Morgunblaðið - 24.03.2005, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 24.03.2005, Qupperneq 26
26 FIMMTUDAGUR 24. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ MENNING ÓPERA Hafliða Hallgrímssonar „Viröld fláa“ – sem sýnd var í Þýska- landi á síðasta ári – verður frumflutt í nýrri útgáfu í Vínarborg í næstu viku. Óperan, sem byggð er á text- um eftir absúrdíska skáldið Daniil Kharm frá Rússlandi, verður flutt fjórum sinnum á óperuhátíð sem ber nafnið „Out of Control“. Þrjár aðrar óperur verða sýndar á þessari hátíð, að sögn Hafliða. Fjórar sýningar verða á „Viröld fláa“ og fara þær fram í Museums- quartier á Ringstrasse. Frumflutn- ingur verður 30. mars, en svo er óperan sýnd áfram þrjú næstu kvöld, þ.e. 31. mars og 1. og 2. apríl. Óperan er sett á svið af Michael Scheidl, en konan hans Nora Scheidl hefur skapað sviðsmynd og búninga. Aðalsöngvarinn er þýski tenórinn Clemens Löschmann, sem fer með hlutverk sögumannsins. Þar að auki koma fram sjö söngvarar frá ýmsum löndum; Chantal Mathias, Veronica Waldner, Marc Harmann, Andreas Kruppa, Tom Sol, Marco Stella og Christian Tscele- biew. Hljóm- sveitin er Die Reihe, sem er staðsett í Vín- arborg, en hljóm- sveitarstjóri er Frank Max- imilian Hube frá óperuhúsinu í Lübeck í Þýska- landi. Hafliði segir að í þessari nýju og endurbættu útgáfu af óperunni, séu m.a. ný og dramatískari endalok. „Einnig fóru fram gagngerðar um- bætur á hljómsveitarútsetningu, og aðalhlutverki því sem Löschmann syngur.“ „Viröld fláa“ var valin af Inter- national Theatre Institute in Berlín sem ein af fimmtán frumlegustu óperum sem frumfluttar hafa verið um víða veröld, á undanförnum þremur árum. Og var hún kynnt sér- staklega á óperuþingi sem haldið var í München í desember sl. Ópera | „Viröld fláa“ eftir Hafliða Ný útgáfa flutt Hafliði Hallgrímsson Það virðist vera að renna uppfyrir fólki nú að húsið semkallað hefur verið Tónlistar- húsið í Reykjavík mun fyrst og fremst verða fjölnotahús: Tónlistar- hús, ráðstefnumiðstöð, úrvals hót- elbygging, kvikmyndahús og óperuhús að ósk margra. Í viðtali í Morgunblaðinu í gær lýsti Kjartan Ólafsson, formaður Tónskálda- félags Íslands, áhyggjum af því að Tónlistarhúsið yrði á endanum ekki tónlistarhús heldur fjölnota menn- ingarhús. Greinargerð Þórunnar Sigurðardóttur og Svanhildar Konráðsdóttur um húsið virð- ist staðfesta þetta. Þar segir að í húsinu verði tónlistarstarfsemi og menningar- viðburðir af ýmsum toga, ráð- stefnuhald og fundir, fyrirlestrar, vörukynningar og sýningar, verð- launaafhendingar, útskrift- arathafnir, aðalfundir og jafnvel möguleikar á kvikmyndasýningum, til dæmis í tengslum við kvik- myndahátíðir. Einnig verða fjöl- mörg tækifæri til að nýta anddyri og önnur opin rými fyrir einfaldari viðburði, sýningar og móttökur.    Ljóst má vera að Tónlistarhúsiðer að minnsta kosti ekki að- eins ætlað tónlist. Og eins og um- ræður síðustu mánuði og misseri hafa borið með sér ríkir heldur ekki nein sátt um það hvernig tón- list á að flytja í húsinu. Óperuunn- endur hafa látið mikið í sér heyra en Kjartan er í forsvari fyrir öllu breiðari hóp í tónlistarlífi lands- manna sem fer fram á að sérstakur 200 manna kammersalur verði hafður í húsinu. Sem stendur er gert ráð fyrir 450 manna sal í hús- inu en hann þykir ekki henta kammertónleikum sem munu vera um það bil 90% alls tónleikahalds í Reykjavík og nágrenni ef marka má orð Kjartans. Í því ljósi hlýtur áskorun breiðs hóps tónlistar- manna um 200 manna kammersal að vera íhugunarefni fyrir aðstand- endur Tónlistarhússins. Meginvandi forsvarsmanna húss- ins virðist þó vera hugmyndin um að húsið eigi að vera fjölnota. Hún verður auðvitað til vegna þess að ekki er talin nein fjárhagslega for- senda til þess að reisa hér hús sem er sérstaklega ætlað tónlistarflutn- ingi. Spurningin er hins vegar hvernig eigi að samræma fjöl- breytta notkunarmöguleika. Þór- unn og Svanhildur vekja máls á þessum vanda í greinargerð sinni og leggja áherslu á að skýr stefna og styrk stjórn verði að vera fyrir hendi til þess að rekstur hússins gangi upp. Þær benda einnig á að ekki nægi að horfa til tónlistar- og menningarstarfsemi á landinu nú um stundir þegar byggingin sé hönnuð, húsið sjálft muni skapa nýja viðburði og nýjan hóp gesta og því þurfi að horfa fram á veginn þegar ákvarðanir um nýting- armöguleika þess séu teknar.    Þegar öllu er á botninn hvolft lít-ur því út fyrir að bygging þessa húss sé ekki aðeins spurning um það hvernig og hvort það eigi að koma ákveðnum tegundum tón- listar fyrir í því, framkvæmdin snýst ekki síður um það hvernig tónlistar- og menningarlíf við sjáum fyrir okkur í borginni á næstu árum og áratugum. Hér hljóta ýmsar spurningar að vakna. Í greinargerðinni er til dæmis mælt með því að stóri salurinn verði 1800 manna í stað 1500 manna. Hvernig viðburði þarf til þess að fylla slíkan sal um það bil hundrað sinnum á ári? Hvernig hús, hvernig menning? ’Þegar öllu er á botninnhvolft lítur því út fyrir að bygging þessa húss sé ekki aðeins spurning um það hvernig og hvort það eigi að koma ákveðnum tegundum tónlistar fyrir í því …‘ AF LISTUM Þröstur Helgason throstur@mbl.is BALLETT rússnesk-bandaríska tónskáldsins Igors Stravinskis, „Petruschka“, var frumsýndur í Vínar- óperunni í gær, ásamt þremur öðrum verkum. Dans- arinn Shoko Nakamura er hér í essinu sínu á aðal- æfingu fyrr í vikunni. Leikmynd gerir austurríski listamaðurinn Christian Ludwig Attersee. Reuters Petruschka í Vínaróperunni www.listasafnreykjavikur.is ... meira fyrir áskrifendur Tveir fyrir einn Morgunblaðið býður áskrifendum tvo miða á verði eins á sýninguna Nían – Myndasögumessa í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, gegn framvísun þessarar auglýsingar. Tilboðið gildir til 28. mars. AUSTURBAER.IS KRISTNIBRAUT 15 Vorum að fá til sölu glæsilegt parhús á frábærum útsýnis- stað í Grafarholtinu. Húsið er á tveimur hæðum, 5 svefnher- bergi, bílskúr innbyggður í húsið. Vandaðar innréttingar, stutt í skóla og þjónustu. Húsið verður til sýnis um páskana. Nán- ari upplýsingar gefur Þröstur í síma 897 0634. Þingholtsstræti 27 • Sími 533 1122 • Fax 533 1121 Þröstur Þórhallsson, löggiltur fasteignasali, sími 897 0634 Magnús Kristinsson, verkfr., sími 861 0511
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.