhátíðinni með sýnishorn
úr öllum sýningum sínum um
landnám Íslendinga í Vestur-
heimi. Sif Gunnarsdóttir verkefn-
isstjóri Vetrarhátíðar segir að
Vesturfarasetrið sé sérlegur gest-
ur hátíðarinnar, og að á sýning-
unni í Ráðhúsinu verði dagskrá
alla daga hátíðarinnar. „Í kvöld
verður það tónlist; vestur-íslenski
tenorinn Peter John Buchnan
syngur, og Viðar Hreinsson sagn-
fræðingur segir frá vesturferð-
unum og Anna Sigríður Helga-
dóttir og Aðalheiður Þorsteins-
dóttir syngja og leika.“
Norðurljós og eldgos er annaráhugaverður dagskrárliður
Vetrarhátíðar, og hefst í Yzt á
Laugavegi 40 í kvöld kl. 20. Þetta
er ljósmyndasýning þeirra Ragn-
ars Th. Sigurðarsonar, Sigurðar
Þórarinssonar og Garðars Páls-
sonar, byggð um þetta þema, en
auk þess sýnir Vignir Jóhannsson
myndlistarmaður ljósaskúlptúr.
Klukkan 20.30 og 21.30 segir Ari
Trausti Guðmundsson svo frá
norðurljósunum í alþýðlegum ör-
fyrirlestrum, að sögn Sifjar.
Art Nurses bregða á leik kl. 20
í sýningarrými Fugls á Skóla-
vörðustíg 10, með kvikmyndaverk
sem þær kalla Dansinn, en lista-
hjúkkurnar eru þær Ósk Vil-
hjálmsdóttir og Anna Hallin
myndlistarkonur. „Ég hef séð
þetta verk hjá þeim, og það er al-
veg frábært,“ segir Sif. „Þær eru
með brúður af sjálfum sér og
stjórnmálamönnum, og svo er
boðið upp í dans. Það má segja
að þetta séu samtímaátök stjórn-
málanna í nýju ljósi.“
Annars konar dans verður stig-
inn í Iðnó kl. 20.30, en þar er á
ferðinni Dansveislan sem á síð-
ustu Vetrarhátíð var í Þjóðleik-
hússkjallaranum. Magadans,
flamenco og fleira verður þar í
boði undir stjórn Kramhússdans-
ara, en sérstakur gestur kvölds-
ins verður trommuleikari úr
Sinai eyðimörkinni.
Glæpasögugöngur Úlfhildar
Dagsdóttur slógu í gegn á Menn-
ingarnótt í fyrra, og í kvöld býð-
ur hún fólki með sér í annan
göngutúr, sem hefst við Borg-
arbókasafnið í Tryggvagötu kl.
20.30. „Þetta verður kannski ekki
jafnsvaðalegur göngutúr og í
fyrra; – þetta er almenn bók-
menntaganga. Úlfhildur undirbýr
þessar gönguferðir ákaflega vel
og kann þá list að tengja frásögn
sína stöðum og sögum.“ Lesari í
Bókmenntagöngunni verður Ingi-
björg Hafliðadóttir en einnig
slást í hópinn rithöfundarnir
Auður Ólafsdóttir og Gerður
Kristný og lesa úr bókum sínum.
Hagyrðingakvöld hefst á Nasa
kl. 20.30, þar sem bragsnillingar
á borð við Hákon Aðalsteinsson,
Ólínu Þorvarðardóttur og Ómar
Ragnarsson kveðast á, ásamt
fleirum. Sif segir einn hápunkta
kvöldsins á Nasa verði þegar
hipp-hopparar kynni tengsl tón-
listar sinnar við kveðskapinn.
„Þetta verður örugglega mjög
skemmtilegt, og krakkarnir sýna
fram á hvernig það nýja sem þau
hafa fram að færa er í rauninni
áframhald á gömlum íslenskum
hefðum.“
Unga fólkið verður líka í sviðs-
ljósinu í Hinu húsinu, en þar
hefst sjóðandi rokkuð tónlistar-
dagskrá kl. 20.30. „Það er svo oft
sem fullorðna fólkinu finnst það
vera fjarlægt því sem ungling-
arnir eru að gera, og erfitt að
komast að því. En þarna er tæki-
færi sem ég er viss um að margir
eigi eftir að nýta sér – að koma
og hlusta á hljómsveitirnar sem
þarna verða, Fíkn, We made God
og fleiri.“
Fyrir þá sem heldur kjósa eldri
músík er Fríkirkjan rétti stað-
urinn, því kl. 21 hefjast þar tón-
leikarnir Norðurljós við Tjörnina,
þar sem Helena Eyjólfsdóttir,
Ragnar Bjarnason, Þorvaldur
Halldórsson og Anna Sigríður
Helgadóttir syngja með hljóm-
sveit Carls Möllers. „Ég býst við
að þetta verði bara gömlu góðu
lögin sem allir þekkja,“ segir Sif.
„Fríkirkjutónleikarnir eru orðnir
klassískur viðburður á Vetr-
arhátíð, og alltaf fullt út úr dyr-
um. Þarna verða líka frábærir
listamenn sem allir eru þekktir
og ekki á hverjum degi sem Hel-
ena Eyjólfsdóttir syngur í höfuð-
borginni.“
Margt fleira er á dagskrár
Vetrarhátíðar í kvöld; grænlensk-
ur trommudans hjá Norræna fé-
laginu við Óðinstorg, myndbands-
verkasýning félaga í Myndhöggv-
arafélaginu við Ráðhústjörnina
og fleira. Dagskrá hátíðarinnar
er að finna á síðu 55 í blaðinu í
dag, en einnig á vef Höfuðborg-
arstofu.
„Svo má ekki gleyma Para-
dísargarðinum hér í Ingólfs-
nausti, Aðalstræti 2. Ég vissi nú
ekki lengi vel hvað það átti eig-
inlega að verða – blómaskreyt-
ingar Nanus-hópsins, en ég sá
bara fyrir mér blómabúð. En nú
er verið að setja þetta upp og það
er stórkostlegt. Hér á efri hæð-
inni er risastór hnöttur, en inni í
honum er blómasprengja sem er
við það að springa, og blómin
farin að vella út úr honum í allar
áttir, niður stiga og út um allt.
Þetta er ótrúlega fallegt samspil
fallegra jurta sem ofnar eru í
mosa og mold. Þegar við sáum
hvað úr þessu varð, fannst okkur
gefa auga leið, að með þessu
blómaverki, yrði að vera hægt að
hlusta á ljóð um blóm, mold og
mosa. Við fengum því Silju Að-
alsteinsdóttur til að lesa þannig
ljóð fyrir okkur inn á geisladisk,
og hann verður leikinn með. Það
verður mikil stemmning í þessu
og upplifun.
Fyrir utan verður svo ísilagt
vetrarhásæti eftir Ottó, ískóng
Vetrarhátíðarinnar.“
Blómstur í
rökkrinu
’„Þegar við sáum hvaðúr þessu varð, fannst
okkur gefa auga leið, að
með þessu blómaverki
yrði að vera hægt að
hlusta á ljóð um blóm,
mold og mosa.“‘
AF LISTUM
Bergþóra Jónsdóttir
begga@mbl.is
Morgunblaðið/Þorkell
Blómasprengja Paradísargarðsins í smíðum í Aðalstræti 2 í gær.
Vetrarblómstrin munu lýsa Skólavörðuholtið hátt.
Urrandi heitur magadans undir arabískum eyðimerkurtrommuslætti verður á Dansveislu í Iðnó.