Morgunblaðið - 17.02.2005, Síða 64

Morgunblaðið - 17.02.2005, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Opið 8-24 alla daga í Lágmúla og Smáratorgi GRÁSLEPPUKARLAR vilja stytta vertíð sína í vor um þriðjung í því skyni að draga úr veiðum. Mjög góð veiði á vertíðinni sl. vor olli því að framboð á grásleppuhrogn- um jókst til muna og hafa birgðir auk- ist um 70% á milli ára. Samtök veiði- manna við Norður- Atlantshaf hafa samþykkt að gera það sem í þeirra valdi stendur til að takmarka veið- arnar á komandi grásleppuvertíð við 27 þús- und tunnur til að koma í veg fyrir verðhrun. Í tillögum grásleppunefndar Lands- sambands smábátaeigenda um styttingu veiðitímabilsins er sett það markmið að skerða afla um allt að þriðjung. Arthur Bogason, formaður LS, segir viðbrögð meðal íslenskra veiðimanna almennt góð./C1 Vilja styttri grásleppuvertíð „ÞETTA mun duga sumum fjöl- skyldum. Stuðningur í þrjá mán- uði getur skipt sköpum þegar eitthvað kemur upp á, slys eða greining á alvarlegum veikind- um.“ Þetta segir Ragna K. Mar- inósdóttir, formaður Umhyggju, félags til stuðnings langveikum börnum, um þá ákvörðun rík- isstjórnarinnar að foreldrar barna, sem greinast með alvar- leg veikindi eða fötlun, fái greiðslur úr ríkissjóði í allt að þrjá mánuði. Er lagt til að þess- ar greiðslur nemi níutíu þúsund krónum á mánuði og komi rétt- urinn í áföngum á þremur árum. á bilinu 75 til 91 milljón króna. Þá áætlar nefndin að foreldr- ar þrjátíu til fjörutíu barna kunni að nýta sér níu mánaða réttinn á ári hverju. Árni segir að greiðslurnar einar sér tryggi ekki að for- eldrar langveikra barna fái leyfi frá störfum. Því hafi ríkisstjórnin sam- þykkt að leggja til að réttur til foreldraorlofs vegna veikinda barna verði rýmkaður þannig að miðað verði við börn allt að átján ára í stað átta ára nú. húsum, þá duga laun í þrjá mán- uði ekki og ekki einu sinni í níu mánuði. Það eru fjölskyldur sem munu þurfa á langtímaaðstoð að halda,“ segir Ragna K. Marinós- dóttir. Árni Magnússon félagsmála- ráðherra greindi frá samþykkt ríkisstjórnarinnar á Alþingi í gær. Er hún byggð á tillögum nefndar, sem áætlar að foreldr- ar um 250 til 300 barna kunni að nýta sér þriggja mánaða réttinn að einhverju marki á ári hverju. Ætla megi að árlegur kostnaður ríkissjóðs vegna þessa geti orðið Ríkisstjórnin hefur einnig samþykkt að leggja til við Al- þingi að foreldrar barna sem veikjast mjög alvarlega eða greinast með mjög alvarlega fötlun eigi rétt á greiðslum í allt að níu mánuði. Allt að 340 börn „Það getur tekið tíma fyrir foreldra að átta sig á breyttum aðstæðum og kynna sér með- ferðir. Eftir þrjá mánuði fer lífið svo að færast í ákveðnar skorð- ur. Svo er það hinn hópurinn sem á við mikla erfiðleika að etja og er mikið inni á sjúkra- Foreldrar langveikra og fatlaðra barna fá greiðslur úr ríkissjóði í allt að níu mánuði „Getur skipt sköpum“  Fái greiðslur/10  Eingöngu langtímaaðstoð dugar í miklum erfiðleikum segir formaður Umhyggju  Réttur til foreldraorlofs vegna veikra barna rýmkaður í 18 ár JÓHANNA Sigurðardóttir, þingmaður Sam- fylkingarinnar, fagnaði yfirlýsingu félags- málaráðherra á Alþingi í gær um stuðning við foreldra langveikra og fatlaðra barna, sem hann gaf í svari við fyrirspurn Jóhönnu. „Þetta er merkur dagur og gríðarlegur áfangi í baráttumálum aðstandenda lang- veikra barna sem lengi hafa beðið eftir úr- lausn í þessum málum.“ Hún sagði þetta stórt skref, en ekki nægjanlega stórt. Jóhanna skrifaði á vef sinn á Netinu í gær að það ylli vonbrigðum hve greiðslurnar til foreldranna væru lágar. „Það veldur vissu- lega vonbrigðum að greiðslur sem foreldrar fá vegna fjarveru úr vinnu vegna veikinda barna eru mjög lágar eða einungis 90 þúsund krónur á mánuði auk launatengdra gjalda. Á móti kemur hve stórt skref það er að fá við- urkenndan í lögum þennan mikilvæga rétt foreldra langveikra barna, sem þá verður auðveldara að bæta og auka við þegar hann er kominn á lögbókina.“ Jóhanna skrifaði að enn væru ýmis atriði óljós og fara þyrfti vel yfir það á Alþingi. Merkur dagur „FOOD and Fun“-matar- og menningarhátíðin hófst í gær og var mikið um að vera á þeim tólf veitingastöðum í borginni sem taka þátt í há- tíðahöldunum. Að sögn Baldvins Jónssonar, Hvergi í heiminum sé hægt að fá fjögurra rétta máltíð, matreidda af meistarakokki, á undir fimm þúsund krónum. Matreiðslumeistararnir keppa síðan um helgina. framkvæmdastjóra hátíðarinnar, er uppbókað víða. „Fólk mætir upp úr sex og er að borða al- veg til miðnættis,“ segir Baldvin og bætir því við að um einstakan viðburð sé að ræða. Morgunblaðið/Þorkell Eldað af hjartans lyst AUGLÝSINGASTOFAN Hvíta húsið hlýtur flestar tilnefningar í samkeppni um athygl- isverðustu auglýsingar ársins 2004. Hvíta húsið hlýtur nú þrettán tilnefningar, Fíton kemur næst með tólf tilnefningar og Ís- lenska auglýsingastofan þar á eftir með tíu. Veitt eru verðlaun í tólf flokkum. Það er Félag íslensks markaðsfólks – ÍMARK í samstarfi við Samband íslenskra auglýsingastofa sem stendur fyrir sam- keppninni sem nú er haldin í 19. sinn./B4 Hvíta húsið fær flestar tilnefningar HEILDAREIGNIR lífeyrissjóðanna stefna í eitt þúsund milljarða í næsta mánuði, að sögn Hrafns Magnússonar, framkvæmda- stjóra Landssambands lífeyrissjóða. Sjóð- irnir eiga nú 974 milljarða, þar af 216 millj- arða í erlendum eignum. Eignir líf- eyrissjóðanna jukust um 150 milljarða í fyrra. Ávöxtun sjóðanna hefur verið mjög góð, Hrafn segist trúa því að hún hafi verið um 10% á síðasta ári en uppgjör er ókomið. Mik- ill vöxtur var í innlendum hlutabréfum sjóð- anna á síðasta ári eða um 51% á árinu – úr 89 milljörðum 2003 í 134,3 milljarða 2004. Albert Jónsson, forstöðumaður eignastýr- ingar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, minnir á að hrein eign lífeyrissjóðanna nemi um 120% af vergri landsframleiðslu 2003 sem hljóti að teljast mjög gott miðað við aðrar þjóðir. /8 Eignir jukust um 150 milljarða SKÓLI Ísaks Jónssonar og tíu af sextán kennurum við skólann hafa gert kjarasamning, þar sem gert er ráð fyrir að kennarar geri ein- staklingssamninga við skólastjóra og hæfni kennarans ráði mestu um kjörin. Jafnframt eru flest vinnu- tímaákvæði felld niður, en vinnu- skylda skilgreind sem fjörutíu stundir á viku og skipulag skóla- starfsins á höndum skólastjóra „í góðri samvinnu“ við kennara. Bæði kennararnir og skólanefnd Ísaksskóla hafa samþykkt samn- inginn samhljóða. Samningurinn er m.a. gerður á grundvelli bókunar 5 í kjarasamn- ingi KÍ og sveitarfélaganna frá í nóvember, en þar kemur fram að skapa skuli tækifæri fyrir grunn- an með sér einstaklingssamninga, þar sem ræðst hvort laun verða umfram lágmarkslaunin. Þar skal lagt mat á þá persónulegu færni, sem skólastjóri telur skipta máli í hverju tilfelli fyrir sig. „Að sjálf- sögðu má reikna með að jafnframt verði horft til þátta eins og starfs- aldurs og jafnvel lífaldurs en þó er það von beggja aðila að hæfni kennarans ráði mestu um kjör hans,“ segir í samningnum. „Aðilar eru sammála um að það sé hagur allra að haga skólastarf- inu þannig að skólinn nái að þróast og dafna á sama tíma og kennarinn eflist og hefur tækifæri til að fást við ýmis krefjandi verkefni innan skólans samhliða kennslunni,“ seg- ir þar. skóla að taka upp í tilraunaskyni til eins skólaárs í senn að vinnuskylda verði á bilinu kl. 8 til 17 og öll vinnuskylda kennara innan þeirra tímamarka. Launatafla grunnskólakennara skv. KÍ-samningnum er felld niður í samningi Ísaksskóla og starfs- heitum fækkað úr átta í þrjú. Í stað þess að laun kennara ráðist að mestu leyti af starfs- og lífaldri er í samningnum eingöngu samið um lágmarkslaun þessara þriggja starfsheita (grunnskólakennari/ umsjónarkennari, sérkennari og námsráðgjafi) og eru þau ýmist 240 eða 250 þúsund krónur, sem er mun hærra en byrjunarlaun sam- kvæmt samningi KÍ. Skólastjóri og kennari gera síð- „Hæfni kennarans ráði mestu um kjör“ Ísaksskóli semur um 240–250 þús. kr. lágmarkslaun kennara, 40 klst. vinnuskyldu og einstaklingssamninga EDDA Huld Sigurðardóttir, skólastjóri Ísaksskóla, segir að samningurinn marki tímamót og sé mikið sóknarfæri fyrir skólann. „Við brjótum upp þetta niðurnjörv- aða samn- ingsform og ætlum að nýta þetta tækifæri til fullnustu. Nú siglum við af fullum krafti inn í þróun- arstarf, sem verður kynnt fyrir næsta skólaár.“ Jenný Guðrún Jónsdóttir, trún- aðarmaður kennara við Ísaks- skóla, segir að það, sem kenn- arar fái einkum út úr samn- ingnum, sé hvati til að standa sig vel í starfi. „Við erum ekki njörvuð niður í launatöflu heldur fáum umbun fyrir dug og metn- að.“ Hún segir alla kennarana munu hækka í launum frá því sem nú er. Sóknarfæri Edda Huld Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.