Morgunblaðið - 30.03.2005, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Skjálftinn í fyrradag var gífurlega
öflugur, mældist 8,7 á Richters-
kvarða og fannst ekki aðeins í
Indónesíu, heldur einnig í mörgum
öðrum Suðaustur-Asíuríkjum, s.s.
Malasíu og Singapore. Mikil skelfing
greip um sig á þessum slóðum, enda
óttuðust menn að sambærileg flóð-
bylgja myndi ríða yfir í kjölfar
skjálftans og sú sem varð hátt í
300.000 manns í ellefu löndum að
bana 26. desember sl.
Gáfu yfirvöld í mörgum landanna,
sem urðu hvað verst úti í desember,
út viðvörun vegna yfirvofandi flóð-
bylgju en hún kom hins vegar aldrei.
Skjálftinn sjálfur olli þó umtalsverðu
manntjóni á a.m.k. tveimur stöðum,
sem fyrr segir.
1.000 látnir á Nias?
„Eyðileggingin blasir við um leið
og þú lendir í borginni,“ sagði Aless-
andra Villas-Boas, talsmaður bresku
hjálparsamtakanna Oxfam, sem
komin voru til Gunung Sitoli, höfuð-
staðar Nias í gær. „Það er verið að
grafa lík úr rústum húsa einmitt á
þessari stundu.“ Sögðu starfsmenn
Oxfam að rafmagnslaust væri í borg-
inni, tuttugu þúsund manns væru án
aðgangs að vatni og götur væru illa
farnar eftir skjálftann.
Um þriðjungur húsa í borginni var
sagður hafa eyðilagst í skjálftanum.
Mikill skaði varð líka í næststærstu
borg Nias, Teluk Dalam. Um 700.000
manns búa á eyjunni en hún er vin-
sæll ferðamannastaður.
Budi Atmaji Adiputro, talsmaður
almannavarna í Indónesíu, sagði að
búið væri að finna 330 lík í rústum
húsa í Gunung Sitoli, 100 lík til við-
bótar höfðu fundist á Simeulue-eyju,
að sögn embættismanna. Adiputro
sagði líklegt að tala látinna ætti eftir
að hækka og Jusuf Kalla, varaforseti
Indónesíu, sagði í samtali við BBC
að „hugsanlega væru meira en 1.000
manns látin á Nias einni og sér“.
Samgöngur gengu erfiðlega, að
sögn embættismanna, enda margar
brýr og götur ónýtar. Gekk því erf-
iðlega að komast til afskekktari
staða á eyjunni.
Margir íbúar Gunung Sitoli voru
sagðir hafa flúið til fjalla, minnugir
flóðbylgjunnar sem fylgdi jarð-
skjálftanum undan vesturströnd
Indónesíu í desember. Aðrir sögðu
frá þeirri hræðslu sem greip þá þeg-
ar allt tók að hristast, en jarðskjálft-
inn skall á seint um kvöld að stað-
artíma. „Ég var steinsofandi þegar
skjálftinn varð en vaknaði nægilega
snemma til að vera kominn fram úr
rúminu þegar þakið hrundi ofan á
það,“ sagði til að mynda Serasi Hulu,
tvítugur námsmaður sem handleggs-
brotnaði í hamförunum.
„Áður en ég komst út úr húsinu
hafði þó hluti þaksins lent ofan á mér
og ég var fastur í margar klukku-
stundir með tveimur skólabræðrum
mínum,“ bætti Hulu við í samtali við
AFP-fréttastofuna. Hann sagðist
halda að félagar hans hefðu dáið.
Mikil skelfing greip um sig
Þau svæði sem urðu verst úti í des-
ember – eins og til að mynda borgin
Banda Aceh í Indónesíu – sluppu aft-
ur á móti tiltölulega vel í skjálftanum
í fyrradag og er ástæðan sögð sú að
hamfarirnar í desember voru svo
miklar að þar standa einfaldlega
engin hús uppi sem hefðu getað
hrunið í skjálftanum nú.
Íbúar Banda Aceh urðu þó mjög
óttaslegnir. „Þetta var hræðilegt,
það eina sem ég gat hugsað um var
að komast strax út úr húsinu og að
bjarga þriggja og hálfs mánaðar
dóttur minni,“ sagði einn íbúa borg-
arinnar, Marlina. „Þetta var eins og
að upplifa aftur hryllinginn frá því
fyrir þremur mánuðum,“ sagði ann-
ar íbúi Banda Aceh, Fatheena Fal-
eel, en hún flúði heimili sitt ásamt
þremur börnum sínum.
Yfir 1.000
fórust í
Indónesíu
Þriðjungur húsa í stærstu borg-
inni á Nias-eyju sagður í rúst
eftir jarðskjálftann í fyrradag
Gunung Sitoli. AP, AFP.
ÓTTAST er að hátt í tvö þúsund manns hafi beðið bana í jarðskjálft-
anum sem varð á hafsbotni við vesturströnd Súmötru í Indónesíu í
fyrradag. Búið var í gær að grafa a.m.k. 430 lík úr rústum húsa á
tveimur eyjum, Nias og Sumeulue, sem urðu hvað verst úti og talið
ljóst að fleiri lík myndu finnast. Yfirvöld í Indónesíu hafa lýst yfir
neyðarástandi en margar þjóðir hafa þegar heitið þeim fjárhags-
aðstoð og ýmsar hjálparstofnanir voru komnar til Nias í gær og
höfðu hafið hjálparstarf þar.
APGífurlegar skemmdir urðu á byggingum í tveimur helstu borgum Nias-eyju.
Indónesískur maður hjúkrar konu
sinni í Gunung Sitoli í gær.
HVORKI gengur né rekur á íraska
þinginu að koma saman stjórn í Írak
en nú eru að verða liðnir tveir mán-
uðir frá kosningum í landinu. Þá hef-
ur ekki enn tekist að finna þinginu
forseta vegna ágreinings milli þing-
manna en embættið er frátekið fyrir
súnníta.
Sjítar og Kúrdar, sigurvegararnir
í kosningunum, vilja reyna að koma í
veg fyrir algera einangrun súnníta
með því að skipa mann úr þeirra röð-
um í embætti þingforseta en fundur
um það mál bar hins vegar engan ár-
angur í gær. Sagt er, að sjítar vilji fá
súnnítann Fawaz Jarba í embættið
en hann gekk til liðs við þá í þing-
kosningunum. Kúrdar eru síðan
sagðir styðja annan súnníta og hinir
20 þingmenn súnníta eru klofnir í
málinu. Reynt var að fá súnnítann
Ghazi al-Yawar, fráfarandi forseta,
til að taka embættið að sér en hann
hafnaði því.
Þessi dráttur, sem orðið hefur á
skipan nýrrar stjórnar, hefur valdið
reiði meðal margra þingmanna.
Einn þeirra, Hussein al-Sadr úr
flokki Iyads Allawis, fyrrverandi for-
sætisráðherra, spurði í gær hvað
þingmenn ættu að segja við kjósend-
ur, sem hefðu hætt lífi og limum með
þátttöku sinni í kosningunum.
Í umræðum um þessi mál á þingi
stormaði Allawi út úr þingsalnum í
mótmælaskyni og einnig Ghazi al-
Yawar.
Fyrir utan þennan ágreining deila
sjítar og Kúrdar enn um ýmis ráð-
herraembætti. Gera Kúrdar kröfu til
embættis olíumálaráðherra en sjítar
eru harðir á því að fá það.
Lítið gengur að koma
saman stjórn í Írak
Mikill ágreiningur milli
flokka á íraska þinginu
Bagdad. AFP.
ÞRIGGJA rúmenskra blaðamanna,
tveggja karlmanna og einnar konu,
er saknað í Írak. Skýrði rúmenska
utanríkisráðuneytið frá því í gær en
fólkið var í Írak á vegum sjónvarps-
stöðvarinnar Prima TV.
Þetta mál kemur upp í kjölfar
skyndiheimsóknar Traians Basesc-
us, forseta Rúmeníu, til Íraks á
sunnudag en þar eru nú 800 rúm-
enskir hermenn. Hyggst Basescu
fjölga þeim um 100.
Dan Dumitru, fréttastjóri Prima
TV, segir, að hringt hafi verið á stöð-
ina síðla mánudags og í símanum
hafi mátt heyra „menn tala á arab-
ísku og fréttakonuna Marie-Jeanne
Ion kalla á ensku „drepið okkur ekki.
Við erum fréttamenn, við erum ekki
með neina peninga““.
Nokkrum mínútum eftir sím-
hringinguna sendu fréttamennirnir
frá sér SMS-boð, á þessa leið: „Okk-
ur hefur verið rænt. Þetta er ekkert
grín. Hjálpið okkur.“
Basescu sagði við komuna frá
Írak, að sérstök neyðarnefnd hefði
verið skipuð til að vinna í þessu máli
og samband haft við leyniþjónustu
bandamanna Rúmenía í Írak.
Fréttamönnum
rænt í Írak
Búkarest. AFP.
!" #$%!&'(')(%#*+,-
&
'#
(
?
& $ ? $ 1&&/7&
&
?
&)
? $ 1&&/7&
& * ? +&+, -
? +&.* ? P1
+&.
? $ 1&&/7&
+&/( 01-
?
+&/
+&
$
+&
1-%(
+&
(0(2$
)
)
)3
/ +
)
)
)4
4.
&
2"# / " &&
L" "
<" " && ; 06 Q
$?
)
JARÐSKJÁLFTINN við Súmötru í
fyrradagolli ekki flóðbylgju vegna
þess, að jarðskorpan hlýtur að hafa
gengið niður en ekki upp. Var það
haft eftir breskum jarðskjálftafræð-
ingi í gær.
David Booth hjá bresku jarð-
fræðistofnuninni sagði það hafa
komið sér á óvart, að engin flóðalda
skyldi hafa fylgt skjálftanum, sem
hefði verið mjög öflugur og á líku
dýpi og skjálftinn á öðrum degi jóla.
„Svo virðist sem skjálftinn á
mánudag hafi ýtt jarðskorpunni nið-
ur en fyrir þremur mánuðum færð-
ist hún upp og kom þá af stað flóð-
inu,“ sagði Booth.
Sérfræðingar sögðu í gær að enn
væri ýmislegt á huldu um skjálftann
í fyrradag. Hann þyrfti að rannsaka
og þá ekki síst með tilliti til þess að
hann hefði ekki valdið flóðbylgju.
Nefnt var að skjálftinn nú hefði trú-
lega verið á meira dýpi en land-
skjálftinn ógurlegi sem reið yfir á
öðrum degi jóla. Þá hefði sá verið
mun öflugri en sá sem varð nú enda
er Richter-kvarðinn lógaryþmískur
og munurinn gífurlegur hvað styrk
varðar þótt einungis muni einu stigi
eða minna á þeim kvarða. Þannig
var skjálftinn sem varð í desember
mun öflugri en sá sem reið yfir í
fyrradag. Allir þessir þættir, þ.e.
hreyfingin á hafsbotni, dýpt skjálft-
ans og styrkur hafi sýnilega verkað
saman á þann veg að flóðbylgja hafi
ekki myndast. Hins vegar liggur fyr-
ir að minni skjálftar en sá sem varð í
fyrradag geta valdið flóðbylgjum.
Miðja skjálftans sem varð í fyrra-
dag var aðeins um 160 kílómetra
suðaustur af miðju skjálftans sem
reið yfir í lok desember.
Hreyfingin var
niður, ekki upp
London. AFP.