Morgunblaðið - 17.02.2005, Síða 53

Morgunblaðið - 17.02.2005, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2005 53 DAGBÓK Námsþjónustan Les.is tók nýlega tilstarfa í Ármúla 5 í Reykjavík en þarer boðið upp á almenna sálfræðiþjón-ustu, ráðgjöf og meðferð fyrir þá sem glíma við sértæka námserfiðleika, svo sem at- hyglisbrest, ofvirkni og lesblindu. Sturla Kristjánsson, kennari og sálfræðingur, segir menn hugsa bæði í myndum og orðum. „Okkur er áskapað að hugsa í myndum, en við lærum síðan að hugsa með orðum,“ segir Sturla. „Í skólanum lærum við að lesa, við lærum að tengja saman hljóð og tákn. Kennsla og nám í skóla byggist síðan mest á hugsun með orðum, hljóðum og táknum.“ Sturla segir þá sem lenda í vanda með lestur vera myndræna og hugsa í myndum. „Okkur er áskapað að sjá, muna og varðveita minningar í myndum og geta ’litið yfir farinn veg’. Ef við lét- um við það sitja að hugsa aðeins í eigin reynslu- myndum værum við einangruð í okkar eigin heimi. Til þess að rjúfa þessa einangrun hefur maðurinn þróað veitukerfi reynslu sinnar, sam- skiptakerfi, sem umskrifar reynslumyndir í hljóð-og táknkerfi, samskiptakerfi sem við nefn- um mál, talmál og ritmál. Sá, sem ekki lærir málið, ekki lærir að tala og dvelur í eigin heimi, er einhverfur. Sá sem lærir málið en nær ekki að tengja saman hljóð og tákn, lærir ekki að lesa, er lesblindur. Orð eiga þrjú birtingarform. Við lestur falla þau saman í heildstæða upplifun.“ Hvernig hafa meðferðarúrræði við lesblindu breyst undanfarin ár? „Ég lít á hefðbundin meðferðarúrræði les- blindu sem einskonar stoðtækjagerð. Það má líkja þeim við hækjur, fatla og spelkur. Davis aftur á móti finnur leið út úr eigin lesblindu, þannig að hann leiðréttir þær skyntruflanir sem ollu lesblindunni og nær svonefndri skynstill- ingu. Líta má á þessa aðferð sem endurhæfingu; skynfærni einstaklingsins eru endurstillt þannig, að þeir hæfileikar sem áður urðu honum til ama eru nú nýttir til afreka. Davis-leiðréttingin hefur það markmið að skynstilla, það er að sjá til þess að viðbrögð við áreitum séu rökrétt og gagnleg, hvers eðlis sem lesblindan er. Allir þekkja þá upplifun að standa ringlaðir og ráðþrota frammi fyrir einhverju óvæntu eða óþekktu. Bjargráðið er gjarnan að grípa til skyn- villu, byggja lausnina fremur á eldri hug- armyndum en því sem við blasir. Hugsanir og lausnir verða þá ekki í samræmi við fyrirliggj- andi vanda. Þetta á því betur við sem myndræn hugsun er okkur tamari. Úrbætur felast í því að stilla saman ytri og innri skynjun, þannig að lausn fyrirliggjandi vandamáls byggist á óbrenglaðri ytri skynjun með stuðningi innri mynda.“ Sturla segist hafa sérstakan áhuga á því að að- stoða bráðgera myndhugsuði sem komnir eru í ógöngur og glíma við lesblindu, reikniblindu, at- hyglisbrest eða ofvirkni, svo gjörvileikinn megi gefa þeim gleði og gæfu. Námserfiðleikar | Les.is námsþjónusta býður upp á ráðgjöf og meðferð við námserfiðleikum Unnið samkvæmt Davis-kerfinu  Sturla Kristjánsson er fæddur á Akureyri árið 1943. Hann út- skrifaðist sem kennari frá Kennaraskóla Ís- lands árið 1965 og lauk Cand. pæd.-psyk.-prófi frá Danmarks Lærer- höjskole 1977. Þá stundaði hann nám við University of British Columbia, Vancouver í Kanada 1989–1993. Þá hefur hann sérhæft sig í Davis-námstækni og sem Davis- leiðbeinandi. Sturla hefur starfað við kennslu, skólastjórn og sálfræði, auk þess sem hann gegndi starfi fræðslustjóra Norðurlands eystra 1978–1987. Eru þingmenn lesblindir? FORSÆTISRÁÐHERRA hefur ný- lega látið í ljós efasemdir um lestr- arkunnáttu einstakra þingmanna. Þetta virðist honum nokkurt áhyggjuefni og má taka undir það, því stundum virðist sem þingmenn hafi ekki, eða geti ekki, lesið margt af því sem þeir eru að afgreiða í þinginu, og koma því of oft meingöll- uð lög frá Alþingi. Sem dæmi eru ný- leg lög um lífeyri þingmanna og emb- ættismanna, sem hafa orðið þjóðinni dýr. Þetta hefur verið rætt nokkuð í fjölmiðlum að undanförnu en þing- menn eru eitthvað feimnir við að ræða þetta. Ekki virðist vera á dag- skrá hjá Alþingi að huga að leiðrétt- ingu eða breytingum á þeim lögum. Þá er talað um tæknileg vandamál til að svo megi verða. Það voru engin vandræði hjá ríkisstjórn Davíðs Oddssonar að breyta Öryrkjadómn- um á sínum tíma, hann kallaði til ráð- gjafa til að lesa yfir dóminn, og þá var bara að breyta lögunum svo öryrkjar fengju ekki of mikið greitt, eins og nú hefur orðið með greiðslur til ýmissa embættismanna sem nú fá greiddan lífeyri í fullu starfi. Það er umhugs- unar vert hvort ekki væri betra að hafa tvær málstofur á Alþingi eins og áður var svo menn hafi meiri tíma til að skoða mál áður en þau eru af- greidd með hraði á færibandi eins og verið hefur að undanförnu, sem leiðir hugann að því hvort afkastahvetjandi launakerfi hafi verið tekið upp á Al- þingi. Ef svo er vantar þá kannski gæðaeftirlit með störfum Alþingis til að svona endurtaki sig ekki. Ekki geta Alþingismenn kvartað um vinnuálag því þeir hafa boðið sig fram til þessara starfa. Ekki heyrist hjálparsveitafólk kvarta um vinnu- álag við oft erfiðar aðstæður og er þar oftast unni í sjálfboðavinnu. Tillaga hefur komið fram á Alþingi um hagræðingu í ræðutíma með því að breyta ávarpsorðum ræðumanna þá mætti t.d. segja forseti, ef karl- maður er á forsetastóli og fyrirsæta ef kona er þar. Að lokum. Það mætti kanna lestr- arkunnáttu þingmanna áður en þeir taka til starfa á Alþingi og þá er hægt að veita þeim stuðning ef með þarf. Langt og gott jólafrí þeirra mætti svo nota til upprifjunar til að koma í veg fyrir að svona slys verði ekki við af- greiðslu mála á Alþingi. Það hlýtur að vera eðlileg krafa að á Alþingi verði viðhöfð öguð og vönduð vinnu- brögð. Guðmundur Steinarr Gunnarsson. GSM-sími týndist SONY Ericson-sími týndist í Smára- lind eða í leið 17 hinn 2. febrúar sl. Finnandi vinsamlega hafið samband ísíma 659 0601. GSM-sími týndist SIEMENS, svartur og lítill farsími, týndist aðfaranótt sl. laugardags. Skilvís finnandi hafi samband í síma 567 3901. Velvakandi Svarað í síma 5691100 kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Árnaðheilla dagbók@mbl.is 65 ÁRA afmæli. Í dag, 17. febrúar,er 65 ára Flóra Róslaug Antonsdóttir, Kirkjuvegi 5, Keflavík. 60 ÁRA afmæli. Í dag, fimmtudag-inn 17. febrúar, er Björn Sig- mundsson, tæknimaður hjá Ríkis- útvarpinu á Akureyri, sextugur. Hann og eiginkona hans, Guðrún Bjarna- dóttir, eru stödd erlendis á afmæl- isdaginn. LEIKFÉLAG Selfoss sýnir nú Spunaleikritið „Náttúran kallar,“ sem samið var af leik- hópnum og leikstjóranum Sigrúnu Sól Ólafs- dóttur. Hér er um að ræða 64. verkefni Leik- félagsins sem í ár er fjörutíu og sjö ára. Tilurð leikritsins má rekja til helgarnám- skeiðs sem haldið var snemma í september, þar sem sagðar voru margar sögur, en sumar þeirra urðu að atriðum í leikritinu. „Auk þeirra sem standa á sviðinu var margt fólk á þessu námskeiði sem tekur ekki þátt í sýningunni en lagði til góðar hugmyndir að atriðum sem við notumst síðan við,“ segir Sigrún Sól. „Við hitt- umst stopult til að byrja með en það má segja að í nóvember höfum við farið á fullt. Á nám- skeiðinu sögðu menn ferðasögur sem við spunnum út frá og þá strax töluðum við um að ferðamenning Íslendinga innanlands yrði góð- ur rammi utan um svona sýningu.“ Leikararnir héldu áfram að þróa persónur sínar í æfingaferlinu og segir Sigrún Sól þró- unina ennþá eiga sér stað á milli sýninga, því enn sé opið fyrir spunann. „Þess vegna er öruggt að engar tvær sýningar verða eins.“ Náttúran kallar á Selfossi Leikhópurinn í kröppum dansi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.