Morgunblaðið - 17.02.2005, Blaðsíða 54
54 FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 fífldjarfir menn,
8 auðug, 9 hnugginn, 10
dveljast, 11 gleðskap, 13
magran, 15 fjöturs, 18
nurla saman, 21 stefna, 22
hélt, 23 stéttar, 24 okrara.
Lóðrétt | 2 snjóa, 3 stjórn-
um, 4 sárs, 5 Mundíufjöll,
6 vot, 7 hugboð, 12 blóm,
14 fiskur, 15 ósoðinn, 16
smánarblett, 17 galtar, 18
vísa, 19 afréttur, 20 svara.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 búlki, 4 falds, 7 geiga, 8 rugga, 9 næm, 11 afar, 13
knáa, 14 endar, 15 horf, 17 ógát, 20 ari, 22 mælum, 23 lesin,
24 renna, 25 tjara.
Lóðrétt | 1 bugða, 2 leifa, 3 iðan, 4 form, 5 lúgan, 6 skaða,
10 æddir, 12 ref, 13 kró, 15 húmar, 16 rolan, 18 gusta, 19
tunna, 20 amla, 21 illt.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Búðu þig undir einn ánægjulegasta
dag þessa mánaðar. Hrúturinn finn-
ur til hlýju, ástúðar og félagslyndis
og á að nota tækifærið og blanda
geði.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Í lífinu skiptist á með skini og skúr-
um en sem betur fer er nautið við
stjórnvölinn í dag. Kannski að dag-
urinn verði einn sá besti í mán-
uðinum. Hver veit?
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Lífið er ljúft frá sjónarhóli tvíburans
þessa dagana og hann finnur til löng-
unar til þess að slá upp veislu. Drífðu
þig út og lyftu glasi ef þú hefur tök á.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Hafðu gætur á bankareikningnum í
dag, nema svo heppilega vilji til að
þú sért með vasa fulla fjár. En þótt
svo sé er freistingin til þess að eyða
allt of miklu svo sannarlega fyrir
hendi.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Lífið gengur sinn vanagang og ljónið
er í sannkölluðu sólskinsskapi.
Njóttu jákvæðni þinnar meðan hún
varir og reyndu að hitta alla sem þér
er annt um í dag.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Vinnan er það síðasta sem þig langar
til þess að fást við í dag. Þig langar
miklu heldur til þess að flatmaga og
slaka á. Láttu það ekki eftir þér
nema þú hafir efni á því.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Geðillska gærdagsins hefur vikið og
vogin er eins og nýsleginn túskild-
ingur. Hún er glaðlyndið uppmálað
og vill njóta dagsins eins og unnt er.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Gærdagurinn var ekki sá besti en
horfurnar eru mun betri í dag.
Njóttu lífsins ef þú mögulega getur.
Sporðdrekinn finnur fyrir fjöri og
rausnarskap og á að gera sér glaðan
dag með vinum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Merktu við daginn í dag í dagbókinni
þinni. Svo virðist sem hann verði
einn sá ánægjulegasti í mánuðinum.
Nýttu hann til þess að gera eitthvað
sérstakt.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Skildu veskið eftir heima ef þú verð-
ur í námunda við verslanir. Vilja-
styrkurinn er ekki mikill þessa dag-
ana og líklegt að þú kaupir bara
einhvern óþarfa.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberinn er fullur gleði og vellíð-
unar í dag. Notaðu tímann og lyftu
þér upp. Haltu upp á tímamót, ef við
á. Það síðasta sem þig langar er að
sinna skyldum þínum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn hugsar bara um að láta
eitthvað eftir sér um þessar mundir.
Hann á í mestu erfiðleikum með að
uppfylla skyldur sínar og vill helst
liggja með tærnar upp í loft.
Stjörnuspá
Frances Drake
Vatnsberi
Afmælisbarn dagsins:
Þú hefur framkvæmdahæfileika sem
og viðkvæmni og næmi sem gerir þér
kleift að skynja hluti sem aðrir átta
sig ekki á. Þú ert einu skrefi á undan
öðrum. Einnig býrðu yfir þolinmæði
og styrk sem gerir þér kleift að sigrast
á erfiðustu aðstæðum.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Tónlist
Café Rosenberg | Andrea Gylfadóttir, Guð-
mundur Pétursson og Eddi Lár leika tón-
list úr öllum áttum. Tarot-spákona spáir í
spilin frá kl. 21.
Hitt húsið | Rokkið dunar við upphaf Vetr-
arhátíðar á Fimmtudagsforleik í Hinu hús-
inu. Fíkn og We Made God stíga á stokk.
Kaffi Sólon | Hreimur og Vignir á efri hæð.
Tommi White á neðri hæð.
Söfn
Þjóðmenningarhúsið | Tónlistararfur Ís-
lendinga, Handritin, Þjóðminjasafn Íslands
– Svona var það, Heimastjórnin 1904. Dav-
íð Stefánsson frá Fagraskógi (1895–1964)
er skáld mánaðarins.
Þjóðminjasafn Íslands | Þjóð verður til –
menning og samfélag í 1.200 ár. Ómur
Landið og þjóðin í íslenskri hönnun. Ljós-
myndasýningarnar Hér stóð bær og Átján
vóru synir mínir í álfheimum. Opið kl. 11–17.
Listasýning
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Bára ljós-
myndari – Heitir reitir.
Myndlist
Árbæjarsafn | Í hlutanna Eðli – Stefnumót
lista og minja.
Gallerí Humar eða frægð! | Ásdís Sif
Gunnarsdóttir – vídeóverk.
Gallerí I8 | Finnur Arnar sýnir ýmis mynd-
verk.
Gallerí Sævars Karls | Ættarmót fyrir
hálfri öld. Sigurður Örlygsson sýnir olíu-
málverk – 100 andlit úr fjölskyldu sinni.
Gerðuberg | Rosemarie Trockel sýnir ljós-
myndir, skúlptúra, teikningar og mynd-
bönd. Sigríður Salvarsdóttir í Vigur sýnir
listaverk úr mannshári í Boganum.
Hafnarborg | Bjarni Sigurbjörnsson og
Haraldur Karlsson – Skíramyrkur. Helgi
Hjaltalín Eyjólfsson er myndhöggvari febr-
úarmánaðar í Hafnarborg.
Hallgrímskirkja | Jón Reykdal – 6 ný olíu-
málverk í forkirkju.
Hrafnista Hafnarfirði | Steinlaug Sig-
urjónsdóttir sýnir olíu- og vatnslitamyndir
í Menningarsalnum á fyrstu hæð.
Kaffi Sólon | Óli G. Jóhannsson sýnir
óhlutlæg verk.
Kling og Bang gallerí | Magnús Árnason –
Sjúkleiki Benedikts.
Listaháskóli Íslands | Ásdís Sif Gunn-
arsdóttir – „Netscape Oracles“ – Remedy
for Starsickness. Pétur Már Gunnarsson –
Hvað er í gangi? í Kubbnum, sýningarsal
LHÍ.
Listasafn Íslands | Íslensk myndlist 1930
1945 og Rúrí – Archive–endangered wat-
ers.
Listasafn Reykjanesbæjar | Kristín Gunn-
laugsdóttir – mátturinn og dýrðin, að ei-
lífu.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið – yfirlitssýning á verk-
um Ásmundar Sveinssonar.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Þórð-
ur Ben Sveinsson – Borg náttúrunnar.
Bjargey Ólafsdóttir – Láttu viðkvæmt útlit
mitt ekki blekkja þig. Erró – Víðáttur. Brian
Griffin – Áhrifavaldar.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Hörður Ágústsson – Yfirlitssýning í Vest-
ursal. Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Pétur
Örn Friðriksson – Markmið XI Samvinnu-
verkefni í miðrými. Yfirlitssýning á verkum
Kjarvals í Austursal.
Nýlistasafnið | Jean B. Koeman – Socles
de Monde. Samsýningin Tvívíddvídd.
Grams – Sýning á vídeóverkum úr eigu
safnsins.
Safn | Stephan Stephensen – AirCondi-
tion. Jóhann Jóhannsson – Innsetning
tengd tónverkinu Virðulegu forsetar.
Thorvaldsen Bar | Kristín Tryggvadóttir –
Samspil steina, ljóss og skugga.
Þjóðmenningarhúsið | Bragi Ásgeirsson
er myndlistarmaður mánaðarins.
Dans
Iðnó | Kramhúsið í samvinnu við Vetr-
arhátíð stendur fyrir dansveislu í Iðnó kl.
20.30–23. Dans víðsvegar að úr heim-
inum. Sérstakir gestir egypski maga-
dansmeistarinn Maher Kishk og ísraelski
tónlistarmaðurinn Ilya Magnes ásamt
Stórsveit Nix Noltes.
Mannfagnaður
Íþróttahús Þykkvabæ | Þorrablót verður í
íþróttahúsinu Þykkvabæ laugardaginn 26.
febrúar. Miðaverð 4.000 kr. Pantanir og
nánari upplýsingar veita: Sigga s.
487 5630, Særún s. 487 5640, s. Dóra
487 5619 og Eygló s. 487 5617. Panta
þarf fyrir 19. febrúar.
Fundir
GSA á Íslandi | GSA fundur kl. 20.30 á
Tjarnargötu 20. GSA er samtök fólks sem
hefur leyst vanda sinn gagnvart mat. Ef þú
telur þig eiga í slíkum vanda ert þú vel-
komin/n á fund. www.gsa.is.
Kattavinafélag Íslands | Aðalfundur
Kattavinafélags Íslands verður haldinn kl.
18, í húsi félagsins við Stangarhyl 2
Reykjavík. Á dagskrá eru venjuleg aðal-
fundarstörf.
Krabbameinsfélagið | Samhjálp kvenna er
með opið hús í Skógarhlíð 8, 4. hæð, 22.
febrúar kl. 20. Óskar Þór Jóhannsson
krabbameinslæknir flytur erindi um erfða-
ráðgjöf vegna krabbameins. Umræður og
fyrirspurnir. Kaffiveitingar. Allir velkomnir.
Kristniboðsfélag kvenna | Kristniboðs-
félag kvenna heldur fund kl. 17 á Háaleit-
isbraut 58–60. Bæna- og vitnisburð-
arstund. Allar konur velkomnar.
Norræna húsið | Aðalfundur Félagsins Ís-
land-Palestína verður haldinn í sunnudag-
inn 20. febrúar kl. 16. Auk venjulegara að-
alfundastarfa segir Eiríkur Jónsson,
formaður Kennarasambands Íslands, í
máli og myndum frá nýlegri ferð til Palest-
ínu.
Samtök lungnasjúklinga | Samtök
lungnasjúklinga halda fræðslufund kl. 20 í
Síðumúla 6, gengið inn baka til. Arna Guð-
mundsdóttir, sérfræðingur í lyflækningum,
heldur fyrirlestur um steralyf. Félagar SLS
og aðstandendur eru hvattir til að koma.
Umyggja | Aðalfundur Umhyggju verður
mánudaginn 21. febrúar kl. 20 í húsnæði
félagsins á Háaleitisbraut 13, á 4. hæð. Að
loknum aðalfundarstörfum verður erindi
um fjölskylduráðgjöf.
Fyrirlestrar
Lögberg, stofa 101 | Sigríður Elín Þórðard.
félagsfr. heldur fyrirlestur á vegum Rann-
sóknastofu í kvenna- og kynjafræðum kl.
12.15–13.15, í Lögbergi, stofu 101. Leitað
verður svara við því af hverju færri konur
en karlar reka eigin fyrirtæki og hvort það
skiptir máli fyrir samfélagið að auka hlut
kvenna í atvinnurekstri.
Miðstöð Sameinuðu þjóðanna | „Kosovo á
krossgötum“ er yfirskrift fyrirlestrar sem
fram fer í Miðstöð Sameinuðu þjóðanna,
kl. 17–18. Fyrirlesari er Jón Guðni Krist-
jánsson, sagnfræðingur og fréttamaður
hjá fréttastofu Útvarpsins. Mun hann rekja
sögu Kosovo í ljósi núverandi stöðu þar.
Kynning
Maður lifandi | Í vetur er viðskiptavinum
boðin ókeypis ráðgjöf um notkun hómópa-
tíu á fimmtudögum kl. 13–15. Kristín Krist-
jánsdóttir hómópati aðstoðar og svarar
spurningum.
Málþing
Sprotaþing | Samtök sprotafyrirtækja
(SSP) og Samtök iðnaðarins (SI) standa
fyrir Sprotaþingi um framtíð og forsendur
sprotafyrirtækja á Íslandi, föstudaginn 18.
febrúar kl. 13–17, í höfuðstöðvum Marels
hf. í Austurhrauni 9, Garðabæ. Tilgangur
þingsins er að kynna framtíðarsýn sprota-
fyrirtækja og ræða þær forsendur sem
þurfa að vera fyrir hendi svo þessi sýn
verði að veruleika.
Félagsheimilið Hvoll | Málþing um ferða-
þjónustu í Félagsheimilinu Hvoli kl. 14–
17.30. Fyrirlesarar: Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra, Einar Guðfinnsson
formaður Ferðamálaráðs, Eymundur
Gunnarsson atvinnu- og ferðamálafulltrúi,
Magnús Oddsson framkvæmdastjóri
Ferðamálaráðs. Afhending viðurkenningar
Rótarýklúbbs Rangæinga.
Námskeið
Hótel Edinborg | Námskeið um andleg
málefni með Maríu Sigurðardóttur og
Guðrúnu Hjörleifsdóttur miðlum, verður
haldið að Lambafelli Hótel Edinborg,
A–Eyjafjöllum laugardaginn 19. febrúar.
Þátttaka tilkynnist í síma 565 0712 og
862 6961.
Maður lifandi | Námskeið kl. 16.30-21.30
um hvað einkennir fólk sem nær árangri,
mikilvægi fyrirmynda, árangursgreind og
hvernig má þroska hana og hverju þakka
10 íslenskar konur árangur sinn. Leiðbein-
andi er Martha Árnadóttir. Skráning og
uppl. í 8637477 og www.simnet.is/
marthaa. www.madurlifandi.is.
Staðlaráð Íslands | Námskeið verður 18.
febrúar fyrir þá sem vilja læra á ISO 9000
gæðastjórnunarstaðlanna. Markmið er að
þátttakendur geti gert grein fyrir
áherslum og uppbyggingu kjarnastaðlanna
í ISO 9000 röðinni og þekki hvernig þeim
er beitt við að koma á og viðhalda gæða-
stjórnunarkerfi. Nánar á www.stadlar.is.
Útivist
Laugardalurinn | Stafganga í Laug-
ardalnum kl. 17.30, gengið er frá Laug-
ardalslauginni. Nánari upplýsingar er að
finna á www.stafganga.is og GSM:
616 8595 & 694 3571. Guðný Aradóttir &
Jóna Hildur Bjarnadóttir.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
1. e4 d6 2. d4 g6 3. Rc3 Bg7 4.
Be3 Rf6 5. Dd2 c6 6. Rf3 0–0 7. h3
Rbd7 8. Bd3 e5 9. dxe5 dxe5 10. 0–0
De7 11. Bh6 Rc5 12. Bxg7 Kxg7 13.
Dg5 Rxd3 14. cxd3 He8 15. Hfe1 c5
16. Hac1 b6 17. b4 h6 18. Dd2 cxb4
19. Rb5 Hd8 20. Db2 a6 21. Rxe5
axb5 22. Rc6 De8 23. e5 Rd5 24. e6+
f6 25. Rxd8 Dxd8 26. Dd4 Bb7 27. f4
Dd6 28. f5 gxf5 29. Dh4 Hxa2 30.
Dh5
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir skömmu í Gíbraltar.
Hin knáa og skeinuhætta Kateryna
Lahno (2.454) frá Úkraínu hafði
svart gegn Stefáni Bergssyni
(2.163). 30. … Hxg2+! og hvítur
gafst upp enda drottningin fallin í
valinn eftir 31. Kxg2 Rf4+.
Svartur á leik.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
DJASSKLÚBBURINN Múlinn hefur starf sitt á nýju ári
með tónleikum pólsk-íslenska djasskvartettsins Pólís í
Gyllta salnum á Hótel Borg.
Meðlimir kvartettsins eru gítarleikarinn Jón Páll
Bjarnason, saxófón- og klarinettuleikarinn Zbigniew
Jaremko, bassaleikarinn Tómas R. Einarsson og Scott
McLemore trommuleikari. Pólís er samstarfsverkefni
Jóns Páls og Zbigniew en þeir hafa leikið oft og víða
saman, m.a. á djasshátíð í Póllandi sl. sumar. Þeir munu
leika sígilda og vel þekkta djass-standarda í nýjum út-
setningum kvartettsins.
Framundan hjá Múlanum er fjölbreytt dagskrá sem
samanstendur af tíu tónleikum, en forsvarsmenn Múl-
ans segja mikla grósku einkenna íslenskt djasslíf.
Pólsk-íslenskur
djass á Borginni
Morgunblaðið/Golli
Tónleikarnir hefjast kl. 21 og er þúsund króna
aðgangseyrir.