Morgunblaðið - 17.02.2005, Síða 51
FJÓRÐI hópur íslenskra hómópata út-
skrifaðist frá The College of Practical
Homoeopathy 12. febrúar sl. og fór athöfn-
in fram í Íslensku óperunni. Með hópnum
sem útskrifast núna verða útskrifaðir
hómópatar á Íslandi orðnir 50 talsins. En
núna eru um 40 manns til viðbótar við nám
í hómópatíu hér á landi.
Námið tekur að jafnaði þrjú ár en þeir
sem lagt hafa stund á hómópatanám hér-
lendis hafa gert það í hlutanámi og lokið
því á fjórum árum.
Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp um
græðara þar sem skilgreind er lagaleg
staða þeirra. Hópurinn sem var að útskrif-
ast verður því væntanlega fyrsti útskrift-
arhópur hómópata hér á landi sem tekur til
starfa með skilgreinda lagalega stöðu að
námi loknu, segir í fréttatilkynningu.
Efri röð, í stiga, frá vinstri: Sunna Borg, Svana Lára Ingvaldsdóttir,
Aðalheiður Hjelm og Anna Birna Ragnarsdóttir. Fremri röð: Hall-
fríður María Pálsdóttir, Þuríður Hermannsdóttir, Guðrún Ólafs-
dóttir, Martin Kennelly aðstoðarskólastjóri, Christopher Hammond
skólastjóri, Aðalheiður Jóhanna Ólafsdóttir, Birna Björnsdóttir,
Soffía Lára Karlsdóttir og Svana Víkingsdóttir.
Búið að útskrifa
50 hómópata
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2005 51
FRÉTTIR
Félagslíf
Í kvöld kl. 20.00 Bæn og lof-
gjörð í umsjón Elsabetar og
Miriam. Allir velkomnir.
Landsst. 6005021719 VIII
I.O.O.F. 5 1852178
Fimmtudagur 17. febrúar.
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, kl. 20:00.
Mikill söngur og vitnisburðir.
Predikun Mike Bradley.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Mánudagur 21. febrúar.
Biblíulestur í Þríbúðum, Hverfis-
götu 42, kl. 19:30.
www.samhjalp.is
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Fimmta og sjötta umferðin í aðal-
sveitakeppni félagsins var spiluð
mánudaginn 14. febrúar og hafa
menn sjaldan orðið vitni að annarri
eins baráttu um efsta sætið og nú. Að-
eins munar 8 stigum á sveitinni í
fyrsta sæti og þeirri sem er í sjöunda.
Sveit Rúnars Einarssonar er nú kom-
in í þriðja sætið, en hún fékk fullt hús
stiga í umferðunum, 50 stig af 50
mögulegum. Staða efstu sveita er nú
þannig:
Guðrún Jörgensen 105
Magnús Orri Haraldsson 104
Rúnar Einarsson 103
Eðvarð Hallgrímsson 102
Gleðisveit Ingólfs 101
Sérsveitin 99
Stelpurnar 97
Mánudaginn 21. febrúar fellur
spilamennska niður hjá félaginu að
venju vegna Bridshátíðar en síðustu
tvær umferðirnar í keppninni fara
fram 28. febrúar.
Bridsfélag Borgarfjarðar
Mánudaginn 14. febrúar voru spil-
aðar tvær umferðir í aðalsveitakeppni
félagsins. Nú er aðeins ein umferð
eftir og úrslit allt að því ráðin.
Borgnesingar mættu gráir fyrir
járnum og spiluðu manna og kvenna
best og skoruðu 45 stig um kvöldið og
munaði þar mest um 20-10 sigur gegn
sveit Svanhildar Hall sem vermdi
efsta sætið fyrir kvöldið. Svanhildur
og félagar, sem áttu alla möguleika á
að vinna mótið, áttu afleitt kvöld og
fengu einungis 22 stig um kvöldið og
meistaravonir eru nú engar. Bifrest-
ingar héldu í við Borgnesinga eftir
fyrri umferð þar sem þeir fengu 22 en
í seinni umferð máttu þeir sín lítils
gegn Kópakallinum og töpuðu 10-20.
Síðasta umferðin er því nánast forms-
atriði, þvílík er staða Borgnesinga,
sem hafa ekki tapað leik í mótinu.
Staðan að loknum 10 umferðum af 11
er annars þessi.
Borgarnes 215
Bifröst 200
Svanhildur Hall 193
Kópakallinn 173
Tungnatröllin 172
Hermann Lárusson og
Þröstur Ingimarsson
Reykjanesmeistarar
Það var greinilegt að heimavöllur-
inn nýttist Kópavogsspilurum vel sl.
laugardag þegar Reykjanesmótið í
tvímenningi var spilað þar.
Þátttakan var því miður frekar
dræm, aðeins 12 pör mættu til leiks,
en mótið sjálft tókst afar vel undir
styrkri stjórn keppnisstjórans góð-
kunna, Eiríks Hjaltasonar. 9 efstu
pörin komast í úrslit Íslandsmótsins,
en eitt efstu paranna var reyndar
gestapar.
Röð efstu para:
Hermann Lárusson - Þröstur Ingimarss. 50
Karl G. Karlss. - Gunnlaugur Sævarss. 32
Guðlaugur Bessason - Jón St. Ingólfss. 32
Elín Jóhannsdóttir - Freyja Sveinsdóttir 10
Loftur Þór Pétursson - Sigurjón Karlsson 5
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Skógarhlíð 18, sími 595 1000
www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða til skíðaveislu í einum vinsælasta skíðabæ
Austurrísku alpanna, Zell am See. Beint leiguflug til Salzburg og
aðeins um klst. akstur til Zell. Þú kaupir 2 flugsæti og greiðir að-
eins fyrir 1 og getur síðan valið gistingu í Zell. Frábær aðstaða fyr-
ir skíðamenn. 56 lyftur og allar tegundir af brekkum, eftir óskum
og getu hvers og eins, snjóbretti og gönguskíði ekki undanskilin.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Skíðaveisla í
Austurríki
2 fyrir 1
frá aðeins kr. 19.960
26. febrúar
Verð kr. 19.960
Flugsæti til Salzburg,
m.v. 2 fyrir 1, 26. febrúar.
31.900 / 2 = 15.950 + skattar 4.010.
Netverð.
Gisting frá kr. 3.990 á mann pr. nótt.
Aðeins 28 sæti í boði
RAUÐI kross Íslands gaf þremur
ungum drengjum skyndihjálpar-
töskur í gær, í viðurkenningar-
skyni fyrir hetjuleg viðbrögð þeg-
ar einn þeirra fann fyrir verk í
brjósti þegar þeir voru staddir í
Kringlunni á laugardag.
Alexander Theódórsson og Arn-
ar Þór Stefánsson, 11 ára, hjálp-
uðu vini sínum Róberti Heiðari
Halldórssyni, 10 ára, eftir að hann
fann fyrir sárum verk og lagðist á
jörðina. „Framganga drengjanna
sýnir að allir geta lært grundvall-
aratriði skyndihjálpar.
Rauði krossinn vill sérstaklega
benda grunnskólum landsins á að
félagið gefur út vandað námsefni
um skyndihjálp fyrir yngri bekkj-
ardeildir sem skólum stendur til
boða í gegnum Námsgagnastofn-
un,“ segir í tilkynningu frá RKÍ.
Gunnhildur Sveinsdóttir, verk-
efnisstjóri Rauða krossins í
skyndihjálp, afhenti drengjunum
einnig nýútgefinn bækling um
grundvallaratriði skyndihjálpar,
sem allir ættu að tileinka sér. Hún
minnti þá á að vera óhræddir við
að hringja í 1-1-2 ef eitthvað kæmi
upp á aftur.
Á myndinni eru frá vinstri
Gunnhildur, Arnar Þór, Alexander
og Róbert Heiðar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Gaf þremur drengjum
skyndihjálpartöskur
Kynning á námi,
leik og starfi
erlendis
UNGU fólki á aldrinum 15–25 ára
býðst að kynna sér þau tækifæri sem
því standa til boða varðandi nám,
leik og starf erlendis. Kynningin fer
fram í Hinu húsinu, Pósthússtræti
3–5, kl. 16–18 á morgun, föstudag-
inn 18. febrúar.
Eftirfarandi aðilar verða á staðn-
um: AFS á Íslandi (Alþjóðleg fræðsla
og samskipti), Alþjóðaskrifstofa há-
skólastigsins, Alþjóðleg ungmenna-
skipti (AUS), Bandalag íslenskra
námsmanna (BÍSN), EES-Vinnu-
miðlunin, Enskuskólinn Bell – lang-
uage for life, Leonardo-starfs-
menntaáætlunin, Lýðháskólar á
Norðurlöndum, Nordjobb, Snorri
West, Stúdentaferðir, Ungt fólk í
Evrópu (UFE), Upplýsingamiðstöð
Hins hússins og Veraldavinir.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.hitthusid.is.
OA-kynningar-
fundur
ÁRLEGUR kynningarfundur OA-
samtakanna verður sunnudaginn
20. febrúar kl. 14–16, Héðinshús-
inu (Alanó) Seljavegi 2, Reykja-
vík. Fjórir félagar segja frá
reynslu sinni af OA-samtökunum.
Allir sem hafa áhuga á að kynna
sér starf samtakanna eru vel-
komnir.
OA-samtökin (Overeaters
Anonymous) eru samtök fólks
sem á við sameiginlegt vandamál
að stríða, átfíkn, sem á sér ýmsar
birtingarmyndir. Við tökumst á
við vandamálið einn dag í einu á
sama hátt og félagar í AA-
samtökunum takast á við áfengis-
og vímuefnafíkn og vinnum eftir
sama 12 spora-kerfi. Á Íslandi
eru nú starfandi 16 OA-deildir,
þar af 10 á stór-Reykjavíkur-
svæðinu. Nánari upplýsingar er
að finna á heimasíðu samtak-
anna: www.oa.is
Fundur um
mannréttindi
og fordóma
SAMBAND ungra sjálfstæð-
ismanna stendur fyrir málfundi
um rétt samkynhneigðra til að
frumættleiða börn og gangast
undir tæknifrjóvganir. Fundurinn
verður á Kaffi Viktori í Reykja-
vík í dag, fimmtudaginn 17. febr-
úar kl. 20.
Framsögumenn verða Hrefna
Friðriksdóttir, lögfræðingur hjá
Barnaverndarstofu, og Þóra
Björk Smith, stjórnarmaður í
Samtökunum ’78.
„Ljóst er að róttækar breyt-
ingar hafa orðið á lífi samkyn-
hneigðra síðustu þrjátíu ár. Ýms-
um þótti sem kaflaskil hefðu
orðið á réttindabaráttu þeirra
þegar lög um staðfesta samvist
voru samþykkt árið 1996. Öðrum
þykir ekki nóg að gert og telja
að fordómar gagnvart samkyn-
hneigðum séu enn of miklir á Ís-
landi og að þeirra gæti því miður
í löggjöf,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Eldur í báti
ÁLFTIN ÍS-533, sem er um sjö
brúttólesta plastbátur, skemmdist
nokkuð vegna elds í gærmorgun.
Báturinn var þá til viðgerðar á
Brjótnum í Bolungarvík. Að sögn
lögreglu er talið að vindi hafi
slegið niður í litla olíumiðstöð í
káetunni með fyrrgreindum afleið-
ingum.